Morgunblaðið - 06.12.1990, Síða 12

Morgunblaðið - 06.12.1990, Síða 12
 VIÐSKIPn AIVINNUIÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBBR 1990 ÍSLENSKUR FORSTJÓRI Framleiðsla In Focus Systems Inc. Hátækni Ameríski draumurinn aðrætasthjá Eysteini Þórðarsyni Er orðinn forstjóri bandarísks hátæknifyrirtækis EYSTEINN G. Þórðarson tók við sem forstjóri hjá bandaríska tölvufyrirtækinu „In Focus Syst- ems Inc;“ hinn 1. október síðast- liðinn. Útsendari viðskiptablaðs- ins, Holberg Másson gekk óvænt fram á Eystein þar sem hann var í sýningarbás fyrirtækis síns á stærstu tölvusýningu ársins í Bandaríkjunum, „COMDEX/Fall ’90“, sem haldin var nýlega. Greip hann tækifærið og spurði Eystein um hagi hans og fyrir- tækið. Langur starfsferill Eysteinn, sem er verkfræðingur að mennt, keppti á skíðum á Vetrar- ólympíuleikunum í Bandaríkjunum árið 1960. I kjölfar þess flutti hann til Kaliforníu og hóf störf hjá ýms- um bandarískum hátæknifyrirtækj- um. Vann hann m.a. hjá Raytheon ‘og síðan Ampex, en þar var hann um tíma yfirmaður Evrópudeildar fyrirtækisins. Síðar tók hann við sem yfirmaður allra framleiðslu- deilda Ampex. Hjá símtækjafyrirtækinu CONT- EL í Los Angeles var Eysteinn í þijú ár. Fujitsu réð hann síðan til sín til að bygga upp framleiðslu þessa japanska fyrirtækis á tölvu- búnaði í Bandaríkjunum. Fjórum árum seinna velti sú framleiðsla yfír 250 milljónum dollara á ári. í byijun október síðastliðinn tók hann síðan við sem forstjóri hjá „In Foc- us Systems Inc.“. „In Focus Systems Inc.“ Fyrirtækið IFSI var stofnað fyrir fjórum árum. Það byrjaði sem þró- unarfyrirtæki til að vinna að út- færslu á „LCD“ flötum tölvuskjám og hefur fyrirtækið einkaleyfi á mjög háþróaðri tækni til að fram- leiða slík tæki. „In Focus Systems Inc.“ var stofnað af tæknimönnum Eysteinn Þórðarson sem höfðu hugmyndir um hvernig mætti búa til nýja flata tölvuskjái og fengu áhættufjármagnsfyrir- tæki til að leggja 10 milljónir doll- ara í fyrirtækið. í dag starfa hjá fyrirtækinu tæp- lega tvöhundruð manns og það velt- ir um 50 milljónum dollara. Er þró- un, markaðssetning og sala í Bandaríkjunum en framleiðslan á búnaði þessum hefur verið keypt að frá Japan. Framundan er að færa framleiðsluna til Banda- ríkjanna og byggja eigin verksmiðju þar í því skyni. Er gert ráð fyrir að kostnaður við að reisa verksmiðj- una verði 30 til 50 milljónir dollara. Var Eysteinn ráðinn m.a. vegna þekkingar sinnar og reynslu á að byggja upp og reka slíkar verk- smiðjur. Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að veltan verði um 200 milljónir dollara eftir tvö ár. „LCD“ flatir tölvuskjáir Aðalframleiðsla fyrirtækisins er, eins og áður segir, flatir tölvuskjáir með svokallaðri TFT smára (transistor) tækni. Framleiða þeir mikið af 10 'A tommu skjám, bæða lit og svarthvíta. Eru þessir skjáir mikið notaðir á myndvarpa, en þannig er hægt að varpa skjámynd á stórt tjald. Skjáir frá fyrirtækinu þykja einstaklega skai'pir. Þeir eru einnig með góða lausn, 640x480 punktar og 4.913 liti. Fljótlega koma á markaðinn skjáir frá fyrir- tækinu með 1.200x1.000 punkta lausn. Á COMDEX sýningunni sýndi fyrirtækið að auki nýjung, samtengdan myndvarpa og tús- stöflu. In Focus Systems Inc. hefur stað- ið sig vel í markaðssetningu, því að þegar eru vörur fyrirtækisins seldar í 57 löndum og hefur fyrir- tækið umboðsmenn í 30 löndum. Fyrirtækið hefur um 500 endurselj- endur í Bandaríkjunum og er nú í viðræðum við stærstu tölvufram- leiðendur heims um að þau noti tækni fyrirtækisins í vörum sínum. Góðar horfur Eysteinn segir að fyrirtækið hafi nú um 2 til 3 ára forskot á markað- inum, það hafi nú um 35% markaðs- hlutdeild og fari hún vaxandi. „Hlutverk mitt er að halda áfram uppbyggingu fyrirtækisins og er að því stefnt að bjóða hlutabréf á al- mennum markaði eftir um tvö ár.“ Þetta skiptir Eysteinn mjög miklu máli þar sem hann hefur kauprétt á dágóðum fjölda hluta- bréfa á lágu verði og ef vel tekst til með hlutafjárútboð þá er einsýnt að Eysteinn verður sterkefnaður maður. Eystein talar mjög góða íslensku og kemur hingað til lands um það bil einu sinni á ári ef hann getur. Bróðir hans er Jón Þórðarson kenndur við Reykjalund. Fólk Burðarás og kúgildi ■ RAGNAR Önundarson fram- kvæmdastjóri hjá íslandsbanka er jafnan með hressustu mönnum á ráðstefnum og mannamótum við- skiptalífsins. Hann var eins og fleiri gestur á afmælisráð- stefnu Hluta- bréfamarkað- arins á Holliday Inn á dögunum og hlýddi þar m.a. Ragnar á ágætt erindi Þorkels Sigur- laugssonar í Eimskip þar sem lýst var tvenns konar hluthafahópum erlendis, annars vegar svonefndum „propriator“ sem eru hinir sauð- tryggu fjárfestar sem aldrei selja hvað sem á dynur og hins vegar „punters" sem eru fjárhættuspilar- arnir á hlutabréfamarkaðinum og alltaf á höttum eftir auðfenginni bráð. Þorkell lagði ekki í að þýða þessi ensku hugtök en Ragnar reis þá úr sæti og kvaðst ekki hafa á hraðbergi þýðingu á „punters“ en aftur á móti væri gráupplagt að þýða „propriators" sem burðarása og það hlyti að láta vel í eyrum Eimskipafélagsmanna. ■ Ragnar lét ekki hér við sitja. Þegar Svanbirni Thoroddsen hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka var að ræða um íslenska hlutabréfa- markaðinn í ljósi þekktustu kennit- alna, varð honum tíðrætt um Q- hlutfallið sem er aðferð til að meta verð hlutabréfa og finnst þegar innra virði fyrirtækisins ( þ.e. eigið fé deilt með hlutafé) er deilt upp í sölugengi hlutabréfanna á markað- inum. Ragnar stakk þá upp á því að fornfræg verðmætaeining úr sögunni yrði endurvakin og hér eft- ir yrð’i þetta hlutfall kallað kú- gildi. Samkvæmt orðabók Menn- ingarsjóðs er kúgildið eða kvígildið jafngildi einnar kýr að verðmæti, t. d. sex ær loðnar og lembdar, og að fornu misverðmætt eftir héruð- um og tímabilum, t.d. um árið 1200 u. þ.b. 3 vættir osts og smjörs og á 15. öld 120 gildir fiskar, svo að það er e.t.v. alls ekki út í bláinn að kúgildið fái nú nýja merkingu á hlutabréfamarkaði. V.S.I. ræður öryggisráð- gjafa M ÁSBJÖRN Björgvinsson hefur verið ráðinn til Verkfræðistofu Snorra Ingi- marssonar (V.S.I) til að ánnast örygg- isráðgjöf. V.S.I. var stofnuð árið 1987 ogereina verkfræðistof- an sem sérhæf- ir sig í öryggis- ráðgjöf hérlendis, segir í frétt frá stofunni. Ásbjörn mun starfa við almenna ráðgjöf í öryggismálum en sérsvið hans verða brunavarnir og brunaviðvörunarkerfi ásamt út- tektum og prófunum á þessum bún- aði. ■ Ásbjörn Björgvinsson lauk raf- virkjanámi árið 1979. Hann hefur aflað sér sérfræðiþekkingar og reynslu á sviði öryggismála en hann starfaði m.a. í níu ár við ráðgjöf og hönnun öryggiskerfa hjá Vara hf. NIB selur skulda- bréf á tslandi MÞORSTEINN Þorsteinsson, að- stoðarbankastjóri við Norræna fjárfestingabankann, NIB, tók í haust við nýrri stöðu sem for- stöðumaður á því sviði sem sér um innlán bankans svo sem skulda- bréfaútgáfu og skulda- skipti. NIB íjármagnar lánastarfsemi Þorsteinn sína með skuldabréfaútgáfum á norrænum og alþjóðlegum fjár- magnsmörkuðum. Hingað til hefur bankinn ekki selt skuldabréf á Is- landi, en samkvæmt frétt frá NIB mun það breytast á næstunni. Haft er eftir Þorsteini að íslenski fjár- magnsmarkaðurinn sé nú orðinn það svipaður öðrum slíkum á Norð- urlöndum að ekki sé eftir neinu að bíða. NIB stefnir að því að bjóða skuldabréfin til sölu á íslandi á næsta ári og þá í íslenskum krónum. Theodór Agnar tilNIB MTHEODÓR Agnnr Bjarnason, sem vann áður við mat lánsum- sókna hjá Iðnþróunarsjóði íslands hefur tekið við svipuðu starfi hjá NIB í Dan- mörku þar sem hann met- ur nú lánsum- sóknir Dana í stað Islend- inga. í frétt frá NIB segir að Theodór Agn- ar, sem er danskættaður, hafi flutt til Dan- merkur af fjölskylduástæðum og það hafi verið eðlilegt framhald af störfum hans á íslandi að sækja um hjá norrænni stofnun líkt og NIB. F.v. Þórhildur Gunnarsdóttir fram- kvæmdastjóri, Lill Nylen fulltrúi Hus qvarna og Erla Asgeirsdóttir sölustóri. Verslunin Völu- steinn opnuð MÞÓRHILDUR Gunnarsdóttir og Magnús Jónsson opnuðu nýlega verslunina Völustein í Faxafeni 14. Völusteinn er einkaumboðsað- ili fyrir Husqvarna og Brother saumavélar og Hitachi handverk- færi og öll viðgerðarþjónusta fyrir þessar tegundir er hjá Völusteini. Þá er búðin með einkaumboð fyrir Panduro og Fredensborg Inköb- central föndurvörur. Þessi fyrir- tæki gefa út eigin vörulista með yfir átta þúsund vörunúmerum. Völusteinn sér um að panta úr list- anum fyrir viðskiptavini. Hingað til hefur Völusteinn einungis selt vör- ur sínar í heildsölu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.