Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 12
æ e M0RGUNBÍ.AÐ1Ð MANIMLÍFSSTRAUMAR dagúr* ^sMMííÍ ’MÍ SIÐFRÆÐI/AV hœgt ab rœkta eigtn persónuleika? Rósemd hjartans lengirlífið Litlar bækur geta geymt mikinn sannleika. „Hver er smnar gæfu smiður,“ nefnist bók sem Almenna bókafélagið gaf út 1955, en í henni má finna ódauðlega speki eftir heimspekinginn Epiktetus (50-138 e.Kr.). Hann var Grikki sem kenndi í Rómaborg. Bókin er ófáanleg, en finnst þó á stöku bókasafni, og ef til vill leynist eintak á einhverri fornbókasölu? óðir Epiktetusar var ambátt og sjálfur var hann þræll til tvítugs. Hann varð þeirrar gæfu aðnjótandi að hljóta mennt- un. Epaphroditus, húsbóndi hans, sendi hann nefn- ilega í læri til Musoníusar Rut- us, sem var víð- frægur heimspe- kikennari. Sókrates, sem ettir Gunnor Epiktetus bar Hersvein mikla virðingu fyrir, hafði boð- að að mannssálin tæki ekkert með sér við brottflutninginn nema menntun sína og siðferði. Epiktet- us hlaut menntun og varð siðfræð- ikennari. Hann kenndi speki um rósemd hjartans og að ekkert í þessum heimi væri þess vert að raska ró manna. Rödd spekingsins var styrk og trúverðug. Hann kenndi eins og sá sem vissi, eins og sannleikurinn byggi í brjósti hans. Slíkir menn eru sjaldan vin- sælir hjá yfirvöldum. Hann var bannfærður í Róm af Domitian árið 89 eða 90, til útlegðar. Þeir sem vildu stjóma hugsunum alm- úgans hræddust þennan mann. Eins höfðu valdhafar óttast Sókr- ates og Jesú. Þeir voru dæmdir til dauða, en Epiktetus slapp við dauðarefsinguna. Hann fluttist til Epirus og þar hóf hann nýtt líf, því bannfæring hinna fölsku manna hefur ekkert vald. Hinir fölsku deyja og gleymast. Það eru óhjásneiðanleg örlög þeirra, en hinir sönnu lifa. Það skín á gull, þótt í skarni liggi. Epiktetus stofnaði skóla og fólk kom víðs- vegar að til að hluta á hann. Hlýða á röddina og nema spekina. Aldr- aður kvæntist hann og ástæðan var góðmennska. Hann kvæntist til að taka að sér barn sem kunn- ingjar hans ætluðu að bera út. Lífsstíll spekingsins var ein- faldur. Hann átt leirlampa, svaf í hálmhvflu og bjó í húsi gerðu úr strámottum. Hann ruglaðist ekki í fjölbreytileik hinna tiibúnu hluta eins og okkur hættir til að gera, og hugsun hans var skýr og ómenguð, en ekki sem óljós grunur. Hann var hjartagóður maður og falslaus persónuleiki. Hógvær, mildur í dómum um aðra menn og( sérlega elskur að böm- um. „Einu gildir, hveijar lífsreglur þú setur þér,“ sagði hann „þú skalt fylgja þeim sem lög væru.“ Hann sætti sig við hið ósveigjan- lega og taldi fávisku að missa stjórn á skapi sínu gagnvart hlut- um sem em ekki á valdi okkar. Lífshamingja manna ræðst af því, að girnast aðeins það sem er á okkar eigin valdi og innan ramma möguleikanna. Óhamingj- an felst í því að reyna að flýja hið óumflýjanlega og trúa að at- burðirnir sjálfir stjórni líðan okk- ar, þegar það er viðhorf okkar til þeirra sem gerir það. „Skelfileg er einungis sú skoðun að dauðinn sé skelfilegur," sagði hann. Hann brýndi fyrir mönnum að trúa að hamingjan væri á þeirra eigin valdi, en ekki annarra. Hann taldi að rósemd hjartans skapaði ham- ingjuna. Hann bjó sjálfur yfir sál- arró, enda á enginn að kenna öðram eitthvað sem hann er ekki sjálfur. „Það eitt sem þú getur rækt með trúnaði og sjálfsvirð- ingu, á að vera hlutverk þitt í þjóðfélaginu," sagði hann. Við eigum að starfa við það sem við sinnum af alhug, en ekki við það sem okkur leiðist eða höfum ekki metnað tii að vinna vel. Þungamiðjan í heimspeki Ep- iktetusar snerist um að efla hæfi- leika manna til að velja og hafna, tjá sig og sýna rólegar tilfinning- Ekkert truflar svefnró í friðsælu hjarta. (H. Rousseau: Sofandi sígauni.) ar. Hann trúði á hinn frjálsa vilja og sagði að Guð sjálfur gæti ekki einu sinni stjómað mannsviljan- um. Við erum fijáls og okkur ber af þeim sökum siðferðileg skylda til að rannsaka okkur sjálf. Við þurfum að geta lagt dóm á eigin hegðun til að geta séð hvort hún leiðir til góðs eða ills. Menn eru ábyrgir fyrir sjálfum sér, hegðun sinni og persónuleika. Það er sjálfsblekking að kenna öðrum um okkar eigin galla. Þeg- ar menn koma auga á þær villur sem þeir gera í tilteknum aðstæð- um, ber þeim skylda til að upp- ræta þær eins og arfa í blóma- beði. Epiktetus vartalsmaðurper- sónuleikans. „Ræktið ykkar eigin persónuleika," sagði hann. Nútím- amenn benda oft fíngri á erfðir og uppeldi til afsökunar á persón- uleikagöllum sínum, í stað þess að vinna að betrumbótum. Epikt- etus hafnar slíkri speki. Hann trúði að sérhver maður gæti mót- að sinn eigin persónuleika. Hann bauð mönnum að leggja rækt við persónu sína. Menn eiga að efla hana og bæta og sýna síðan öðr- um árangurinn til hvatningar. Epiktetus stundaði og lofaði hið einfalda og reglubundna líferni. Andinn verður fijáls þegar líkam- inn er bundinn í reglunni. Hann sannaði að dyggðugur maður er sjálfstæður gagnvart kringum- stæðum sínum. Hann var siðfræð- ingur sem barðist fyrir réttlætinu á hinn eina og sanna hátt: Með speki orðanna. Og andagiftin var svo mikil að hann hafði ekki tíma, frekar en Sókrates og Jesús Krist- ur, til að skrifa. En speki hans, eins og speki þeirra, hefur varð- veist í ritum lærisveinanna. Flav- íus Arriansus, skrifaði eftir meist- ara sínum og er bókin „Hver er sinnar gæfu smiður" hreinasta hunang. Að lokum hvet ég lesend- ur til að leita að bókinni. Hún er verð leitarinnar. Speki: Þó sérhver maður standi einn andspænis öllu, brennur sami eldur í öllum mannlegum æðum, hugum og hjörtum. B BlHHVERnSMflL/Áfiallabíl? Sumarleyfi í sjónmáli NÚ HEFST sumarleyfistíminn innan skamms. Fólk bregður undir sig betri fætinum og leggst í ferðalög. Óbyggðirnar á hálendi íslands lokka og laða duglega ferðamenn sem vilja skoða landið í krók og kring. Á árum áður voru þær næsta óþekktar flestum landsmönnum og ekki girnilegar. Þar var hættulegt að fara um, þar höfðust við óbótamenn, þar geisuðu ill veður, þar varð fólk úti. Þyrftu menn að leggja ieið sína um óbyggðir, flýttu þeir sér sem mest þeir máttu og prísuðu sig sæla þegar heim kom, hvort sem farið var gangandi eða á hestum. Menn kunnu þá heldur ekki að klæða sig á íslandi í samræmi við veður og höfðu heldur ekki ráð til þess - hvorki vatnsþéttar yfirhafnir eða vindheld - að ekki sé minnst á fótabúnaðinn! Nú er öldin önnur. Fötin hlífa gagnvart öllum veðrum - farartækin sömuleiðis. Menn flykkjast í faðm öræfakyrrðarinn- ar og eru stundum að „ærast af þögninni" eins og þeir segja og þyk- ir eftirsóknarvert. í finu fjalla- og torfærabílunum sínum með „drifi á öllum“ og kepp- ast stundum við að komast lengra en „hann Palli í næsta húsi komst í fyrra“. Þá er þess ekki alltaf gætt að á þessum slóðum er oft viðkvæmur gróður sem er að baksa við að komast á legg, mosagróður og geldingahnappar á svörtum sandi, svo nokkuð sé nefnt eða hvönn við lækjarsytru. Á hveiju sumri fara margar slíkar vinjar forgörð- um vegna tillitsleysis ferðafólks og landsmenn eru ekki barnanna bestir þótt þeir reyni að skella skuldinni á útlendinga. eftir Huldu Valtýsdóftur Auðvitað á ekki að þurfa að banna umferð og dvöl á hálendi íslands, en það mætti reyna að stýra vali manna á áningarstaði - bjóða upp á fleiri áhugaverða svæði - og það er bráðnauðsyn- legt að ferðamálayfirvöld fái fjár- magn til að búa svo um á fjölförn- um ferðamannastöðum að um- hverfi stafí ekki hætta af. Með góðri hreinlætisaðstöðu, skipu- lögðum tjaldstæðum og stígagerð svo nokkuð sé nefnt. Þá verður að efla til muna upplýsingar og fræðslu um þessi mál bæði fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn svo menn velkist ekki í vafa um hvað má og hvað má ekki. Margir hafa varla leitt að því hugann. í fyrra var gefínn út bæklingur á vegum Náttúruverndarráðs og fleiri aðila sem ber heitið: Akstur utan vega og merktra slóða. Slíkur akstur er eins og kunnugt er bann- aður með lögum nema í neyðartil- vikum. í bæklingnum er ítrekað hve nauðsynlegt sé að allur al- íí; i r^niii m AKSTUR UTAN VEGA OG Ósnortin náttúra - auöliíid jslart'ds menningur geri sér grein fyrir við- kvæmu gróðurríki landsins og taki fyllsta tillit til umhverfísverndar á ferðalögum í byggð sem í óbyggð. Minnt er á lögmál ferðamanna í 12 liðum þar sem bent er á að ekki skuli skilja eftir rasl á víða- vangi, ekki kveikja eld á grónu landi, ekki rífa gijót eða hlaða vörðu að óþörfu, ekki skaða gróð- ur, trafla dýralíf, skemma jarð- myndanir - og ekki aka utan vega. Það er auðvitað borgaraleg skylda okkar að fara að þessum reglum svo við getum talist góðir ferðamenn. En það er líka hægt að gera betur og vera fyrirmynd- ar-ferðamaður, til dæmis með því að bæta umhverfið þar sem höfð var viðdvöl. Þá kemur margt til greina. Dæmi: Hægt er að taka góðan skammt af alhliða áburði og fræi með í ferðina. Vitundin um að slíkt sé í farteskinu vekur sérstaka athygli á gróðurfarinu þar sem farið er um. Menn fá æfíngu við að lesa í landið eins og sagt er. Að lokinni viðdvöl er gjöfinni dreift með þökk fyrir móttökur. Dreifingin er verkefni fyrir alla aldurshópa en nú til dags fer þeim víst fækkandi verkefnun- um sem eru sameiginlegt áhuga- mál kynslóða. Þetta tækifæri ber þvi að nýta. Eigirðu fjallabíl, ágæti ferðamaður, hafðu þetta þá í huga. TÆKNl/Aukin myndbandsgcebi? Fromtíð vídeósins ÖLLIJM, sem gera kröfur um góða mynd, að ekki sé talað um sæmilegan hljóm tónlistar, er ljóst að vídeóbandið stendur langt að baki annarri tækni hvað þetta varðar. Ástæðan er annars vegar hinn mikli fjöldi merkja sem þarf að geyma og nema á bandinu til að mynd fáist, og hins vegar að með þeirri tækni sem notuð er fer bandið nyög hægt hjá tónhöfðinu sem nemur af því hljúðið. Það leiðir til þess að fá merki á sekúndu berast til hljóm- kerfisins, sem aftur þýðir gróf- gerðan hljóm. Verið er að reyna að ráða bót á hvorutveggja, og ef vel tekst, ætti vídeóið að vera orðið með hljómgæði sem nálgast geisladiskinn innan fárra ára. Vandi vídeósins er sem sagt hinn geysilegi fjöldi merkja sem þarf til að framkalla eina sjónvarps- mynd. Skjá sjónvarps er skipt j nokkra tugi þúsunda reita (sem þú lesandi sérð sjálfur á tækinu þínu), en til að fá fram mynd sem augað nemur af eðlilega hreyf- ingu þarf fímmtíu slíkar myndir á skjáinn á sekúndu. Þannig þarf nemi tækisins að nema einhveijar milljónir merkja á sek- úndu. Segulbandið geymir mynd- merki og hljóðmerki með því að agn- ir segulvirks málms segulmagnast með utanaðkomandi rafstraumi. eftir Egil Egilsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.