Morgunblaðið - 17.01.1991, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLÁ’ÐIÐ FIMMTUDACUR 17. janúak ism
ffclk í
fréttum
AFLOG
Móðgaði Johnson
og var snúin niður!
STRIKIÐ
Kveðið fyrir kvenfólkið
Það var margt um dýrðir í
skemmtistaðnum „Yfir strik
ið“ síðastliðið föstudagskvöld. Auk
tískusýningar þar sem „Icelandic
models" sýndu harða tísku í anda
Persaflóa og sjá má á meðfylgj-
andi mynd, mættu merkilegir
kappar á svæðið. Það voru fjór-
menningar sem kalla sig Sam-
viskubræður og eru ljóðskáld.
Uppákoma þeirra var fólgin í því
að þeir tóku sér stöðu, hver í sínu
homi hússins og tóku þar í róleg-
heitum á móti ungum konum sem
þarna voru að skemmta sér og
lásu úr ljóðum sínum fyrir þær.
Féll þetta að sögn í afar góðan
jarðveg og gerðu konumar svona
yfírleitt að minnsta kosti góðan
róm að kveðskapnum.
Samviskubróðir flytur ungri
konu yóð sitt við augljósa hrifn-
ingu.
SAMVISKI
Morgunblaðið/Ingvar Sigurðsson
Frá tískusýningunni.
að gustar haldur betur um
kanadíska hlauparann Ben
Johnson og hann er ekki fyrr bú-
inn að afplána 3 ára keppnisbann
vegna ólöglegrar lyfjanotkunar á
Ólympíuleikunum í Seoul um árið,
en hann er enn kominn í kast við
lögin.
Eins og frá var skýrt í fréttum,
keppti Johnson í fyrsta sinn að
banni afloknu á íþróttamóti í
Kanada og hylltu hann 17.000
manns sem voru samankomnir í
íþróttahöllinni. Johnson keppti í
50 metra spretti og varð að láta
sér annað sætið duga. En það vissu
fáir þá, að fáum dögum áður hafði
Johnson komist' í kast við lögin
vegna líkamsárásar.
Þannig var mál með vexti, að
íþróttakona að nafni Cheryl
Theibedeaux, sem var áður félagi
Johnsons í Toronto Mazda Track
íþróttafélaginu viðurkenndi í
blaðaviðtali að hafa neytt stera-
lyija á áram áður, en væri hætt
því nú. Hún lét þess einnig getið,
að tveir félaga sinna væra frárri
á fæti en Ben Johnson sem væri
hvorki fugl né fiskur án stera-
skammta sinna.-Vitanlega fauk í
okkar mann og er ungfrúin varð
á vegi hans í íþróttahöll fyrir
nokkram dögum tafði hann ekk-
ert, heldur réðst þegar í stað á
konuna og snéri hana niður með
fantataki á hálsi. Dreif strax að
flokk manna og var gengið á milli
íþróttafólksins. Ungfrúin kærði
Johnson fyrir lögreglu vegna lík-
amsárásar og hefur verið tekin
Ben Johnson
skýrsla af honum. Sjálf er hún
marin og kramin á hálsi og hefur
lítið getað æft síðan.
Svona þar fyrir utan virðist
Johnson hafa það hið besta og
hann segist staðráðinn í að keppa
á Ólympíuleikunum í Barcelona.
Hann geri sér loks grein fyrir því
að líkaminn verði að vera laus við
lyf ef raunhæfur árangur á að
nástr Það sé ekki þess virði að fá
hjartaslag eða krabbamein um ald-
ur fram fyrir eitt eða tvö heims-
met eða medalíur.
'jt
100 kr. leikurínn mánudaga til
föstudaga kl. 12.00-17.00.
Keilusaluri
)LABANi
„Eitt lag enn“
á Hard Rock Café
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 689888
^KARNABÆR
Barnafataverslun
LAUGAVEGI 5
sími 620042
WSkKARNABÆR
f L auga veg/ 66
___ / onntzn
sími22950