Morgunblaðið - 17.01.1991, Page 2

Morgunblaðið - 17.01.1991, Page 2
MÖÉGtJNBLAÐIÐ FIMMTUDAGL'R 17Í JANÚAR 1991 Athugasemd frá varnarliðinu við frétt Kjaradeila sjúkrahúslækna: 110 aðstoðarlæknar segja upp störfum AÐSTOÐARLÆKNAR á sjúkrahúsum hafa ákveðið að segja upp störfum frá 1. febrúar næstkomandi og taka uppsagnir þeirra gildi 1. apríl. Að sögn Kristjáns Oddssonar, formanns Félags ungra lækna, ná uppsagnirnar til 110 lækna á sjúkrastofnunum. Sáttafundi samninganefnda sjúkrahúslækna og viðsemjenda þeirra lauk í fyrrakvöld án þess að nýr fundur væri boðaður. Ríkis- sáttasemjari metur stöðuna í dag í samráði við oddvita samninga- nefndanna. Að sögn Kristjáns, verð- ur einungis unnt að halda uppi neyðarþjónustu á sjúkrahúsunum eftir að uppsagnirnar taka gildi. „Það er enginn vilji til að semja við okkur,“ sagði hann. „Þar strandar á fjármálaráðherra í málinu. Við erum búnir að bjóða allar hugsan- legar tilslakanir. Meðal annars boð- ið skipulagsbreytingar á sjúkrahús- unum með sama kostnaðarauka ef skilyrðum okkar yrði fullnægt. Við getum ekki séð að það bijóti í bága við þjóðarsáttina ef kostnaður er skorinn niðúr á móti.“ Morgunblaðið/Sverrir Hafþór Jónsson við stjórntæki viðvörunarkerfis Al- mannavama klukkan 18 í gær. Á innfelldu myndinni sést ein viðvörunarflautan. Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi athugasemd frá vamar- iiðinu á Keflavíkurflugvelli: Vegna mjög svo villandi stað- hæfmga sem fram koma i grein á baksíðu Morgunblaðsins í dag (miðvikudag, innsk.) varðandi ör- yggisviðbúnað á Keflavíkurflug- velli óskar vamarliðið að gera eftir- farandi athugasemd: „I fyrsta lagi er ekkert hæft í þeirri staðhæfingu að komi til átaka við Persaflóa verði öll um- ferð einkabifreiða íslensks starfs- fólks inn á Keflavíkurflugvöll stöðvuð eða að það fái ekki að- gang, eins og það er orðað. í öðru lagi er það rangt að mátt hafí sjá varðmenn með stuttu millibili við flugbrautir Keflavíkur- flugvallar í gær, svo sem augljóst má vera af þeim myndum sem sýndar voru þaðan í fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning og jafnframt að koma í veg fyrir óþarfa ótta er rétt að benda á að ekki er talin ástæða til að ætla að til hermdaraðgerða kunni að koma á Keflavíkurflug- velli, öðrum stöðum fremur, vegna ástandsins við Persaflóa. Samt sem áður er ekki ástæða til annars en að gera allar viðhlítandi varúðar- ráðstafanir svo sem ástandið krefst hveiju sinni. Kæmí nokkurn tímann til þess að starfsfólk á Moskva: Sendiherr- ann ræddi við Jeltsín ÓLAFUR Egilsson, sendi- herra íslands í Sovétríkjun- um, og Stefán L. Stefánsson, sendiráðsritari, áttu í gær fund með Borís N. Jeltsín, forseta Rússlands. A fundinum var farið yfir stöðu mála í Eystrasaltslöndun- um og sendiherra greindi frá fyrirhugaðri heimsókn Jóns Baldvins Hannibalssonar ut- anríkisráðherra til þeirra. For- setanum voru afhentar álykt- anír Alþingis og hann upplýstur um samskipti ríkisstjórnar ís- lands og Eystrasaltsríkjanna. Sendiherrar hinna Norður- landanna fjögurra áttu _ fund með Jeltsfn á þriðjudag. Ólafur fékk ekki boð um að koma á þennan fund og frétti ekki af honum fyrr en um kvöldið að sendiherra Svía skýrði honum frá fundinum. Ekki náðist í Óiaf í gær vegna þessa máls. Ólafur Egilsson sendiherra var í gær viðstaddur minning- arathöfn í Moskvu um þá sem fallið hafal átökunum í Litháen undanfama daga. Keflavíkurflugvelli fengi fyrirmæli um að mæta ekki til vinnu yrði það gert sökum yfíivofandi hættu af einhveiju tagi og auðvitað með öryggi þess að leiðarljósi." Friðþór Eydal upplýsingafull- trúi, Scott E. Wilsson upplýsingastjóri. Aths. ritstj. Vinnsla á umræddri frétt var ekki í samræmi við þær starfsregl- ur sem Morgunblaðið hefur sett sér. Blaðið harmar þessi mistök og biður lesendur sína afsökunar á þeim. Bilunin hjá Almannavörnum: Gæti verið skemmdarverk ENN finnast engar haldbærar skýringar á því hvers vegna flaut- ur Almannavama hafa þrívegis gefíð frá sér viðvörunarmerki undanfama daga. Almannavamir velta fyrir sér þeim möguleika að um skemmdarverk sé að ræða. Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri Almannavama, sagði að til væri áætlun um að veija kerfíð fyrir fikti utanaðkom- andi manna. Hann sagði að til greina kæmi að hrinda þeirri áætlun í framkvæmd á næstunni, en „við gefum ekkert upp um það,“ sagði Guðjón. Fyrst bilaði fiauta um klukkan 15 á mánudag. Síðan fór önnur flauta í gang klukkan 18 sama dag og klukkan 18 á þriðjudaginn fór flaután á Laugamesskóla í gang. Sérstök vakt var við stjóm- tækin klukkan 18 í gær, en engar flautur fóru þá í gang. Almanna- vamir eru með 29 flautur víðs vegar í Reykjavík. Guðjón sagði aðaláhyggjuefni Almannavama vera, ef framhald yrði á þessu, að viðvömnarkerfíð þjónaði ekki almenningi eins og ætlast væri til. Hann vildi ítreka, 'að þegar flautumar fara í gang eigi fólk að hlusta á útvarpið því þar verði upplýst hvað sé að ger- ast. Birgir Meifur skipaður bankastjóri Seðlabanka Nefnd endurskoðar lögin um Seðlabanka JÓN Sigurðsson viðskiptaráðherra skipaði í gær Birgi ísleif Gunnars- son alþingismann seðlabankastjóra til sex ára frá 1. febrúar næstkom- andi. Ráðherra skipaði Birgi ísleif að fenginni tillögu bankaráðs Seðla- bankans og er þetta í fyrsta sinn sem skipað er í þessa stöðu til af- markaðs tíma á grundvelli laganna um Seðlabanka íslands frá árinu 1986. Þar er skipunartíma seðlabankastjóra sett ákveðin mörk sem ekki voru áður. „Þetta nýja starf leggst ágætlega í mig, en það er auðvitað með blendnum huga sem ég skipti um starfsvettvang. Ég hlakka til að tak- ast á við ný verkefni á vettvangi Seðlabankans en mun vafalaust sakna stjómmálanna sem hafa nú verið mitt hálfa líf megnið af minni st'arfsævi. Ég ætlaði mér í raun og vem aldrei að verða ellidauður í stjómmálum og þegar þetta kom upp þá komst ég að þeirri niðurstöðu að nú væri góður tími til að breyta til,“ sagði Birgir ísleifur. Hann sagði að það eina sem kannski angraði hann á þessu augnabliki væri að honum fyndist hann skulda öllu því góða fólki sem studdi hann í prófkjörinu afsökunarbeiðni. „Ég vonast til þess að það góða fólk sem studdi mig virði mér það til betri vegar að ég hverf nú af framboðslistanum hér í Reylqavík," sagði Birgir Isleifur. Birgir ísleifur Gunnarsson er fæddur í Reykjavík árið 1936. Hann lauk embættisprófi í lögfæði árið 1961, var kjörinn borgarfulltrúi í Reykjavík 1962 og var borgarstjóri í Reykjavík 1972-1978. Hann var fyrst kjörinn á þing 1979 og hefur verið alþingismaður Reykvíkinga síðan. Hann var menntamálaráð- herra frá miðju ári 1987 til hausts 1988. Tveir bankaráðsmenn greiddu Birgi Ísleifí atkvæði en það vom þeir Ólafur B. Thors og Davíð Schev- ing Thorsteinsson, sem er varamað- ur Guðmundar Magnússonar í ráð- inu. Geir Gunnarsson var á móti en Davíð Aðalsteinsson og Ágúst Ein- 'áfssón’fdrmáðúf Tía'rikáraðsins' sátú' hjá, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Ágúst Einarsson er full- trúi Alþýðuflokksins i bankaráði Seðlabankans. Viðskiptaráðherra var spurður að því hvort hjáseta bankaráðsformannsins hefði ekki komið honum á óvart: „Ég hafði hugboð um að þetta yrði svona,“ svaraði hann. í frétt frá viðskiptaráðuneytinu segir að ráðherra hafí einnig ákveð- ið að skipa nefnd til þess að íjalla um endurskoðun laga um Seðla- banka íslands og til þess að gera tillögur um breytingar í samræmi við niðurstöður slíkrar endurskoðuri- ar. „Breyttar aðstæður á íslenskum fjármagnsmarkaði frá því núgildandi lög vom samin og aukið fjölþjóða- samstarf á sviði gengis- og vaxta- mála munu í vaxandi mæli setja mark sitt á efnahagslíf íslendinga í framtíðinni. Breyttar aðstæður kalla á breytt vinnubrögð og bætt stjóm- tæki Seðlabankans í gengis-, vaxta- og peningamálum. Ástæða er því til þess að taka skipan og hlutverk bankastjórnar og bankaráðs til end- urskoðunar," segir í frétt ráðuneytis- ins. Birgir ísl. Gunnarsson Sólveig Pétursdóttir tek- ur sæti Birgis á Alþingi SÓLVEIG Pétursdóttir lögfræð- ingur tekur sæti Birgis Isleifs Gunnarssonar á Alþingi 1. febr- úar nk. þegar Birgir tekur við embætti seðlabankasljóra. Sól- veig er 1. varaþingmaður sjálf- stæðismanna í Reykjavík og hefur margoft setið á þingi. Heimsókn til Litháens: Áritunarumsókn Jóns Baldvins óafgreidd SOVÉSK stjórnvöld höfðu í gær- kvöldi ekki tekið afstöðu til beiðni Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráðherra um vegabréfsáritun til Lithácn en hann hyggst fara í heimsókn þangað á föstudag og dvelja í iandinu til sunnudags. Jón Baldvin fór í gær til Hels- inki á fund foringja norrænna jafn- aðarmannaflokka, sem lýkur á morgun. Hann hyggst þá fljúga um Stokkhólm til Riga, höfuðborg- ar Lettlands, og ferðast þaðan landleiðina til Vilnius, höfuðborgar Litháens, þar sem þess er vænst að hann hitti Landsbergis forseta og aðra sjálfstæðissinna 1 víggirtu þinghúsi landsins. Litháar hafa fagnað væntanlegri heimsókn utanríkisráðherra og í gær var staðfest formlega boð til hans um að koma í heimsókn til landsins. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík heldur aðalfund sinn 29. þessa mánaðar og að sögn Baldurs Guðlaugssonar, formanns fulltrúa- ráðsins, er stefnt að því að afgreiða tillögu kjörnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna alþingiskosninganna í vor. Birgir ísleifur Gunnarsson hverfur af listanum, en hann hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í haust. Líklegast er talið að þeir sem fyrir neðan hann urðu í prófkjörinu færist allir upp um eitt sæti, en Baldur Guðlaugsson formaður fulltrúaráðs- ins sagði í gær að ótímabært væri að geta sér til um hver röðin yrði á listanum áður en kjörnefnd hefði skilað tillögu sinni. Verði raunin sú að\allir fyrir neð- an Birgi færist upp um eitt sæti verður listinn þannig: 1. Davíð Odds- son. 2. Friðrik Sophusson. 3. Bjöm Bjarnason. 4. Eyjólfur Konráð Jóns- son. 5. Ingi Bjöm Albertsson. 6. Sólveig Pétursdóttir. 7. Geir H. Ha- arde. 8. Lára Margrét Ragnarsdótt- ic. 9. Guðmundur Hallvarðsson. 10. Þuríður Pálsdóttir. 11. Guðmundur H. Garðarsson. 12. Guðmundur 'Magnússon.------------------

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.