Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 17
Mývatnssveit:
Ráðstefna um hálendisvegi
RÁÐSTEFNA um hálendisvegi og
áhrif þeirra, verður haldin á Hót-
el Reynihlíð við Mývatn þann 19.
og 20. janúar 1991. Það eru Ferða-
málafélag Mývatnssveitar, Ferða-
málafélag Húsavíkur og nágrenn-
is, Iðnþróunarfélag Þingeyinga og
Framfarafélag Fljótsdalshéraðs,
sem boða til ráðstefnunnar.
Meðal framsögumanna eru
Trausti Valsson skipulagsfræðingur,
sem fjallar um hálendisvegi og
framtíðarsýnina, fulltrúi Landsvirkj-
unar talar um valkosti við lagningu
línu og línuvega og fulltrúi Vega-
gerðar ríkisins um hálendisvegi. Full-
trúi Byggðastofnunar skoðar hvernig
hálendisvegir falla að nýjum hug-
myndum í byggðamálum, og Magnús
Oddsson talar um hálendisvegi og
ferðamálastefnu.
Þóroddur Þóroddsson fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndarráðs
talar um hálendisvegi og náttúru-
vernd, Ásgeir Leifsson iðnráðgjafi
talar um áhrif hálendisvega á hag-
þróun byggðarlaga og Hörður Sigur-
bjarnarson um vetrarfæra vegi á
söguslóðum hálendis.
N ey ðarkall vegna
yfir vofandi hung1-
ursneyðar í Afríku
Hjálparbeiðni hefur borist til
Hjálparstofnunar kirkjunnar frá
Afríku vegna yfirvofandi hung-
ursneyðar, að sögn Jónasar Þóris-
sonar, framkvæmdastjóra hjálp-
arstofnunarinnar. „Það blasir við
að tuttugu milljónir manna munu
svelta á næstu mánuðum ef ekkert
verður að gert. Ástandið er verst
i Eþíópíu, Súdan, Mósambik, An-
gólu og Líberíu, þar sem saman
fara þurrkar, styijaldarástand og
hungursneyð," segir hann.
Jónas sagði að jólasöfnun hjálpar-
stofnunarinnar hefði gengið vel og
að safnast hefðu 17 milljónir króna
auk þriggja milljóna kr. framlags
ríkisstjórnarinnar. Þar af færu 12
milljónir í föst fyrirbyggjandi verk-
efni sem þegar hefði verið lofað.
„Okkur barst mikil neyðarbeiðni
frá öllum fijálsum hjálparstofnunum
í Genf í byijun mánaðarins þar sem
því var lýst að hungursneyð blasti
við 20 milljónum manna í Afríku.
Ef ekki verður gripið til ráðstafana
strax verður þetta verri hungursneyð
en gekk yfir á árunum 1984 og 1986
þegar milljónir manna fórust.að mati
sérfræðinga," sagði Jónas.
Sagði hann að nú væri reynt að
bregðast nógu fljótt við svo hægt
verði að fyrirbyggja hörmungarnar.
„Við munum örugglega leggja eitt-
hvað af mörkum mjög fljótlega,“
sagði hann.
Kvaðst hann óttast að þær 20
milljónir í Afríku sem hungursneyð
vofði yfir muni gleymast í þeirri vá
sem blásti við vegna stríðsátaka við
Persaflóa og þeirri neyð sem gæti
skapast í Eystrasaltslöndunum.
Milli skinns
og hörunds
á ensku
LEIKRIT Ólafs Hauks Símonar-
sonar, Milli skinns og hörunds, er
komið út á ensku á leikritasafninu
Drama Contemporary sem gefið
er út í New York. Nýjasta bindi
ritsafnsins er helgað nútímaleik-
ritum á Norðurlöndum. Inga
Birna Jónsdóttir þýðir leikrit ðl-
afs og nefnist það í ensku útgáf-
unni Under Your Skin.
Drama Contemporary er eina leik-
ritasafn sem út kemur í Bandaríkjun-
um sem einvörðungu er helgað kynn-
ingu erlendra leikrita þar í landi.
Meðal norrænna rithöfunda, auk Ól-
afs Hauks, sem eiga leikrit í þessu
safni, eru Norðmaðurinn Tor Áge
Bringsværd og danska skáldkonan
Ulla Ryum.
Einleikarar á Nýárstónleikunum. Aftari röð frá vinstri: Hafsteinn Guðmundsson, fagott, og trompet-
leikararnir Jón Sigurðsson, Lárus Sveinsson og Ásgeir Steingrímsson. I fremri röð frá vinstri:
Bryndís Halla Gylfadóttir, knéfiðla, Richard Korn, bassi, Guðný Guðmundsdóttir, fyrsti konsert-
meistari, fiðla, og bassaleikararnir Jón Sigurðsson, Dean Ferrel og Krzysztof Panus.
Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í grænni tónleikaröð:
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991
-r-n — i r—t rt r-r-i : : : r--—n---------------------------
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Öður til sameinaðrar Evrópu
ÁRLEGIR Nýárstónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða
í Háskólabíói í kvöld, fimmtu-
daginn 17. janúar kl. 20.00, og
laugardaginn 19. janúar kl.
16.30. Auk þess verða þeir í
íþróttahúsinu á Selfossi föstu-
daginn 18. janúar og hefjast kl.
20.30.
Á efnisskrá verða flölmörg verk,
flest í anda Vínartónlistarinnar,
eftir evrópsk og amerísk tónskáld.
Flutt verða verk m.a. eftir Frakk-
ana Marc-Antonine Charpentier og
Charles Gounod, Italann Luciano
Berio, Þjóðveijann Jóhannes
Brahms, Danann Hans Christian
Lumbye, Bandaríkjamanninn
Leroy Anderson og Austurríkis-
mennina Franz von Suppé, Jóhann
Strauss eldri og yngri.
Einleikarar verða 15. Tíu þeirra
koma úr röðum hljóðfæraleikara
Sinfóníuhljómsveitarinnar og auk
þess leika fimm börn einleik. Þijú
þeirra koma úr Tónlistarskóla
íslenska Suzuki-sambandsins og
tvö úr Tónlistarskóla Hafnarljarð-
ar.
Hljómsveitarstjóri er Austurrík-
ismaðurinn Peter Guth. Hann hefur
þijú undanfarin ár komið hingað
og stjórnað á Vínartónleikum Sin-
Peter Guth, stjórnandi Vínartónleikanna.
fóníuhljómsveitar íslands og vakið
mikla hrifningu, auk þess sem hann
stjórnaði henni í eftirminnilegri
ferð um Vestfirði haustið 1989.
Ilann hefur valið verkin, sem flutt
verða á Nýárstónleikunum nú, og
sagt að þessi efnisskrá sé óður til
sameinaðrar Evrópu. Hann segir,
að í Vínarborg finni menn verulega
fyrir því frelsi sem fylgir opnun
landamæra nágrannaríkja og að
tónlistin endurspegli þessa samein-
ingu.
Peter Guth er þekktur víða um
heim fyrir þá alúð sem hann hefur
sýnt Vínartónlistinni. Hann er einn-
ig vel þekktur fiðluleikari og tekur
sér gjarnan fiðlu í hönd á tónleik-
um. Hann lærði fiðluieik hjá Ernst
Morowec í Vín og í þijú ár hjá
David Oistrach í Moskvu. Hann
hefur komið fram sem einleikari á
tónleikum víða um heim og fengið
verðlaun fyrir fiðluleik. Þá hefur
hann einnig ritað námsefni og unn-
ið að kennslu í nútíma aðferðar-
fræði í fiðluleik. Hann er einnig
mikill aðdáandi nútímatónlistar og
fyrsti konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitar Austurríkis.
UTSALA - UTSALA
Allt aó
o afsláttur
HAGKAUP
/tCCt í ei*t*U