Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 31

Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 1991 . að nota aðeins þau mataráhöld í rbylgjuofna sem hönnuð eru sér- taídega fyrir örbylgjuna. Hér fer itið fyrir slíkum viðvörunum. í natvöruverslunum kaupir fólk fisk feitum sósum tilbúinn til eldunar ig fær hann afhentan í plastbökk- im. Afgreiðslufólk fullyrðir að ihætt sé að elda fiskinn í plastbökk- ínum í örbylgjuofnum. Kristberg 'ar spurður hvort öruggt sé að elda nat i þessu umbúðaplasti í ör- )ylgjuofnum? „Orbylgjan er tiltölulega nýtt ýrirbrigði," sagði Kristberg. „Eng- ím hefði til hugar komið hér áður ýrr að setja plastbakka inn í ofn. ín þetta er hægt í örbylgjuofnum." lann sagði þó að menn væru farn- r að átta sig á því að í ofninum jætu komið upp vandamál og væru •annsóknir á því svið víða hafnar. >ær hafa leitt í ljós að úr ákveðnum egundum af plasti flæðir mýking- irefni mun meira við hita í ör- aylgju og flest efni sem flæða úr plastefnum í mat streyma mest í ’ituríkan mat. Árið 1987 var gerð könnun á flæði mýkingarefnis úr PVC-plast- filmu við örbylgjuhita. í ljós kom ið í feitum mat eins og í steiktum kjúkling reyndist vera 151 mg/kg if mýkingarefninu, í svínarifjum 351 mg/kg, í kökum 191 mg/kg Dg í hnetusmjörskökum 435 mg/kg. Plast getur verið eins og grisja á lofttegundir „Algengur misskilningur er að plast hleypi engu í gegnum sig, sé það vatnsþétt,“ sagði Kristberg. „Þvi fer fjarri,“ sagði hann. „Það fer eftir tegund plastsins hveiju það hleypir í gegn. Sumar tegundir hleypa í gegnum sig lofti eins og plastið sem notað er í venjulega brauðpoka. Þar fara lofttegundir í gegn nánast eins og væri það grisja. Einu loftþéttu efnin eru málmþynna og gler.“ Kristberg sagði ekkert plast vera loftþétt og nefndi sem dæmi gosdrykki sem seldir eru á plastflöskum í Bandaríkjunum, þeir eru settir á útsölu eftir ákveðinn tíma vegna þess að gosið rýkur burt. Þó er plastefnið af þeirri gerð sem hleypir mjög litlu lofti í gegn miðað við aðrar plasttegundir. Prentefni á umbúðum matvæla Kristberg sagði að lítið væri vitað um áhrif þeirra prentefna sem not- uð eru á plastumbúðir, en þar er oft um mjög sterka liti að ræða. „Eitt af því sem við höfum áhyggj- ur af í dag,“ sagði hann, „eru pok- ar og umbúðir sem pökkunarvélin býr til um leið og hún pakkar afurð- inni.“ Hann nefndi sem dæmi mjólk- urfernurnar. Efnið í mjólkurfern- urnar kemur á rúllum þar sem ysta lag umbúðanna, sem eru með lit- prenti, liggur að innsta laginu sem síðan snýr inn á umbúðunum. Litar- efnin komast á þann hátt í beina snertingu við matvælin. Kristberg sagði að þessar umbúðir væru not- aðar i.vaxandi mæli m.a. fyrir fros- ið gi’ænmeti, safa,/grauta, sælgæti o.fl. Ef fituleysanleg efni eru í prentinu geta þau haft áhrif á gæði vörunnar og valdið óbragði. Það er hlutur sem við höfum miklar áhyggjur af vegna þess hve lítið magn þarf af mörgum þessara efna til að hafa áhrif á bragð matvæl- anna. Matur er viðkvæm vara „Matur er mjög viðkvæmur og hann getur dregið til sín lykt sem erfitt reynist að greina jafnvel með nákvæmustu tækjum. Magnið þarf ekki að vera mikið. Oft er erfitt að finna hvar á framleiðsluferlinum þessi efni komast inn í matvöruna. Þau geta komið úr leysum, þrán- aðri fitu eða einhverju öðru. í mat- vælum hafa greinst hin fjölbreytt- ustu efni, sem rakin hafa verið beint til umbúðanna. Við unnum eitt sinn verkefni fyrir fyrirtæki sem fram- leiddi kartöfluflögur," sagði Krist- berg. „í flögunum greindust leysar sem notaðir voru í prentsvertuna á pokunum og gáfu innihaldinu bragð af kveikjaralegi ...“ Opinbert eftirlit nauðsynlegt „Mjög mikilvægt er,“ sagði Krist- berg, „að bæði framleiðendur um- búða og ekki síður matvælafram- leiðendur og síðast en ekki síst neytendur sjálfir geri sér grein fyr- ir því að ákveðin efni geta flætt og flæða úr umbúðum í matvæli. Neytendur eiga því kröfu á því að hér sé starfrækt opinbert eftirlit með þessum málum. M. Þorv. HAGKAUP TILBOÐ VIKUNNAR: Nýtt kortatímabil ^ hefst í dag Nesquick kakómalt Efþú áttAllt, Bústjóra, Ópus, Stólpa eða Tok viðskiptahugbúnað en vilt byrja nýja árið með RÁÐ viðskiptahugbúnaði, þá tökum við þann eldri sem 50% afkaupverði þess nýja. Dœmi: Ráð fjárhagsbókhald Kr: 72,957/- Ráð viðskipta-lager og söluketfi Kr: 202,064/- Samráð(Ritari,skrár og töflur) Kr: 8,130/- Samtals Kr: 283,151/- JANUARTILBOÐ 1991 Kr: 141.576/- Á Til að auðvelda fyrir-tœkjum að fjáifesta í Ráðhugbúnað bjóðum við sérstakan kaupleigusmning til 2 ára. . Dœmi: Ráð fjárhagsbókhald Kr: 72,957/- Ráð viðskipta-,lager-og sölukerft. Kr: 202,064/- Samráð(Ritari,skrár og töflur) Kr: 8,130/- Samtals Kr: 283,151/- JANÚARTILBOÐ 1991 Mánaðargr... Kr: 11.798/- ...A RAÐ HUGBUNAÐI, HYUNDAI TÖLVUM OG STAR PRENTURUM. / Janúartilboði Víkurhugbúnaðar fer saman vandaður hugbúnaðar, hágœða tölvur og lágt verð. Þetta er tœkifœri sem gerir fyrirtœkinu mögulegt að tölvuvœða eða endurnýja tölvukostinn án mikilla fjárútláta, heimsóttu okkur í Hafnarfjörð eða hafðu samband við okkur í síma 65 48 70 strax því birgðirnar eru takmarkaðar. Opið til kl 19 í dag og nœstu daga. \ VÍKURHUGBÚNAÐUR Bœjarhrauni 20, Hafnarfirði, Símar:91-65 48 70,65 48 71, Myndriti: 65 48 72.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.