Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MENIMINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1991 t % Kóresk tónlist Fremstu kajagum- leikarar eru yfirleytt konur. ÞJÓÐLEG TÓNLIST/7/iv/rf kömun gó? ___________ er Fmnskur metnaður TÓNLIST frá ýmsum löndum hefur sótt í sig veðri á Vesturlöndum síðustu misseri. Ber þar vitanlega mest á alskyns popptónlist, t.a.m. chimurenga og jit frá Zimbabwe, rai frá Alsír, forró frá Brasilíu, zouk frá Antilleseyjum og svo mætti lengi telja. Með útgáfustrauminum berst einnig upprunalegri tónlist, sem hér verður nefnd þjóðleg tón- list, þó oft sé erfitt að greina á milli. Twjóðleg tónlist hefur löngum verið Mr uppáhald sérvitringa, en með auknum áhuga á þjóðlegri popptón- list hefur eftirspurn eftir frumtónlist- inni, ómengaðri af vestrænni tón- hugsun, aukist og eftirspum sömu- leiðis. Fjölmörg fyrirtæki hafa gef- ið út þjóðlega tón- list um heim allan í fjölda ára og ma þar nefna Lyric- hord, sem t.a.m. hefur gefið út plötu eftir Árna Matthiasson með þjóðlegri íslenskri tónlist, Non- esuch, UNESCO-útgáfuna, Playaso- und, og Ocora og í seinni tíð hafa bæst við fyrirtæki eins og WOMAD/Real World-útgáfan, sem á það einnig til að gefa út þjóðlegt popp. Ocora-útgáfan, sem er hluti af franska ríkisútvarpinu, er primus inter pares í útgáfu á þjóðlegri tón- list. Bæði er að tónlistin er nánast öll stórmerkileg og skemmtileg og að fyrirtækið leggur afar mikið upp- úr hljómi á útgáfum sínum og lætur fylgja ýtarlegar upplýsingar á frönsku og ensku um tónlistina á piötunum, hljóðfæri og hljóðfæra- leikara. Plötumar sem Ocora hefur gefíð út nálagst óðfluga 200, en geisladiskvæðing útgáfunnar hófst fyrir nokkru. Þegar hafa um 60 titl- ar verið gefnir út á geisladisk, og bætast einhveijir við í hveijum mán- uði. Sem dæmi um útgáfu Ocora má nefna diskinn Coree, Musique Instru- mentale de la Tradition Classique. Þar fer saman ógleymanleg tónlist og fyrirtaks frágangur; hljómur er frábær og upplýsingar einkar fróð- legar og vel fram settar. Kóresk tón- list er um margt frábmgðin kín- verskri tónlist og japanskri. Ræður þar mestu fijáls rytmi og mikið svigr- úm fyrir spuna flytjanda. Fyrir vikið er kóresk tónlist með eftirminnilegri tónlist sem maður heyrir og um leið einkar heillandi. Á téðum disk eru þijú verk, sem samtals taka um 70 mínútur í flutningi, eitt kömun’go- verk, en kömun’goið er náskylt kaja- guminu og þá einnig kotoinu jap- anska, fornt búddískt trúarverk, sem flutt er í fyrsta sinn í heild á plötu, og bambusflautuspuni á taegum- flautu. BÆKUR Um hvab fjalla hcekur Grahams Greene? Hinn ósýnilegi Greene FYRIR MÖRGUM árum gerði BBC-sjónvarpið mjög sérstæða heimildarmynd um Graham Greene. Hvernig sem myndin hefði lukkast hefði hún alltaf orðið sérstök, þar sem Greene hafði fallist á viðtal. Greene var í nöp við fjölmiðla og var mjög tregur til að láta blaðamenn, og þaðan af síður Ijósmy ndara, koma nærri sér. Hann kaus ein- veru og tilveru fjarri heima- landi sínu. Og bjó í Suður- Frakklandi. Svo lævís ráð þurfti. Framleiðandi myndarinnar tók á það ráð að bjóða hinum fjöl- farna rithöfundi í lestarferð frá París til Istanbúl með Austur- landahraðlestinni. Graham Gre- ene var hinn mikli landvinn- ingamaður í sög- um sínum þar sem hann ferðast heimsálfa á milli og dregur upp lifandi myndir af fjarlægum, ókunnum slóð- um. í lest — á ferð frá einu landi til annars — leið honum best. En aldrei sást skáldið í ramma, held- ur rann mjúkur og rólegur mál- rómurinn saman við lestarniðinn. Jafn lágvær hvort sem hann lýsti því er hann lék sér að dauðanum og spilaði rússneska rúllettu við sjálfan sig þegar hann var ungur drengur eða næsta áfangastað lestarinnar. Ferðalag þeirra var ekki farið í gegnum Greeneland. Land Gre- ene þar sem hetjur eða andhetjur bóka hans lifðu, meðaumkunar- verðar og dæmdar til þjáninga og ótta. Hræddar við syndina og helvíti. Það land átti þó ekki að- eins heima í fjarlægum heimsálf- um og eyðilegum stöðum, heldur eftir Guðrúnu Nordai MYNDLIST/yV/ri/ ekki alltaflœra afbömunum? Listahátíð æskunnar ÞAÐ ER ánægjulegt að vita til þess, að mitt í kosningaslagnum var í fullum undirbúningi mikil menningardagskrá, sem er utan og ofan við hin pólitísku moldviðri. Þetta er Listahátið æskunnar, sem stað- ið hefur frá 20.—28 apríl, sem haldin er á vegum Menntamálaráðu- neytisins og Reykjavíkurborgar. Formaður undirbúningsnefndar segir í ávarpi sínu, að hátíðin sé haldin til að vekja athygli á listsköp- un barna og unglinga og til að sýna verkum þeirra tilhlýðilega virð- ingu og til að auka virðingu barnanna sjálfra fyrir þessum viðfangs- efnum sínum. Þessi fyrsta listahátíð æskunnar er haldin í Reykja- vik, en síðan er ætlunin að halda þá næstu i öðru fræðsluumdæmi og svo koll af kolli. Þetta er merkilegt framtak, sem vert er að vekja athygli á. Það er ekki aðeins að börn eru líka fólk, eins og oft er bent á, heldur einnig að þama er á ferðinni listafólk og wmmmmmmmm listunnendur framtíðarinnar, sem ekki er svo fjarlæg. Sumir þeirra listamanna, sem koma fram á listahátíð æskunn- ar munu hasla séc völl í menningarlífi landsins á fyrstu þremur áratugum eftir Eirík Þorlóksson tveimur eða næstu aldar; og hinir ungu listunn- endur verða einnig undirstaða menningarlífsins snemma á næstu öld. Það er einnig athyglisvert, hversu margir taka þátt í því sam- starfi sem er á bak við hátíðina. Nærri þijátíu stofnanir em aðilar að þessu, auk fjölda skóla á öllum sviðum, og á annan tug fyrirtækja styrkja verkefnið á einn eða annan hátt. Þetta sannar svo ekki verður um villst að samfélagið, bæði hið opinbera og atvinnulífið, er tilbúið til að styðja við bakið á öflugu menningarstarfí, bara ef til þeirra er leitað. Það em nefnilega ekki eingöngu peningar sem ráða hvað er gert í menningarmálum, heldur skiptir viljinn miklu máli. Þessu til stuðnings má benda á að í blaðavið- tali kom fram að fjárveitingtil verk- efnisins alls var aðeins tvær milljón- ir króna; það er tæplega jafngildi lítils ráðheirajeppa, ef einhver hefur áhuga á samanburði. Þó að hátíðin hafi vissulega verið kynnt í fjölmiðlum, þá er óvíst að fólk hafi gert sér grein fyrir hversu umfangsmikil hún er. Svo að minnst sé sérstaklega á myndlistarþáttinn, þá hafa verið settar upp yfir sextíu listsýningar frá leikskólum, gmnn- skólum og myndlistaskólum í bönk- um, þjónustumiðstöðvum, á elli- heimilum, í kirkjum, framhaldsskól- um, verslanamiðstöðvum og veit- ingastöðum; stærstu sýningarnar eru svo eflaust í Listasafni Islands og Listasafni ASÍ. Eirinig voru starfræktar listasmiðjur fyrir börn- in, og myndlistarskólarnir kynntu starfsemi sína. Þetta stárf á mynd- listarsviðinu slær auðvitað út allt sem fullorðna fólkið hefur verið að gera á sama tíma, enda geta fáir keppt við ákafa ungu kynslóðarinn- ar. Þetta er aðeins brot af umfangi listahátíðar æskunnar. Þá er ónefndur sá fjöldi tónleika, dans- sýninga, leiksýninga og annarra atriða, sem börnin liafa tekið þátt í síðustu viku. Sá listi ereinnig lang- ur og yfirgripsmikill, og sannar óumdeilanlega að það er stöðugt verið að leggja breiðan grunn að íslenskri menningar framtíðarinnar. Ein skemmtileg nýjung á þessari hátíð virðist hafa orðið vinsæl, ef marka má orð listamanna. Bömum var boðið að koma í heimsóknir á fímmtán vinnustofur listamanna, og sjá hvernig þeir ynnu að sinni list. Þetta hafa eflaust verið spenn- andi ferðir fyrir börnin, og fært þau nær myndlistinni en flest annað; margir fullorðnir myndu efiaust einnig hafa áhuga á slíku tækifæri. Listahátíð æskunnar er mikil- vægt skref í að gera menningarlífið í landinu hærra undir höfði en pólit- ísku dægurþrasi. Almenningur hef- ur fyrir löngu tekið þessa afstöðu Graham Greene — af mörgum . talinn síðasti risinn í enskum bók- menntum, lést 3. apríl sl. einnig í Brighton, Englandi. Og þó að Greene hefði sjálfur ekki dálæti á hugtakinu, varð „Greene- Iand“ til. Lýsingar hans á ógnum og átökum í Víetnam, Suður- Ameríku, Indónesíu og Afríku töluðu til þeirra sem bjuggu á þessum landsvæðum. Og þannig talaði Greene ekki aðeins máli Vesturheims, heldur einnig allra þeirra staða sem hann lýsir svo hárnákvæmlega. Þó Graham Greene kærði sig lítt um að myndavél væri beint að andliti sínu, þá naut hann sjálf- ur þess sem myndavélin fangaði. Hann var af þeirri fyrstu kynslóð rithöfunda sem varð fyrir miklum áhrifum frá kvikmyndum, en hin sérstaka sýn hans sjálfs hafði einnig áhrif á mál kvikmyndanna. Hann varð kvikmyndagagnrýn- andi hjá Spectator árið 1935 og það hlaut að fara svo að bækur hans yrðu festar á fílmur. En hann var sjaldan ánægður með myndir byggðar á skáldsögum sínum eða handritum. Aðeins tvisvar sinnum segja sumir. Að- eins „Brighton Rock“, sem var byggð á kvikmyndahandriti hans sjálfs af samnefndri bók og „The Third Man“. Þegar Graham Greene lést áttatíu og sex ára að aldri þann 3. apríl síðastliðinn var síðasti ris- inn í enskum bókmenntum fallinn að margra áliti. Lífsverkið var ótrúlega viðamikið og fjölbreytt og hann hafði unnið til flestra viðurkenninga, þó Nóbelsverð- launin féllu honum aldrei í skaut; hvort sem ástæður þess voru rót- tækar skoðanir hans eða vinsseld- ir sem rithöfundar. En hann þurfti ekki á þeim að halda og varð aðeins frægari fyrir vikið. Bestu skáldsögur Greene fjalla um syndina og nagandi samvisku. Um Guð. Um lítilmagna, sem eru ofsóttir og kúgaðir hvar sem er í heiminum. En í sögum hans er hin trúarlega vídd órjúfanlegur þáttur þrauta þeirra. Hver er syndugur? Og hver heilagur? Hver verður refsingin? Getum við að lokum fundið Guð? Þessar spurn- ingar leituðu á Greene til æviloka. Og hann missti aldrei vonina. „Sumir þeirra, sem koma fram á listahátíð æskunnar, munu hasla sér völl í mcnningarlífi landsins á fyrstu áratugum næstu aldar. með aðsókn sinni, og stjórnmála- menn virðast vera að átta sig á mikilvægi þessa málaflokks. Eftir sitja fjölmiðlarnir, sem enn byggja sitt fréttamat í allt of miklu mæli á orðum pólitíkusa — í stað þess að fylgjast með þvi sem er að ger- ast í landinu, t.d. á menningarsvið- inu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.