Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 21
MORGUNBLAjDIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANUAR 1991,
31
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
s piiorgmnMnlii^
Danska her-
skípið verð-
ur ekki
kallað heim
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta-
vritara Morgunblaðsins.
DANSKA ríkisstjórnin hefur
ákveðið að kalla ekki herskipið
„Olfert Fischer" heim eins og
jafnaðarmenn liöfðu krafist.
Þeir hafa nú fallist á að bíða
og sjá hver framvinda mála
verður.
Uffe Ellemann Jensen utanrík-
isráðherra segir að svo lengi sem
Sameinuðu þjóðirnar hafi not fyrir
skipið eigi það að vera um kyrrt
á Persaflóa.
Dagblaðið Politiken hefur greint
frá því að um það bil 1.200 Dan-
ir, sem staddir eru í ísrael, hafi
kosið að vera þar áfram. Sendiráð
Dana í Kaíró er þó reiðubúið að
hjálpa þeim yfir landamærin til
Egyptalands reynist það nauðsyn-
legt.
j’jUÍÍUjMJ JJJÍiUUUi
Sfi(JA ISK GODA VBNW
JRUIMOGIRE/j
Þarft þú notalegan hita í bátinn eöa vinnuvél-
ina, kjörhita á vörur eða auðveldari gang-
setningu á stónririaim vinnuvélum þegar
frostið herjar?
MIKUNI vatns- og lofthitaramir koma sér vel
þar sem afköst og árangur em undir réttu
hitastigi komin en náttúruöflin bjóða aðeins
upp á kulda og trekk.
MIKUNI hitaramir em vönduð framleiðsla og
samþykktir af Siglingamálastofnun ríkisins.
Þjónustunni má treysta!
MIKUNIHITARAR FÁST í ÝMSUM STÆRÐUM:
ALLTFRÁ2TIL70KW.
IX
HátæRinitif.
Ármúla 26,108 Reykjavík, sími 91-31500 og 91-36700
Aukinn viðbúnaður
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
VIÐBÚNAÐUR vegna hugsan-
legra hryðjuverka Iraka í
Svíþjóð hefur verið aukinn til
muna. Qryggisyfirvöld hafa í
samvinnu við Ingvar Carlsson
forsætisráðherra gert áætlanir
um hvernig tryggja skuli öryggi
ríkisstjórnarinnar, annarra
stjórnvalda og atvinnulífsins.
Frá því írakar gerðu innrás í
Kúveit hefur viðbúnaður vegna
hryðjuverkahættu verið aukinn
jafnt og þétt. Þegar frestur sá sem
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
gaf Irökum til að draga heri sína
frá Kúveit rann út í gærmorgun
voru vegabréfseftirlit og tollgæsla
hert mjög við landamæri Svíþjóð-
ar. Öryggisgæsla við sendiráð er-
lendra ríkja hefur verið stóraukin
með sérstakri áherslu á sendiráð
Bandaríkjanna.
SAS-flugfélagið tilkynnti á
þriðjudag að aðeins yrði flogið
með farþegafarangur til Svíþjóðar
þar til deilunni við Persaflóa lýk-
ur. Allur flutningur pakka og bréfa
hefur verið stöðvaður. Þá hefur
SAS hætt öllu flugi á leiðum milli
Svíþjóðar og Miðausturlanda og
hvatt starfsfólk sitt á svæðinu til
að koma heim.
Utanríkisráðuneytið ætlar að
flytja allt starfsfólk sendiráða á
átakasvæðinu þaðan og hefur
hvatt alla Svía sem starfa í Mið-
austurlöndum, en þeir eru um
2.500 talsins, að koma heim með
fjölskyldur sínar hið snarasta.
PageMaker • Macintosh
Nauösynlegt námskeið fyrir alla sem vinna aö útgáfu!
12 klst námskeiö fyrir byrjendur og lengra komna!
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - flmm ár í forystu
"«Sl
UfPVI
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL.
MUPMAMAHOFN
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjargötu 2, Hótel Esju oq Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i sima 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum
HEL6ARFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
ADMIRAL / SOPHIE AMALIE
TVEIR í HERB. KR. 36.390 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið