Morgunblaðið - 10.02.1991, Side 4
g - !<?(!( HAuaaa'í .0 }iu£wjuww3 nm/uianuoHOM
4 FRETTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991
ERLEIMT
liMNLENT
Fárviðri
veldur
miklu tjóni
Gífurlegt eignatjón varð um
sunnan-, vestan- og norðanvert
land á sunnudag í einhveiju mesta
fárviðri sem gengið hefur yfir í
manna minnum. Mesti vindhraði
sem mælst hefur hér á landi kom
fram á vindmæli í Vestmannaeyj-
um. Engin alvarleg slys urðu á
fólki í óveðrinu. Nokkur hús eyði-
lögðust og mjög mörg skemmdust
er þakplötur fuku og gluggar
brotnuðu. Tré rifnuðu víða upp
með rótum.
Sovétmenn mótmæla
afskiptum Islendinga
Sendiherra íslands í Moskvu,
Ólafi Egilssyni, voru á þriðjudag
afhent mótmæli sovéskra stjórn-
valda vegna afskipta íslendinga
af sjálfstæðisbaráttu Litháens.
Afstaða íslenskra stjómvalda er
óbreytt eftir sem áður.
Flugtak og Arnarflug
sameinast
Skrifað var undir samning um
sameiningu Amarflugs innan-
lands hf. og flugtaks hf. á þriðju-
dag og nýtt flugfélag stofnað um
reksturinn, íslandsflug hf., sem
annast mun rekstur áætlunar- og
leiguflugs. Heildarhlutafé verður
rúmar 50 milljónir króna.
Virkjunarkostnaður hefur
hækkað
Samkvæmt endurskoðun á
virkjunarkostnaði vegna nýs ál-
vers á Keilisnesi hefur stofnkostn-
aður hækkað um nálægt 20%
mælt í dollurum en mælt í íslensk-
ERLENT
Misheppnað
sprengjutil-
ræði gegn
stríðsráðu-
neyti Majors
Litlu munaði að hryðjuverka-
mönnum írska lýðveldishersins
(IRA) tækist að
ráða John Maj-
or, forsætisráð-
herra Bretlands,
og helstu ráð-
herra hans af
dögum í
sprengjuárás á
bústað hans í
Downingstræti 10 í miðborg
Lundúna á fímmtudag. Þremur
sprengjum var skotið með
sprengjuvörpu að bústaðnum og
ein þeirra sprakk á lóð hans, að-
eins tólf metram frá sal þar sem
stríðsráðuneyti Bretlands var á
fundi um stríðið fyrir botni Persa-
flóa. Ráðherrana sakaði ekki en
auk Majors vora m.a. Douglas
Hurd utanríkisráðherra og Tom
King varnarmálaráðherra á fund-
inum. IRA lýsti verknaðinum á
hendur sér en tilræðismennimir
komust undan.
Bandamenn búa sig undir
innrás í Kúveit
Fjölþjóðaherinn hélt uppi hörð-
um loftárásum á liðsafla íraka í
vikunni og lagði áherslu á að ein-
angra lýðveldisvörðinn, úrvals-
sveitir þeirra við norðurlandamæri
Kúveits. Heimildarmenn innan
breska hersins sögðu á þriðjudag
að undirbúningur fjölþjóðahersins
undir innrás í Kúveit væri á loka-
stigi. Francois Mitterrand
Frakklandsforseti lét svo ummælt
á fímmtudag að landorrustumar
um krónum er hækkunin innan
við almennar verðlagshækkanir.
Milljónatjón á
sumarbústöðum
Sumarbústaður eyðilagðist og
annars skemmdist á Kjalamesi
þegar brekka skreið fram vegna
mikils vatnsveðurs að undan-
fömu. Bústaðirnir urðu fyrir
mannhæðarhárri fyllu úr brekk-
unni.
Háskólasjónvarp á döfinni
Fyrirhugað er að Háskóli ís-
lands setji upp sjónvarpsstöð,
Fræðslu- og
menningarsjón-
varp Háskóla ís-
lands. Þegar hef-
ur verið rætt
óformlega við
menntamálráðu-
neytið um að fá
sjónvarpsrás til
umráða og afnot
af dreifikerfí
Ríkissjónvarps-
ins. Fræðslu- og menningarsjón-
varpið myndi því sjónvarpa um
allt land.
Umræðum um ullarvörusölu
frestað
Samningamenn sovéska sam-
vinnusambandsins frestuðu á
fimmtudag viðræðum við fulltrúa
Álafoss í tíu daga til tvær vikur.
Sovétmenn gefa þær skýringar
að þeir vilji kanna betur verðlags-
þróun og gjaldeyrismál. Ólafur
Ólafsson, forstjóri Álafoss, telur
ekki hægt að tengja þetta beint
við Litháensmálið.
hæfust í síðasta Iagi í lok mánað-
arins og ef til vill á næstu dögum.
írak ákváðu á miðvikudag að ijúfa
stjórnmálatengsl við Bandaríkin,
Bretland, Frakkland, Ítalíu,
Egyptaland og Saudi-Árabíu.
Embætti forseta Rússlands
borið undir þjóðaratkvæði
Þing Rússlands, stærsta lýð-
veldis Sovétríkjanna, samþykkti á
fímmtudag að
efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu
17. mars um
hvort stofna ætti
embætti forseta
lýðveldisins, sem
kjörinn yrði í al-
mennum kosn-
ingum. Þetta er mikill sigur fyrir
Borís Jeltsín, forseta þingsins,
sem er talinn öruggur um sigur
í slíkum kosningum. Verði hann
kjörinn forseti lýðveldisins treystir
hann mjög stöðu sína í baráttunni
við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seta og sovéska harðlínumenn.
Gorbatsjov segir
þjóðaratkvæðagreiðslu
Litháa ólöglega
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, gaf á þriðjudag út
tilskipun um að
þjóðaratkvæða-
greiðslan {Lithá-
en um sjálfstæði
lýðveldisins, sem
fram fór í gær,
laugardag, væri
ólögleg. Lenn-
art Meri, ut-
anríkisráðherra Eistlands, sagði
daginn eftir að stjóm sín hygðist
halda eigin þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði líkt og Lit-
háar þrátt fyrir tilskipun Sovét-
forsetans. Gorbatsjov lagði á mið-
vikudag ríka áherslu á að almenn-
ingur tæki þátt í þjóðaratkvæða-
greiðslu um nýjan sambandssátt-
mála, sem halda á í öllum lýðveld-
unum 17. mars.
Bandamenn gagnrýndir
fyrir árásir á íbúðahverfi
Bagdad, Nikósíu. Reuter.
ÚTVARPIÐ í Bagdad sagði á föstudagskvöld að 100 óbreyttir borgar-
ar, þar af 35 börn, hefðu farist í loftárás á borgina Nasiriyah fyrr
í vikunni. Fjarskiptamiðstöð var eyðilögð í árás sem flugvélar banda-
manna gerðu á Bagdad aðfaranótt föstudags og að sögn vitna féllu
og særðust nokkrir í árásinni. Fjarskiptamiðstöðin er í Adamiyah-
íbúðahverfinu og skemmdust rúður í mörgum húsum í hverfinu.
Álflyksur úr klæðningu miðstöðvarinnar dreifðust yfir um 500 m
svæði kringum bygginguna.
írakar sögðust hafa skotið niður
eina flugvél aðfaranótt föstudags
en þá fóra bandamenn 138 árásar-
ferðir. „Þeim mun hefnast fyrir að
gera árásir á íbúðahverfi í landi
okkar,“ sagði talsmaður írakshers
í útvarpi í gær. Útvarpsstöðin til-
kynnti að tala flugvéla og flug-
skeyta, sem írakar hefðu skotið
niður síðan Persaflóastríðið braust
út, væri komin upp í 302. Banda-
menn segjast hafa misst 31 flug-
vél, þar af 22 bandarískar. Þeir
neita því að ráðist sé af ásettu ráði
á óbreytta borgara en segja óhjá-
kvæmilegt að mannfall í röðum al-
mennings sé nokkurt þótt árásun-
um sé beint að hemaðarlega mikil-
vægum skotmörkum.
Aðstoðaratanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, Alexander Belonogov,
gagnrýndi bandamenn á föstudag
fyrir að eyðileggja íbúðahverfí í írak
af ásettu ráði, að sögn írönsku
fréttastofunnar IRNA. „Óbreyttir
íraskir borgarar ættu ekki að þurfa
að líða hörmungar. Því miður hafa
þeir upplifað mikla sorg,“ hafði
fréttastofan eftir Belonogov þegar
hann hélt frá Teheran eftir þriggja
daga heimsókn.
Iranir hafa sagt að loftárásir
bandamanna á írak fari yfir mörk
þeirrar heimildar sem gefin var með
samþykkt Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna nr. 678 um að hrekja Ir-
aka frá Kúveit með öllum tilrækum
ráðum. írakar hafa sakað flugmenn
fjölþjóða herliðsins um að gera ár-
ásir á íbúðahverfí af ásettu ráði og
segja að 320 óbreyttir borgarar
hafí látist og 400 særst í loftárásum
síðan 17. janúar sl.
Belonogov, sem átti viðræður við
Ali Akbar Velayati, utanríkisráð-
herra írans, og aðra íranska emb-
ættismenn, sagði að valdamenn í
Teheran og Moskvu væru sammála
um að binda þyrfti skjótan endi á
stríðið við Persaflóa. Ali Akbar
Hashemi Rafsanjani íransforseti
Suður-Afríka:
Reuter
Ibúar í bænum Diwaniyah, sem
er um 180 km suður af Bagdad,
við sundurtætta framhlið nokk-
urra verslana. Tuminn í baksýn
er hluti fjarskiptamiðstöðvar.
bauðst á mánudag til að hafa milli-
göngu um friðarviðræður i stríðinu
og sagðist vera reiðubúinn að hitta
Saddam Hussein íraksforseta og
tala við Bandaríkjamenn til að koma
á friði.
Kaifu á í vök
að verjast
Toshiki Kaifu, forsætisráðherra
Japans, svarar spurningum
stjómarandstöðunnar á þing-
nefndarfundi er rætt var um
fjárlög. Hart er deilt á Kaifu
fyrir að vilja leggja fram níu
milljarða Bandaríkjadollara til
aðstoðar heijum bandamanna
við Persaflóa en ráðherrann
segist ekki geta tryggt að hluti
fjárins verði ekki notaður
beinlínis til vopnakaupa þótt
hann muni mælast til þess.
Stjömarskrá Japans bannar
ríkinu að eiga aðild að hernaði
öðram en vömum landsins. Fari
svo að nefndin felli tillögur
stjómarinnar er talið að Kaifu
gæti orðið segja af sér embætti.
Þúsundir handteknar í
herferð gegri glæpum
Höfðaborg. Reuter.
SUÐUR-AFRÍSKIR lögreglumenn handtóku 11.361 mann á föstudag
fyrir ýmsa glæpi, allt frá ölvunarakstri til morða í 10 klukkustunda
herferð um allt landið. Að sögn talsmanns lögreglunnar tóku nærri
40.000 lögreglumenn þátt í leit í bílum og á heimilum og fundu
þeir eiturlyf, 17 kg af gulli, 110 stolna bíla og 90 óskráð vopn,
þ.á m. tvær vélbyssur.
„Við viljum uppræta glæpi, við
viljum sýna glæpamönnum fram á
að þeir komist ekki upp með þá.
Við eigum eftir að koma aftur og
aftur,“ sagði innanríkisráðherrann
Adriaan Vlok í sjónvarpsviðtali.
Vlok sagði nýlega að yfír Suður-
Afríku riði nú versta glæpaalda í
sögu landsins og hefði tíðni alvar-
legra glæpa og morða aukist um
nærri 30% á ári. Hann sagði að
herferðin á föstudag væri sú
stærsta sem ráðist hefði verið í og
hefði henni verið beint að „venjuleg-
um“ glæpum frekar en pólitískum
afbrotum.
Tæplega 3.000 manns vora
handtekin fyrir ölvunarakstur og
„önnur brot tengd áfengisneyslu",
sagði í skýrslu lögreglunnar þar
sem langur og ítarlegur listi var
birtur yfir leitimar og handtökum-
ar. Á listanum vora 43 handtökur
vegna morða, 42 vegna nauðgana
og 500 vegna rána og líkamsárása.
Reuter
Þrumugnýrfrá Wisconsin
Eldblossinn frá fallbyssu bandaríska orrustuskipsins Wisconsin á Pers-
aflóa lýsir upp þilfar og yfírbyggingu skipsins. Byssan hefur 16 þuml-
unga hlaupvídd og þótt skipið sé stórt hailast það nokkuð vegna aftur-
kastsins enda er skothleðslan um tonn að þyngd.
Leiðtogi „Skínandi
stígs“ á flótta 1 Perú
Lima. Reuter.
LÖGREGLA í Perú sagði á
föstudag að Ahimael Guzman,
hinn dularfulli leiðtogi skæru-
liðasamtakanna „Skínandi
stigs“, væri nú á flótta eftir að
myndband var sýnt í sjónvarpi
á fimmtudag þar sem hann sést
opinberlega í fyrsta skipti síðan
seint á áttunda áratugnum. Al-
berto Fujimoro forseti stóð fyr-
ir sýningu myndbandsins, sem
gert var upptækt þegar lögregl-
an gerði áhlaup á öryggis-
geymslu samtakanna í síðasta
mánuði.
„Lögreglan náði einnig tölvu-
disklingum með upplýsingum um
áætlanir Skínandi stígs og heilu
bókasafni með hryðjuverkabókum
og skjölum,“ sagði Hector Caro,
yfirmaður lögreglusveita er beij-
ast gegn hryðjuverkum. Lögreglan
hefur áður haldið því ranglega
fram að hún væri komin á spor
leiðtoga Skínandi stígs, sem eru
samtök harðlínukommúnista er
kenna sig við maóisma. Aðgerðir
þeirra hafa kostað 21.000 manns
Íífið og valdið miklu tjóni í Andes-
fjöllunum í Perú. Myndbandið mun
auðvelda lögreglu að finna Guz-
man, fyrrverandi heimspekipróf-
essor sem lítur á sjálfan sig sem
.„fjórða sverð marxismans“ á eftir
Marx, Lenín og Mao, að sögn
Caros.