Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 26

Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANUAR 1991 J Mikil vinna hjá Álafossi: Fleiri ráðnir ef samn- ingar við Rússa takast ÓVENJU mikið er að gera hjá Álafossi og ekkert útlit fyrir að lát verði á vinnu eins og stundum hefur orðið yfir daufasta tíma ársins í framleiðslunni sem er frá desember og fram í mars. Bæði í vefdeild og prjónadeild eru næg verkefni fyrirliggjandi til loka febrúar og takist samningar um sölu til Sovétríkjanna verður að bæta 30-40 manns við til starfa í prjónadeildinni. Sigurður Einarsson framleiðslu- stjóri I vefdeild sagði að mikið væri að gera í deildinni nú, en verið er að framleiða teppi fyrir Rauða kross- inn. Fyrir áramót voru send 2.600 teppi frá verksmiðjunni og eftir er að framleiða 2.000 teppi upp í samn- inginn. „Þetta hafa verið daufír mán- uðir í framleiðslunni, en nú eru næg verkefni fyrirliggjandi og pantanir farnar að berast fram í tímann þann- ig að hljóðið í okkur er býsna gott,“ sagði Sigurður. Hermann Sigursteinsson verk- smiðjustjóri í pijónadeild tók í sama streng og sagði að óvenju mikið væri að gera miðað við árstíma. Deildin hefði verkefni út febrúar- mánuð, en verið er að framleiða peys- ur upp í viðbótarsamning sem gerður var við Rússa síðasta haust. Þá var samið um sölu á 40 þúsund peysum til viðbótar og sagði Hermann að lokið yrði við samninginn 15. febrúar. „Það er bullandi vinna hjá okkur núna, sem en nokkuð óvenjulegt því oft hefur þurft að stoppa í nokkurn tíma þetta frá desember og fram í febrúar. Það sem gerir okkur líka bjartsýna er að ailt það sem við erum að framleiða er selt, við erum ekki Flug'leiðir kaupa 40% hlut í Hótel Norðurlandi FLUGLEIÐIR keyptu í gær 40% hlutafjár í Hótel Norður- landi af Gísla Jónssyni, Þórarni Jónssyni og hlutafélaginu sjálfu. Auk Flugleiða á Flugfé- lag Norðurlands 40% hlut í hótelinu, Ferðaskrifstofa Ak- ureyrar 10% og þeir Gisli og Þórarinn 10% sameiginlega. í frétt frá Flugleiðum segir að félagið telji mikilvægt að leggja fjármuni í uppbyggingu ferða- þjónustu á landsbyggðinni. Slík uppbygging verði í vaxandi mæli að fara fram úti á landi og henni verði að sinna ætli íslendingar sér að tryggja sér meiri tekjur af ferðaþjónustu við útlendinga. Flugleiðir hafi reynt að beina erlendum ferðamönnum út á landsbyggðina, en það er jafn- framt viðleitni félagins til að tengja betur starfsemi innan- landsflugs, hótel og bílaleigu. Hótel Norðurland er í miðbæ Akureyrar, nýuppgert. að framleiða á lager eins og stundum var gert fyrir nokkrum árum,“ sagði Hermann. Hann sagði að starfsmenn pijóna- deildar biðu frétta af nýjum tveggja ára samningi við Rússa, en þeirra er að vænta jafnvel í dag. Verði af þeim samningi séu bjartir tíma fram- undan, næg atvinna fyrir þá 130 starfsmenn sem nú starfa í pijóna- deildinni í tvö ár auk þess sem bæta þyrfti við um 30-40 manns. Eyjafjarðarferjan Sæfari. Grímseyingar urðu óánægðir með breytta áætiun feijunnar sem gildi tók um áramót, en Hríseyingar sem reka ferjuna tímabundið fyrir samgöngu- ráðuneytið segja að m.a. hafi hagsmunir Grímseyinga og Hríseyinga í samgöngumálum verið hafðir í huga, jafnframt því sem kostnaður samfélagsins af þeirri merku samgöngubót sem Sæfari er verði sem minnst- ur. Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson Reynt að velja þá leið sem talin er koma sem flestum vel - segja forráðamenn Hríseyjarhrepps um breytta áætlun Eyjafjarðarferjunnar Sæfara FORRÁÐAMENN Hríseyjarhrepps segja að breyting á áætlun Eyja- fjarðarferjunnar Sæfara sem gildi tók um áramótin hafi verið gerð til að sveigja áætlun skipsins að þörfum notenda. Fram hefur komið í fréttum blaðsins að Grímseyingar séu óánægðir með breytingar sem gerðar voru á áætlun ferjunnar, m.a. töldu þeir sig ekki koma fiski á markað á Dalvík og einnig þyrftu þeir farþegar frá Grímsey sem væru á leið til Akureyrar að gista í Hrísey þar sem ferjan gengi ekki alla leið inn til Akureyrar. I greinargerð sem Morgunblaðinu hefur borist frá Hreppsnefnd Hríseyjarhrepps segir að þessi atriði séu röng. Fram kemur í greinargerðinni að þrátt fyrir ýmsa vankanta á samnýtingu skips vegna mismun- andi þarfa eyjanna hafi verið talið skynsamlegt og hagkvæmt að festa kaup á notuðu skipi frá Noregi, sem var Sæfari. Hríseyingum hefur ver- ið falið af samgönguráðuneyti að annast rekstur feijunnar tímabund- ið og um áramót tók gildi ný áætl- un feijunnar.* Segja forráðamenn Hríseyjarhrepps að breytingin hafi verið gerð til að sveigja áætlun skipsins að þörfum notenda og rangt sé að farþegar frá Grímsey þurfi að gista yfir nótt í Hrísey séu þeir á leið inn til Akureyrar. Hið rétta sé að áætlun feijunnar Sæv- ars, sem siglir milli Hríseyjar og Árskógsstrandar hafi verið sam- ræmd áætlun Sæfara þanriíg að engin bið verði í Hrísey. Þá segja þeir einnig rangt að sjómenn í Grímsey geti ekki lengur flutt fisk á markað á Dalvík, þijár áætlunarferðir séu til Dalvíkur í viku, að því viðbættu að Sæfari er laus til aukaferða alla daga nema áætlunardagana. Fram kemur að blint hafi verið rennt í sjóinn varð- andi þörf fyrir flutninga á vörum og fólki og áætlun því gerð til bráðabirgða fram til síðasta hausts. Fljótlega hafi verið ljóst að henni þyrfti að breyta og það hafi verið gert, þegar siglt hafi verið til Dalvíkur á öðrum dögum en áður var. Þá hafi Akureyri verið gerð að aðalákvörðunarstað á megin- landinu í stað Dalvíkur. Er ný áætlun var samin voru ýmis atriði höfð í huga, m.a. að Grímseyingar fái eins ódýra og góða þjónustu og mögulegt er í flutningum á fólki og vörum, að íbúar beggja eyjanna samnýti Sæ- fara til vöruflutninga til hagsbóta fyrir báða aðila, að áætlun'Sæfara sé þannig uppsett að möguleiki sé til þess að taka önnur verkefni inn á milli til að létta undir með útgerð- inni og að hagsmuna Grímseyinga og Hríseyinga sé gætt sem best jafnfram því sem kostnaður samfé- lagsins af þeirri merku samgöngu- bót sem Sæfari er verði sem minnst- ur. Áætlunin fullnægir að mati feiju- nefndar fyrsta atriðinu m.a. þar sem tvær ferðir séu á viku til Grímseyjar, nýjar vörur séu teknar á Akureyri og þeim komið samdæg- urs á áfangastað, en ef komið er við á Dalvík komast þær ekki sam- dægurs í verslanir. Þá er heimilum og fyrirtækjum sparaður flutnings- kostnaður með bílum og ferðatími farþega sem nota Sæfara styttist um einn og hálfan tíma með því að fara úr í Hrísey og taka Sævar að Árskógssandi. Hvað annað atriðið varðar, um samnýtingu, segir m.a. í greinar- gerðinni að mestallir vöruflutningar til Hríseyjar hafi færst yfir á Sæ- fara, en þeir voru áður fluttir frá Árskógsströnd með Sævari og segir að þjónusta við Hríseyinga hafi í kjölfarið versnað, en til að auðvelda samnýtingu hafi sú fórn verið færð. Þá segir um þriðja markmiðið með nýju áætluninni, að Sæfari hafi rúman tíma til annarra verk- efna og mun hann grípa inn í flutn- inga til og frá Dalvík ef nauðsyn krefur. Reikna megi með að fólks- flutningar aukist yfir ferðamanna- tímann, en slíkir flutningar falla undir önnur verkefni skipsins. Um fjórða markmiðið segir að valdir hafi verið áætlunarstaðir og áætlun sem skapi rekstri skipsins og notendum þess minnstan kostn- að og skipinu sem mesta möguleika á tekjuöflun. Samrekstur Sævars og Sæfara sé sá kostur sem best þjóni íbúum beggja eyjanna og einnig hafi rekstur feijanna skapað nýjan möguleika í ferðamálum sem komi Eyjafjarðarsvæðinu í heild til góða. I lok greinargerðar hreppsnefnd- ar segir að haft hafi verið samband við útibússtjóra KEA í Grímsey og afgreiðslumann Sæfara þar auk fleiri aðila og ekki annað vitað en flestir væru tiltölulega ánægð- ir.„Útilokað er að gera öllum til hæfis og því hefur sú leið verið valin sem talið er að komi flestum vel,“ segir að lokum. A + Agreiningur í bæjarstjórn Olafsfjarðar um sölu hótelsins: Meirihlutinn vill selja öflugum aðila hótelið ÁGREININGUR er uppi í bæjarstjórn Ólafsfjarðar varðandi framtíð Hótels Ólafsfjarðar, en bærinn er stærsti eigandi hótelsins. Rekstur- inn hefur ekki gengið sem skyldi á síðustu árum og nema heildar- skuldir þess um 26 milljónum króna. Meirihluti bæjarstjórnar vill selja hótelið öflugum aðila, en tvö tilboð hafa borist í hlutabréf bæjarins og Ferðamálasjóðs, sem er næststærsti hluthafinn, frá Skelj- ungi og Árna Sæmundsyni. Minnihlutinn vill að bærinn leysi vanda hótelsins og hann ásamt Ferðamálasjóði geri það sem hægt er til að auka starfsemina og koma rekstrinu á réttan kjöl. Á hlutahafafundi í Hótel Ólafs- um þetta mál á fundi bæjarstjórnar Til sölu á Akureyri Hólabraut: 232 fm iðnaðar- eða verslunarhús- næði; einnig fylgja teikningar, þar sem gert er ráð fyrir þremur íþúðum. Fasteignasalan hf H Gránufélagsgötu 4, Ak. Opin alla virka daga frá kl. 10-12 og 13-19. Sími 96-21878. Hermann Ri Jónsson, sölumaður, heimasími 96-25025. firði sem haldinn var í gærkvöld var ákveðið að afnema forkaupsrétt hluthafa í félaginu, en það er gert að undirlagi bæjarstjórnar Ólafs- fjarðar serri á meirihluta í hótelinu. Tilgangurinn þessa er sá að bæjar- stjórn hafi óbundnar hendur varð- andi sölu á hlutabréfum sínum í hótelinu. Tvö tilboð hafa borist í hlutabréf Ólafsfjarðarbæjar og Ferðamálasjóðs, frá Skeljungi hf. annars vegar og Árna Sæmunds- syni sjómanni í Olafsfirði hins veg- ar. Nokkur ágreiningur er uppi inn- an bæjarstjórnar um hótelmálið, en meirihluti hennar vill ræða við Skeljung vegna sölu hlutabréfanna, en minnihlutinn vill hins vegar að bærinn haldi rekstrinum áfram, reyni með öllum ráðum að leysa fjárhagsvanda hótelsins og auka í fyrradag. Rekstur hótelsins hefur ekki gengið sem skyldi og er eigið fé þess neikvætt um 4 milljónir króna. Heildarhlutafé er um 10 milljónir króna, sem skiptist þannig að Ólafs- fjarðarbær á um 6,6 milljónir, Ferðamálasjóður þijár milljónir og annað hlutafé er um 400 þúsund. Heildarskuldir hótelsins nema um 26 milljónum króna og eru lán að meðaltali til 7 ára. Þegar gjaldfallin vanskil eru um 7 milljónir. Veltan hefur að jafnaði verið um 13 millj- ónir króna á ári síðustu árin, en til að endar nái saman í rekstri þarf að fjórfalda veltuna. Skuldir hótelsins eru með veði I húseign þess, ,en þar að auki er bærinn ábyrgur fyrir 10 milljón króna skuld hótelsins. Sigurður Björnsson bæjarfulltrúi sagði að veltuna. Urðu allnokkrar umræður Jietta væru ástæður þess að bærinn hefði áhyggjur af þessu máli, stöð- ugt hefði hallað á ógæfuhliðina og fyrirsjáanlegt væri að á næstu 5 árum myndu vextir og afborganir af lánum nema um 6 milljónum króna á ári, þannig stefndi í 30 milljón króna halla að óbreyttum rekstrarforsendum. Skeljungur hefur um árabil leitað að heppilegri lóð undir starfsemi sína í Olafsfirði, en síðasta vor var fyrirtækinu úthlutað_ lóð til móts við Hótel Ólafsfjörð. í framhaldi af því kom upp sú hugmynd að fyrir- tækið keypti hótelið og sendi félag- ið inn tilboð þess efnis fyrir nokkru. Árni Sæmundssop sjómaður í Ólafs- firði sendi einnig inn tilboð, en á fundi bæjarstjórnar í fyrradag töldu menn að Skeljungur hefði betri möguleika í rekstrinum í ljósi þess að um er að ræða eitt af öflugustu fyrirtækjum landsins. Á fundinum kom fram sá vilji minnihluti bæjarstjórnar að hótelið verði ekki selt, en bærinn leysi vanda þess og geri ásamt Ferða- málasjóði allt það sem unnt er til að auka starfsemi þess. Meirihlut- inn samþykkti bókun þar sem segir að stefnt verði að þvf að selja hótel- ið öflugum aðila.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.