Morgunblaðið - 10.02.1991, Blaðsíða 44
o n n
■ ■ ■
t A N D S
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
Bögglapóstur
um allt land
PÓSTUROGSlMI
MORGUNBLAÐID, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Jólaviðskipti Visa:
Vanskil eru
minni en oft
í venjuleg-
um mánuði
„VANSKIL eru minni en spáð var
og haldið hefur verið fram,“
sagði Einar S. Einarsson fram-
kvæmdastjóri Visa íslands í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Hann var spurður hvernig skil
væru á kortaúttekt á jólaúttekt-
artimabilinu, en eindagi upp-
gjörs var 5. febrúar siðastliðinn.
Heildarúttekt timabilsins var um
3.500 milljónir króna og höfðu
um 3.300 milljónir verið greiddar
á eindaga. Þetta segir Einar vera
betri skil en oft í venjulegum
mánuðum.
„Ég get staðfest það, að gagn-
stætt því sem komið hefur fram í
fjölmiðlum hafa skil verið með betra
móti en spáð var,“ sagði Einar.
Hann sagði að á kvöldi eindagans,
5. febrúar, hafi á bilinu 100 til 200
milljónir króna enn verið útistand-
andi, en það eru 3-5% af 3.500
milljónum.
„Miðað við fyrra ár eru skilin
betri og betri heldur en oft í venju-
legum mánuði," sagði Einar. Hann
sagði að líklegasta skýringin á
bættum skilum væri að lang flestir
séu farnir að kunna fótum sínum
forráð í þessum efnum. Þá hefði á
undanförnum árum einnig verið
tekið á þeim vandamálum sem hafa
komið upp og korthafar séu því
almennt skilvísari en fyrr.
Jólaúttektin nú er um milljarði
meiri en í venjulegum mánuði, bæði
vegna þess að úttektartímabilið var
lengra en venjulega hjá mörgum
kaupmönnum og vegna jólainn-
kaupanna sjálfra.
Sumaráætlun ferðaskrifstofanna:
Verð á utanlandsferðum nú
Óvenju snjólítið í Bláfjöllum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rok hefur verið í Bláfjöllum í marga daga og óvenju lítill
snjór er á skíðasvæðinu miðað við árstíma. I óveðrinu á
dögunum urðu skemmdir í Bláfjöllum eins og annars staðar.
Vír fauk út af flestum lyftunum og stólar í stólalyftunni
skemmdust. Einnig fauk upp hurð á vélaskýli og rúður brotn-
uðu í lyftuskýlum.
Á 84 km yfir
hámarkshraða
LÖGREGLAN í Keflavík stöðv-
aði um klukkan 4 í fyrrinótt ferð
ungs ökumanns, sem ók eftir
aðalgötu bæjarins á 134 kíló-
metra hraða á klukkustund.
Töluverð umferð akandi og gang-
andi fólks var um bæinn. Leyfilegur
námarkshraði er 50 km/klst., svo
ökumaðurinn ók á 84 kílómetra
hraða yfir hámarkinu. Hann var
sviptur ökuskírteininu á staðnum
og sér það ekki aftur í bráð.
10-25% lægra en á síðasta ári
FULLTRÚAR þriggja stærstu ferðaskrifstofanna, Samvinnuferða-
Landsýnar, Úrvals-Utsýnar og Veraldar, sögðu í samtali við Morgun-
blaðið að verð á utanlandsferðum, sem þær bjóða upp á í sumar,
sé 10-25% lægra en á síðasta ári. Þeir nefndu ýmsar skýringar á
þessum lækkunum, hagstæða samninga, breytt skipulag ferðaskrif-
stofanna, hagnaður fyrra árs sé notaður til að stuðla að lægra verði
nú og að verð hafi í sumum tilfellum verið of hátt í fyrra. Skrifstof-
urnar þrjár kynna sumaráætlanir sínar í dag, sunnudag.
Helgi Jóhannsson, forstjóri Sam-
vinnuferða-Landsýnar, sagði að
raunverð ferðaskrifstofunnar á
komandi sumri hafi lækkað um
5-11% og sé lægra en árið 1989.
„Þrátt fyrir 20-25% hækkun far-
gjalda vegna hærra eldsneytisverðs
tekst okkur að bjóða mun lægra
verð en í fyrra,“ sagði hann. „Við
höfum gert mjög hagstæða samn-
inga um leiguflug, þar sem sæta-
framboðið verður 10 þúsund sæti.
Raunlækkun á fargjöldum nemur
5-11% frá síðasta ári og verðið er
Efni frá CNN og Sky er meiri-
hluti sjónvarpsdagskrárinnar
ÓÞÝTT fréttaefni á ensku er nú meirihluti útsendingar beggja
íslenzku sjónvarpsstöðvanna, samkvæmt upplýsingum frá Stöð 2
og Rikissjónvarpinu. í liðinni viku, 2. til 8. febrúar, var innlent
efni um 15% útsendingar hjá RÚV en 6% á Stöð 2.
Stöð 2 sendir nú út allan sólar-
hringinn, 168 klukkustundir á
viku. Þar af voru í síðustu viku
rúmar 10 klukkustundir af inn-
lendu efni, og uppistaðan í því er
fréttaþátturinn 19:19. Erlent efni
með íslenzku tali var tæpar 13
klukkustundir, einkum barnaefni.
Erlent efni með íslenzkum texta
var sent út í 51 klukkustund.
Útsendingar CNN-sjónvarps-
stöðvarinnar tóku 94 tíma af dag-
skránni eða 56%.
í Ríkissjónvarpinu var innlent
efni á dagskrá í tæpar 22 klukku-
stundir í síðustu viku. Erlent efni
með íslenzku tali var sýnt í sjö
og hálfa klukkustund. Erlent efni
með íslenzkum texta var 19 tímar,
en útsendingar S/cy-fréttaþjón-
ustunnar 96,5 tímar, 66%.
Sjá baksvið bls. 6.
lægra en árið 1989.“
Helgi sagði að rekstur Samvinnu-
ferða-Landsýnar hefði gengið vel í
fyrra og hluti af hagnaðinum væri
nú notaður til að halda verðinu
niðri. „Sem dæmi um verð get ég
nefnt að þriggja vikna ferð fjögurra
manna fjölskyldu til Mallorka kost-
ar rúm 39 þúsund á mann.“
Tómas Tómasson hjá Úrvali-
Útsýn sagði að verð hjá þeim hefði
lækkað verulega til allra áfanga-
staða frá síðasta ári og munaði
10-25% í krónutölu. „Á þessu eru
nokkrar skýringar," sagði hann.
„Við höfum greinilega verið of dýr-
ir í fyrra og þegar nýir stjórnendur
tóku hér til starfa í desember var
starfið allt endurskoðað. Við höfum
gert nýja samninga og breytt vinnu-
tilhögun okkar.“
Tómas nefndi sem dæmi um
verðlækkun að fjögurra manna fjöl-
skyldá greiddi nú 54.400 krónum
minna fyrir þriggja vikna ferð til
Sa Coma á Mallorka en í fyrra og
munaði þar 25% á krónutölu. Ferð-
ir til Portúgal væru allt að 22%
ódýrari og til Costa del Sol á Spáni
allt að 21% ódýrari, talið í krónum.
Andri Már Ingólfsson hjá ferða-
miðstöðinni Veröld tók undir með
þeim Tómasi og Helga að algeng
lækkun fargjalda væri um 10% að
raungildi og allt upp í 20%. „Við
uáðútn hagstæðpm samningum við
spánska flugfélagið Oasis, sem við
skiptum við í fyrra og sætaframboð-
ið núna er svipað og þá,“ sagði
Andri Már. „Spánn verður mesta
ferðamannalandið, enda beinir fólk
ferðum sínum þangað fremur en til
dæmis til Grikklands eða Kýpur,
sem eru nær átökum við Persa-
flóann. Við höfum gert nýja samn-
inga á Spáni og bjóðum nýja gisti-
staði á öllum áfangastöðum okkar
þar.“
Samvinnuferðir-Landsýn bjóða
áfram m.a. ferðir til Mallorka og
Benidorm á Spáni, ferðir til Ítalíu
og sumarhús í Hollandi og Frakk-
landi. Helsta nýjungin er leiguflug
til Vínar í Austurríki og Basel í
Sviss. Úrval-Útsýn fer áfram til
Mallorka, Flórída og Portúgal, en
helstu nýjungar eru ferðir til Can-
cun í Mexíkó, rútuferð um Banda-
ríkin, sumarhús í Hollandi, flug og
bíll til Baltimore og húsbílar í Evr-
ópu. Hjá Veröld verða áfangastaðir
á Spáni áfram Mallorka, Costa del
Sol, Benidorm og Ibiza. Nýjungin
er sumarhús á írlandi.
Kynning á sumaráætlunum
ferðaskrifstofanna þriggja verður í
dag. Veröld verður með opið hús í
aðalstöðvunum í Austurstræti, Úr-
val-Útsýn verður með uppákomu á
Hótel Borg og Samvinnuferðir-
Landsýn kynna áætlun sína í hús-
næði ferðaskrifstofunnar við Aust-
urstræti.