Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 16

Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 16
leei-flAíwAi s\ .TJDAauTvwn araAjaMiJOHOw MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR I7/ .JANÚAR TOTl Beinar útsendingar Stöðvar 2 á óþýddu efni CNN: Ekki má standa í vegi fyrir að við getum fylgstjafnóðum með atburðum í veröldinni segir Eiður Guðnason formaður menntamálanefndar neðri deildar Alþingis FORMENN menntamálanefnda Alþingis, Eiður Guðnason og Ragnar Amalds, vilja leyfa beinar útsendingar Stöðvar 2 á óþýddu efni banda- ríska gervihnattasjónvarpsins CNN. Telja þeir ekki mögulegt að þýða efni stöðvarinnar og huga þurfi að breytingum á reglum um þýðingar- skyldu. Eiður telur ekki að íslenskri menningu eða tungu stafi veruleg hætta af þessum útsendingum og Ragnar segir að hættan hafi verið meiri á dögum bandaríska sjónvarpsins á Kefiavíkurflugvelli. Inga Jóna Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs, óttast ekki að útsendingar CNN hafi mikil áhrif á samkeppnisstöðu Ríkisútvarpsins. Hún segir að ákvæðin um þýðingarskyldu á erlendu efni væm of ströng og skyn- samlegt væri að milda þau. Það meginsjónarmið væri ráðandi hjá Ríkisútvarpinu að texta og endiu-segja erlent efni svo að sem flestir geti notið þess. „Minni hætta en á dögum Keflavíkursj ón varps “ Ragnar Arnalds, formaður menntamálanefndar efri deildar Al- þingis, sagði að viðhorfin hefðu breyst á skömmum tíma. Nú næðu þúsundir landsmanna gervihnatta- sjónvarpi beint. Hann sagðist ekki sjá neinn mun á því og beinum út- sendingum frá CNN, nema hvað Stöð 2 væri miliiliður í síðamefnda tilvik- inu. Ragnar sagði ekki hægt að gera þarna upp á milli og því ætti að leyfa CNN útsendingar Stöðvar 2. „Við getum ekki barist á’móti þessari nýju tækni og verðum að horfast í augu við það að þegar um beinar útsendingar er að ræða á er- lendu efni, er ekkert ráðrúm til að þýða það,“ sagði Ragnar. „Auðvitað hefur maður vissar áhyggjur," sagði Ragnar þegar hann var spurður hvort hann hefði áhyggj- ur af íslenskri tungu og menningu við þessa þróun. Hann taldi hættuna þó minni nú en á dögum bandaríska sjónvarfsins á Keflavíkurflugvelli. Þá hefði sú stöð verið einráð hér á markaðnum. Nú væri veruleg sam- keppni, bæði á milli íslenskra sjón- varpsstöðva og gervihnattasjónvarps úr ýmsum áttum. „Milda þarf ákvæði um þýðingarskyldu" Eiður Guðnason, formaður menntamálanefndar neðri deildar Alþingis, sagðist ekki geta kveðið upp úr með það hvort umræddar útsendingr brytu beinlínis í bága við ákvæði reglugerðar útvarpslaga um þýðingarskyldu, þær væru greinilega á nokkurs konar gráu svæði. Taldi hann augljóst að ekki væri hægt að koma því við að texta þessar útsend- ingar. Eiður sagði að hugsunin á bak við ákvæði reglugerðarinnar um þýð- ingarskyldu erlendis efnis væri lofs- verð. Hins vegar hefðu orðið breyt- ingar, meðal annars á tækni, sem gerðu það að verkum að svona ákvæði fengju ekki lengur staðist, nema þá að menn fái ekki notið sjón- varpssendinga af þessu tagi. „Það finnst mér ekki koma til mála,“ sagði Eiður. Hann sagði að hugsanlega þyrfti að milda ákvæðin um þýðing- arskyldu til að ekki væri hætta á að umrættar útsendingar brytu í bága við reglur. Harfh sagðist telja að íslensku máli og menningu.stafaði alls engin hætta af útsendingum CNN. „Reynslan hefur sýnt og margar kannanir leitt í ljós að í þeim löndum sem eiga kost á svona sjónvarpi horf- ið yfirgnæfandi fjöldi fólks á sjón- varps sem sent er út á móðurmáli þess en lítill minnihluti sem notar sér óþýtt erlent sjónvarp. Ég held að það eigi einnig við hér. Ég vek athygli á því að engar hömlur eru lágðar í götu þeirra sem hlusta á erlendar útvarpsstöðvar. Þó sjónvarpið sé mun sterkari miðill þurfum við ekki að vera hæddir við afleiðingarnar. Það er eðlilegt að erlent sjónvarps- efni sem hér er sýnt sé þýtt þegar hægt er. En gamli fréttaneistinn seg- ir mér að það megi ekki standa í vegi þess að við getum fylgst með því sem er að gerast í veröldinni um leið og það gerist,“ sagði Eiður. Eiður sagði að CNN væri mjög vönduð fréttastöð, eftir því sem hann best vissi. Sem dæmi um það nefndi hann að mjög margir þjóðarleiðtogar hefðu gert ráðstafanir til að geta fylgst með CNN á skrifstofum sínum. Sjálfur sagðist hann hafa verið er- lendis þegar írakar réðust inn í Kúv- eit í byrjun ágúst og fylgst með at- burðunum í CNN. Þar hefði þeim verið gerð mjög góð skil. „Ég hefði ekki viljað missa af því og mér finnst það gott framtak hjá Stöð 2 að hefja beinar útsendingar frá CNN nú,“ sagði Eiður. „Þýðingarskyldan of ströng“ Inga Jóna Þórðardóttir, formaður útvarpsráðs Ríkisútvarpsins, sagði þegar hennar álits var leitað að ákvæði um þýðingarskyldu væru of ströng og skynsamlegt að milda þau. „Það að viðhafa svona ströng ákvæði um þýðingarskyldu hefur leitt til þess að þróun sjónvarpsmála hefur orðið allt önnur hjá okkur en í ná- grannalöndunum, þar sem kapalvæð- ingin hefur orðið. Það er ekki fram- kvæmanlegt að framfylgja þýðing- arákvæðunum við dreifingu sjón- varpsefnis um kapalkerfi. Hér hefur þróunin því orðið sú að menn kaupa sína eigin móttökudiska til að ná gervihnattasjónvarpi og verða slíkir diskar komnir á nánast annað hvert hús innan fárra ára með sömu þró- un. Þó þýðingarskyldu yrði aflétt myndu sjónvarpsstöðvamar eftir sem áður veita þá þjónustu að bjóða upp á textaða og endursagða þætti," sagði Inga Jóna. Inga Jóna sagðist ekki vilja blanda sér inn í umræður um það hvort beinar útsendingar Stöðvar 2 frá CNN væru löglegar eða ólöglegar. „Það verður auðvitað að fara eftir iögum og reglum. Það meginsjónar- mið er ráðandi hjá Ríkisútvarpinu að texta eða endursegja erlent efni til að sem flestir geti notið þess,“ sagði Inga Jóna. Hún sagðist ekki óttast samkeppn- ina við CNN. Stöð 2 sendi þetta efni ekki út á hefðbundnum sýning- artímp, að minnsta kosti enn sem komið er. Hún sagðist ekki vita hvað sá hópur væri stór sem vildi nota þessa þjónustu, taldi að það væru fyrst og fremst áhugamenn um er- lend málefni. „Dagskrá Sjónvarpsins byggist að mestu leyti upp á inn- lendu efni og hefur því góða sam- keppnisstöðu," sagði formaður út- varpsráðs. KjarUin Ragnarsson með nýju skinnurnar. Morgunbiaðið/Juiíus Einkaleyfi í höfn KJARTAN Ragnarsson, uppfinningamaður úr Grindavík, hefur fengið einkaleyfi á framleiðslu sérstakra skinna til að nota til að halda saman gúmmibobbingalengjum, svokölluðum „Rockhopper- um“. Skinnurnar eru einfaldar í notkun og þarf hvorki tól né vélar til að festa þær né losa, mannshöndin ein dugir. Skinnumar hefur Kjartan hann- Kjartan hefur unnið að öflun einka- að samfara smíði á sérstakri vél til leyfisins með fulltingi Félags Hug- að setja bobbingalengjumar saman, vitsmanna og segir hann stuðning en með henni er hægt ákveða hve þess hafa verið mjög mikilvægan. mikill þrýstingur er á lengjunni. H LANGI SELI og Skuggarnir ieika laugardaginn 19. janúar á Púls- inum, en hljómsveitina skipa: Axel Jóhannsson, gitar og söngur, Jón Steinþórsson á kontrabassa, Korm- ákur Geirharðsson á trommur og Steingrímur E. Guðmundsson á gítar og munnhörpu. Langi Seli og Skuggamir eru í sérstöku uppáhaldi Púlsara, þannig að það er vissara að mæta tímanlega þegar þeir spila. Sunnudaginn 20. janúar verður kántrýkvöld á Púlsinum. Hljóm- sveitin Flækingarnir og Anna Vil- hjálms söngkona leika, en hljóm- sveitina skipa auk Önnu; Kristján Óskarsson, hljómborð, Þröstur Þorbjörnsson á' gítar, Sigurður Helgason á trommur og Sigurður Elinbergsson á bassa. Gestakántrý- söngvari kvöldsins verður Ari Jóns- son. Duni dúkarúllur kalla fram réttu stemmninguna við veisluborðið. Fallegir litir sem fara vel við borðbúnaðinn geta skapað þetta litla sem þarf til að veislan verði fulikomin. Duni dúkarúllurnar eru 50m á lengd og l,25m á breidd og passa því á öll borð Og þú þarft ekki að þvo dúkinn á eftir. Fannir hf. • Krókhálsi 3 Sími 672511 Alþýðublaðið og Press- an flytja í Alþýðuhúsið ALÞÝÐUBLAÐIÐ og Pressan flytja í lok mánaðarins alla starfsemi sína í Alþýðuhúsið á Hverfisgötu 8 - 10, þar sem skrifstofur Alþðyðu- flokksins eru til húsa. Þá kemur Alþýðublaðið framvegis út á fimmtu- dögum ásamt Pressunni. Frá stofnun Pressunnar 1988 hefur Alþýðu- blaðið ekki komið út á fimmtudögum en Pressan þess í stað borist til áskrifenda blaðsins. Jafnhliða þessari breytingu fellur laugardagsútgáfa Alþýðublaðsins niður um sinn. Kemur blaðið eftir sem áður út ijórum sinnum í viku. Að sögn Ingólfs Margeirssonar, ritstjóra Alþýðublaðsins, er fimmtu- dagsútgáfa Alþýðublaðsins liður í að skilja ennfrekar á milli útgáfu Press- unnar og Alþýðublaðsins en aðskild- ar ritstjómir vinna við blöðin. Sagði Ingólfur að bæði. blöðin myndu flytja alla sína starfsemi á Hverfisgötu 8-10, ásamt fyrirtæk- inu Leturvali sf., sem hefur séð um setningu og umbrot blaðanna. Skrif- að hefur verið undir Ieigusamning við eigendur hússins en þeir eru, auk Alþýðuflokksins, ýmis verkalýðsfé- lög og einstaklingar. Blöðin munu fá hálfa hæð tii umráða á móti skrif- stofu Alþýðuflokksins auk allrar þriðju hæðar hússins þar sem starf- semi Hagstofunnar var til húsa. Er húsnæðið allt nýuppgert. „Við emm að fara með blaðið aft- ur heim,“ sagði Ingólfur og minnti á að Alþýðubiaðið var stofnað á þess- um stað árið 1919 og gefið þar út í hálfa öld. Síðastliðin tuttugu ár hefur blaðið hins vegar verið á vergangi, að sögn Ingólfs. Undanfarin tvö ár hafa Alþýðublaðið og Pressan haft aðsetur sitt í leiguhúsnæði við Ár- múla 36, þar sem útgáfa Helgar- póstsins var um árabil.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.