Morgunblaðið - 17.01.1991, Page 43

Morgunblaðið - 17.01.1991, Page 43
4Ö **• mRómáWSM£h^&íiú^ML HANDKNATTLEIKUR ísland og Litháen mætast í landsleikjum í Laugardalshöll síðari hluta mars: Mikilvægt ad leika sem landslið — stór þáttur í sjálfstædisbaráttunni - - sagði Janis Grinbergas, einn helsti forystumaður íþróttamála í Litháen við Morgunblaðið JANIS Grinbergas, einn helsti forystumaður íþrótta í Litháen, sagði í símasamtali við Morg- unblaðið frá Vilnius í gær að landslið landsins í handknatt- leik myndi koma til íslands í mars til að leika við landslið íslands. Hugmynd þar að lút- andi varðtil er þeir Jón Hjalta: lín Magnússon, formaður HSÍ, hittust í Ósló á dögunum á leik Norðurlandaúrvalsins og heimsliðsins. Ti'minn hentar okkur vel því við verðum í Ósló 11.-13 mars og viljum fá fleiri leiki í ferðinni. Það er mikilvægt fyrir Litháen að leika sem landslið og stór þáttur í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar," sagði Grinbergas. Eigum gott lið „Við eigum gott lið og .ijiarga leikmenn sem eru í hópi þeirra Lagt á ráðin. Þeir mæta Litháen fyrsta sinni í mars. Frá vinstri: Einar Þor- varðarson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálf- ari, Geir Sveinsson og Jakob Sigurðsson, fyrirliði. bestu. Úrslitin í síðustu leikjum okkar sýna að landslið okkar getur staðið í þeim bestu og við höfum til dæmis sigrað á mótum í Portúg- al og Hollandi nýlega. Auk þess höfum við leikið við margar þjóðir í Evrópu og náð góðum úrslitum, þrátt fyrir að hafa ekki alltaf náð að tefla fram sterkasta liði okkar,“ sagði Grinbergas. Grinbergas á sæti í dómaranefnd alþjóð handknattleikssambandsins (IHF) og er einnig aðalritari Ölympíunefndnar Litháens. Hann var á árum áður landsliðsþjálfari Sovétmanna í handknattleik og stjómaði liði þe;rra sem tók þátt í vígsluleik Laugardalshallar á sínum tíma. Frægasta lið Litháens er Granít- as Kaunas sem lék til úrslita á Evrópumótum félagsliða í hand- knattleik tvö ár í röð og sigraði í Evrópukeppni bikarhafa 1987. Lit- háar hafa oft verið valdir í sovéska landsliðið en síðan ríkið lýsti yfir sjálfstæði hafa Litháar neitað að leika fyrir Sovétríkin. „Það er alveg ömggt að við leikum ekki fyrir Sovétríkin. Við erum sjálfstæð þjóð og leikum undir okkar eigin fána. Með því að leika sem Litháen ítrek- um við kröfuna um sjálfstæði og því hefur mikið að segja að við leik- um gegn sem flestum þjóðum,“ sagði Grinbergas. Hann sagði að þrátt fyrir að al- þjóða ólympíunefndin og alþjóða handknattleikssambandið hefðu ekki viðurkennt Litháen sem full- gilt ríki, tryði hann því ekki að þess væri langt að bíða. „Við höfum spilað fjölda leikja síðustu mánuði og við eigum eftir að fá viðurkenn- ingu. Það er aðeins spurning um tíma,“ sagði Grinbergas við Morg- unblaðið. Eystrasaltsríkin vilja aðild að IHF: HSÍ hvetur til stuðnings HANDKNATTLEIKSSAMBAND íslands hvatti til þess í gær að umsóknir frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen, um aðild að alþjóða handknattleikssambandinu, yrðu samþykktar. Eg sagði Grinbergas, þegar við aðild að IHF. Einnig sendi HSI í hittumst í Osló, að mikill áhugi gær símbréf til allra annarra hand- væri á íslandi að efla samstarf við knattleikssambanda í heiminum, Eystrasaltsríkin, ekki síst á sviði með sömu skilaboðum, og var þar íþrótta, og landsleikur milli þessara að auki vonast eftir því að viðkom- þjóða væri mikil viðurkenning á andi styddi umsóknir ríkjanna, þeg- sjálfstæði þeirra, þar sem þjóðfánar ar þær yrðu teknar fyrir á IHF- færu að húni og þjóðsöngvar yrðu þinginu næsta haust, sem haldið leiknir. Hann tók undir þetta, sagði verður í tengslum við Ólympíuleik- það mjög áhugavart og óskaði þess ana í Barcelona. að við styðjum það að Litháen verði ísland er eina landið sem sent aðili að alþjóða handknattleikssam- hefur IHF siíkt bréf. bandinu," sagði Jón Hjaltalín Jón Hjaltalín sagðist, um vænt- Magnússon, formaður HSÍ, við anlegaheimsókn'Litháa, munugera Morgunblaðið. gera ríkisstjóm íslands grein fyrir HSÍ sendi í gær símbréf (fax) til málinu. „Ég vona að hún styðji alþjóða sambandsins þar sem segir okkur bæði siðferðislega og fjár- að íslenska ríkisstjórnin hafi ávallt hagslega, til að geta boðið landsiiði litið 4 Eystrasaltsríkin þrjú, Eist- Litháens — og einnig liðum frá hin- land, Lettland og Litháen, sem um Eystrasaltsríkjunum — til ís- sjálfstæð ríki. HSÍ lýsi því yfir lands,“ sagði Jón Hjaltalín. stuðningi við umsóknir þeirra um „Aðeins eift lið frá hverju landi“ Raymond Hahn, framkvæmdastjóri alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, segir að sambandið geti ekki boðið ríkjunum þremur við Eystra- salt aðild vegna þess að þau séu enn.hluti af Sovétríkjunum. „Þetta er pólitískt mál og reglur sambandsins banna okkur að blanda saman íþróttum og stjómmálum," sagði Hahn í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það eina sem við getum gert er að fylgjast með þróun mála og bíða átekta. íbúar þessara ríkja eru með sovésk vegabréf og reglur okkar heimila aðeins einu sambandi frá hveiju landi aðild,“ sagði Hahn. Hann sagði að IHF hefði borist umsóknir frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen en þeim hefði verið vísað frá. Það sama hefði gerst hjá alþjóða ólympíunefndinni. „Við höfum ekki fengið bréf frá öðrum þjóðum um þessi efni og bréf Islendinga breytir engu. Við gettim ekki tekið afstöðu til inn- anríkisdeilna í Sovétríkjunum," sagði Raymond Hahn. ITSAIA 20-50% afsláttur »hum»él^p SPORTBÚÐIN 3 Ármúla 40, símar 83555 og 83655. Eiðistorgi 11, Seltjarnarnesi, sími 611055.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.