Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 28

Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 28
28 0 MORGTJNM-AÐIf) ,, ég gen rdb fyríraS þu vitir c*& þú hefur sioiéib hir c rúman kLukkutLma. . ðg ab brauðrisUn erekki Lsamband)." Ást er. . . 3-z.fo . .. ótvírætt heimboð. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate Notuð mann fram af manni í fjöl- skyldunni til að skjóta sig í fótinn! 448 Þetta er líkara öskri hótelgests sem fengið hefur hærri reiking en hann átti von á ... Á FÖRIMUM VEGI Hagmæltir á kjörstað Ohemju leirburður fyrir norðan í þessum Alþingiskosningum „Og hér flýtur með ein vísa sem kom upp úr kjörkössunum ..." Eitthvað í líkingu við þessi orð hafa ætíð heyrst á öldum ljósvak- ans þegar talning stendur yfir á kosninganótt og þjóðin bíður spennt eftir úrslitunum. Sá siður að láta kveðskap fylgja með atkvæði sínu á kjördag hlýtur að vera séríslenskur siður þótt ekki hafi farið fram hávísindaleg könnun á af hveiju margir kjós- endur hérlendis stinga vísum sínum með kjörseðlum í kassana. Kannski er það bara til að sjá hvort „verkið“ verður flutt í út- varpi eða sjónvarpi seinna um nóttina. Oft eru þessar vísur ekki dýrt sé vissulega einnig þekkt. Það var kveðnar en inn á milli má finna nokkuð samdóma álit þeirra kjör- Mun minna var um kveðskap í kjörkössum en á undanförnum árum. haglega kveðnar vísur. Sem dæmi má nefna eina sem kom úr kjör- kassa á Akureyri í þessum kosn- ingum: Enginn sálar öðlast frið efst sem pijálið setur. íhalds brjálað auðvaldið öllu kálað getur. Efni kveðskaparins á kosninga- dag eru að mestu á svipuðum nót- um og þessi vísa, það er níð um flokka og menn, en sjaldnar munu lofvísur fylgja atkvæðum þótt slíkt nefndastarfsmanna sem Morgun- blaðið ræddi við um kveðskap þennan að hann hefði verið óvenju lítill í ár. Ragnar Steinbergsson formaður yfirkjörstjórnar í Norð- urlandskjördæmi eystra segir að í ár hafi verið óhemju leirburður sem þar kom upp úr kössunum og þar að auki hafi vísurnar verið mun færri en á öðrum kjördögum hér á árum áður eða aðeins fjórar talsins, þijár ferskeytlur og eitt kvæði og þótti kvæðið svo lélegt að því var ekki haldið til haga. Yfirleitt kemur um tugur vísna úr kjörkössunum fyrir norðan og fylgja þær með atkvæðum á sér- blöðum. „Ef menn pára vísurnar á sjálfa atkvæðaseðlana eru þeir þar með ógildir. Slíkt er óalgengt en þess munu þó dæmi,“ segir Ragnar. Og hér fylgir önnur af vísunum að norðan: Kannski hef ég kosið rétt og kemst úr heljar nauðum Það er annars ekkert létt að eiga að velja úr sauðum Yíkveiji skrifar HOGNI HREKKVISI þ£//? \/(LJA FA GAML 4 MANNlNN t' ..P/CK TRACV Æ'/ " Víkveiji hitti gamlan kunningja sinn á kjördag og fóru þeir að spá í spilin um hugsanleg úrslit kosninganna, hveijir myndu vinna á og hveijir tapa. Þar kom máli að kunninginn sagði: „En það er ann- ars sama hver úrslitin verða, það reikna sér allir sigur hvernig sem fer.“ Þetta reyndust orð að sönnu, að minnsta kosti að vissu marki. xxx Sjálfstæðismenn telja sig sigur- vegara, enda bættu þeir við sig rúmlega 11 prósentustigum frá kosningunum 1987 og 8 þingsætum og hefði það einhverntíma þótt dá- góð búbót. Alþýðubandalagið bætti við sig einu prósentustigi og einu þing- sæti. Það er ekki aðeins sigur að mati forystumanna þeirra heldur stórsigur. Er þá miðað við þreng- ingar í flokknum að undanförnu og að honum hafi verið spáð mun lak- ara gengi í skoðanakönnunum. Alþýðuflokkurinn og Framsókn- arflokkurinn hlutu sama eða því sem næst sama fylgi og í síðustu kosningum. Sigur Alþýðuflokksins fólst í því að vera enn annar stærsti flokkurinn í Reykjavík og Reykja- nesi og þriðji stærsti stjórnmála- flokkur landsins og Framsóknar- flokkurinn vann sigur með því að styrkja stöðu sína utan suðvestur- hornsins. Kvennalistinn, sem tapaði nokkru fylgi og einum þingmanni, vann einnig sigur. Hann var í því fólginn að vera fyrsta nýja stjórn- málaaflið sem heldur sér inn á þingi þijár kosningar í röð. Borgaraflokkurinn? Þar vandast málið — og þó. Hann vann engan sigur, en hann tapaði ekki heldur þar sem hann bauð ekki fram í eig- in nafni og foringjar hans telja ekki marktækt þegar fylgi hans 1987 er borið saman við fylgi Fijáls- lyndra nú. XXX Ekki er nema mannlegt að bera sig vel, en hitt hefur vakið athygli Víkveija hvemigýmsir hafa lagt sig í líma við að sanna hver hafi raunverulega tapað, og sumir verið allæstir. Ákafastir eru þeir sem telja að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki státað af neinum kosning- asigri. Röksemdafærslan er einföld: Flokkurinn endurheimti „bara“ það fylgi sem hann missti til Borgara- flokksins 1987. I þessu sambandi er ekki minnst á að flokkurinn bætti við sig nokkru meira fylgi en allt fylgi Borgara- flokksins var í síðustu kosningum og litið er framhjá því að aðeins þrír af þeim sjö þingmönnum, sem Borgaraflokkurinn fékk þá kjörna, lýstu yfir stuðningi við Sjálfstæðis- flokkinn fyrir þessar kosningar. Sumir þeirra, sem áður voru í Sjálf- stæðisflokknum, börðust meira að segja hatramlega gegn honum. Þá er sagt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað þar sem honum hafi ver- ið spáð meira fylgi en hann fékk. Engu máli skiptir þótt hann hafi bætt við sig 8 þingmönnum, þeir voru ekki 9 eða 10 og þess vegna er það tap. Já, það er hægt að sigra og tapa kosningum með ýmsum hætti. Sjálfstæðismenn yrðu sennilega vel sáttir við að „tap“ þeirra í næstu kosningum yrði með sama hætti og nú.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.