Morgunblaðið - 28.04.1991, Síða 13
MQRGUNBLAÐIÐ MAIUIMUFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1991
G 13
SKÓLAMÁL/G^/»rprófrétta mynd af
kunnáttu nemenda?
Préf
SENN líður að vorprófuin. Samræmd próf standa yfir í 10. bekk
grunnskóla. Miklar breytingar hafa orðið á framkvæmd lokaprófs
úr skyldunámsskólum síðustu árin.
Fyrrum varð að -þreyta inntö-
kupróf í flesta framhalds-
skóla. I menntaskóia voru þessi
próf jafnan munnleg, nema íslensk
ritgerð, og drógu nemendur eitt
verkefni í hverri
grein. Oft gætti
mikillar spennu
hvort menn kæmu
upp í „réttu“ verk-
efni eða einhveiju
sem þeir áttu óles-
ið, hvort efnið var
talið létt eða
þungt. Varla þætti nú á dögum slíkt
fyrirkomulag mæla breidd kunnáttu
nemandans eins og það heitir. En
svona var þetta og hafði verið svo
iengi sem elstu menn mundu og
engin skólaþróunardeild til að segja
fyrir verkum.
Það þurfti töluverðan sálarstyrk
til að standa ungur frammi fyrir
kennara og prófDÓMARA sitjandi
við svört upphækkuð púlt sem
minntu á rannsóknarréttinn og láta
rekja úr sér garnirnar. Þessi próf
voru ofan í kaupið opin öllum, hver
sem var mátti á hlýða og jók það
enn á spennuna. Það þótti ekki
gott að standa á gati í áheyrn við-
staddra sem þó voru sjaídnast aðrir
en væntanleg skólasystkini nýlið-
ans.
í hópnum voru alltaf afburða-
nemendur sem stóðu sig með þeirri
prýði að þeim fylgdi áheyrenda-
skari stofu úr stofu til að heyra þá
„brillera". Þetta voru oft höfðingja-
djarfir sveitamenn sem ófeimnir
fluttu mál sitt af skörungsskap og
kunnu langt umfram það sem af
þeim var krafist. Þótti að þessu hin
besta skemmtan.
Síðan kom landsprófið til sög-
unnar, samræmt próf sem jafna
skyldi aðstöðu nemenda í landinu
en varð hinn mesti skelfir nemenda
og foreldra. Voru semjendur þess
sakaðir um að seilast um of til neð-
anmáls- og smáletursgreina og
minnisatriða í upptalningum. Jafn-
framt því var gamla gagnfræða-
prófið við lýði og veitti einnig inn-
göngurétt í suma skóla. Það verður
að segjast eins og er að við þótti
brenna að ekki væri nægilega vel
eftir kunnáttu nemenda gengið
miðað við einkunn og stöku skóla
væri ekki treystandi til að útskrifa
nemendur svo að mark væri á tak-
andi. Þetta kom óorði á hið gamla,
virðulega próf.
í staðinn fyrir landsprófið kom
samræmt grunnskólapróf í svo-
nefndum kjarnágreinum sem voru
íslenska, stærðfræði, danska,
enska, samfélagsgreinar (mann-
kynssaga og landafræði) og raun-
greinar (efna/eðlisfræði og líf-
Ögnin er sísegull, aðeins minni en
þeir sem við þekkjum úr daglegu lífi.
Þær eru festar í einangrandi burðar-
efni og einangraðar hver frá ann-
arri. Af stærð agnanna ræðst hvað
þær geta verið nærri hver annarri
án þess að hafa áhrif hver á aðra.
Því eru þá takmörk sett, hversu
mörg merki má geyma á fersenti-
metra eða lengdareiningu bandsins.
Gömlu tónböndin frá sjötta ára-
tugnum gátu ekki gefið frá sér góða
tónlist nema þeim væri rennt á mikl-
um hraða fram hjá tónhöfðunum.
Svipaðan vanda þarf vídeótæknin að
glíma við. Hann var sá að búa til
band sem ekki þyrfti að renna fram-
hjá hausunum á ofsahraða vegna
hins geysilega fjölda merkja. Þetta
var leyst með því að upptökuhaus-
amir eru á hreyfingu á móti hreyfí-
stefnu bandsins, en fara aftur marg-
sinnis yfir hveija lengdareiningu
þess. Merkjunum er raðað á strimla
sem liggja hlið við hlið á skakk frá
annarri rönd bandsins að hinni.
Þannig margfaldast fjöldi merkja á
lengdareiningu bandsins. En þessari
lausn fylgja tækniörðugleikar, m.a.
þeir að sjálft bandið er á hægri ferð
miðað við tækið, og þar með miðað
við upptökuhaus hljóðmerkjanna.
Það þýðir fá hljóðmerki á sekúndu
er orsök til hins hola blæbrigðalausa
hljóms.
Endurbætur
Framundan er gerbreyting í átt
til betri tóns, sem felst í svipaðri
lausn hvað varðar hljómmerkin og
myndmerkin, semsé að margraða
þeim á hveija lengdareiningu bands-
ins og láta upptökuhöfuðið fara
margsinnis yfir hvern hluta bands-
ins, þ.e. koma þeim fyrir á sama
valsi og upptökuhöfðum myndmerkj-
anna. Myndgæðin aftur á móti eru
misjöfn af mörgum orsökum. Gæði
spólanna eru vægast sagt afar mi-
sjöfn við innkaup, og væri verðugt
verkefni neytendakannana að leggja
þar mat á. Myndin verður óskýr fyr-
ir það að merkin sem raðað er þétt
á strimlana renna saman, þ.e. hafa
hvert um sig áhrif á segulmögnun
nágrannareitanna, og þannig hverfa
ótal smáatriði myndarinnar. Einnig
er meðferð þeirra mjög mismunandi
og því lítill gaumur gefinn á venju-
legu heimili hvernig bönd varðveit-
ast. Hraðsýning myndarinnar fer t.d.
illa með bandið vegna hitunar af
núningi. Spóla með mynd á getur
orðið fyrir áhrifum af hveiju því
tæki sem rafsegulsvið kemur frá og
á því ekki að liggja ofan á hátalara
eða á sjálfu sjónvarpstækinu. Eigin
hávaði hverrar spólu tvöfaldast við
hveija nýja upptöku. Endurbætur í
átt til betri myndar felast í æ betra
efni til gerðar spólunnar, þannig að
smærri segulkorn og þar með þétt-
ari séu notuð til að geyma mynd-
merkin, án þess að þau liafi áhrif
hvert á annað og smáatriði myndar-
innar þurrkist burt.
Heilinn brotinn.
fræði). Smám saman saxaðist á
kjarnann og vægi skólaeinkunna
óx, val varð milli samfélags- og
raungreina, síðan var þeim báðum
sleppt og eftir urðu aðeins málin
og stærðfræði. Þá mátti velja milli
erlendu málanna og nú er svo kom-
ið að eftir standa aðeins samræmd
próf í íslensku og stærðfræði sem
10. bekkingar þreyta nú sitt hvorum
megin við helgina.
Einkunnakerfið hefur einnig
breyst, nú er gefið í heilum tölum
frá 1-10. Hundraðshlutarnir horfnir
og enginn fær 0. Til að ná fram-
haldseinkunn þurfti áður að ná
ákveðnum lágmarkseinkunnum
annars vegar í samræmdum prófum
og hins vegar skólaeinkunn. Nú eru
þessi mörk horfin og þykir sumum
lítil reisn yfir lokaprófum frá grunn-
skóla þegar, eins og sagt er, alveg
er sama hvernig menn standa sig.
Þar með er þó ekki öll sagan sögð
því að þeim sem ekki ná tilskildum
árangri er í framhaldsskólunum vís-
að í svonefndan 0-áfanga eða end-
urtekningar- eða undirbúnings-
deild.
Um allt þetta verða alltaf skiptar
skoðanir en víst er að til þess að
brýna nemendur er einkunnasvipan
ekki einhlít og prófgrýlan getur
haft þveröfug áhrif. í nýútkomnum
lögum um grunnskóla segir í kafl-
anum um námsmat, 63. gr.: „Meg-
intilgangur námsmats er öi’vun
nemenda og námshjálp. Með náms-
mati í grunnskóla skal einnig reynt
að afla sem öruggastrar og viðtæk-
astrar vitneskju um það hver árang-
ur hefur orðið af skólastarfinu.
Hveijum kennara og skóla ber að
fylgjast vandlega með því hvernig
nemendum gengur að ná þeim
námsmarkmiðum sem aðalnáms-
skrá og skólinn setja þeim ... Náms-
mat fer ekki eingöngu fram í lok
námstímans, heldur er það einn af
föstum þáttum skólastarfsins,
óijúfanlegt frá námi og kennslu."
í sumum grunnskólum er vetr-
inum skipt í tvær annir, haustönn
og vorönn og einkunnir gefnar í lok
hvorrar annar. Þær einkunnir gilda
25% í hvort skipti en vorprófið sjálft
50%. Með þessu næst heildaryfirsýn
yfír árangur allan námstímann og
nemendum er veitt aðhald fyrri
hluta vetrar.
En skólamir sjálfir þurfa einnig
aðhald. Því er ákvæði í lögunum
um að menntamálaráðuneytið leggi
skólum til könnunarpróf og væri
hveijum skóla hollt að eiga von á
slíku könnunarprófi fyrirvaralítið í
námsgrein sem kennarar vissu ekki
fyrir hver yrði.
LÆKNISFRÆÐI/E/Tz^ er langt til baka?
Upphafskurðlækninga
í ríki Danakóngs
GEYMST hafa þau orð sem forseti læknadeild-
ar Hafnarháskóla lét falla þegar nýútskrifaðir
kandidatar unnu læknisheit sitt árið 1867:
„Kunnugt er ykkur, herrar mínir, að sumir eru
farnir að opna kviðarhol og fremja þar skurð-
aðgerðir. Eg vænti þess að þið verðið ekki
sakaðir um slíkan glæp.“
í danskri
skurð-
stofu fyrir
rúmri öld.
Aþessu sama ári skýrði Lister frá
reynslu sinni af karbólsýru
sem vörn gegn sýkingu í sárum en
með þeim tilraunum, að viðbættri
uppgötvun eter- og klóróformsvæf-
inga tuttugu árum
áður, opnuðust
leiðir til nútíma
skurðlsékninga.
Danskir læknar
voru mörgum öðr-
um fljótari til að
taka þessa ný-
breytni í þjónustu
sína. Eskildsen
Larsen hét sá sem fyrstur svæfði
skurðsjúkling i Danmörku. Það var
í febrúar 1847, nokkrum vikum eftir
að Morton hinn ameríski sýndi og
sannaði að hægt væri að svæfa fólk
um stundarsakir með því að láta það
anda að sér eterlofti. Sami danski
læknirinn varð líka fyrstur til að
nota klóróform til svæfinga þar í
landi og liðu ekki heldur þá nema
vikur frá því skoski fæðingalæknir-
inn Simpson lýsti yfirburða-kostum
klóróforms, að því er honum virtist.
— Eins og nærri má geta voru skoð-
anir skiptar í Danmörku og víðar um
ágæti svæfinga og illur grunur lædd-
ist að sumum læknuni um áhrif þess-
ara kröftugu efna. í „Bibliothek for
Læger“ birtust í ritstjórnargrein
bollaleggingar um hvort sjúklingur-
inn kynni ekki að vakna upp í eins-
konar ölæði sem enginn vissi hvenær
mundi renna af.
Þegar fréttir bárust af smitvörnum
Listers tóku danskir skurðlæknar
þeim fagnandi ekki síður en svæfing-
unum. Mathias Saxtorph yfirlæknir
á Friðriksspítala gerði sér ferð til
Glasgow til þess að sjá með eigin
augum hvað þarna væri á seyði.
Honum tókst eins og Lister að verja
sár fyrir sýkingu með því að karból-
væta umbúðir og brátt fóru aðrir að
feta sömu slóð; skurðaðgerðum á
útlimum og í kviðarholi fjölgaði
smám saman. Á næsta áratug leysti
smitgát von Bergmanns karbólsýr-
una af hólmi og þá fengu dönsk
sjúkrahús suðupotta og gufuofna til
þess að dauðhreinsa verkfæri, lök
og sloppa.
En ekki var öll danska læknastétt-
in í sjöunda himni yfir framtakssem-
inni. Victor nokkur Lange skrifaði í
annað læknablað 1893: „Það eru
engar ýkjur að vér lifum á tímum
mikillar skurðgleði. Eftir að smit-
varnir fóru að tíðkast vill mörgum
lækninum gleymast að meðferð sjúk-
dóma er ekki einvörðungu fólgin í
beitingu hnífs og skæra.“
Ef litið er á skýrslur frá sjúkrahús-
um Kaupmannahafnar fyrir þetta
sama ár — 1893 — kemur í ljós að
skurðaðgerðir voru færri en búast
mætti við eftir ummælum Langes
að dæma og árangur ekki eins góður
og nútímamenn myndu að óreyndu
ætla. Af 63 sjúklingum sem voru
skornir upp vegna kviðslits dóu 13
og af þeim 103 sem holskurður var
gerður á létust 36. En byijunarörð-
ugleika af ýmsum toga var skiljan-
lega við að etja og torfærur hvar sem
litið var. Ný öld framfara í lækning-
um var samt runnin upp og ástæða
til bjartsýni.
Nokkur bið varð á að þeir þegnar
Danakonungs sem áttu heima lengst
norður í höfum yrðu aðnjótandi
þeiri'a nýjunga sem hér hefur verið
drepið á. Margvíslegar aðstæður
ásamt með duttlungum atvikanna
voru þar að verki en seinna koma
sumir dagar og koma þó.
eftir Þórarin
Guðnason