Morgunblaðið - 16.04.1991, Síða 1
HANDKNATTLEIKUR
JUiOíríJMttM&ífoitfo
1991
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRIL
BLAD
SKIÐI
Héðinn á leið
undir hnrfinn
GOLF: IAN WOOSNAM SIGRAÐIÁ US MASTERS MÓTINU / B4 og B5
Dusseldorftryggði sér sæti
í úrvalsdeildinni um helgina
HÉÐINN Gilsson,
landsliðsmaður í
handknattleik, sem
leikurmeð Dussel-
dorf, fer inn á spítala
ídag ogámorgun
verður hann skorinn
upp vegna meiðsla á
hásin vinstri fótar.
„Ég verð að hvíla
mig í átta til tíu vikur
og má ekki fara að
æfa neitt að ráði fyrr
en eftir þrjá mán-
uði,“ sagði Héðinn,
eftir að hann kom frá
lækni ígær.
Héðinn verður í viku
inni/ á sjúkrahúsi.
„Eg vona að aðgerðin
heppnist vel. Það er
kunnur læknir, sem sér
um landsliðsfólkið í
ftjálsum íþróttum, sem
sker mig,“ sagði Héð- -
inn.
Dusseldorf 'tryggði
sér rétt til að leika í
úrvalsdeildinni næsta
keppnistímabil með því
að leggja Hiittenberg
að velli, 20:17, í Diiss-
eldorf, en félagið vann
einnig fyrri leikinn,
20:17, í Huttenberg.
■ „Sáttur við útkomuna" / B3.
„Það hefur verið viss
presáa á okkur að
undanförnu, en nú er-
um við komnir í örugga
höfn. Félagið mun
reyna að fá tvo til þrjá
nýja leikmenn fyrir
næsta keppnistímabil,"
sagði Héðinn.
Bjami nældi
í bronsið á
opna breska
Héðinn.
BJARNI Friðriksson,
júdókappi, vann
bronsverðlaun í -95
kg flokki á opna
breska meistara-
mótinu íjúdósem
fram fór í Crystal
Palace um helgina.
Bjarni vannfimm
glímur og tapaði að-
eins einni, fyrir Gue-
netfrá Frakklandi,
sem glímdi til úrslita.
Mótið var mjög
sterkt, keppend-
ur voru alls 600 og 26
í flokki Bjarna. Hann
vann tvær glímur á ipp-
on, eina á yoko og eina
á wasari. Hann tapaði
í undanúrslitum en
tryggði sér svo bronsið
með nokkuð auðveldum
sigri.
Þess má geta - að
Bjarni varð að létta sig
um þijú kíló fyrir mótið
til að komast í þennan
þyngdarflokk.
Sigurvegari í flokkn-
um varð Meiling frá
Þýskalandi.
Bjarni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Malgorzata Mogore Tlalka frá Frakklandi hefur verið sigursæl í alþjóðamótunum í alpagreinum, sem hófust á föstudag. Hún sigraði
í stórsvigi kvenna á Akureyri í gær og varð í 1. og 2. sæti í svigi á Isafirði á föstudag og laugardag. Hér er hún á fullri ferð í fyrri
umferð stórsvigsins í Hlíðarfjalli í gær.
HANDKNATTLEIKUR
Tillaga um breyttfyrirkomulag í 1. deild karla:
Stefnt að átta
liða úrslitakeppni
Áfram tólf lið en útsláttarfyrirkomulag í úrslitakeppninni
Handknattleiksdeild FH hyggst
leggja fram tillögu til breytingar á
mótafyrirkomulagi í 1. deild karla í hand-
knattleik fyrir ársþing HSÍ. í stað úr-
slitakeppni sex efstu liða, með tvöfaldri
umferð, fari átta efstu liðin áfram og
leiki með útsiáttarfyrirkomulagi, eins og
gert er í úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Tvo sigra þarf til að komast áfram.
Samkvæmt tillögunni verða áfram
tólf lið í deildinni og þar verða leiknar
22 umferðir í einum riðli. Liðið sem lend-
ir í efsta sæti mætir liðinu í 8. sæti, liðið
í 2. sæti mætir því í 7. og svo framveg-
is. Ekki hefur verið ákveðið hvað verður
um fjögur neðstu liðin í deildinni.
Þessi tillaga á að skila meiri spennu
í mótið, enda kæmi sæti í deildinni til
að skipta miklu. Liðið sem væri ofar
fengi fyrsta heimaleikinn og það þriðja
ef til hans kæmi. Útlit er fyrir að flest
lið deildarinnar verði komin með eigin
heimavöll næsta vetur og því er að miklu
að keppa. Tekjuskipting í síðasta leikn-
um yrði þó jöfn, eins og gert er í bikar-
keppninni.
Svipuð hugmynd kom frá FH-ingum
í fyrra en þá var ákveðið að hafa frekar
sex liða úrslitakeppni eins og nú er. Að
þessu sinni hefur tillagan fengið mun
betri hljómgrunn og er fastlega búist við
því að hún verði samþykkt á ársþingi
HSÍ í lok maí.
JUDÓ