Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
RISC MAC-tölva
framundan?
Fyrir nokkrum dögum kynntu
APPLE og Acom-fyrirtækið sam-
starfsfyrirtæki, sem kallað er ARM.
Tilgangur með stofnuninni er að
vinna að frekari hagnýtingu á RISC-
örgjörvatækni Acorn-fyrirtækisins.
Er hald manna að þetta boði að
APPLE muni á næstunni nota þenn-
an RlSC-örgjörva í eitthveija nýja
tölvu frá APPLE sem komi á markað
í fyrsta lagi eftir tvö ár. Fram að
þessu hefur Acom fyrst og fremst
verið þekkt fyrir BCC kennslutölvur
sínar, en þær eru mjög vinsælar í
skólum hér. RlSC-örgjörvinn er með-
al annars í Archimedes-tölvunni frá
Acorn. Umboðsaðilar hér á landi em
Japis.
KÓS fækkar í tölvudeild
Kristján Ó. Skagfjörð, KÓS, sagði
upp um mánaðamótin sex manns í
tölvudeild sinni. Koma þessar upp-
sagnir í kjölfar uppsagnar á átta
manns í tölvudeild KÓS í september
og yfirmannaskipta hjá fyrirtækinu.
Hafa 'sfðustu tvö ár verið erfið hjá
tölvudeild KÓS eins og hjá fleirum
en nú hefur verið ákveðið að leggja
aðaláherslu á Digital-umboðið.
Einar J. Skúlason
með Cabletron
Fyrir nokkurum dögum var haldin
kynning hjá Einari J. Skúlasyni,
EJS, á nýjungum frá Cabletron Inc.,
en EJS hefur haft umboð fyrir það
fyrirtæki um nokkuð skeið. Helsta
nýungin hjá Cabletron var netstjóm-
unarhugbúnaður sem notar SNMP-
samskipti við hin ýmsu tæki og tölv-
ur sem geta verið samtengdar. Legg-
ur fyrirtækið sem er kennt við kapla,
mikla áherslu á netlagnir og búnað
sem tengjast þeim. Hafa þeir nýlega
farið útí að bjóða heildarlausnir í
öllu er lýtur að bæði staðar- og fjart-
ölvunetum. Það að bjóða netstjómun-
ar- og eftirlitshugbúnað er eðlilegt
framhald af því að geta boðið við-
skiptavinum heildarlausnir, segir
sölustjóri Cabletron á Norðurlöndum,
Mats Flodin, sem hélt kynninguna.
L‘
*
fS
«í
7
cl
b
i
íi
V
A
P
>
i
J
r
*j
&
*
3
E R SKEKKJA
í DÆMINU?
Getur verið að þú sitjir ekki rétt við vinnu - að þú fáir ekki
réttan stuðning við bakið - að afstaða milli baks og setu sé
ekki rétt? Getur verið að þú sitjir á ómögulegum stól?
ERO er stóllinn sem rúmlega 25 þúsund íslendingar
sitja á við vinnu sína. Skýringin er augljós.
ERO-stólarnir eru hannaðir í samvinnu við lækna
og sjúkraþjálfara og hverjir vita betur en þeir hvernig góðir
vinnustólar eiga að vera?
ERO-stólana stillir hver og einn að eigin þörfum.
Mismunandi stiliingar á baki, setu og hæð.
ERO-stóiarnir tryggja vinnuveitendum aukin og betri afköst
starfsmanna sinna.
ERO-stólarnir tryggja stuðning í starfi með betri
líðan og meiri afköstum.
ERO-stólarnir eru fáaniegir í 3 gerðum
með margvíslegum aukaútbúnaði
og mismunandi áklæði.
ERO-stólarnir eru með 5 ára ábyrgð.
ERO þýðir árangur í starfi.
ERO tryggir þér öruggan SESS.
Frá og með næstu áramótum verður SESS
með einkasöluleyfi á ERO-stólunum.
t \
3
1«-
\
\
I
Lí
$
'i
*
(X
/,
't.
7
0
'U
>;
ri
p
4
9]
i
í*1
r-
r.
FAXAFENI 9 0679399
ruT.
d
n
A
1
Z:
;C
X
Tölvupistill
Holberg Másson
Framtíðarsýn
Bill Gates
AÐALRÆÐUMAÐUR á stærstu
tölvusýningu ársins í Banda-
ríkjunum, „COMDEX/Fall ’90“,
var að þessu sinni Bill Gates,
stjórnarformaður Microsoft hug-
búnaðarfyrirtækisins. í ræðu
sinni horfði Bill til þeirrar fram-
tíðar að einmenningstölvur væru
aðgangur okkar að nánast óend-
anlegum upplýsingum á mjög
auðveldan og fullkominn hátt.
„COMDEX/Fall ’90“ var eins og
jafnan haldin í byrjun nóvember
i Las Vegas í Bandaríkjunum,
sóttu sýninguna að þessu sinni
yfir 130.000 manns.
Örsmáar
einmenningstölvur
Bill Gates var með frumútgáfu
af vasabrotstölvu sem hann sagði
geta numið sögð fyrirmæli, hægt
er að skrifa á skjáinn með sprota
,og getur haft samband við móður-
tölvu með litlum farsíma sem er
sambyggður tölvunni. Bill ræddi um
þá tækni sem mun gera einmenn-
ingstölvum mögulegt að eiga við
bandmyndir, rödd og skrift, jafn
auðveldlega og aðrar upplýsingar.
Bill sagði þetta vera ótrúlega erf-
itt, „ekkert eitt fyrirtæki mun geta
gert slíkt...“ Til að þetta sé mögu-
legt verða öll helstu tölvufyrirtæki
heims í vél- og hugbúnaði að vinna
saman við upplýsingasöfnun, til að
hver sem vill gæti haft nánast ótak-
markaðar upplýsingar á hraðbergi.
Bill Gates sýndi á stórum skjá
ráðstefnuaðstöðunni í Hilton-hótel-
inu, þar sem frægir skemmtikraft-
ar, eins og t.a.m. Elvis Presley,
hafa komið fram. Hann sýndi með
stuttum kvikmyndum ýmilegt sem
verður tæknilega framkvæmanlegt
á næstu árum. Sýnt var hvernig
samtvinnuð var myndræn fram-
setning við kvikmyndir þar sem
tölvan talaði og birti á skjánum
myndir. Sýnt var þegar sölumaður
fór með verslunarmanni yfir þær
vörur sem hann hafði pantað, kvitt-
aði fyrir, merkti við þær pantanir
sem búðareigandinn staðfesti
ásamt magni og breytti pöntun sem
var ekki rétt. Þegar verslunareig-
andinn var óviss um hvort hann
vildi kaupa ákveðna vöru, kallaði
sölumaðurinn fram línurit þar sem
sýnt var að á ákveðnum árstíma
var mjög mikil sala á viðkomandi
vöru og það væri best fyrir verslun-
areigandan að kaupa. Hann ákvað
að slá til og einnig að bæta við
nokkrum vörum til viðbótar, en þá
tilkynnti tölvan að verslunarmaður-
inn hefði ekki heimild til að taka
út svo mikið af vörum. Sölumaður-
inn bað um úttektarheimild og fékk
staðfestingu á að verslunarmaður-
inn gæti keypt fyrir úttektartak-
mörk, en þá var verslunarmaðurinn
beðinn um að gefa undirskrift sína
með penna inn á tölvuna og stað-
NIÐURHENGD LOFT
CMC Karfi fyrír nióurhengd lo«, *r ur
gahranÍMruóum málmi og eldþolió.
CMC kerfi er auðvelt i uppsetningu
og m|og sterkt.
CMC kerfl er fest með stillanlegum
upphengjum sem þola allt a&
50 kg þunga.
CMC kerfi faest i mörgum ger&um bas&i
sýnilegt og falið og veröift er
Otrulegs Itfgt.
CMC kerfi er serstaklegk hannad
fyrir loftplötur frð Armstrong
Hnngiö eftir
Irekan upplysmgum
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Reykavik - sími 38640
FRAMTÍÐAR-
TÖLVA —■ Bill Gates,
stjómarformaður Microsoft með
byltingarkenda fartölvu.
festa þar með kaup hans og sam-
þykki fyrir að fara yfir heimild.
Þannig var búið að fá undirskrift
verslunarmannsins fyrir viðskiptun-
um og þau voru afgreidd.
Bill Gates, sem er 35 ára, sagði
að tæknin sem hann væri að sýna
væri ekki draumur sinn, heldur
væri hún til staðar eða til í rann-
sóknastofum. Það þyrfti gera svo
auðvelt að nota tölvur að hver sem
er gæti notað þær án sérstakrar
þjálfunar. Einmenningstölvur verða
fyrst persónuleg verkfæri okkar
þegar „hver sem er getur notað
tölvuna til hins ítrasta án þess að
fá aðstoð, nema frá og í gegnum
tölvuna". Að loknu erindi Bill Gates
var COMDEX/Fall ’90 ráðstefnan
og tölvusýningin formlega opnuð.
Áhugaverðir fyrirlestrar
Gilbert Hyatt, sem fékk nýlega
viðurkenda einkaleyfisumsókn sína
fyrir örgjörvum, sem hann sótti um
1968, hélt erindi um „ransóknir og
uppfyndingar í tölvuiðnaðinum".
Gilbert tilkynnti þar að honum hefði
verið nýlega verið veitt einkaleyfi
fyrir aðferð til að þrefalda hraða
lesturs minniseininga. Er Gilbert
nú í samningum við helstu tölvu-
framleiðendur um hve mikið þeir
þurfa að borga honum fyrir einka-
leyfí hans, en hundruðir miljóna
dollara hafa verið nefndar. Mjög
áhugaverðir fyrirlestrar voru haldn-
ir um áhrif sameinaðs markaðar
Evrópu eftir 1992, um þróun í sölu-
málum tölvuiðnaðarins í Banda-
ríkjunum, um þróun helstu stýri-
kerfa og tölvuneta á næstu árum.
Aðstaða öll var til fyrirmyndar á
ráðstefnunni og á sýningunni, yfir
1.800 blaðamenn sóttu ráðstefnuna
og var vel að þeim búið. Var meðal
annars starfrækt útvarps- og sjón-
varpsstöð á ráðstefnunni og gefið
út hátt á annað hundrað síðna dag-
blað. Meðal annarrar þjónustu við
blaðamenn var samantekt á fyrir-
huguðum blaðamannafundum, sem
voru yfír 50, og móttökum, sem
voru yfir 200, en á þeim lista voru
ekki þær móttökur sem búið var
að bjóða undirrituðum á. Dugði vik-
an skammt til að skoða allt sem
fyrir bar.
Höfundur starfar við tölvuráðgjöf