Morgunblaðið - 17.01.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.01.1991, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991 PERSAFLOADEILAN Afleiðingar Persaflóastyrjaldar: Spá upplausn og þjóðfélag,sleg,u um- róti í arabaríkjum Óttast vaxandi hatur á öllu sem vestrænt er Kairó. Reuter. FLEST bendir til, að styrjöld við Persaflóa verði ekki umflúin en um hitt greinir menn á hvaða afleiðingar hún muni hafa fyrir næstu framtíð. Margir sljórn- málaskýrendur, jafnt á Vestur- löndum sem í arabaheiminum, segjast þó óttast, að útkoman verði þjóðfélagslegt umrót í arabaríkjunum, vaxandi hatur á öllu, sem vestrænt er, hryðju- verk og aukið trúarofstæki. „Að styijöldinni lokinni verður skelfilegt um að litast. Hún verður eins og nýtt Nóaflóð, sem lætur engan ósnertan," segir Mo- hammed Heykal, kunnur, egypsk- ur blaðamaður og fyrrum ráðgjafi Nassers, forseta Egyptalands, og vestrænir stjórnarerindrekar í arabaríkjunum spá pólitískri upp- lausn í Irak, Jórdaníu og Norður- Afríku og vaxandi kröfum um stjórnmálaumbætur í hinum íhaldssömu konungsríkjum við Persaflóa. Ofstækismenn, allt frá Ma- rokkó til Pakistans, hafa í hótun- um vegna liðssafnaðarins í Saudi-Arabíu enda finnst mörgum aröbum það niðurlægjandi, að kallað skuli á vestrænan, kristinn her til að vetja mestu helgidóma íslams. Flokkur ofsatrúarmanna, sem vann mikinn sigur í sveitar- stjórnarkosningum í Alsír, hefur skorað á stuðningsmenn sína að snúast gegn Bandaríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum og skoðanabræður þeirra í öðrum arabaríkjum hafa gert það sama. Bandarískir embættismenn, sem telja, að skjótur sigur yfir Saddam Hussein muni verða til að styrkja hófsöm öfl í arabarikj- unum, hafa verið sakaðir um barnalega bjartsýni og er þá með- al annars bent á, að í Irak sé í raun enginn þess umkominn að taka við af Saddam. Að honum frágengnum muni því taka við pólitískt tómarúm, sem Kúrdar í norðurhlutanum, shítameirihlut- inn í suðurhlutanum og íranir og Sýrlendingar reyni að notfæra sér. Þá hafa Tyrkir einnig hags- muna að gæta og Turgut Ozal forseti sagði í gær, að aldrei yrði á það fallist, að írak yrði limað í sundur. Á síðustu dögum hafa ýmsir Reuter Þúsundir Bagdad-búa komu saman á götum borgarinnar í gær til að taka þátt í mótmælum gegn Bandaríkjunum, sem stjórn- völd skipulögðu. Margir þeirra héldu á myndum af Saddam Hus- sein Iraksforseta. ráðamenn í arabaríkjunum næst- um grátbænt Saddam Hussein um að koma í veg fyrir stríð og fara með herinn frá Kúvæt en allt hefur það verið árangurslaust. Hefur hann hvorki svarað áskor- ununum né viljað taka við bréfum eins og fram kom hjá Hosni Mu- barak Egyptalandsforseta í fyrra- kvöld þegar hann sagði meðal annars, að mannkynið stæði nú frammi fyrir mesta hildarleik sög- unnar frá því í síðustu heimsstyij- öld. Friðartilraunir stjórnvalda í Marokkó og Túnis og í Jórdaníu og Jemen, sem hafa þó stutt Sadd- am, hafa heldur engan árangur borið en Fahd, konungur Saudi- Arabíu, var hins vegar ómyrkur í máli þegar hann flutti ávarp til þjóðarinnar í fyrrakvöld. Sagði hann, að Saddam væri haldinn illum anda og stefndi að allsheij- aryfirráðum yfir öllum aröbum. Saudi-Arabar studdu íraka með ráðum og dáð í átta ára langri styijöld þeirra við írani og þetta eru þakkirnar, sagði Fahd og skýrði frá því, að meðan á stríðinu stóð og síðan hefðu Saudi-Arabar gefið Irökum meira en 25,7 millj- arða dollara. Kína: Akvörðun um stríð verði ekki tekin í flýti Peking. Reuter. KÍNVERJAR hvöttu Bandaríkja- menn í gær til að flýta sér ekki í stríð gegn írökum heldur halda áfram að leita friðsamlegra lausna á deilunni um Kúveit. Fréttastofan Nýja Kína birti yfir- lýsingu þar sem sagði að ekki bæri að hætta friðarumleitunum þótt frestur íraka til að hverfa frá Kúv- eit hefði runnið út. Saddam Hus- sein íraksforseti var einnig hvattur til að kalla hersveitir sínar í Kúveit heim og lagt var til að efnt yrði til alþjóðlegrar ráðstefnu um málefni Miðausturlanda. Tillagan virtist í megindráttum sú sama og Frakkar lögðu fram í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en Bandaríkjamenn og Bretar höfn- uðu þar sem þeir vildu ekki tengja Kúveitmálið deilu araba og Israela. „Innrás íraka í Kúveit og deila araba og ísraela eru aðskilin mál og þau ber að leysa á réttlátan hátt. Það hvort tengja beri þessi mál skiptir þrátt fyrir allt litlu máli,“ sagði í yfirlýsingu Kínveija. Kína var eina ríkið af fimm með fastafulltrúa í Öi-yggisráði Samein- uðu þjóðanna, sem greiddi ekki at- kvæði með tillögu um að ráðið heim- ilaði að hervaldi yrði beitt gegn írökum. Sýrland: Liðsflutningar í átt til Gólan-hæða Damaskus. Reuter. HER Sýrlands sendi í gær þús- undir hermanna í átt til Gólan- hæða, sem eru á valdi ísraela, og að landamærum landsins að Jórdaníu. Þetta var gert í varúð- arskyni vegna yfirvofandi styij- aldar við Persaflóa og hugsan- legrar þátttöku ísraela í því. Herinn sendi einnig skriðdreka og loftvarnavopn til þessara svæða, að sögn heimildarmanna í Sýrlandi. Sýrlensk blöð sögðu að stríð væri óhjákvæmilegt við Persaflóa og Saddam Hussein íraksforseti ætti sökina á því. Sýrlensk stjórnvöld hafa sent þúsundir hermanna til liðs við fjöl- þjóðaherinn í Saudi-Arabíu en sagt að þeir gegni þar aðeins varnarhlut- verki. Þau hafa hótað að koma írök- um og öðrum arabaþjóðum til varn- ar ef ísraelar réðust á þær. írakar hafa_ sagt að Tel Aviv, stærsta borg ísraels, verði fyrsta skotmark langdrægra eldflauga þeirra ef fjölþjóðaherinn réðist á þá. ísraelar hafa svarið að hefna slíkra árása. Sýrlensk stjórnvöld hafa fallist á að heimila alþjóðlegum hjálpar- stofnunum að reisa flóttamanna- búðir á ýmsum stöðum í landinu. Búist er við miklum flóttamanna- straumi til landsins frá írak, Kúv- eit og hugsanlega Jórdaníu. Hjálp- arstofnun lækna, Medicins sans Frontieres, hyggst reisa búðir fyrir 50.000 manns í Sýrlandi og senda teppi, lyf og tjöld til Damaskus. „Veit ekki hvað þið eigið sökótt við okkur“ ÍRASKUR blaðamaður á einu af stærstu dagblöðum Bagdad sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann vonaði að ekki kæmi til átaka. Almenningur í landinu væri reyndar nokkuð viss um að málin myndu leysast með friðsamlegum hætti en útlitið væri svart. „Ég skil ekki hvað er að gerast og bið til guðs að við förum ekki hleypt út úr landinu nema með sérstökum undanþágum. „Ég hef reynt að komast til framhaldsnáms við erlendan háskóla. Til þess þarf ég að fá umsókn mína samþykkta hjá erlendum skóla og það er orðið of seint. Auðvitað hef ég áhyggj- ur, rétt eins og allir írakar, en ég reyni að bera höfuðið hátt. Við verðum að vera bjartsýn og standa saman í þessu. En ég get ekki neitað því að ég er hræddur." „Við höfum frétt af því að herir vesturveldanna séu tilbúnir við landamærin en við vitum ekki hvað þið eigið sökótt við okkur,“ sagði blaðamaðurinn sem vildi ekki láta nafn síns getið. Hann sagði að lífið í Bagdad gengi sinn vanagang, þrátt fyrir að síðustu daga hefði mátt sjá merki um að stríð væri yfirvofandi. Hann sagði að landamærum ír- aks hefði verið lokað og fólki ekki HELGARFERÐIR í JANÚAR FEBRÚAR OG MARS Skemmtiskrepp um helgi, kostar eJkJxuL miIuéF.« • ...með Flugleiðum. 11 KMMMHOFH Kaupmannahöfn er ævintýri líkust. Þar býðst allt sem hugurinn girnist. Góðir veitingastaðir, bjórstofur, skemmtistaðir, menning og listir. Verslanir eru opnar á laugardögum fyrir þá sem vilja nota tímann vel. Kaupmannahöfn kemur alltaf á óvart. FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS ADMIRAL / SOPHIE AMALIE TVEIR í HERB. KR. 36.390 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju oq Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í sima 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum * * * * * , P- ", »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.