Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 5

Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991 5 * Islenskt bergvatn: Mikið magn af vatni selt til Bandaríkjanna og Kanada ISLENSKT bergvatn hefur fengið staðfesta pöntun fyrir sölu á 297 tonnum af vatni, að verðmæti um 20 milljónir króna, til Bandaríkjanna og Kanada. Að auki liggja fyrir tvær pantanir á jafn miklu magni, en fyrirtækið mun ekki geta afgreitt alla pöntunina. „Við höfum fengið myndarlega pöntun og þetta lofar góðu, en það er rétt að vara við of mikilli bjart- sýni. Við höfum fengið staðfest- ingu á pöntun, sem við afgreiðum í skip í næstu viku, upp á 11 gáma af dósum og 6 gáma af flöskum. Við getum því miður ekki afgreitt nema hluta hennar, því flöskurnar eru ekki tilbúnar hjá okkur enn. Tvær svipaðar pantanir liggja fyr- ir til afgreiðslu næstu fjórar vik- urnar, en við bíðum eftir staðfest- ingu á þeim,“ sagði Jón Scheving Thorsteinsson framkvæmdastjóri íslensks bergvatns, sem er útflutn- ingshluti fyrirtækisins Sól hf. Heimsbikarmótið í skák: Fyrsta mótið í Reykjavík FYRSTA heimsbikarmótið í skák, í næstu mótalotu, verður haldið í Reykjavík í október á þessu ári. Þetta var tilkynnt á blaðamanna- fundi stórmeistarasam- bandsins í Lyon í Frakkl- andi fyrir skömmu. Sam- kvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun Stöð 2 standa fyrir mótinu. Stöð 2 stóð fyrir einu mó- tanna i fyrstu lotu heimsbikar- mótanna, sem voru haldin árin 1988-1990, en þar kepptu sterkustu skákmenn heims um há peningaverðlaun. Jóhann Hjartarson_ var í þeim hópi, en enginn íslendingur náði að komast í hópinn, sem keppir í næstu mótalotu. Henni lýkur í mars árið 1993. í hveijum 40 feta gámi eru um 70 þúsund dósir, eða nærri 27 tonn af vatni. Ef dósirnar verða allar afgreiddar verða það því 770 þúsund dósir af vatni sem fara vestur um haf í næstu viku, eða 297 tonn. Jón sagði að það yrði erfitt fyr- ir fyrirtækið að afgreiða þessar pantanir. „Flöskuverksmiðjan hef- ur verið helsti flöskuhálsinn hjá okkur. Hún framleiðir ekki nema milljón dósir á mánuði. Við erum hins vegar búnir að kaupa nýjar vélar sem koma til landsins með vorinu. Þegar þær verða komnar í gagnið ættum við að geta fram- leitt þijár milljónir dósa á mánuði ogtölvert magn af flöskum," sagði Jón Scheving. Til marks um hversu stór pönt- un þessi er má nefna að íslenskt bergvatn hóf útflutning á vatni i lok júlí í fyrra og flutti út tvær milljónir dósa. Nú fær fyrirtækið töluvert stærri pöntun í janúar. Mikillsam- dráttur í lax- veiðum í sjó MIKILL samdráttur hefur orðið á laxveiðum Grænlendinga og Færeyinga í sjó tvö síðustu árin. Þannig veiddu þjóðirnar alls 479 tonn af laxi á síðasta ári, en til til samanburðar veiddu þær sam- tals 1.137 tonn árið 1988. Fyrir tíu árum veiddu þjóðirnar nærri 2.600 tonn árlega. Viðbúið er að tölur þessar lækki enn, því tvísýnt er um færeysku útgerð- ina en þar hafa að sögn Orra Vigfússonar aðeins 4 bátar af 26, sem leyfi hafa, stundað veiðarnar síðan í haust. Að sögn Orra hafa viðræðurnar við Færeyinga um kvótakaupin legið niðri um hríð, en samningsaðilar eru ekki langt frá samkomulagi, að hans sögn. Mikil áhersla hafi verið lögð á það að öllum laxveiðum Færeyinga ( sjó verði hætt. Á sama tíma og úthafsveiðar á laxi hafa dregist saman, hefur lax- gengd og veiði í ám við Atlantshaf farið þverrandi. Síðustu tlu árin fram að síöasta ári dróst stanga- veiðin hérlendis til dæmis saman um fjórðung. HALU.LACO OG BESSI ásamt Bíbí og Lóló í 5 stjömu KABARETT Á SÖGU Anæturvaktinni njótið gleði, .nýjung sem er að allra geði. Halli við dyrnar og hleypir þeim inn, sem hungrar og þyrstir í gleði um sinn. FYRSTA SÝNING 2. FEBRÚAR OPINN DANSLEIKUR FRÁ KL. 23.30 TIL 3. Hljómsveitin Einsdæmi leikur. Bessi hann þjónar og þýtur um salinn, í þjóðkunnum hlutverkum Laddi er falinn Lóló og Bíbí hér liðast um svið, lokkandi dansa á baki og kvið. Ástina forðum við upplifum keik, til ársins ’30 bregðum á leik. Kabarett, borðhald og blíð er syndin, Berlín og París er fyrirmyndin. Þrírétta veislukvöldverður (val á réttum) Leikstjóri: Björn G. Björnsson Hljómsveitarstjóri: Árni Scheving * ■f'.isv -irv - Miðaverð: 4.400 kr. Húsið opnað kl. 19. Tilboðsverð á gistingu. Pöntunarsími 91-29900.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.