Morgunblaðið - 28.04.1991, Síða 21

Morgunblaðið - 28.04.1991, Síða 21
ícei JÍOTA .32 S MORGUNBLAÐIÐ GIG/kiaKUDHOM SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1991 8 St HVAB ERtu ad glápa? GOTTAÐ VERA GULUR FYRIR stuttu komst hátt á vinsældalista vestan hafs og austan plata í flutningi teiknimyndaper- sóna. Isjálfu sér er það ekki nýstárlegt og líklega muna flestir eftir „gervisveitum“ eins ogThe Arch ies, The Monkees The Chipmunks eða Milli Van- illi, en allt byggistþetta nýjasta ævintýri markaðsfræðinga, sem selst hefur í yfir 3 miiyónum eintaka, á gulum vand- ræðapilt með útstæð augu, Bart Simpson. Teiknimyndirnar um Simpson fjölskyld- una hafa hrifíð milljón- ir manna um heim allan og þá ekki síst hér á landi þar sem Sjónvarpið sýnir ævintýri hennar viku- lega. Fjölskyldan er Bart, Lisa, Homer, Marge og Maggie, en það snýst alit um Bart, sem náði því á ^síðasta ári að 70 milljón bolir seidust með mynd af Bart Simpson á síðasta ári og er þá ekki taldinn „neðanjarðar" markað- ur, en vinsældir Barts ná e|tir árno til flestra, sama hvar þeir Motthíosson standa í þjóðfélagsstiganum. Bait Simpson og fjöl- skylda hans eru hugarfóstur Matts Groenings, sem teiknaði áður seríuna Life in Hell og var einkar vinsæl meðal framúrstefnu mennta- manna og sérvitringa snemma á síðasta áratug. Groening segir að velgengni Baits og fjölskyldu hans hafi komið honum í opna skjöldu, en á síðasta ári velti „Bart- iðnaðurinn" um 80 milljörðum kr. í Bandaríkjunum. Groening seg- ist þó ekki ætla að laga Bart frekar að markaðinum og segist alls ekki ætla að láta hann taka þátt I her- ferðum gegn fíkniefnum eða öðrum þjóð- þrifaverkum, „það væri þvert á skap- gerð Barts ef hann færi að lýsa yfír að menn ættu ekki að neyta fíkni- efna eða að beijast gegn stríði. Bart vill ekki að það verði stríð; í það 'minnsta ekki fyrr en hann hefur náð aldri til að hrinda því af stað sjálfur." Groening segist ekki hgeldur hafa mikl ar áhyggjur af því þó fram- USAFNARAR hafa átt erf- iða daga síðustu misseri, því gert hefur verið hvert áhlaupið af öðru á budduna með veglegum (og rándýr- um) safnkössum. Fyrir stuttu kom svo út þriggja diska/kassettu eða fímm breiðskífu safn með 57 óút- gefnum lögum Bobs Dylans sem spanna síðustu þijá ára- tugi. Að sögn þess sem tók safnið saman, er þetta bara byrjunin, því eftir séu hundr- uðir laga. leiddir hafí verið bolir og óta þar em Bait er svartur og heiti Bart X (að hætti Malcolms X) eða- Bart Mariey (Bob Marley); hann segist telja það heiður að hann hafi náð þeirri viðurkenn- ingu í menn- ingarkimum blökkumanna, sem gleypa seint við fram- leiðslu hvíta mannsins. Platan með Simpsons-fjölskyldunni, sem nefnd var í upphafí og heitir The Simpsons Sing the Blues, er að nokkru til marks um að ekki er eingöngu verið að hugsa um að selja sem mest af plöt- um, því tónlistin siglir snyrtilega framhjá poppfroðu, sem þó hefði líklega tryggt enn meiri söiu. Þess í stað eru ýmist á plötunni gamlir blúsar eins og Bom Under a Bad Sign, eða God Biess the Child, eða klassíkt rokk eins og Hail, Hail, Rock ’n’ Roll, eða soul eins og Springfield Soul Stew (Memphis Soul Stew) eða þá frumsa- mið rapp, t.a.m. lagið Do the Bartman, sem náði á topp- inn í Bretlandi, ða Deep, Deep Trouble. Raddir eru í höndum þeirra sömu og radda Simpsons-fjölskyldunnar i teiknimyndunum og hafa sjálfsagt einhveijir hneykslast þegar þeir komust að því að rödd Barts kemur úr kvenmann- barka. Hljóðfæraleikur er m.a. i höndum Joes Walsh, Jais Windings og Dr. Johns og gamla kempan B.B. King leikur á gítar í Born Under a Bad Sign og fleiri frammámenn koma við sögu, t.a.m. D.J. Jazzy Jeff. Ekki er gott að segja hve lengí Matt Groening tekst að halda höfði (markaðs- setningunni og reyndar ólíklegt að það takist mikið lengur, en þangað til er ekki hægt að sjá fyrir endann á vinsæld- um andhetjunnar Barts Simpsons og fjöl- skyldu hans. Andhetja Vandræðagemlingurinn Bart Simpson. Kveðja heim Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir. MFYRIR rúmu ári lét Gunnlaug Hanna Ragnars- dóttir áratuga draum rætast og haslaði sér völl í Dan- mörku með breiðskífunni Dremmen, en önnur breiðskífa hennar kemur út á næstunni. Guðlaug semur flest lög skffunnar nýju og einnig flesta texta, en hefur einnig samið lög við ljóð sem hún syngur á íslensku. Gunn- laug segist afar ánægð með plötuna nýju og að tónlistin hafi þokast úr poppinu í þjóð- legri tónlist. Platan heitir Hilsen til hjemstavnen, kveðja til æskustöðvanna. MÁ FIMMTUDAG leika Sykurmolarnir í Lídó eftir nokkuð hlé, en sveitin vinn- ur nú að þriðju breiðskífu sinni, sem væntanleg er í haust. í Tveimur vinum leikur pönksveitin góð- kunna Drulla og ný hljóm- sveit, Vin K, sem skipuð er þeir Mike PoIIock, Gunn- ari Erlingssyni og Gunn- þóri. Agnar Agnarsson sér um „special effects". Á laugardag heldur svo önnur ný sveit, Fríða sársauki, hálfopinbera kynningartón- leika í Furstanum, en sveit- ina skipa Friðrik úr Sál- inni, Andri Örn Clausen, Eðvarð Vilhjálmsson, Páíl Ólafsson og Guðmundur Höskuldsson. ISINN BROTINN ROKKÞYRSTIR geta vel við unað, því í uppsiglingu eru mestu rokktónleikar sem haldnir hafa verið hér á iandi. í Kaplakrika í Hafnarfirði leika sveitirnar Thunder, Slaugh- ter, Quireboys og Poison 16. júní nk. Rokk hf. heldur tónleikana, sem verða einnig hluti af listahátíð Hafnarfjarðar. Alan Ball, einn Rokk-manna, sagði að yfir- skriftin lsinn brotinn ætti að vísa til þess að um væri að ræða fyrstu risa-útitónleikana sem haldnir væru hér á landi, en ekki þá síðustu. Gríðarstórt útisvið verður reist í Kaplakrika og er ætlunin að tónleikarnir hefjist um miðjan dag og standi fram á nótt. Alan sagði miða kosta 5.500 kr., en að fyrstu 2.500 miðarnir yrðu seldir á 4.500 kr. Alan, sem stóð m.a. að Whitesnake-tónleikunum, sagði að enn ættu einhverjir * eftir að fá endurgreitt vegna þeirra, en hann hygðist bæta þeim upp biðina með því að bjóða þeim verulegan afslátt af Kaplakrikamiðunum ef þeir hringdu í síma 674915, en til að tryggja að allt gengi upp væri hátíðin fulltryggð hjá Lloyd’s. Poison Ein vinsælasta þungarokk- sveit heims. DÆGURTÓNLIST Hver erBart Simpsonf Iburðarmikið montrokk BRESKA rokksveitin Queen kom fram á sínurn tíma sem einskonar blanda af Led Zeppelin og David Bowie. Til að byija með bar meira á þungu rokki, enda var og er gítarleikari sveitarinnar, Brian May, afar gefinn fyrir slíka tónlist, en með timanum fór að bera meira á fram- lagi söngvarans Freddys Mercurys, sem þræddi einstigið á milli smekkleysu og iburðar. + Aþeim tæpu tuttugu ái-um síðan Queen sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu hefur sveitin náð meiri vinsældum en nokkur bresk áveit að Bítlunum og Rolling Stones frátöldum; selt 80 milljón breiðskífur og milljónatugi af smáskífum. Eins og segir í upphafi hefur sveitin sveiflast á milli þungarokks að hætti Brians Mays og íburðarmikils mont- rokks að hætti Freddies Mercurys, sem náði hámarki í laginu Bohemian Rhapsody sem sat á þriðja mánuð á toppi breska vinsældalistans 1975. Síðan hafa sveitar- menn haldið sig við svipaða tónlist, en ekki tekið sjáfa sig of alvarlega. Margur vill halda því fram að það hafi einmitt tryggt vinsældir sveitarinnar í öll þessi ár hve tónlist hennar sé fjölbreytt og breið; áheyrendur geti sí- fellt fundið eitthvað nýtt. Fyrir skemmstu kom út sautjánda breiðskífa sveitar- innar, Innuendo, sem fór beint í efsta sæti breska vin- sældalistans. Á þeirri skífu eru sveitarmenn við sama heygarðshornið og fjöl- breytnin er meiri en nokkru sinni, þó hvergi fari á milli mála hveijir séu á ferð. Queen Blanda af Led Zeppelin og David Bowie.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.