Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐ.JUDAGUR 16. APRÍL 1991
B 5
Vegurinn heim...
Hér má sjá hvernig Ian Woos-
nam, Jose-Maria Olazabal og
Tom Watson léku síðustu níu
holurnar. Efst má sjá skorið eftir
63 holur og síðan skorið á þeim
síðustu og hve langt undir pari
þeir voru
Woosn. Olaza. Watson
240 12 243 9 243 9
10. (4).. .5(11) 3(10) 3(10)
11. (4).. •4(11) 4(10) 5( 9)
12. (3).. .3(11) 3(10) 5 ( 7)
13. (5).. .6 (10) 4(11) 3 ( 9)
14. (4).. .4 (10) 4(11) 4 ( 9)
15. (5).. .4(11) 5(11) 3(11)
16. (3).. .3(11) 3(11) 3(11)
17. (4).. .4(11) 4(11) 4(11)
18. (4).. .4(11) 5(10) 6( 9)
Masters
Jack Nicklaus á fjögur met á
Masters. Hann hefur oftast
unnið, sex sinnum, 1963, 65,
66, 72, 75 og 86. Hann er elsti
meistarinn, var 46 ára er hann
sigraði 1986. Hann hefur unnið
með mesta mun, níu höggum
1965 og á besta skor vallarins
á 72 holum, 271 högg. Arnold
Palmer hefur sigrað fjórum
sinnum og þrír kylfingar hafa
sigrað þrisvar: Jimmy Demaret,
Sam Snead og Gary Players.
Þrír kylfingar hafa sigrað í
fyrstu tilraun: Horton Smith
1934, Gene Sarazen 1935 og
Fuzzy Zoeller 1979.
Ray Floyd státar af bestum
árangri eftir 54 holur, 201 högg,
árið 1976. Hann á einnig metið
eftir 36 holur ásamt Johnny
Miller 131 högg. Nick Price er
samt sá kylfmgur sem hefur náð
besta hringnum á mótinu en
hann lék á 63 höggum á
Augustavellinum fyrir fimm
árum.
lan Woosnam fagnar
sigri á bandaríska
meistaramótinu eftir
púttið á 18. holu.
lan Woosnam:
„Vildi sýna
aðégværi
bestur“
Ian Woosnam sagði fyrir mótið
að nú væri kominn tími fyrir einn
stóran titil. Hann hafði sigrað í 27
mótum en aldrei náð að krækja í
einn af þeim stóru fyrr en nú. Hann
fór í efsta sæti heimslistans fyrir
mótið og sagði hveijum sem heyra
vildi að hann ætti heima þar: „Ég
var búinn að segja að ég ætti rétt
á þessu sæti og vildi sýna að ég
væri bestur," sagði Woosnam, sem
fékk rúmlega 15 milljónir króna
fyrir sigurinn, auk græna jakkans.
Hann er ekki ýkja hár í loftinu,
1,64 m, en er gífurlega sterkur og
högglangur. Púttið var veikasta
hlið hans framan af mótinu en hann
lagaði það. „í áraraðir hef ég horft
á mótið og það hefur alltaf verið
draumurinn að vinna, helst með
pútti á síðustu holunni,“ sagði
Woosnam.
Þegar kom að síðustu holunum
fjölgaði áhorfendum og þeir voru
flestir á blandi Tom Watsons og
gáfu Woosnam engan frið. „Það
hjálpaði mér því ég efiist við mót-
læti,“ sagði Woosnam. Hann sló í
vatn á 13. holu og þá fögnuðu
áhorfendur; nokkuð sem er sjald-
gæft hjá siðuðum áhorfendum. Þeg-
ar þeir gengu af stað var kallað
úr hópnum og Woosnam bent á að
hann væri ekki að leika á sjávar-
velli: „Það var svolítið sárt en bætti
bara við skapið."
Einhveiju sinni var haft eftir
Woosnam að hann myndi vilja
skipta á tíu minni titlum fyrir einn
stóran: „Ég sagði'það aldrei," sagði
Woosnam, eftir mótið: „En ég hefði
gert það.“
.n’iEg | iol nctwjfl go igo:
Itfio!
KRTN
Lanny Wadkins hughreystir Jose Maria Olazabal eftir að hann fór síðustu
holuna á einum yfir pari.
faémR
FOLK
■ ARNOLD Palmer, goðsögnin
sjálf, hafði lítið uppúr krafsinu á
mótinu. Hann varð í neðsta sæti
ásamt tveimur áhugamönnum, lék
36 holur á 155 höggum, 11 yfir
pari. Margir frægir garpa urðu að
sætta sig við 36 holur, enda aðeins
snjallir kylfingar sem fá að taka
þátt í mótinu. Greg Norman var
þó einstaklega óheppinn og var einu
höggi frá því að komast áfram.
Arnold Palmer.
■ JACK Nicklaus hefur sex sinn-
um sigrað á mótinu en þessu vill
hann líklega gleyma' sem fyrst.
Hann afrekaði það að fara í fyrsta
sinn fjóra yfir par á einni holu.
Hann náði þó að halda sér á parinu
en margir áttu von á að hann yrði
í fremstu röð, enda oft sagt að
þeir sem hafi reynsluna eigi mesta
möguleika á vellinum.
■ NICKLAUS tók gleði sína á-
ný á 16. holunni, þriðja daginn. Þá
setti hann niður glæsilegt pútt af
rúmlega 15 metra færi. Hann þurfti
að setja boltann mjög ofarlega á
flötina og þaðan rann hann örugg-
lega ofaní. Tom Watson fylgdi á
eftir með glæsilegt pútt og í lokin
hneigðu þeir sig við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Jack Nicklaus.
■ IAN Woosnam lék mjög vel á
öðrum degi, kom inná 66 höggum,
en púttaði þó illa. Hann náði aldrei
lengra pútti en þremur metrum og
var langt frá sínu besta á flötunum.
En hann bætti fyrir það á 15. holu
með glæsilegu höggi. Hann setti
niður af 180 metra færi, með 5-
járni, og náði erni.
■ WOOSNAM tók mikla áhættu
á þriðja deginum er var nálægt því
að tapa tveimur höggum. Pútt hans
á 15. holu stoppaði á brúninni. Sam-
kvæmt reglunum hefur kylfingur
tíu sekúndur til að taka boltann,
en ef hann fer niður eftir þær fær
hann tvö högg í víti. Woosnam var
ekkert að flýta sér, þótt hvasst
væri og rokið hreyfði boltann. Til
að auka enn á spennuna lét hann
boltann vera á meðan hann tók
stöngina úr holunni en hefði hún
snert boltann hefði það einnig verið
tvö högg í víti. Woosnam ýtti bolt-
anum ofaní og sagðist ekki hafa
þorað að merkja hann því það hefði
verið svo erfltt að setja boltann á
sama stað, án þess að missa hann
ofaní. Hann hefði þó ekki fengið
víti fyrir það en stundum er það
svo að jafnvel atvinnumenn ruglast
á reglunum.