Morgunblaðið - 28.04.1991, Síða 22
22 r c
MORGUNBLAÐIB MIIMNINGAR SUNNUBAGUR 28. APRÍL 1991
Minning':
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
AUÐUR HALLGRI'MSDÓTTIR,
Staðarhvammi 1,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Garðakirkju þriðjudaginn 30. apríl kl. 13.30.
Viktor Aðalsteinsson,
Helen Viktorsdóttir, lan Stuart,
Hallgrímur Viktorsson, Ragnheiður Rögnvaldsdóttir,
Viktor Viktorsson, Ásrún Vilbergsdóttir,
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
DIETERS MAXIMILIANS LUCKAS
(Lúkasar D. Karlssonar),
Ásbúð 96, Garðabæ,
fer fram frá Kristskirkju Landakoti, þriðjudaginn 30. apríl kl. 13.30.
Anna Luckas,
Rosa Linda Thorarensen,
Þórður Bachmann,
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
PÁLS SVEINSSONAR,
Miðleiti 3, Reykjavfk
(áður Háaleiti 24, Keflavik),
fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 30. apríl kl. 10.30.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Valgerður Pálsdóttir,
Sigrfður Pálsdóttir, Guðjón Sigurðsson,
Alexander Pálsson, Rannveig Vernhardsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Udo Luckas,
Claudia Luckas,
Frank Luckas
t
Móðir mín, tengdamóöir og amma okkar,
PÁLA SVEINSDÓTTIR
frá Sauðárkróki,
Laufásvegi 19,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. apríl kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á Hjartavernd.
Bryndfs Sigurðardóttir Gissur Karl Vilhjálmsson,
Smári Björn Guðmundsson
Helga Pála Gissurardóttir,
Sigurður Gunnar Gissurarson,
Vilhjálmur Karl Gissurarson.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
VALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
áður Reynimel 65,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 30. apríl kl. 15.00.
Valdimar Kristinsson, Valborg Stefánsdóttir,
Kristinn Valdimarsson, Stefán Ingi Valdimarsson.
*
t
Útför
GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Norðurbrún 1
(áður Hamarsgerði 2),
verður gerð frá Bústaðakirkju mánudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Guðjón Sigurðsson,
Haraldur Sigurðsson,
Sigurður Jóhannsson,
Valdimar Jóhannsson,
Örn Jóhannsson,
Jóhann Valdimarsson.
Oddný Björnsdóttir,
Sigrún Á. Sigurðardóttir,
Bryndfs Arnfinnsdóttir,
Ingibjörg Ragnarsdóttir,
Björg Kristjánsdóttir,
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EINAR ÞÓRIR STEINDÓRSSON,
Álftamýri 56,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 30. apríl kl. 1 5.00.
Elfnborg Gísladóttir,
Gunnar Helgi Einarsson, Málfríður Lorange,
Guðrún Einarsdóttir, Kristján Sæmundsson,
Sigrún Björk Einarsdóttir, Knútur Hákonarson,
Þórlaug Erla Einarsdóttir, Erling Þór Hermannsson,
Höskuldur Haukur Einarsson, Sigrfður Ólafsdóttir
og barnabörn.
John E. Devaney
endurskoðandi
Fæddur 11. júlí 1923
Dáinn 22. apríl 1991
Síðastliðinn mánudag barst sú
harmafregn að John Devaney hefði
látist í svefni aðfaranótt þess dags.
Fregn þessi kom öllum vinum hans
og samstarfsmönnum mjög á óvart,
því þótt John hafi átt við skerta
heilsu að stríða hin síðustu misseri
hafði hann ávallt mætt til starfa
þess að láta bilbug á sér finna.
John Devaney var bandarískur
þegn, sem fyrst kom til íslands í
maí 1949, þá hálfþrítugur að aldri,
til skrifstofustarfa hjá bandaríska
fyrirtækinu „Lockheed Airlines
Overseas Corporation", en það fyr-
irtæki sá þá um rekstur Keflavíkur-
flugvallar samkvæmt samningi við
Bandaríkjastjóm og það samkomu-
lag milli íslands og Bandaríkja
Norður Ameríku er þá var í gildi.
Hinn 25. desember 1949 kvæntist
John íslenskri konu, Ólöfu Jörgens-
en, en hún lést 1. ágúst 1990. John
starfaði hjá „Lockheed“-fyrirtæk-
inu þar til í júlí 1951, en þá hóf
hann störf við flugvirkjun hjá flug-
her Varnarliðsins sem var að heija
starfsemi samkvæmt varnarsamn-
ingi íslands og Bandaríkjanna er
gerður var 5. maí 1951. í júlímán-
uði 1961 fluttist John til þá nýstofn-
aðrar flotastöðvar Vamarliðsins.
Hann hóf fyrst störf við bifvéla-
virkjun en vann sig fljótt til trúnað-
ar- og eftirlitsstarfa. í maí 1969
hafði John náð slíkum árangri með
ástundun sérnáms við háskólaútibú
„University of Maryiand" á
Keflavíkurflugvelli, að hann var
valinn til að veita forstöðu endur-
skoðunarskrifstofu flotastöðvar
Vamarliðsins. Starfi þessu gegndi
hann með mesta sóma til ársins
1980, er hann lét af störfum sem
starfsmaður Bandaríkjastjómar og
hugðist njóta eftiriauna þeirra er
hann hefði unnið til með saman-
lögðum starfstíma sínum í herþjón-
ustu og við borgaraleg störf.
John og Ólöf fluttust til Orlando,
Flórída í hús er þau höfðu keypt
sér til að dvelja í, en John var þá
þremur árum innan við sextugsald-
ur og Ólöf þremur ámm yngri.
Eftir nokkurra mánaða dvöl í sól-
skinslandinu fór heimþrá að segja
til sín hjá þeim hjónum báðum. Nú
höfðu þau bæði eignast nýjan
draum: Að komast aftur heim til
íslands og að gerast virk að nýju.
Og í desembermánuði 1982 rættist
þessi nýi draumur er starf það er
John hafði áður gegnt losnaði og
John var boðinn velkominn til starfa
á ný.
John og Ólöf keyptu sér hús á
Suðurvöllum 2 í Keflavík. Auk þess
að reka heimili þeirra með mesta
myndarskap, veitti Óiöf húsgagna-
deild verslunar Varnarliðsins for-
stöðu, enda vom nú fjögur mann-
vænlegt böm þeirra, Kaj, Elisabeth,
David og Deirdre, komin til fullorð-
insára og farin úr heimahúsum. En
á síðastliðnu ári tók að halla undan
fæti. Hetjulegri baráttu Ólafar við
krabbamein lauk 1. ágúst sl. er hún
lést, og þótt John stundaði áfram
starf sitt af elju og kostgæfni hafði
hluti lífsneista hans slokknað við
andlát Ólafar.
John var einlægur í viðmóti,
gestrisinn og viðræðugóður. Hann
hafði prýðileg tök á íslensku máli.
Þótt hann væri bandarískur borgari
hafði hann mjög góðan skilning á
íslenskum málefnum og miðlaði
mörgum samlöndum sínum af þeirri
þekkingu, jafnan öllum til góðs.
Hann var einnig vel virtur meðal
samstarfsmanna og allra þeirra er
áttu við hann samskipti og nú sakna
vinar í stað.
Ég og eiginkona mín sendum
bömum Johns og Ólafar og öðmm
ættingjum þeirra hjóna okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Guðni Jónsson
Hvenær sem kallið kemur
kaupir sér enginn fri;
þar læt ég nótt sem nemur,
neitt skal ei kvíða því.
(Hallgrímur Pétursson)
Okkur langar til að minnast
Johns Devaney í örfáum orðum.
En hann verður jarðsettur á morg-
un. Það var fýrir svo stuttu síðan
að við kvöddum eiginkonu hans
hinsta sinni. Hana Göggu frænku.
Aðeins tæpir 9 mánuðir. Ekki óraði
okkur að við myndum þurfa að sjá
að baki Johns svo fljótt. John fædd-
t
Útför
INGU SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Efstalandi 4,
sem lést þann 19. apríl, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
30. apríl kl. 15.00. Þeir sem minnast hinnar látnu er bent á Styrkt-
arfélag vangefinna.
Sverrir Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson,
Svanhildur L. Gunnarsdóttir,
Gunnar H. Gunnarsson,
Inga K. Gunnarsdóttir,
John Henrikson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS H. JÓNSSON
frá Bolungavík,
Hrafnistu,
áður Þykkvabæ 13,
Reykjavík,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 30. apríl kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarfélög.
Hulda Magnúsdóttir,
Jón Magnússon,
Kristbjörg Magnúsdóttir,
Laufey Magnúsdóttir,
Jónína Magnúsdóttir,
Símon Magnússon,
Hafdís Magnúsdóttir,
Sævar Magnússon,
Sigurgeir Finnbogason,
Elísabet Lárusdóttir,
Sigurjón Magnússon,
Kristján Óskarsson,
John Ostergaar,
Ingibjörg Gísladóttir,
Erlingur Guðjónsson,
Anna Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ist í New York árið 1923. Arið
1949 fluttist hann hingað til lands
og kvæntist sama ár móðursystur
okkar Ólöfu Jörgensen Devaney.
Lengst af bjuggu þau hjón í
Keflavík. Þau eignuðust 4 böm:
Kaj, fæddur 1950, Bettý, fædd
1953, David fæddur 1955 og Dídí,
fædd 1968, öll nú búsett í Banda-
ríkjunum. John lærði íslensku og
aðlagaði sig fljótt að kaldranalegu
landi elds og ísa. Og síðustu árin
taldi hann Island vera sitt heima-
land. Hann og Ólöf voru samrýnd
þrátt fyrir ólíkan bakgrunn, og það
var John þungur missir, þegar Ólöf
lést 1. ágúst á síðastliðnu ári. Hann
hafði í nokkur ár átt við lasleika
að stríða, en hélt þó fullum kröftum
og var í starfí fram til síðasta dags,
sem endurskoðandi fýrir herinn á
Keflavíkurflugvelli.
John var ljúfur maður og vildi
öllum gott gera. Hann var sam-
viskusamur, kröfuharður og ná-
kvæmur en aldrei dómharður. Hann
hafði ákveðnar skoðanir og
skemmtilega kímnigáfu. Jafnan
áttum við systur góðar stundir þeg-
ar við heimsóttum hann í Keflavík.
Ef eitthvað var að, var John alltaf
reiðubúinn að rétta hjálparhönd, og
reyndist hann okkur sérstakur vinur
eftir fráfall föður okkar. Nú hefur
John kvatt okkur í hinsta sinn.
Hans skarð verður ekki fyllt.
Elsku Dídí, Bettý, David og Kaj,
Guð blessi ykkur og geymi.
Við dauðans fljót, sem þrumir þungt
í þðgn á milli landa,
við munum síð á sömu strönd
í sömu sporum standa.
(Guðmundur Böðvarsson)
Rúna og Steffý
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.