Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 41

Morgunblaðið - 17.01.1991, Side 41
MOKGUNBKAÐIÐ EIMMTOD'AGIIR l'JJJAN.UAR 1991: 41 m ) Remaco hf. Framboðsraunir framsóknar Til Velvakanda! Deilurnar innan Framsóknar- flokksins í Reykjavík sýna, að ástandið er ekki betra hjá honum í höfuðborginni en öðrum flokkum, sem styðja ríkisstjómina. Þar er hver höndin upp á móti annarri. Þrátt fyrir ógnina frá Guðmundi G. Þórarinssyni ákvað Steingrímur Hermannsson að vera áfram á Hagræðing í bankakerfinu Til Velvakanda. Þar kom að því að menn fengju að sjá slagorðið „Hagræðing í banka- kerfinu" í verki. Það gerðist nýlega í smábæ á landsbyggðinni að fram- kvæmd var endurskipulagning inn- réttinga í einu bankastofnun staðar- ins (eins gott að þær eru ekki fleiri, þá hefði kannski fækkað viðskipta- vinum þessarar). Jæja, endurskipu- lagningin var á þann veg að rýmra varð um starfsfólk og væntanlega bætt vinnuaðstaða, en snöggt um óþægilegra fyrir viðskiptavini að at- hafna sig þar innandyra en áður var. T.d. er rými við gjaldkeralúgu svo þröngt að illmögulegt er að leggja frá sér skjaiatösku og afhenda pappíra um leið. Hönnuður þessarar nýsköpunar kom og leit yfir verk sitt og taldi það harla gott. Útskýrði hann fyrir iðnaðarmönnum að breytingar mið- uðu að því að stytta viðveru fólks á staðnum, það ætti að skrifa sína pappíra heima og koma með önnu atriði tilbúin. Spumingin er bara hvort ekki hefði verið einfaldast að afgreiða pöbulinn út um lúgu á vegg peningamusterisins, þá hefði líka sparast gólfþvottur og önnur óþæg- indi. Viðskipta„vinur“ Reykjanesi. Kannski óttaðist Steingrímur framboð Guðmundar G. jafn mikið og Finnur Ingólfs- son? Þeir telja ef til vill báðir, að framboð Guðmundar G. kunni að leiða til þess að Framsóknarflokk- urinn fái engan þingmann kjörinn í Reykjavík? Ég veit um marga framsóknarmenn' í höfuðborginni sem hefðu fagnað því að fá tæki- færi til að veita formanni sínum ærlega ráðningu með því að kjósa Guðmund G. eða einhvem annan. Hvað með allt fólkið sem hefur flosnað úr sveitum og sjávarpláss- um beinlínis vegna aðgerða ríkis- stjórnar Steingríms Hermanns- sonar? Þeir sem berjast í bökkum á landsbyggðinni eiga ættingi, vini og kunningja í Reykjavík. Fylgi Framsóknarflokksins hef- ur verið að minnka jafnt og þétt, bæði á landinu öllu og sérstaklega í þeim kjördæmum, þar sem Stein- grímur Hermannsson hefur verið í framboði. Steingrímur hefur lýst trú sinni á völvur eða þá sem segja fyrir um framtíðina. Nú segir ein- hver völvan, að 1991 hasli hann sér völl á nýjum vettvangi. Það er þegar komið í ljós, að hún á ekki við framboðslista framsókn- armanna í Reykjavík. Með því að greiða Framsóknarflokknum ekki atkvæði í komandi kosningum geta kjósendur auðveldað Stein- . grími að fara að spá völvunnar - hann gaf til kynna að hann myndi hætta í stjórnmálum, ef hann myndaði ekki stjórn eða sæti í rík- isstjórn að kosningum loknum. Karl Ormsson, raftækjavörður. Athyglisverð ljóðabók Kæri Velvakandi. Ég vildi gjarnan koma til skila þakklæti til höfundar bókar sem rak á fjörur mínar um hátíðarnar. Á síðustu árum hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að ungur frændi minn hefur gefíð mér bók rétt fyrir jólin, og alltaf sama daginn, 17. desember, og oftar en ekki eru það kvæði sem hann velur handa mér. Þessi ungi frændi er mikill áhuga- maður um bækur og þegar við svo hittumst um jólin er það venjan að við drögum okkar örlítið afsíðis og spjöllum um þá bók sem orðið hefur fyrir valinu. Það þarf vart að taka fram að ég gef honum alltaf bók í jólagjöf, enda er það hans ósk. Að þessu sinni fékk ég í hendurn- ar bók með biblíuljóðum. Hún heit- ir Hin nýja sýn og er skrifuð af Haraldi C. Geirssyni. Það er afar sjaldgæft að út séu gefnar bækur sem nær eingöngu snúast um boð- skap hinnar heilögu ritningar, vita- skuld er alltaf hægt að grípa til sálmabókarinnar eða Passíusál- Jólagestur Þessi steingráa læða kom sem jólagestur í íbúð við Neðstaleiti og gaut þar fimm kettlingum. Aðeins er hægt að hýsa hana tímabundið. Upplýsingar í símum 26239 og 687471. LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur SÍMI: 62 84 50 IR AÐ: 26C /VLUt manna, en í þessu tilfelli er mjög gleðilegt að sjá mann með skáld- skapargáfu veita kristinni trú lið á þessum síðustu og verstu tímum. Ég tel mig hafa svolitla yfírsýn yfír nútímalegan kveðskap, þökk sé frænda mínum unga, og bók Haraldar rís töluvert hátt upp úr þeim aragrúa kvæðabóka sem gefn- ar eru út árlega, ekki aðeins vegna innihalds heldur einnig vegna þess valds sem höfundur hefur á íjóð- forminu. Svo er val hans á orðum með miklum ágætum. Friðsældin í sumum kvæðanna jafnast á við það allra besta í okkar ljóðsögu, og ég leyfi mér að jafna sumu við afrek S'norra Hjartarsonar, þótt efni og umhverfi hans og Haraldar séu af ólíkum toga. Að lokum vil ég þakka höfundi og útgefanda fyrir þær góðu stund- ir sem bókin hefur veitt mér, frænda mínum fyrir hugulsemina og Morg- unblaðinu fyrir birtingu þessara orða. Ein ljóðelsk TILBOÐ Á FJÖLSKYLDUPÖKKUM í heilan mánuð bjóðum við nú 20% afslátt af fjölskyldupökkum sem innihalda kjúklinga, franskar, sósu og salat. Fjókkyldupakki íyrir 5. 10 kjúklingabilar, franskar, sús.i og salat. Verð áður 2520 kr. Verð nú kr. Athugið. Aðeins 400 kr. á mann. Fjolsktldupakki fyrir 3. 6 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð áður 1640 kr. Verð nú 1300 Verð nú raðou nnr i. 2 kjúklingabitar, franskar, sósa og salat. Verð áður 610 kr. Verð nú kr. 490 kr. CHICKEN Sími 16480 Þú getur bæði tekið matinn með þér heim eða borðað hann á staðnum. SKEIFUNNI 17 • 108R. • S. 681665 IVICTRON varaaflgjafinn tryggir að þú tapir ekki mikilvægum gögnum úr tölvunni þinni við rafmagnstruflanir. Við algjört raf- magnsleysi veitir VICTRON varaaflgjafinn svigrúm til að gera viðeigandi ráðstafanir áður en skaðinn er skeður. AÐVORUN!! Rafmagnstruflanir geta valdið gagnatapi úr tölvum! Við eigum VICTRON varaaflgjafana á lager í stærðum frá 400 VA til 2000 VA og getum útvegað með skömmum fyrirvara aðrar stærðir upp í 45 KW. Fullkomin viðhalds- og varahlutaþjónusta. Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita fúslega allar nánari upplýsingar. Umboðsmenn um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.