Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 12
3 8 iORI JÍHRA At 3 [UOAQIj iT.GIHö (ITffAlKVnjOHOM
■y ;•
ÍÞR&mR
FOLK
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Góður árang-
ur hjá Lyn
KNATTSPYRNUMENN í Noregi undirbúa sig nú fyrir komandi
keppnistímabii af fullum krafti. Oslólarliðið Lyn, sem Teitur
Þórðarson þjálfar, hefur vakið sérstaka athyglifyrir gott gengi
í æfingaleikjum vorsins, en Lyn vann sér sæti í 1. deildinni
síðasta haust.
Um síðustu helgi bar Lyn sig-
urorð af liði Víkings, 3:1.
En Víking varð norskur meistari
fyrir tveimur árum. Á laugardag
■■■■ sigraði Lyn lið
Etiingur Sogndal, 4:0. í
Jóhannsson báðum þessum
leikjum hefur Lyn
verið áberandi
betra liðið og á köflum yfirspilað
andstæðinga sína.
skrífarfrá
Noregi
Teitur Þórðarson sagði eftir
leikinn gegn Sogndal að hann
væri mjög ánægður með þróun
mála og litist vel á framhaldið.
Þess má geta að Ólafur Þórðar-
son, bróðir Teits, er í lykilhlut-
verki á miðjunni hjá Lyn og átti
mjög góðan leik gegn Sogndal og
skoraði m.a. tvö mörk.
Deildarkeppnin norska byrjar
27. apríl.
■ HOLGER Osieck hefur verið
ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildar-
liðsins Bochum næstu tvö árin.
Hann var aðstoðarmaður Franz
Beckenbauers er sá síðarnefndi
var landsliðsþjálfari Þjóðveija og
fylgdi honum svo til Marseille í
Frakklandi.
M BRASILÍSKI framheijinn
Muller, sem nýlega var seldur aftur
frá ítalska félaginu Tórínó til Sao
Paulo, gerði eina mark leiksins
gegn Portuguesa um helgina í
brasilísku deildarkeppninni.
■ SAO Paulo er í öðru sæti í
deildinni en Palmeiras situr í topp-
sætinu.
■ MATS Fransson, landsliðs-
markvörður Svía í handknattleik
sem leikið hefur með Irsta, hefur
ákveðið að leika með Runar í Nor-
egi næsta keppn-
Frá istímabil. Runar lék
Þorsteini fyrsta leik sinn um
?~nPa!l!syni norska meistaratitil-
lSvlÞjoð inn við Sandefjörd
á laugardaginn og tapaði, 27:20.
Þjálfari Runar er Roger Carlsson,
fyrrum landsliðsþjálfari Svía.
■ IFK Gautaborg, Örebro,
Sundsvall, Malmö FF og Öster
hafa öll fjögur stig að loknum
tveimur fyrstu umferðunum í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spymu. Þijú stig eru gefin fyrir
sigur eins og hér á landi.
Drott meist-
arií7. sinn
DROTT varð sænskur meistari
í handknattleik í 7. sinn um
helgina. Liðið vann Irsta, 23:15,
í þriðja leiknum í röð og hafði
mikla yfirburði í úrslitakeppn-
inni.
Drott, sem vann einnig sænska
titilinn í fyrra, hafði ótrúlega
yfirburði í öllum leikjunum og oft
um hálfgerða sýnikennslu að ræða.
Bestu leikmenn liðs-
ins í úrslitakeppn-
inni voru „gömlu
kempurnar“ Thom-
as Gustafsson, 38
ára markvörður, Jörgen Abrahams-
son, 36 ára hornamaður og Gjöran
Bengtsson, 34 ára línumaður, en
þeir eru allir gamalreyndir lands-
liðsmenn. Rúmenski leikmaðurinn,
Christian Zaharia, var einnig mjög
sterkur í öllum leikjunum.
Frá
Þorsteini
Gunnarssyni
ÍSvíþjóð
Ólafur Þórðarson.
Fjögur þús. áhorfendur mættu á
leikinn í Sandanter og reiknuðu
menn með sigri Teka, en Bidasoa
vann fyrri leikinn, 22:20, í Irun.
■■■■■■I Bidasoa skoraði
Frá fyrsta mark leiksins,
Atla en leikmenn Teka
Hilmarssyni sem iéku öflUga.n
varnarleik, skoruðu
næstu sex mörkin, 6:1, og voru
þeir yfir 13:7 rétt fyrir leikhlé, en
Bidasoa náði að minnka muninn í
13:9 áður en flautað var til leik-
hlés. Aðeins stórleikur Bogdan
Wenta hélt Bidasoa á floti í fyrri
hálfleik, en hann skoraði fimm af
níu mörkum liðsins.
Wenta var tekinn úr umferð á
köflum í seinni hálfleik, en þá losn-
aði heldur betur um Alfreð. Bidasoa
náði að jafna, 16:16, og síðan var
jafnt á öllum tölum til 20:20. Teka
skoraði þá tvö mörk, en Bidasoa
jafnaði, 22:22, og síðan 24:24, sem
voru lokatölur leiksins.
„Fögnuðurinn var geysilegur eft-
ir leikinn. Við unnum bikarkeppnina
á dögunum, en nú eigum við mögu-
leika á að verða Evrópumeistarar.
Bidasoa er í efsta sæti í deildinni,
en við eigum erfiða leiki eftir; úti-
leiki gegn Teka, Atletico Madrid
og Va'encia, en aðeins eitt af topp-
liðunum á eftir að leika í Irun. Það
er Barcelona," sagði Alfreð.
Alfreð skoraði sjö mörk, en
Wenta 8/1. Zuniga, markvörðui
Bidasoa, varði mjög vel í seinni
hálfleik, en á sama tíma varði Mats
Olsson, markvörður Teka, lítið sem
ekkert og var hann tekinn al
leikvelli. Kristján Arason skoraði
IAIfreð Gíslason
sagði að fögnuður-
inn hafi verið mikill
í Irun þegar Bidasoa
var búið að tryggja
sér rétt til að leika
til úrslita í Evrópu-
keppni bikarhafa.
tvö mörk fyrir Teka, en hann lék
meira með í vörninni en sókn.
Barcelona átti ekki í vandræðum
með tyrkneska liðið ETI í Evrópu-
keppni meistaraliða. Barcelona
vann, 40:14, eftir að hafa haft yfir,
22:8, í leikhléi. Vujovic og Rico,
markvörður, léku ekki með
Barcelona.
Granollers gerði jafntefli, 23:23,
gegn Caja í Madrid í úrslitakeppn-
inni á Spáni. Caja hafði yfir, 20:13,
en leikmenn Granollers gáfust ekki
upp og jöfnuðu. Geir skoraði þijú
mörk fyrir Granollers.
HANDKNATTLEIKUR
Alfreð
var
óstöðv-
andi gegn
Teka
- skoraði sjö mörk gegn Kristjáni Ara-
syni ogfélögum. Bidasoa leikurgegn
Milbertshofen í Evrópuúrslitum
ALFREÐ Gíslason fór á kostum
í seinni hálfleik þegar Bidasoa
gerði jafntefli, 24:24, við Teka
í Santander og tryggði sér þar
með rétt til að leika gegn Mil-
bertshofen til úrslita í Evrópu-
keppni bikarhafa 4. og 18.
maí. Það fór lítið fyrir Alfreð í
fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik
var hann óstöðvandi og skor-
aði sjö glæsileg mörk. „Það
gekk allt upp hjá okkur,“ sagði
Alfreð.
HANDBOLTI
ÉMjttMÍ . L' f 5 ' ' : f • ' ffiM | v " i *;ý |
jj \m f m -! * 41f Iíj %1'íUttl V i,’ l| 'piíiilt'J (