Morgunblaðið - 27.01.1991, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 27.01.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1991 17 Sovétmenn g’ag’nrýna þá sem vilja vopnahlé Sameinuðu þjóðunum. Reuter. YULI Vorontsov, sendiherra Sov- étríkjanna hjá Sameinuðu þjóðun- um, gagnrýndi á föstudag N- Afríkuríki harðlega og önnur þau ríki er vijja opinn fund i Oryggir- áði SÞ um hvcrnig koma skuli á vopnahléi í Persaflóastríðinu. hefði Öryggisráðið efni og ástæður til aðgerða þá væri það gott í sjálfu sér. „En ef aðeins á að ræða andúð á stríðinu, er engin þörf á að boða til fundar," sagði hann. Oliuflákinn á Persaflóa er þegar farinn að hafa slæm áhrif á fuglalif. Er Vorontsov ávarpaði fréttamenn sló hann fram þeirri spurningu hvers vegna nauðsynlegt væri að halda slíkan fund, eins og fulltrúar Alsír, Líbýu, Marokkó, Máritaníu og Túnis hefðu farið fram á. Vilja þeir tæki- færi „til að endurtaka þá afstöðu sína að þeir séu á móti hemaðarað- gerðum?“ spurði hann. „Enginn okk- ar aðhyllist hernaðaraðgerðir en á sama tíma eru þeir ekki tilbúnir til að fara fram á það við stjórnvöld í Bagdad að þau dragi heri sína frá Kúveit. Þeir eiga fyrst að beina ósk- um sínum þangað, síðan til Öryggis- ráðsins," sagði hann. Vorontsov ræddi við fréttmenn meðan fulltrúar í Öryggisráðinu héldu óformlega fundi þar sem þeir ráðfærðu sig hver við annan um hvernig ætti að setja fram ósk um opinn fund. Þeir koma aftur saman á morgun til að taka ákvörðun. Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar hafa gefið til kynna að þeir séu mótfallnir fundi Öryggisráðsins á þessum tíma. Vorontsov sagði fréttamönnum að Talið að olíumengunin hafi takmörkuð hernaðarleg áhrif London. Washington. The Daily Telegraph. Bandaríkjamenn hafa sakað Iraka um „umhverfishryðjuverk“ með því að dæla olíu í Persaflóa. Irakar segja að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á oliulekanum því þeir hafi ráðist á írösk olíuskip. Gaddafi Líbýuleiðtogi hefur snúist til varnar Saddam Hussein íraksforseta og segir að í stríði helgi tilgangurinn meðalið. Samkvæmt upplýsingum Pete Williams, talsmanns bandaríska vamarmálaráðuneytisins, hefur olí- unni verið dælt út úr olíuskipalægi á Sea Island 10 mílum undan ströndu Kúvæt. Hann telur að um helmingur olíunnar komi frá fimm íröskum olíuskipum sem tóku olíu í olíuhöfn í írak í október en hafa síðan legið við bryggju í hafnar- borginni Mina al-Ahmadi í Kúvæt. Williams sagðist ekki vita nákvæm- lega hve mikilli olíu hefði verið Hvernig bandamönnum berst njósn af Scud Innrauður sjónauki gervitunglsíns nemur hitann f ró Scud-eldflaugum nær samstundis eftir að þeim er skotið, en eina til tvær minútur tekur að reikna út hvert flauginni er stefnt. Flugtími þeirra til Ryadh, Tel Aviv og Haifa er um fimm minútur, en um þrjúr mínútur til Dahran. 15 bandorískir njósnahnettir eru scrstaklega helgaðír fyrir botni Persaflóa, en bandariskar og óstralskar jarðstöðvar nema upplýsingar fró þeim og koma óleiðis. Alite Springs Nurrungar dælt út í sjó en sagðist-telja að um væri að ræða nokkrar milljónir tunna og væri líklegt að tjónið yrði meira en tólf sinnum meira en þeg- ar olía lak úr olíuskipinu Exxon Valdez við Alaska árið 1989. Þótt þá hafi tjón orðið mikið vegna við- kvæms lífríkis við strönd Alaska er það slys ekki nema hið 34. í röðinni ef magn olíu er mælikvarð- inn. Þá fóru 1,8 milljónir tunna af olíu í sjóinn. En talið er að allt að 10 milljónir tunna af olíu hafi streymt úr Ixtoc-olíulindinni í Mex- íkóflóa árin 1979-1980. Williams sagði að bandaríska varnarmálaráðuneytið vissi ekki hvort írakar dældu enn olíu eins og þeir hefðu gert undanfarna þijá daga og stærð olíuflákans væri breytingum undirorpin. En ljóst væri að afleiðingarnar fyrir ríki við Persaflóa yrðu alvarlegar. Flákinn hefði þegar teygt sig suður fyrir landamæri Kúvæt og Saudi-Arabíu og ógnaði ströndinni við Ras al- Khafji. Embættismenn hjá orku- málaráðuneyti Bandaríkjanna segja að olían gæti ógnað starfsemi sjó- hreinsunarstöðva innarlega í flóan- um. Bæði Kúvæt og Saudi-Arabía eru mjög háð vatni þaðan en fulltrú- ar bandamanna segja að þeir hafi önnur ráð með að útvega herliði sínu vatn. Flóinn líkist stöðuvatni Sem stendur hafa menn mestar áhyggjur af árifum á lífríki í flóan- um. En breska dagblaðið The Daily Telegraph segir ólíklegt að áhrifin yrðu jafn geigvænleg og þegar olíu- skipið Exxon Vvaldez fórst. En líklegt er að olíumengunin verði vandamál um nokkurt skeið. Straumar eru litlir á flóanum og honum svipar til stórs stöðuvatns þar sem Hormuz-sund er einungis 40 mílur á breidd. Á friðartímum auðveldar þetta sérfræðingum að kljást við olíumengun. En á ófrið- artímum er afleiðingin sú að ólík- legt er að öldugangur einn og sér vinni bug á olíumenguninni. Þess í stað færist flákinn hægt fram og aftur og smitar allt sem hann kem- ur nærri. Ef ekkert er gert næstu tvo til þijá daga er líklegt að hráol- ían breytist í hlaup sem erfitt verð- ur að vinna á með uppleysiefnum. Síðasta dæmi um olíumengun af þessu tagi á Persaflóa var í stríðinu milli íraka og írana. Þá fóru 300.000 tunnur af olíu í sjóinn frá Nowruz olíulindunum í Iran eftir árásir íraka. Þá varð að loka einni sjóhreinsistöð og girða aðrar af. Þá þakti olíubrákin 10% Persafióa og var allt að 30 mílna breið. Churchill ætlaði að beita sömu aðferð Bandaríska varnarmálaráðu- neytið staðhæfir að olíuflákinn muni ekki hafa nein áhrif á hern- aðaraðgerðir gagnvart Kúvæt. Það sé t.d. mjög erfitt að kveikja í hrá- olíubrák. Reyndar ætluðu Bretar sér að beita sömu aðferð til að tor- velda innrás Þjóðveija sem þótti standa fyrir dyrum árið 1940. Wins- ton Churchill fyrirskipaði þá að lagðar yrðu olíuleiðslur að Ermar- sundi. En tilraunir sýndu að nær ógerlegt var að kveikja í hráolíunni. Landganga í gegnum olíubrák yrði hins vegar óneitanlega sóða- legri en ella. Talið er líklegt að land- gangan hefjist með þeim hætti að orrustuskipin Wisconsin og Misso- uri hefji skothríð á skotmörk allt að 20 mílur inn í land í Kúvæt. Þá myndu þyrlur hefja sig til flugs frá þyrlumóðurskipum eins og Nassau, Tarwa og Inchon. Þær myndu flytja tvo þriðju hluta hermanna yfir olíu- flákann upp á land. Síðan myndu loftpúðaprammar flytja skriðdreka, hermenn og brynvarða bíla á land. Olíuflákinn ætti ekki að hafa áhrif á siglingu þeirra. Við eðlilegar að- stæður myndu brynvarin farartæki sem bæði geta farið yfir láð og lög, svonefnd Amtracks, sem hvert ber 10 hermenn, sigla í land og aka upp ströndina og inn í land. I kjöl- farið kæmu hefðbundnir land- gönguprammar sem siglt er í strand og úr þeim streymdu hermenn og vopn sem ætluð eru til skriðdreka- varna. Olían gæti stöðvað þessa pramma með því að setjast í vél þeirra. Braut Scud-flauganna sést í byrgi undir Klettafjöllum Colorado Springs. Reuter. í BYRGI, djúpt í jörðu í Klettafjöllunum í Kóloradó, er lítill hópur manna, sem fer með eitt aðalhlutverkið í styrjöldinni við Persaf- lóa. Það eru þeir, sem lesa úr upplýsingum gervihnattanna og koma síðan boðunum áleiðis til yfirherstjórnar bandamanna i Saudi-Arabíu. Er þetta haft eftir heimildum innan Bandaríkjahers. Eitt þýðingarmesta starfið hefur verið að fylgjast með Scud-eld- flaugum íraka svo unnt sé að eyða þeim með Patriot-gagnflaugum en stöðin, sem hefur verið starfrækt frá 1985, er búin fullkomnasta búnaði, sem völ er á, og afar hrað- virkum tölvum. Þar sitja menn og konur í löngum röðum fyrir framan skjáina og öryggisgæslan er að sjálfsögðu ströng. Þangað hefur enginn óviðkomandi fengið að koma ef undan er skilin Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráð- herra Breta, en henni var sýnd stöðin í fyrrasumar ásamt örfáum blaðamönnum. John Pike, sérfræðingur í geim- vísindum og starfsmaður samtaka bandarískra vísindamanna, telur, að tveimur mínútum eftir að Scud- flaugin er komin á loft geti stöðin ákvarðað brautina og líklegt skot- mark og látið herstjórnina í Mið- austurlondum vita. Til frekara ör- yggis er einnig stuðst við upplýs- ingar frá bandarískri fjarskipta- og eftirlitsstöð í Alice Springs í Ástralíu. Upplýsingarnar fá stöðvarnar frá að minnsta kosti tveimur geivi- hnöttum og þegar þessum útreikn- ingum öllum, sem mega ekki taka nema örskotsstund, hefur verið komið alla leið er Patriot-gagn- flaugunum skotið. Tölvubúnaður- inn í þeim „læsir“ sig við skotmark- ið og eyðir því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.