Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 35

Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR' 17. JANÚAR 1991 35 Guðrún Sigurbergs dóttir - Minning Fædd 25. september 1906 Dáin 7. janúar 1991 Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin bjðrt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Hún amma mín, Guðrún Sigur- bergsdóttir frá Moldbrekku, er látin og með tár í augum sendi ég henni hinstu kveðju mína. Þó veit ég að hún er hvíldinni fegin, því hún hafði svo lengi mátt þola heilsuleysi og þjáningar. Með góðra manna hjálp, ekki síst tengdadætra sinna, var hún heima þar til yfir lauk. Að öðrum barnabörnum ólöstuðum langar mig líka til að minnast á þær Guðrúnu og Jóhönnu, er bjuggu í sama húsi og amma og afi, og með umhyggju, hjálpsemi og þolinmæði léttu ömmu lífið, er hún var þrotin að kröftum síðustu árin. Er ég nú í fjarlægu landi, sit og dreg upp myndir af henni ömmu Rúnu, sé ég hana fyrir mér sitjandi við eldhúsgluggann á stólnum sín- um. Þar drakk hún kaffisopann sinn, fylgdist með þrestinum úti á túni og spilaði Ólsen við hann afa. En þar sat hún líka með pijónana sína, og á meðan kraftar entust var hún sjaldan án þeirra, því allt sem hún tók sér fyrir hendur var gert af miklu kappi. Ömmu- og lang- ömmubörnin hafa líka fengið að njóta góðs af pijónaskapnum og víst er að vettlingar og sokkar sem hún pijónaði í haust, munu verma hendur okkar og fætur á köldum dögum í Finnlandi, flíkur sem voru pijónaðar af svo góðum huga, pijónaðar af vilja fremur en mætti. Er ég hugsa lengra aftur, þá sé ég hana fyrir mér á hestbaki, tein- rétta og spengilega, með alpahúfu á höfði. Að sjálfsögðu á honum Kongi sínum, sem mér fannst alltaf merkilegri en aðrir hestar, kannski fyrir það að amma átti hann. Þó svo að ég sjálf hafi lítið verið gefin fyrir hestamennskuna, þá nutu mörg barnabörnin góðra samveru- stunda og leiðbeininga með ömmu og afa á hestbaki. Fyrir tveimur árum kom ég ásamt fjölskyldu minni heim að bænum Moldbrekku undir Fagra- skógarfjalli og rifjaði upp með dótt- ur minni sögurnar hennar ömmu, sögur af álfum og huldufólki sem voru hennar æskuvinir. Og ég sé hana fyrir mér sem lítinn stelpu- hnokka, barn náttúrunnar af guðs náð, sem gleymir sér úti við klett- ana, hvorki ys né þys nútímans fá truflað barnið. Með söknuði hugsa ég til þess að með ömmu er runnin sú kynslóð sem kunni að upplifa sögur af æðri verum, sögur sem kalla fram barnið f okkur og tengir okkur við ódauðlega hluti. Elsku afi, ég og fjölskylda mín sendum þér og þínum innilegar samúðarkveðjur og megi minningin um ömmu styrkja ykkur á erfiðum stundum. Er ég kvaddi ömmu á annan í jólum, áður en ég hélt af landi brott, sagðist hún myndi biðja fyrir okkur í kvöldbænum sínum. Á sama hátt langar mig að biðja þess að sá sem öllu ræður taki vel á móti henni ömmu Rúnu og gefi henni frið. Blessuð sé minning hennar. Ella Þrátt fyrir langvarandi veikindi ömmu og nokkuð háan aldur kom lát hennar okkur á óvart. Trúlega er það vegna þess að amma og afi hafa alltaf skipað svo stóran sess í lífi og starfi ijölskyldunnar að okkur fannst sjálfsagt að hún hlyti að lifa lengur. En samt sem áður er það staðreynd að amma er farin á hvíta hestinum sínum á vit ann- arrar tilvistar í nýju umhverfi og vakir þar örugglega yfir okkur með sömu umhyggjunni og áður. Hun var mjög trúuð og hafði örugga vissu fyrir annarri tilvist að þessari lokinni. Amma fæddist að Miklholti í Mýrarsýslu 25. september 1906 og var því á 85. aldursári. Hún var því af þeirri kynslóð sem má muna stórfenglegar breytingar á öllum lifnaðarháttum og hugsunarhætti. Undruðumst við oft hvað hún fylgd- ist vel með og sýndi þessum breyt- ingum mikinn skilning. Foreldrar hennar voru Kristín Þórðardóttir og Sigurbergur Sigurðsson sem bjuggu lengst af að Moldbrekku í Kolbeinsstaðahreppi. Hún kom úr stórum systkinahóp en systkinin eru öll látin nema Karólína, sem dvelur á Elliheimilinu Grund. Amma ólst upp við kröpp kjör og fór snemma að vinna fyrir sér. Árið 1926 lá leið hennar til Hafnarijarðar þar sem þau afi, Guðmundur Guð- mundsson, kynntust og giftust 19. júní sama ár. Þau eignuðust tvo syni, Hörð og Ólaf, auk þess sem þau tóku fósturson, Braga Þor- bergsson. Afi og amma hafa alla tíð átt' kindur og hesta. Við bamabörnin nutum þess ríkulega að vera með þeim innan um dýrin. Þær eru ótelj- andi minningamar sem streyma nú gegnum hugann og tengjast þess- um árum. T.d. þegar Rúnar og Gulli frændi fóru með þeim á hest- bak stundum oft í viku, árið um kring, bæði langar ferðir og stutt- ar, jafnt upp til fjalla sem til Reykja- víkur á kappreiðar. Alltaf skyldi amma vera með nammi í vasanum, ekki bara handa okkur heldur líka sykurmola handa hestunum. Þegar heim var komið var sest í eldhúsið og amma bakaði heimsins bestu pönnukökur og svo var keppt um hver gæti borðað flestar. Oft hvarf stór stæða af pönnukökum eins og dögg fyrir sólu og amma og afi hlógu bara að þessum hamagangi. Ömmu þótti geysilega vænt um hestinn sinn sem var hvítur og hét Kóngur. Hún missti mikið þegar hann dó í hárri elli. Trúlega hafa aðrir hestar sem hún eignaðist aldr- ei náð sömu metum hjá henni. Líkamlegri heilsu ömmu fór að hraka fyrir all löngu og varð hún sífellt meira bundin við stólinn sinn heima og varð því mikið upp á aðra komin með alla snúninga. En það átti hún dálítið erfitt með að sætta sig við því hún var stolt og dugleg og vildi sjá um sitt sjálf. Með að- stoð fjölskyldunnar, ekki hvað síst t Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa EGILS ÁSTBJÖRIMSSOIMAR, Álftamýri 22, fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 18. jánúar kl. 15.00. Ásta Stefánsdóttir, Kristín Egilsdóttir, Margrét Egilsdóttir, Ástbjörn Egilsson, Elín Sœmundóttir, Stefón Egílsson, Gunnar Egilsson, Sigrún Halldórsdóttír, barnabörn og barnabarnabörn. Jóu og Harðar sem búa í sama húsi, Guðrúnar hjúkrunarfræðings og svo auðvitað hennar Öddu síð- ustu árin gekk þetta bara ágætlega þrátt fyrir heilsubrest. En í Öddu eignaðist hún góða vinkonu sem henni þótti mikið til koma og það hefur afi einnig metið mikils. Nú seinni árin var oft setið í eld- húsinu hjá þeim og spjallað um heima og geima. Umræðuefnið gat jafnt verið fjölskyldumál sem pólitík og allt þar á milli. Þó ekki værum við amma alltaf sammála og gátum jafnvel deilt, skildum við alltaf með bros á vör og gleði í hjarta, annað var ekki hægt þegar amma átti í hlut. Ömmu var mjög annt um vel- ferð okkar barnabarnanna og þá ekki síður litlu barnabörnunum. Hún yngdist upp um mörg ár í hvert skipti sem litlu krílin stöldr- uðu við hjá he.nni og manni fannst oft sem hún 'gleymdi lasleikanum þegar hún var að sækja kökur og nammi inn í skápana og afi náði í kók á meðan. Ósjaldan voru börnin leyst út, með ullarsokkum og vettl- ingum sem hún pijónaði heil ósköp- in af. Amma var alla tíð mikið náttúru- barn og unni jafnt sveitinni sinni sem fuglunum utan eldhús- gluggans. Hún kunni frá mörgu að segja, bæði sögur af lífsbaráttu þeirra afa og uppvexti sínum í sveit- inni innan um álfa og huldufólk sem hún náði sambandi við. Þessa fróð- leiks munum við börnin njóta um ókomna tíð. Nu þegar við kveðjum ömmu er okkur efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa þau afa svona lengi með okkur. Því fyrir lítil börn að alast upp í svona nánum tengsl- um við afa og ömmu, langafa og langömmu í næsta nágrenni er al- veg ómetanlegt. Söknuðurinn er mikill en þó mestur hjá hafa sem misst hefur langmest. Elsku afi, með Guðs hjálp munum við öll hjálpast að við að gera sorg- ina léttbærari. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Rúnar, Kristín og Erling. t Elskulegur eiginmaður minn, ÞÓRÐUR JÓNSSON, Stiilholti 15, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 11. janúar sl. Minningarathöfn verður í Akraneskirkju föstudagin 18. janúar kl. 11.00. Jarðsett verður að Melstað laugardaginn 19. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem'-vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness eða Samhjálp hvítasunnumanna. Fyrir hönd dætra og annarra ástvina, Skarpheiður Gunnlaugsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Hlíðarhjalla 6, áður Smárahvammi, Kópavogi, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 18. janúar kl. 13.30. Þórunn Kristjánsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Kristján Kristjánsson, Þórunn Garðarsdóttir, Helga Kristjánsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Ellen Pálsdóttir, Hólmfríður Gunnlaugsdóttir, börn og barnabörn. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför KRISTÍNAR JAKOBÍNU SIGURÐARDÓTTUR frá Snæbjarnarstöðum, Furugerði 1, Reykjavík. Sveinbjörg Kristinsdóttir, Sigurður Guðlaugsson, Guðrún Anna Thorlacius, Halldór Geir Halldórsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð, hjálpsemi og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tendamóður, ömmu og langömmu, JENNÝAR REBEKKU JÓNSDÓTTUR, Eyjólfsstöðum, Vatnsdal. Guð blessi ykkur öll. Jóhanna Bjarnadóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir, Jón Bjarnason, Ingvar Steingrímsson, Kristín Lárusdóttir, ömmubörn og langömmubörn. + Hjartans þakkirtil ykkar allra, sem auðsýnt hafið einstæða samúð og vinarhug við andlát og jarðarför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, fósturmóður, ömmu og langömmu, LAUFEYJAR TRYGGVADÓTTUR, Bugðulæk 18. Guð blessi ykkur öll. Tryggvi Þorsteinsson, Þuríður Þorsteinsdóttir, Jóhannes Þorsteinsson, Jónfna Þorsteinsdóttir, Haukur Þorsteinsson, Sigurlína Helgadóttir, Elín Jónsdóttir, Þorsteinn Jóhannesson, Hjördís Björnsdóttir, Barði Friðriksson, Sjöfn Magnúsdóttir, Guðmundur Finnbjörnsson, Guðrún Blöndal, Steinar Jakobsson, bræður, barnabörn og barnabarnabörn. PC byrjendanámskeið Skemmtilegt og gagnlegt námskeið fyrir þá, sem eru að byrja að fást við tölvur. VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku í öllum námskeiðum Tölvuskóla Reykjavíkur. Tölvuskóli Reykiavíkur 'i Wk Borgartúni 28, sími 91-687590 i %*isi&f t atit»3 . í. i.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.