Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 1
56 SIÐUR B
13.tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
HAEÐAR LOFTARASIR A
HERNAÐARSKOTMÖKK
í BAGDAD OG KÚVEIT
Washington. Reuter.
FRELSUN Kúveit hófst í gærkvöldi en á
miðnætti að íslenskum tíma hófu sprengju-
þotur herliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) loft-
árásir á Bagdad, höfuðborg Iraks, og írösk
skotmörk í Kúveit, að því er Marlin Fitzwat-
er, talsmaður George Bush Bandaríkjafor-
seta, og fulltrúi breska varnarmálaráðu-
neytisins tilkynntu nokkrum mínútum síðar.
Fréttamenn bandarískra sjónvarpsstöðva
Hernaðaraðgerðirnar hófust er
mikill fjöldi F-15E sprengjuþotna
var sendur á loft frá herstöðvum
flölþjóðlega hersins í mið- og aust-
urhluta Saudi-Arabíu klukkan 10
mínútum fyrir eitt í nótt að stað-
artíma, 21.50 að íslenskum tíma.
Um klukkustund síðar voru breskar
Tornado-árásarþotur sendar til bar-
daga frá Bahrain-eyju.
Sprengjuþoturnar komu yfir
Bagdad í fjórum fylkingum með
stuttu millibili og virtist fyrsta lota
loftárásanna yfirstaðin hálftíma
seinna. Flugu þær í mikilli hæð og
virtist ekki saka þrátt fyrir harða
loftvarnaskothríð. Fréttamenn
bættu við að svo virtist sem loft-
varnaskytturnar sæju ekki vélarnar
og vissu ekki fyllilega á hvað þær
ættu að miða.
Hefðbundinn
sprengioddur
Loftinntak
Tomahawk-
stýriflaug
Tomahowk stýiiflougor ernotuð bæði rf flugher og
floto Bondcrikjanna. Ens og oðrarstýriflougarer húo
tölvustýrt flugskeyti með þchjhreyfil. Stýriflouginflýgur
bodslogs við tölvukort og leiðréttirstefnuno soiÁvæmt
skotmörk sín með 30 motro nókvsmri.
Lengd: 6 metrar Hroðl:l 220 kmAkt.
Þvermól: 53 cm Drægni: 2.785 km
Þyngd: 1.144 kg Sprengioddur: 450 kg
Gorbatsjov vill tak-
marka ritfrelsið
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétfor-
seti lagði í gær til að ritfrelsi
yrði afnumið í Sovétríkjunum
og kvartaði sáran undan frá-
sögnum og gagnrýni fjölmiðla
á ofbeldisaðgerðir Rauða hers-
ins í Eystrasaltsríkjunum og
stuðning forsetans við þær.
völdum.
Hefði Gorbatsjov fylgt tillögunni
eftir og hún verið samþykkt hefðu
fjölmiðlar verið settir undir stjórn
Æðsta ráðsins.
lýstu árásunum á borgina og sögðu gífurleg-
ar eldglæringar hafa verið á himni um mið-
nætti og ægilegar sprengingar kveðið við.
Svartir og þykkir reykbólstrar stigu upp
og vélarnar hringsóluðu um borgina að því
er virtist meðan flugmennirnir huguðu að
nýjum skotmörkum. SÖgðu fréttamennirnir
að hver sprengja virtist hitta fyrirfram
ákveðið skotmark.
Eftir fyrstu árásarlotuna á
Bagdad varð stutt hlé en síðan hóf-
ust árásir aftur. Svo virtist sem
megin olíuhreinsunarstöð borgar-
innar hefði orðið fyrir tjóni og jafn-
framt að gerð hefði verið árás ná-
lægt helstu fjarskiptamiðstöð borg-
arinnar, en ekki var ljóst hvort hún
hafði orðið fyrir skemmdum.
Loftvarnarflautur voru þeyttar í
Riyadh, höfuðborg Saudi-Arabíu,
skömmu eftir að árásir hófust á
írak og Kúveit og voru íbúar borg-
arinnar hvattir til að koma sér í
loftvarnarbyrgi. Talið var að gagn-
árás væri yfirvofandi á Dhahran-
flugvöllinn í austurhluta Saudi-
Arabíu í grennd við helstu olíulind-
ir landsins og var öllum óbreyttum
borgurum og starfsliði vallarins
sagt að leita skjóls. Níutíu mínútum
eftir að árásirnar hófust hafði ekki
heyrst um gagnárásir af hálfu Ir-
aka.
ísraelski herinn skipaði borgur-
um landsins að halda kyrru fyrir á
heimilum sínum og búa sig undir
mögulega efnavopnaárás af hálfu
íraka eftir að flugvélar banda-
manna gerðu sprengjuárásir á
Bagdad. Allt virtist með kyrrum
kjörum í Dúbai og Amman í Jórd-
aníu.
Sjá ennfremur fréttir á
19-21.
bls.
Reuter
Saddam Hussein, íraksforseti, lítur á klukku sína er hann kannaði
viðbúnað liðsaflans í Kúveit á þriðjudag. Fréttir í gærkvöldi hermdu
að forsetinn stýrði nú aðgerðum heraflans úr neðanjarðarstjórnstöð
í írak.
Ofbeldisverk sovéska hersins í Litháen:
500.000 manns minnast fóm-
arlambanna á götum Vilnius
Vilnius, Tókíó, Riga. Reuter.
ALLT AÐ hálf milljón manna kom í gær saman á götum Vilnius,
höfuðbörgar Litháens, til að minnast þeirra þrettán Litliáa sem drepn-
ir voru í ofbeldisaðgerðum Rauða hersins í bórginni aðfaranótt sunnu-
dags. Margir héldu á blómum og kertum er líkkistur fórnarlamb-
anna, málaðar í fánalitum Litháens, voru fluttar á gráum líkvögnum
til dómkirkjunnar í borginni, þar sem níu þeirra voru jarðsungin.
Gorbatsjov sagði við umræður í
Æðsta ráðinu að nauðsynlegt væri
að „hafa eftirlit með hlutlægni" fjöl-
miðla. Harðlínumenn fögnuðu yfir-
lýsingu hans með lófaklappi en hún
ærði hins vegar fijálslynda þing-
menn og umbótasinna sem sögðu
ritfrelsi og hlutlægni fjölmiðla mik-
ilvægasta ávöxt glasnost-stefnu
forsetans og spurðu hvað orðið
væri af henni. Dró Gorbatsjov síðar
í land og sagðist ekki myndu fylgja
tillögunni eftir en engu að síður
samþykkti þingið að settar yrðu
reglur „til að tryggja hlutlægni".
Gorbatsjov réðst að vikuritinu
Moscow News sem birti yfirlýsingu
á forsíðu frá frjálslyndum aðilum,
m.a. tveimur helstu efnahagsráð-
gjöfum hans, þar sem sagði að blóð-
baðið í Litháen sl. sunnudag væri
glæpur stjórnar sem hygðist grípa
til allra tiltækra ráða til að halda
Ungar litháískar konur, klæddar
þjóðbúningum, gengu hægt fyrir
framan líkvagnana og báru myndir
af fórnarlömbunum. Tveir ungir
menn héldu á fána lýðveldisins við
hvern líkvagn.
Á meðan fólkið streymdi út á
göturnar hvöttu Moskvuhollir
kommúnistar í lýðveldinu Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétforseta til að svipta
leiðtoga lýðveldisins völdum og færa
það, undir þeina stjórn sína. Þeir
sökuðu leiðtoga litháískra sjáifstæð-
issinna um að hafa hvatt til hefndar-
aðgerða gegn kommúnistum og fjöl-
skyldum þeirra.
Toshiki Kaifu, forsætisráðherra
Japans, kvaðst í gær telja að Gorb-
atsjov hefði verið upplýstur um að-
gerðir hersins áður en látið var til
skarar skríða. „Ég tel ekki að herfor-
ingjar á svæðinu liafi tekið ákvörð-
unina. Þeir hljóta að hafa samið við
forsetann á einhvern hátt áður,“
sagði forsætisráðherrann. Gorb-
atsjov hefur varið aðgerðir hersins
en vísað því á bug að hann beri
ábyrgð á afleiðingunum.
Sovéskir hermenn skutu tæplega
fertugan Letta til bana í gær og er
hann fyrsta fórnarlamb sovéska
hersins frá því hann jók viðbúnað
sinn í Eystrasaltsríkjunum. Maður-
inn var að aka yfir brú skammt frá
herstöð nálægt Riga er hann var
skotinn í hnakkann.
Sjá „Bakatín fordæmir aðgerð-
ir ..á bls. 18.