Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.04.1991, Qupperneq 19
MÍCJRGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. APRIL 1991 1 81 -é—i9 Dómnefnd Eurovision-keppninnar: Færri komast að en vilja Sjónvarpinu hafa borist á milli þrjátíu og fjörutíu umsóknir þeirra, er silja vilja i dómnefnd fyrir íslands hönd vegna komandi Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva er fram fer í Rómaborg þann 4. maí næstkomandi. í fiölmiðlum ■ Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgj unnar hefur ráðið til sín sumaraf- leysingamenn þó óvíst sé enn hverj- ir þeirra verða á skjánum og hveij- ir í útvarpi. ■ Þór Jónsson, sem var afleys- ingamaður á Stöð 2 í fyrra, kemur aftur til liðs við þá Stöðvarmenn, en hann stundar fjölmiðlanám í Svíþjóð á veturna. Jón Örn Guð- bjartsson, fyrrum íþróttafrétta- maður Stöðvarinnar, kemur inn sem fréttamaður að nýju, en að undan- fömu hefur Jón Örn unnið fyrir Stöð 2 að íþróttaþáttum fyrir börn í lausamennsku. Heimir Már Pét- ursson, ritstjóri Norðurlands — blaðs Alþýðubandalagsins á Akur- eyri, hefur jafnframt verið ráðinn afleysingamaður á Stöð 2 í sumar en Norðurland er ekki gefið út á sumrin. Herdís Arnardóttir, há- skólanemi, verður í erlendum frétt- um Stöðvar 2 í sumar. Hún hefur verið innanbúðarmaður þar töluvert lengi og hefur haft þann starfa að vera fréttaþýðandi. Að síðustu kem- ur til starfa námsmaður frá fjöl- miðlaskor Háskóla íslands, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, og er litið á starf hennar á fréttadeildinni sem starfsþjálfun í tengslum við námið. Að lokum má geta þess að Helga Guðrún Johnson, sem verið hefur hluti af fréttadeildinni með þátt sinn Sjónaukann, mun starfa framan af sumri í fréttum þar sem vikulegur þáttur hennar verður ekki á dag- skrá í sumar. Þessi fjölskylda er að fara í dagflug frá íslandi með SAS..! ...ekki þessi! Að sögn Sigrúnar Sigurðardótt- ur, ritara dagskrárstjóra, munu sextán fulltrúar verða valdir til að skipa íslensku dómnefndina og mun hún að öllum líkindum hafa aðsetur í Sjónvarpshúsinu á Lauga- vegi 176 þegar stundin rennur upp. Samkvæmt reglum keppninnar er óheimilt að gera nöfn þeirra, sem sitja munu í dómnefnd, kunn fyrr en dómnefnd hefur verið lokuð inni. Dómnefndina skulu skipa sextán fulltrúar, eins og fyrr segir, átta konur og átta karlar. Einnig skulu hlutföll fagfólks í tónlist og áhuga- manna hinsvegar vera jöfn. Ekkert er í reglum keppninnar sem segir til um að búseta dómenda þurfi að vera dreifð. Hinsvegar hafa þó nokkrar umsóknir borist frá fólki utan af landi. Það verður hinn kunni útvarps- og sjónvarpsmaður Arthúr Björgvin Bollason sem lýsa mun keppninni í beinni útsendingu frá Róm. Arthúr Björgvin Bollason mun lýsa keppninni í beinni útsend- ingu. Rómarfarar, þeir Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson. Þess má að lokum geta, ef svo ólíklega vill til að það hafi farið fram hjá einhveijum, að framlag 'slands til Söngvakeppninnar er lag og texti Eyjólfs Kristjánssonar „Draumur um Nínu“ í flutningi höfundar sjálfs og Stefáns Hilmars- sonar, sem reyndar er ekki nýr í slíkri keppni. Hann söng sællar minningar lagið um „Sókrates" ásamt höfundi þess lags, Sverri Stormsker. Þeír sem fljúga dagflug meö SAS frá íslandi geta sofið alla nóttina heima hjá sér. Á veturna leggjum viö í hann kl. viö flugiö kl.8.35. Hentar það ekki ágætlega? Haföu samband viö SAS eða feröaskrifstofuna þína. .35, en á sumrin tökum MISAS SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Laugavegi 3, sími 62 22 11 YDDA F42.5/ SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.