Morgunblaðið - 29.01.1991, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞKII)■)l.;i)A(;LiR 29. JANÚAR 1991
TENNIS / OPNA ASTRALSKA MEISTARAMOTIÐ
„Sjö ára vinna skilaði árangri“
BORIS Becker og Monica Seles
sigruðu á opna ástralska
meistaramótinu ítennis um
helgina, bæði ífyrsta sinn.
Becker sigraði Lendl ífrábær-
um úrslitaleik og einvígi
tveggja bestu tennisleikara
heims. Sigurinn á mótinu var
þó alls ekki það eina því Beck-
er náði einnig efsta sæti
heimslistans sem hann hefur
lengi stefnt að.
Sjö ára vinna skilaði árangri og
ég hef í raun ekki enn áttað
mig á þessu,“ sagði Becker á blaða-
mannafundi eftir leikinn. Hann kom
ekki beint á fundinn heldur fór út
af vellinum og skokkaði góða stund.
„Ég var orðlaus og þurfti að jafna
mig áður en ég fór á fundinn. Ég
hugsaði um hve lengi ég hafði stefnt
að þessu markmiði. Ég hef oft ver-
ið nálægt og í hreinskilni sagt átti
ég ekki von á því að ná efsta sæt-
inu núna,“ sagði Becker.
Byrjunin benti reyndar ekki til
þess að Becker næði markmiðinu.
Ivan Lendl virtist líklegur til að ná
efsta sætinu af Stefan Edberg með
sigri, 6:1, í fyrstu lotunni. Upþgjaf-
irnar voru kraftmiklar og Becker
virtist ráðalaus. En hann náði sér
á strik og stal sigrinum í annarri
lotu með laglegri forhönd. Þarmeð
var sjálfstraustið komið í lag og
þrátt fyrir góðan leik Lendls átti
hann ekki svar við snilldarleik Beck-
ers.
Reuter
Boris Becker fagnaði innilega eftir sigur sinn í Ástralíu. Hann er nú kominn
í efsta sæti heimslistans í fyrsta sinn.
í úrslitalotunni unnu báðir upp-
gjafahrinur sínar þar til í þeirri
tíundu er Becker komst í 40:0 og
svaraði svo uppgjöf Lendls með
glæsilegri forhönd út við línu og
tryggði sér sigur.
„Það tók mig klukkutíma að
komast inní leikinn og'ég held að
hann hafi verið góður. Þetta var
bara spurning um nokkra bolta á
mikilvægum augnablikum,“ sagði
Becker.
„Ég lék vel og er mjög sáttur
við leikinn. Ég reyndi að gefa hon-
um ekki færi en hann sá við mér,“
sagði Lendl.
Seles sú yngsta
Monica Seles sigraði í kvenna-
flokki og varð yngsti meistarinn í
sögu mótsins, aðeins 17 ára. Hún
KNATTSPYRNA / ITALIA
Baggio í banastuði
Roberto Baggio fór hamförum með Juventus á sunnudag er liðið
sigraði nýliða Parma 5:0 í ítölsku 1. deildinni. Nýliðarnir hafa
staðið sig vel í vetur, voru í þriðja sæti fyrir helgi en brotlentu í
Tórínó. Baggio lék frábærlega — lék félaga sína vel uppi og kórónaði
góða frammistöðu með því að gera tvö síðustu mörkin, á jafn mörgum
mínútum. Juventus er í öðru sæti, ásamt Sampdoria og AC Mílanó,
en Inter, sem gerði jafntefli við Cagliari, er í efsta sæti.
■ Úrslit og staðan / B6
sigraði Jönu Novotnu 5:7 6:3 6:1.
Þetta var annar sigur Seles en hún
segist eiga margt ólært. Hún sagði
að sig vantaði stöðugleika og ætti
í vandræðum með uppgjafirnar og
lágu boltapa. „Mig langar að læra
alvöru tennis. Það er erfitt að leika
gegn slíkum spilurum og að ná
sterkari uppgjöfum hefði mikið að
segja fyrir mig,“ sagði Seles.
Novotna bytjaði vel í fyrsta úr-
slitaleik sínum á risamóti og vann
fyrstu lotuna, 7:5. Hún sótti fast
að netinu og gaf Seles fá tækifæri.
Seles náði að svara fyrir sig í ann-
arri lotu og komst í 3:0. Novotna
jafnaði 3:3 en Seles vann síðustu
þtjár hrinurnar. í síðustu lotunni
hafði Seles mikla yfirburði og sigr-
aði örugglega, 6:1. „Ég reyndi að
leika af öryggi og beið eftir mistök-
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN
Njarðvíking-
ar einfaldlega
miklubetii
- sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálfari
UMFG, eftir að lið hans hafði tapað í Njarðvík
N jarðvíkingar styrktu enn stöðu
sína á toppi A-riðils með sann-
færandi sigri, 99:81, gegn
Grindvíkingum í „Ljónagryijunni“
í Njarðvík á sunnu-
Björn daginn. Grindvík-
, Blöndal ingar verða hins
skrifar vegar að taka sig
verulega á í þeim 9
umferðum sem eftir eru ef þeir
ætla sér að komast í úrslitakeppn-
ina. Leikur liðanna vár jafn framan
af í fyrri hálfleik, en síðan skildu
leiðir þegar botninn datt algjörlega
úr leik Grindvíkinga og í hálfleik
varmunurinnorðin 13, stig 50:37.
í síðari háifleik náðu Grindvík-
ingar að minnka muninn í 8 stig,
68:60, en Njarðvíkingar voru ekki
á því gefa neitt eftir og áður en
varði höfðu þeir náð afgerandi for-
ystu aftur og stóðu uppi sem örugg-
ir sigurvegarar í lokin.
„Njarðvíkingar eru með gott lið,
því verður ekki neitað og þeir voru
einfaldlega miklu betri. Við áttum
afleita kafla þegar ekkert gekk upp
hjá okkur og það dugar ekki í
Njarðvík. Stiginn voru mikilvæg
sem við,-urðum af, en með góðum
endáspretti getum við enn komist
í úrslitakeppnina," sagði Gunnar
Þorvarðarson þjálfari UMFG eftir
leikinn. Rondey Robinson í liði
UMf’N var besti maður vallarins
eins og svo oft áður en auk hans
áttu Teitur Orlygsson, Hreiðar
Hreiðarsson og Friðrik Ragnarsson
góðan leik. Þá má nefna Gunnar
Orlygsson sem lætur meira að sér
kveða með hveijum leik. Þetta var
ekki dagur Grindvíkinga. Guð-
mundur Bragason, aðalmaður
þeirra, náði sér aldrei á strik og
skoraði aðeins 4 stig — öll í fyrri
hálfleik.
Gjörbreytt ÍR-lið
Lið ÍR hefur heldur betur breyst
síðan fyrir áramót. Snillingurinn
Franc Booker kom til félagsins og
þá eru Ragnar Torfason, Björn
Steffensen og Karl Guðlaugsson
allir komnir í ÍR-búninginn á ný.
Tindastóll kom í heimsókn í Selja-
skólann um helgina og varð að
sætta sig við tap gegn ÍR. Þess
má geta að Pétur Guðmundsson er
enn meiddur ög lék ekki með Tinda-
stóli.
Morgunblaðið/Einar Falur
ÍR-ingar sigrudu
Tindastól
ÍR-ingar hafa sótt sig í veðrið að und-
anförnu, og fögnuðu sigri gegn hinu
sterka Tindastólsliði. Bandaríkjamað-
urinn Franc Booker átti stórleik að
vanda með ÍR. Skoraði 49 stig. Á
myndinni að ofan er Booker með
knöttinn í góðu færi en hér til hliðar
fagnar hann svö ásanit félögúm sínuhi
eftir að flautað hafði verið til leiksloka.
ÍHém
FOLX
■ STEFANIA Antonini varð um
helgina fyrsta konan til að fá leik-
bann hjá Knattspyrnusa.mbandi Evr-
ópu, UEFA. Hún fékk eins leiks
bann fyrir grófan leik í landsleik
ítala gegn Svíum í Evrópukeppninni
í desember. Þýska knattspyrnusam-
bandið var dæmt til að greiða'MOO
þúsund krónur í sekt fyrir ólæti
áhorfenda og Spánverjar fengu
sömu sekt vegna framkomu áhorf-
enda í U-21 árs landsleik gegn Al-
baníu.
■ BRETT Hull, sem leikur með
St. Louis Blues, í bandarísku
íshokkýdeildini (NHL), varð um
helgina fimmti maðurinn til að gera
50 stig í 50 leikjum. Hann gerði tvö
stig gegn Detroit Red Wings og
komst þarmeð í hóp með mönnum
á borð við Wayne Gretzky og Mario
Lemieux. -
■ ROBERT Prosinecki, einn besti
knattspyrnumaður Júgóslava, hefur
verið bannað að skipta um félag
næstu íjögur árin. Mörg félög hafa
áhuga á honum og AC Mílanó,
Real Madrid, Napólí og París Sai-
nt Germain hafa öll spurst fyrir um
hann en fengið það svar að hann fái
ekki að leika með erlendu félagi fyrr
en hann verður 26 ára. Prosinecki
er 22 ára og verður því að leika
næstu fjögur árin með Rauðu
Stjörnunni frá Belgrad.
■ BRYAN Robson var valinn í
gær valinn í enska landsliðshópinn
sem mætir Kamerún í vináttuleik
6. febrúar á Wembley. Hann fór
heim frá HM á Ítalíu í sumar vegna
meiðsla og óttuðust margir að lands-
liðsferli Robsons væri lokið, en svo
er ekki.
■ ENSKA landsliðshópinn skipa
annars eftirtaldir: Chris Woods,
David Seaman, Nigel Mai*tyn,
Gary Stevens, Lee Dixon, Stuart
Pearce, Tony Dorigo, Gai-y Pall-
ister, Des Walker, Mark Wright,
Steve Hodge, Bryan Robson,
Trevor Steven, Neil Webb, Pauí
Gascoigne, Steve McMahon,
David Platt, Chris Waddle, Gary
Lineker, Nigel Clough, Ian
Wright.