Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 24
24 «
MORGÚNBLAÐIÐ' MINMIIMMRIMiASIMufl'æ: APRÍDT9M
t
INGIBJÖRG Þ. WAAGE,
sem lést á Hrafnistu 19. apríl sl. verður jarðsungin frá Fossvog-
skapellu mánudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Aðstandendur.
t
SÆMUNDUR GÍSLASON,
Sólvangi, Hafnarfirði,
fyrrum bóndi að Öifusvatni,
Grafningi,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
30. apríl nk. kl. 15.00.
Aðstandendur.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
t
Bróðir okkar og mágur,
ÞORSTEINN EINARSSON
bifvéiavirki frá Bjarmalandi,
Hamrahlíð 25,
verður jarðsunginn frá Snóksdalskirkju þriðjudaginn 30. apríl kl.
14.00. Bílferð verður frá BSI kl. 9.30.
Hólmfríður Einarsdóttir, Magnús Kristinsson,
Snorri Einarsson, Eina Laufey Guðjónsdóttir.
Lokað
vegna jarðarfarar DIETERS M. LUCKAS þriðju-
daginn 30. apríl. Tannsmíðaverkstæðið hf.( Lúkas D. Karlsson, Síðumúla 29.
Blömastofa
fíiðfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
H MS HK MR Mi MH MV MSI MB MR MH MH MK KM MK KM KM MK KM KM MH MR KM KM MK MK MR
Pála Sveinsdóttir
frá Sauðárkróki
Á morgun, mánudag, verður
tengdamóðir mín, Pála Sveinsdóttir
frá Sauðárkróki, til heimilis á Lauf-
ásvegi 19, jarðsett frá Dómkirkj-
unni. Pála fæddist á Þingeyri 31.
ágúst 1912, dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Jónsdóttur og Sveins
Bergssonar og var sjöunda í röð tíu
systkina. Kornungri var Pálu komið
í fóstur hjá sómafólki norður á
Sauðárkróki, hjónunum Magnúsi
Guðmundssyni og Hildi Margréti
Pétursdóttur. Þau hjón eignuðust 4
börn, misstu eitt á unga aldri og
tóku tvö fósturbörn, auk Pálu. Þetta
góða heimili hefur mótað Pálu og
sú prúðmennska og virðing fyrir
samferðafólki sem var eitt af skap-
gerðareinkennum hennar, hefur
trúlega lærst strax í æsku. Þegar
Pála var 16 ára fór hún til
Reykjavíkur og bjó hjá foreldrum
sínum, og gekk í Ingimarsskóla,
með tveimur systrum. Þessi tími
var viðburðaríkur og með skemmti-
legri bernskuminningum Pálu.
Síðan lá leið aftur norður á Krók,
og þar giftist hún lífsförunaut
sínum, Sigurði Björnssyni frá
Litlu-Giljá, og eignuðust þau tvær
dætur, Bryndísi og Söru. Sigurður
var vörubílstjóri, en Pála var heima
meðan dæturnar voru ungar. Þær
urðu því aðnjótandi þess sem nú
heyrir því miður undantekningum
til, að eiga mömmu heima, sem tók
þátt í leikjum og tómstundum og
hafði tíma fyrir þær. Á þessum
árum þróaði Pála listræna hæfileika
sína, og málaði á hálsbindi karla,
púða, dúka, litaði ljósmyndir og
margt annað sem eflaust er enn til
á sumum heimilum á Króknum.
Ung lærði hún á orgel og að lesa
nótur, og í framhaldi af því byijaði
hún að syngja í kirkjukórnum og
var í honum óslitið þar til að hún
flutti til Reykjavíkur. Hún starfaði
við margt en síðustu árin á Krókn-
um á sjúkrahúsinu, þar til að hún
flutti suður til Reykjavíkur 1968,
eftir að Sigurður dó, aðeins 60 ára.
Eftir þetta hélt hún heimili með
yngri dóttur sinni, Söru, á Laufás-
vegi 19, þar til í október 1989 að
Sara lést af sjúkdómi. Við þetta
seinna áfall sýndi hún sama æðru-
leysið og hugrekkið og ákvað strax
að hún og sonur Söru skyldu áfram
búa saman og svo var, þar til sjúk-
dómar báru hana ofurliði. Það seg-
ir nokkuð um þá tryggð sem hún
bar til æskustöðvanna, að hún fór
norður á hveiju sumri og dvaldi hjá
mágkonu sinni Sigrúnu Jónsdóttur,
og dótturdóttir hennar, Helga Pála,
á ógleymanlegar minningar frá
þessum ferðum með ömmu í heim-
sókn til Lóu. í Reykjavík starfaði
Pála hjá Hjartavernd og eignaðist
þar vinkonur meðal vinnufélaga,
sem héldu tryggð við hana þar til
yfir lauk, hafi þær þakkir fyrir.
Undirritaður kom í fjölskyldu Pálu
þ’egar hann kvæntist Bryndísi, eldri
dóttur hennar, og þetta hafa verið
góð 24 ár, það var mannbætandi
að kynnast konu sem átti bara vini,
Ingibjörg Þórðar-
Ræstinganámskeið fyrir húsverði
Námskeiðið er ætlað húsvörðum og öðrum
þeim sem hafa umsjón með eða starfa við
ræstingu.
Fjallað verður um þætti eins og skipulag ræstinga, efnisfræði
hreinsiefna, teppahreinsun, starfsmannahald og helstu áhöld
og aðferðir við ræstingu.
Reykjavík: 6.-8. maí. Kennt er hjá Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti.
Námskeiðið er 21 kennslustund.
löntæknistof nun II
ngar og skráning
i 91-687000 og 687009.
IÐNTÆKNISTOFNUN ISLANDS
Keldnaholt. 112 Reykjavik
Sími (91) 68 7000
1 Ki fBSH W8S&
dóttir Waage
Fædd 16. janúar 1898
Dáin 19. apríl 1991
Á morgun, mánudaginn 29. apríl
1991, verður til moldar borin Ingi-
björg Þórðardóttir Waage, fyrrum
húsfreyja að Húsum, Selárdal í
Arnarfirði og vil ég undirritaður
leyfa mér að minnast hennar með
fáeinum orðum.
Ingibjörg var fædd á Bakka í
Amarfirði en foreldrar hennar voru
Bjarghildur Jónsdóttir og Þórður
Davíðsson. Fljótlega eftir fæðingu
Ingibjargar, fluttu þau Bjarghildur
og Þórður að Skeiði í Selárdal, en
þar bjuggu þau þegar Þórður
drukknaði í mannskaðaveðrinu 20.
september árið 1900, en í því veðri
KJE.VI/ Hobby Háþrýstidælan
Bíllinn þveginn og
bónaöur á tíu mínútum.
Fyrir alvöru bíleigendur, sem vilja fara vel með
lakkið á bílnum sínum, en rispa það ekki með
drullugum þvottakústi.
Bílsápa og sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylg-
ir. Einnig getur þú þrifið húsið, rúðurnar, stéttina,
veröndina og sandblásið málningu, sprungur og
m.fl. með þessu undratæki. Úrval fylgihluta!
REKSTRARVORUR
Réttarhálsi 2,110 Rvik. - símar 31956-685554-Fax 687116
Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.
fórust fjórir bátar í Arnarfirði og
með þeim 17 menn, þar af 15 úr
Selárdal. Þá stóð Bjarghildur ein
uppi með fjögur börn og það yngsta
átta vikna gamalt. Föðursystir
Þórðar, Margrét, sem reyndar var
hálfsystir Davíðs og allmiklu yngri,
bjó um þessar mundir í Reykjavík
og var gift Gunnlaugi Péturssyni
borgarfulltrúa. Þegar hún fréttir lát
bróðursonar síns býður hún Bjarg-
hildi að taka eitt barn í fóstur.
Það varð hlutskipti Ingibjargar,
þá tveggja ára gömul, að yfirgefa
móður sína og systkini og fara í
fóstur til þeirra Margrétar Jónsdótt-
ur og Gunnlaugs Péturssonar, en
þau bjuggu á Framnesvegi 1 og var
það hús kallað Háaleiti. Þar ólst
Ingibjörg upp ásamt þremur fóstur-
bræðrum sínum. Hún hóf skóla-
göngu sína í einkaskóla, Davíð Ost-
lundskólanum, og síðar eftir að
skólaskylda var lögleidd, sest hún
í 5. bekk Barnaskóla Reykjavíkur,
þá tíu ára gömul og lýkur þaðan
prófí 14 ára gömul. Ingibjörg nam
eitt ár eftir þetta í Kvennaskólan-
um, en þar var meðal annars lögð
áhersla á heilsufræði og hjúkrunar-
fræði, en sú reynsla sem Ingibjörg
fékk af þessari skólagöngu átti eft-
ir að koma henni og mörgum fleir-
um til góða, síðar á ævinni þegar
hún var orðin bóndakona vestur í
Selárdal í Arnarfirði.
Ingibjörg stundaði verslunarstörf
hjá fósturbróður sínum, Ásgeiri
Gunnlaugssyni, næstu ár en í árs-
byijun 1919 veikist hún af brjóst-
himnubólgu og lá í henni bæði
heima og á Landakoti í meira en
14 vikur. í kjölfar þessara veikinda
var henni ráðlagt að fara í sveit,
sem og hún gerði og lá þá beinast
við að fara vestur í Selárdal við
Arnarfjörð og dvelst hún þar næstu
sumur. Þar kynntist hún Ólafi M.
Waage, sem hún giftist vorið 1926
í Reykjavík. Ólafur hafði verið gift-
ur áður en misst konu sína, en hjá
þeim Ólafi og Ingibjörgu ólst upp
að nokkrum hluta tvö börn hans frá
fyrra hjónabandi.
Árið 1928 settust þau Ingibjörg
og Ólafur að vestur í Selárd'al og