Morgunblaðið - 10.02.1991, Qupperneq 35
MÖRGÍJNB-MDIÐ ATVIWIM A/KAÐ/SM A sgnnúdágur h
. < FÐBRUAR 1991
m
:
Forval:
Hússjóður Öryrkjabandalags íslands
- bygging 33 íbúða
Hússjóður Öryrkjabandalags íslands mun
viðhafa forval á bjóðendum vegna lokaðs
útboðs í byggingu fjölbýlishúss á Sléttuvegi
7, Reykjavík.
Þessi byggingaráfangi nær yfir uppsteypu
og lokafrágang hússins ásamt lóðarfrágangi.
Áætlaður byggingartími er frá apríl 1991 til
des. 1992. Þeir verktakar, sem óska eftir að
bjóða í verkið, sæki gögn varðandi forvalið
til Teiknistofunnar Óðinstorgi, Óðinsgötu 7,
Reykjavík, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu,
og skal umsókn hafa borist þangað eigi síðar
en föstudaginn 22. febr. nk.
Hússjóöur Öryrkjabandalags íslands.
Utboð
Húsnæðisfélag SEM óskar eftir tilboðum í
18 eldhúsinnréttingar í nýbýggingu sína á
Sléttuvegi 1-3.
Útboðsgögn verða afhent hjá undirrituðum
frá og með þriðjudeginum 12. febrúar nk.
gegn skilatryggingu kr. 5.000,-.
Verkfræðiþjónusta
Magnúsar Bjarnasonar frv.,
Lækjarseli 9, 109 Reykjavík.
IH ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Reykjavíkurhafnar, óskar eftirtilboðum íkaup
á stálþili og stagefni.
Áætlað efnismagn er um 550 tonn af stálþils-
efni og 120 tonn af stagefni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 12. mars 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sinn 25800
Qj ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum
í duotile iron fittings.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 13. mars kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN RE YK JAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
(J) ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum
í ductile iron pípur, stærð 150-800 o, heildar-
magn 14.400 m.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 13. mars kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
d) ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum
í renniloka.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opn-
uð á sama stað fimmtudaginn 14. mars, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
KENNSLA
Samvinnuháskólinn
- rekstrarfræði
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum
miðar að því að rekstrarfræðingar séu und-
irbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunar-
starfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði-
eða viðskiptabrautum eða lokapróf í frum-
greinum við Samvinnuháskólann eða annað
sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, við-
skipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjár-
málastjórn, starfsmannastjórn, stefnumót-
un, lögfræði, félagsmálafræði samvinnumál
o.fl.
Námstími: Tveirvetur, frá septembertil maí.
Frumgreinadeild til undirbúnings
rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á fram-
haldsskólastigi án tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvu-
greinar, enska, íslenska, stærðfræði, lög-
fræði og félagsmálafræði. Einn vetur.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir
á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum,
bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og
grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætl-
uð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling
næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnu-
háskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna per-
sónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skóla-
göngu með afriti skírteina og um fyrri störf.
Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er inn-
ganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir
umsækjendur ganga fyrir, sem orðnir eru
eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu
í atvinnulífinu. Námið hentar. jafnt konum
sem körlum.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan
eftir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólanám er lánshæft.
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi - sími 93-50000.
Frá Fósturskóla íslands
Dreift og sveigjanlegt fóstrunám hefst 12.
ágúst nk.
Nánari upplýsingar veittar í símum 91 -83866
og 97-11773 kl. 13.00-14.00.
Skólastjóri.
Enskunám í Englandi
í Eastbourne á suðurströnd Englands bjóð-
um við uppá val um 7 enskuskóla. Allt viður-
kenndir skólar. Námskeið frá 2 vikum uppí
1 ár, og sérstök sumarnámskeið. Einnig út-
vegum við aðra skóla á hinum ýmsu sviðum
s.s tölvu-, viðskipta- og ferðamálanámi.
Upplýsingar gefur Edda Hannesdóttir, fulltrúi
International Student Advisory Service á ís-
landi, í síma 672701 milli kl. 19 og 21 virka
daga. Starfsmaður I.S.A.S. í Eastbourne er
ávallt til aðstoðar.
Námskeið í stjórn á
áfengisneyslu
Óskar þú eftir að draga úr áfengisneyslu
þinni eða hafa betri stjórn á henni?
Námskeið í stjórn á áfengisneyslu verður
haldið á tímabilinu febrúar-apríl.
Nánari upplýsingar og skráning í s. 611359
og 675583 milli kl. 20-21 alla virka daga.
Ráðgjafar á námskeiðinu eru Auður R. Gunn-
arsdóttir, sálfræðingur og Ævar Árnason,
sálfræðingur.
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Fáskrúðsfirðingar
Fáskrúðsfirðingafélagið í Reykjavík verður
með þorrablót í Fóstbræðraheimilinu nk.
laugardag þann 16. febrúar. Heimamenn sjá
um skemmtidagskrá og leika fyrir dansi.
Borðhaid hefst kl. 20.00.
Þátttaka tilkynnist strax í síma 91-611135,
91-84946 eða 92-68024.
Fjölmennum og mætum stundvíslega.
Stjórnin.
Heyrnleysingjaskólinn
- 20 ára afmæli
Þriðjudaginn 12. febrúar nk. eru liðin 20 ár
frá því Heyrnleysingjaskólinn flutti úr Stakk-
holti í ný húsakynni í Leynimýri, nú Vest-
urhlíð.
í tilefni þessara tímamóta efnir skólinn til
afmælishátíðar í skólanum nk. þriðjudags-
kvöld kl. 20.00.
Brot úr skólasögunni í máli og myndum.
Veitingar. Allir velkomnir.
Undirbúningsnefnd.
Matreiðslumenn
Almennur félagsfundur verður haldinn á
Óðinsgötu 7 þriðjudaginn 12. febrúar kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Fræðslumál
Framsögumenn Sigrún Magnúsdóttir,
Jón Sveinsson, Pétur Snæbjörnsson
og Kristján Sæmundsson.
2. Matreiðsluskólinn okkar.
3. Vera okkar í Þ.S.Í.
4. Kosning fulltrúa á sambandsþing Þ.S.Í.
5. Önnur mál.
Stjórnin.
OSKAST KEYPT
Sumarhús
Óskum eftir kaupum á góðum, fullbúnum
heilsársbústað ca. 50 fm með rafmagni og
heitu og köldu vatni. Þarf að standa á fallegu
og gróðursælu landi fyrir austan fjall.
Staðgreiðsla fyrir rétta eign.
Upplýsingar í símum 625986, 611747 og
622791 á kvöldin.
Byggingakrani
Óska eftir að kaupa eða leigja bygginga-
krana. Allar stærðir koma til greina.
Upplýsingar í síma 622991.
Lyftari óskast
Viljum kaupa tveggja og hálfs tonna diesel-
eða rafmagnslyftara með frílyftingu á gálga
og á loftdekkjum.
Upplýsingar gefa Ragnar í síma 83470 eða
Sigríður í síma 83243.
Bílavörubúðin
FJÖDRIN
Skeifan 2 simi 82944