Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 27

Morgunblaðið - 17.01.1991, Síða 27
MÖR-GUWBLÁÐIÐ FIMMTUDAGUR Í7. JANÚAR IíH)l 27 Framkvæmdasjóður aldraðra: Aiikið hlutverk eða dul- búinn niðurskurður Heilbrigðisráðherra, Guðmundur Bjarnason, mælti í neðri deild i gær fyrir stjórnarfrumvarpi til breytinga á lögum um málefni aldraðra [nr. 82/19§9[. Samkvæmt frumvarpinu er Framkvæmdasjóði aldraðra heimilt að styrkja viðhald á þeim stofnunum aldraðra sem þegar eru starfandi, auk þess meginhlutverks að styrkja nýframkvæmdir við þjón- ustumiðstöðvar, dagvistir og þjónustu- og hjúkrunarrými fyrir aldr- aða. Þá er í frumvarpinu heimild „til að veita tímabundið rekstrarfé tU stofnana fyrir aldraða sem breyta eða hefja starfsemi eftir að fjár- lagaár hefst“. Frumvarp þetta var lagt fram í efri deild skömmu fyrir jólahlé og var áhersla á það lögð að flýta mál- inu eins og frekast væri unnt. Frum- varpið var samþykkt með breytinga- tillögum meirihluta í efri deild síðast- liðinn mánudag. Breytingatillögur sjálfstæðismanna við frumvarpið voru felldar. Guðmundur H. Garðarsson og Salome Þorkelsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokks, gerðu tvær breyt- ingartillögur. Önnur tillagan fól í sér að Framkvæmdasjóður aldraðra yrði ekki samhliða framkvæmda- og rekstrarsjóður, enda gæti slíkt eyði- lagt megintilgang hans. Hin kvað á um að sjóðurinn fengi „að fullu þær tekjur sem honum ber samkvæmt lögum með því að skerðingarákvæði frumvarps til laga um lánsfjárlög verði felld niður.“ í framsögu í neðri deild gerði Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- ráðherra neðri deild nokkra grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins. Hann dró enga dul á að með þessu frumvarpi væri hlutverk sjóðsins rýmkað; honum ætlað að veita styrki til endurbóta og viðhalds á stofnun- um aldraðra og ennfremur að veita tímabundið rekstarfé til stofnana fyrir aldraða sem breyta eða hefja starfsemi eftir að fjárlagaár hefst. I því sambandi nefndi hann m.a. að stundum þyrfti t.d. að breyta dvalar- rými í hjúkrunarrými. Að endingu lagði ráðherra til að frumvarpinu yrði vísað til annarrar umræðu og heilbrigðis- og trygginganefndar. Alexander Stefánsson (F-Vl) greindi frá þeim athugasemdum sem hann hefði gert við fyrstu umræðu um frumvarp til fjárlaga en þá voru uppi áform um að skerða lögbundið framlag til sjóðsins. Honum var það mikið fagnaðarefni að frá því hefur verið horfið. Sjóðurinn væri óskertur en hefði jafnframt fengið aukið hlut- verk. Hann vonaði að engum dytti framar í hug að skerða sjóðinn. Alex- ander taldi það ekki vera lausn til frambúðar að breyta dvalarrými í sjúkrarými og lagði áherslu á að uppbygging hjúkrunarheimila yrði að hafa vissan forgang. Ragnhildur Helgadóttir (S-Rv) sagði rétt áð vissulega vantaði fé til að bæta aðstöðu aldraðra en þetta frumvarp þjónaði ekki þeim tilgangi; það skerti möguleika framkvæmda- sjóðsins. Ríkið vantaði peninga til að reka stofnanir fyrir aldraða og ætlunin væri nú að bæta úr fjárþörf- inni með því að taka þá af því fé sem með réttu ætti að fara ti! fram- kvæmda. Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra greindi frá því að í haust hefði hann mjög beitt sér gegn því að Tramlög til sjóðsins yrðu skert og hefði það tekist en um leið væri eðlilegt að sjóðurinn fengi aukið hlut- verk. Heilbrigðisráðherra tók undir orð Alexanders Stefánssonar áð það væri ekki góður kostur að breyta dvalarhúsnæði í hjúkrunarrými en það væri þó skárra en að aldrað fólk yrði að flytja jafnvel milli héraða. Friðjón Þórðarson (S-Vl) vakti at- hygli á því að nauðsynlegt væri að dvalarheimili væru rekin í tengslum og samvinnu við sjúkrahús og aðrar sjúkrastofnanir. Hann hvatti til þesss að frumvarpið yrði athugað vandlega í þingnefnd. Atkvæðagreiðslu um frumvarpið var frestað. Fangelsismál: Deilt um hver úrskurði um einangrun og agaviðurlög FRUMVARP til laga um breytingu á lögum um fangelsi og fanga- vist, nr. 48 19. maí 1988, var til 3. umræðu í neðri deild í gær. Menn virðast sammála um að frumvarpið sé til bóta en menn greinir mjög á um hvaða aðili skuli úrskurða um einangrun og agaviðurlög í fang- elsum. Frumvarpið er lagt fram vegna tilmæla frá umboðsmanni Alþingis, en hann telur að nokkur ákvæði í lögum um fangelsi og fangavist brjóti í bága við Mannréttindasátt- mála Evrópu. Samkomulag er um að taka athugasemdir umboðs- mannsins til greina, en ágreiningur er um hvernig rétti fanga sem sæti einangrun og agaviðurlögum fanga skuli háttað. Meirihluti allsheijar- nefndar leggur til að ákvarðanir fangelsisstjóra um einangrun og agaviðurlög sæti kæru beint til dómsmálaráðuneytis. Minnihlutinn sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Kvennalista skipa vill hins vegar að ákvörðun um þessi efni sæti kæru til Fangelsismálastofnunar, ákvörðun stofnunarinnar sæti síðan kæru til dómsmálaráðuneytis. Máls- meðferð er jafnlöng í báðum tilfell- um; tveir sólarhringar. Þarf að ræða betur Ólafur G. Einarsson (S-Rn) sagði þetta frumvarp ekki hafa verið rætt nægjanlega, það hefði komið til umræðu á fámennum næturfundi rétt fyrir jólahlé. En það þyrfti að ræða þetta mál betur og allsheijarnefnd deildarinnar væri klofin í málinu og ágreiningurinn snerist um grundvallaratriði í opin- berri stjórnsýslu. Ólafur greindi frá því að for- stjóri Fangelsismálastofnunar hefði bent á, að stofnuninni væri sam- kvæmt lögum frá [988 ætlað að fara með rekstur allra ríkisfang- elsa, fullnustu refsidóma og öll mál sem vörðuðu fanga. Þar af leiðandi legði forstjóri Fangelsismálastofn- unar til, að fangi gæti skotið ákvörðun forstöðumanns fangelsis um einangrun og agaviðurlög til Fangelsismálastofnunar, ákvörðun stofnunarinnar væri síðan hægt að skjóta til dómsmálaráðuneytisins. Ólafur var þessu áliti forstjóra Fangelsismálastofnunar fullkom- lega sammála. Fangelsismálastofn- un hefði verið sett á fót til að sam- eina á einn stað verkefni fangelsis- máladeildar dómsmálaráðuneytis- ins og Skilorðseftirlits ríkisins. Ól- afur taldi að með þeirri málsmeð- ferð að kæra beint til dómsmála- ráðuneytis væri verið að vinna gegn tilgangi laganna um Fangelsismála- stofnun; hlutverk hennar fært á nýjan leik til ráðuneytisins. Ólafur greindi frá því að þeim rökum hefði verið teflt fram í fyrri umræðu að aðrir umsagnaraðilar, t.d. Lands- samband lögreglumanna, hefðu ekki tekið undir álit forstjóra Fang- elsismálastofnunar. Ræðumaður benti á að álitsgerð lögreglumann- anna tæki ekki á því atriði hvernig málsskotsrétti skyldi háttað. Það væri ekki ágreiningur um að frum- varpið í heild væri til bóta og stuðn- ingur við frumvarpið þýddi í sjálfu sér ekki stuðning við þá málsskots- meðferð sem meirihlutinn legði til. Rannveig Guðmundsdóttir (A-Rn) aftur á móti taldi að álit umsagnaraðila benti í flestum til- vikum til að menn vildu að þessum málum væri skotið beint til dóms- málaráðuneytis. Rannveig' taldi ekki vera gengið framhjá Fangelsis- málastofnun. Hlutverk stofnunar- innar væri að fylgjast með og hafa eftirlit, hún ætti ekki að vera úr- skurðaraðili, það væri hlutverk ann- ars stjórnsýslustig. Ekki pólítískt mál Kristín Einarsdóttir (SK-Rv) benti á að Fangelsismálastofnun gegndi vissulega eftirlitshlutverki og félagslegu þjónustuhlutverki við fanga. Stofnunin væri því í stakk búin til að meta hvort tilteknar ákvarðanir um agaviðurlög væru réttlætanlegar, — betur en embætt- ismenn í ráðuneyti. í þessu frum- varpi væri freklega gengið framhjá Fangelsismálastofnun. Kristín var- aði þingmenn við því að taka af- stöðu í þessu máli eftir því hvort þeir styddu ríkisstjórn eður ei. Þetta mál væri ekki þannig, það yrði að skoða með hliðsjón af réttindum og hagsmunum fanganna. Stefán Valgeirsson (SFJ-Ne) taldi eðlilegt að úrskurðarvaldið væri í dómsmálaráðuneyti en Fang- elsismálastofnun væri umsagnarað- ili. Hann hvatti til þess að slíkt yrðj athugað vandlega. Óli Þ. Guðbjartsson dómsmála- ráðherra rakti nokkuð tildrög og sögu málsins og lauk lofsorði á vinnubrögð allsheijamefndar þó því væri ekki að leyna að nefndin hefði klofnað. Dómsmálaráðherra taldi þá málsmeðferð sem Ólafur G. Ein- arsson og Kristín Einarsdóttir legðu til ekki vera nægilega skilvirka í svo mikilvægum málum sem þyrfti að úrskurða snarlega um. Máls- skotsréttur til tvegga aðila og stjórnsýslustiga hlyti og að flækja málið. Ráðherra sagði einnig að Fangelsismálastofnun væri sam- starfsaðili fangelsanna og því ekki rétt að hún úrskurðaði í þessum viðkvæmu málum. Ólafur G. Einarsson átti síðasta orðið í þessari umræðu. Hann taldi að umsjónar- og eftirlitsþlutverk Fangelsismálastofnunar gerði hana ekki vanhæfa til að úrskurða um agaviðurlög. Einnig sagði ræðu- maður m.a., að samkvæmt rök- leiðslu dómsmálaráðherra um nokkra aðila og stjórnsýslustig mætti leggja héraðsdómstóla niður og höfða mál strax í Hæstarétti, slíkt væri einfaldara. Atkvæðagreiðslu um frumvarpið var frestað. Lokað í dag UTSALAN hefst á morgun Polarn&Pyret KRINGLUNNI 8-12, SÍMI681822, OPIÐ MÁNUD.-FÖSTUD. KL. 10:00-19:00 OG LAUGARD. KL. 10:00-14:00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.