Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 2
h HJARTAÐ OG mNSÆÐASJÚKDÓMAR Á ÍSLAHDI mun víðar inn í fæðukeðjuna en hinar fitutegundimar, þar sem hægt var að nota það til steiking- ar, í sósur, sem viðbit á brauð og í bakstur. Það er ekki fyrr en um 1970 eða jafnvel síðar, sem al- mennt er farið nota matarolíur í einhveijum mæli til steikingar. Breyttir lífshættir Á þessum tíma var samsetning smjörlíkis til viðbits stórbætt og Sólblóma kemur á markaðinn. Framboð eykst af grænmeti og lambakjöti og fiskur verður ekki eins oft á borðum og áður hjá yngri kynslóðinni er framboð eykst af kjöttegundum. Breytingin verður eftir 1980, er fjölbreytni eykst í matargerð. Fiskurinn verður vin- sæll á ný, Smjörvi kemur á markað og matur er minna brasaður en áður og örbylgjuofnar koma til sög- unnar. Nú er ekki ljóst hvort breytingar í samsetningu matarins, matar- gerðin eða feitin hefur haft áhrif á kransæðasjúkdóma. Hvað sem því líður leiða kransæðasjúkdómar fleiri karla til dauða hér á landi en aðrir sjúkdómar. Dánartíðni af völdum þessara sjúkdóma er þó síst hærri hér en á öðrum Norðurlönd- um. Næringin Bandarískir vísindamenn í nær- ingarfræðum hafa komist að því að fjölmargt virðist geta raskað starfsemi hjartans. Hægt er að örva kransæðasjúkdóma í tilraunadýrum með því einu að ala þau á kopar- snauðri fæðu. (kopar er snefilefni) Einnig varð mikil aukning á krans- æðasjúkdómum hjá tilraunadýrum sem skorti kopar ef þau fengu óheftan aðgang að fæðu sem inni- hélt mikinn fruitosa (ávaxtasykur) eða hunang. En áhrifín virtust vera kynbundin, karldýrin hrundu niður úr hjartasjúkdómum eftir aðeins 8 vikur, vegna mikiliar stækkunar hjartans, blóðleysis og mikils kól- esterólmagns í blóði. Kvendýrin, sem ekki voru með of hátt kólester- ól í blóði, voru aftur á móti heil- brigð. Þeirri spumingu hefur verið varpað fram í sambaiidi við þessa sykurneyslu, hvort mögulegt sé að koparskortur geti verið til staðar í fæði almennings í Bandaríkjunum og hvort skortur á öðmm nauðsyn- legum snefílefnum eins og zinki, magnesíum, nikel og vanadíum geti haft svipuð áhrif og kopar. Bent er á að framleiðendur hafí aukið mjög notkun á ódýrum náttúmleg- um sætuefnum og að þau séu nú látin í matvæli eins óg unnar mat- vörur og í gosdrykki. Streitan Flestum ber saman um að góð næring og heilbrigðir lífshættir séu veigamiklir forvarnaþættir í barátt- unni gegn kransæðsjúkdómum. Streita og andlegt hugarástand eins og gremja, áhyggjur, vonleysi og Inga Ingibjörg Guðmundsdótt- iroglngibjörg Stefánsdóttir vinna að MONICA-rann- sókninni við skráningu kransæðatil- fella méðal Is- lendinga. örvænting hafa lengi verið álitnir beinir og óbeinir áhættuþættir hjartaáfalla. Margir þekkja dæmi um að reiði hafi orðið hjartanu of- viða. Steitan hefur reynst mörgum náinn fylginautur í velmegunar- þjóðfélagi þar sem samkeppni er mikil og örðugt reynist að uppfylla allar vonir og væntingar. Hófleg streita er þó talin nauðsynleg, en hún getur verið einstaklingum til skaða hafí hann ekki valdi yfír henni. Streitu reynist örðugt að mæla en fjöldi óviðráðanlegra atvika, sem raska lífsmunstri einstaklingsins, virðist geta komið henni af stað. Streitan sjálf er ekki sjúkdómsvald- ur en taugaspennan sem henni fylg- ir er talin geta valdið líffræðilegum breytingum í vefjum og örvað sjúk- dóma. Það virðast þó ekki vera stóru atburðimir í lífínu sem helst eru taldir streitumyndandi heldur minniháttar atvik sem fólk lætur setja sig úr jafnvægi. Áhættuþættir sannaðir og afsannaðir Áhættuþættir virðast geta verið við hvert fótmál. í nýjum ritum má sjá að sumir hafa viljað tengja bijóstverki mikilli kaffídrykkju. í gegnum árin hafa komið fram á víxl, sannanir og afsannanir um hollustu ýmsra fæðutegunda. Má sem dæmi nefna kaffíð. Nýjustu rannsóknirnar eru sagðar gefa til kynna að mikil kaffídrykkja, meira en Qórir bollar á dag, auki hættu á hjartaáfalli og eru konur sagðar taka þar meiri áhættu en karlar og er reykingafólk í meiri hættu en þeir sem ekki reykja. Mönnum er nú ráðlagt að sleppa fjórða kaffi- bollanum! Hvað eykur fólki hreysti? Þá er komið að mikilvægasta þættinum og stærstu spurningunni: - Hvað er það sem gerir fólk heilsu- hraust og langlíft? - Þessi mikil- vægi þáttur hefur ekki verið til umræðu, þó er hann e.t.v. undir- staða annarra fyrirbyggjandi þátta. Nægir fítulítið fæði, streitulaust líf, minni kaffídrykkja, o.s frv. - eða kemur fleira til? Kvaða hópar þjóðfélagsins eru heilsuhraustari og langlífari en aðr- ir? Hér á landi hefur það ekki verið kannað svo vitað sé, en Bandaríkja- menn hafa komist að því að hreysti og langlífi tengist ekki síst huglæg- um þáttum. Þar í landi eru það mormónar, nunnur, hljómsveitar- stjórar og konur sem viðurkenninga njóta fyrir góðan árangur í starfí sem búa við meiri hreysti og lang- lífí en aðrir. Forvarnaþættir leynast oft nær, hvar annars staðar er að fínna sköp- unargleði, trúarlega innlifun, virkni í starfi með viðurkenningu sjálfum sér og öðrum til handa, en í eigin garði. Við leitum stundum langt yfír skammt. SJÁ BLS.4. Mommmm FjNlhjööarannsdknir á kransæðasjúkdómum Hjartavernd hefur í aldarfjórðung fylgst með „hjartslætti" íslendinga og á án efa mikinn þátt í því að fjöldinn gætir nú heilsu sinnar betur en áður. Hjartavemd tekur nú þátt í víðtækri fjöl- þjóðarannsókn á þróun og orsakaþáttum krans- æðasjúkdóma. Nikulás Sigfússon yfirlæknir hjá Hjartavemd er yfirmaður þessara rannsókna hér á landi. Hann var spurður um rannsóknirnar, tildrögin og í hveiju þær væm fólgnar? Nikulás sagði, að undanfarin ár hafí menn veit athygli breytingum á tíðni dauðsfalla víða um lönd, af völdum kransæðasjúkdóma. Þróunin á mörgum Vesturlöndum hefði verið aukning á sjúkdómnum og sífellt fleiri látist af hans völdum. Síðan hafí orðið breyting í nokkrum löndum og dán- artíðnin lækkað. Þetta hefði gerst í löndum eins og Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og víðar. í sumum löndum hætti tíðnin að aukast en í öðrum löndum eins og í Austur-Evrópu hélt hún áfram að vaxa. Menn höfðu ekki viðunandi skýringu á þessari þróun en lækkunin var mismunandi eftir löndum. Að vísu hefði þótt ljóst að áhættuþættir lægju til grundvallar breytingunum. Lækningaaðferðir hafa batnað „En það getur ýmislegt fleira komið til en breyting- ar á tíðni sjúkdómsins,“ sagði Nikulás, „Dánartíðni getur hafa lækkað m.a. vegna þess að lækningaað- ferðir hafa batnað, en sjúkdómurinn í sjálfu sér ver- ið jafn algengur og hann var áður. Til að finna skýr- ingu á þessum breytingum efndi Alþjóða heilbrigðis- stofnunin (WHO) til fjölþjóða rannsóknatil að kanna tíðni kransæðastíflu og heilablóðfalls eða slag, og nefnist rannsókn þessi MONICA-rannsókn (Multin- ational monitoring of trends and determinants in cardiovascular diseases). Fyrsta landið hóf skráningu árið 1980 og fram til 1985 o g urðu löndin sem taka þátt í þessum rann- sóknum 27 samtals. Hér á landi hófst hún árið 1981. í þessum löndum hefur verið komið upp 43 rannsókn- astöðvum með 51 rannsóknahópa og taka alls um 12 milljón manns þátt í rannsókninni sem standa mun í 10 ár. í rannsókninni er gert ráð fyrir könnun á þrem grunvallarþáttum, þ.e. skráningu á öllum tilfellum kransæðastíflu, bæði þeirra sem lifa og deyja, þeim sem fá endurtekir. tiifeiii og þeirra seni fá s!ag eða heilablæðingu. Síðan eru áhættuþættir sem skylt er að rannsaka, það er blóðfita, reykingar og blóðþrýst- ingur. Að síðustu á að kanna hvernig lækningum er háttað. Með því að safna þessum upplýsingum saman á svona mörgum stöðum, á svo löngum tíma, þá telja menn að fínna megi út hvers vegna tíðnin er að breytast í sumum löndum en ekki öðrum. MONICA-rannsóknin er óháð öðrum rannsóknum Hjartaverndar - Nikulás var spurður hvort allir þeir sem koma til rannsóknar hjá Hjartavemd væru þátttakendur í þessari rannsókn? „Nei“, svaraði hann. „MONICA-rannsóknin eru þeim rannsóknum óháð. MONICA-rannsóknin er sér- þáttur sem okkur var falið að sinna á vegum heil- brigðisyfírvalda, en til þeirra leitaði Alþjóða heilbrigð- isstofnuninni. Rannsóknin nær yfír allt landið. Fólk er ekki boðað hingað, heldur fer hér fram skráning á tilvikum kransæðastíflu. Fjölþjóðarannsóknin gerir Nikulás Sigfússon dr. med. hefur yfirumsjón með framkvæmd MONIC A-rannsóknar á íslandi ráð fyrir skráningu allra sem eru á aldrinum 35-64 ára. Én vegna þess að við erum fámenn þjóð var ljóst að hér yrðu ekki nægjanlega mörg tilfelli krans- æðastíflu þannig að hægt yrði að sjá marktækar breytingar á 10 árum. Því var ákveðið að skrá yngra fólk og eldra eða á aldrinum 25-74 ára og eru allir íslendingar á þessu aldursbili í þessari rannsókn." MONICA-rannsóknin er skráning upplýsinga „Við verðum að vinna eftir ákveðnum reglum sem settar hafa verið fyrir þessa MONICA-rannsókn,“ sagði Nikulás. „Við leitum til sjúkrahúsanna og fáum upplýsingar um þá sem greindir eru með kransæðast- íflu. Við verðum að kanna hvert einasta tilvik í sam- bandi við dauðsföll. Rannsóknin verður að vera unn- in af mikilli nákvæmni og hún verður að vera eins í öllum löndum svo að samanburðurinn sé raunhæfur. Hér starfa við rannsóknina að staðaldri auk mín tveir starfsmenn, IngibjÖrg Guðmundsdóttir og Ingi- björg Stefánsdóttir. Helstu breytingar á tíðni kransæðastíflu - Hveijar hafa orðið helstu breytingar hér á þessu tímabili? „Á þessum 8 árum sem skráning hefur farið fram, hefur dánartíðni vegna kransæðastíflu lækkað um 34% meðal karla á aldrinum 24-74 ára. Ástæðan getur að hluta til verið betri meðhöndlun á sjúkdómn- um. Á þessu tímabili eða um 1982 er farið að nota lyf(streptokinase) sem leysa upp blóðtappa, einnig er farið að gera framhjáskeytingaraðgerðir (by pass) og blástursaðgerðir æða sem nugsanlega hafa geta lækkað dánartíðnina. Það kemur fram að fækkun er á nýjum tilfellum kransæðastíflu (nýgengi) um 20% á þessu tímabili. í skráningunni eru öll tilfelli á krans- æðasjúkdómum og getur þar verið um að ræða mörg tilfelli hjá sama manni. Þá kemur einnig í ljós að þessi heildartíðni hefur einnig lækkað um 20%.“ - Hver er svo ávinningur af þessu samstarfi? „Það sem vinnst er að við getum reiknað út og séð hvaða áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma eru í hvetju landi og hvemigtíðnin er að breytast. Ef hún er lækkandi þá er hægt að efla þá þróun, þ.e. ef við höfum haldgóðar upplýsingar að byggja á.“ Ástandið hér miðað við önnur lönd Nikulás var að lokum spurður hvernig ástandið væri hér miðað við nágrannalöndin? Hann sagði að marktækartölurværu víðaekki tiltækar til viðmiðunar nema dánartölur, en þar kem- ur fram að dánartíðni hefur lækkað á öllum Norðurl- öndunum og hefur lækkunin orðið mest hér á landi. „Rannsókninni lýkur árið 1995,“ sagði Nikul- ás,„Það hafa þegar komið fram greinar um áhættu- þætti í ýmsum löndum og hefur samanburður verið gerður. Má þar m.a nefna blóðfítu en hún er mjög há hér á landi. Hvað varðar blóðþrýsting þá er hann með því lægsta. Reykingar hafa minnkað hér mjög mikið hjá körlum. Akveðnir þættir blóðfitu (þríglys- eríð) eru mjög lágir hjá okkur miðað við aðra og getur það verið bundið mataræði. Við borðum mikið af físki og einnig af fiskfeiti (lýsi) og það er vitað að hún lækkar blóðfitu og veitir okkur ákveðna vernd.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.