Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 29

Morgunblaðið - 28.04.1991, Side 29
MORGVNjiLAÐIÐ mivjwmmrniiMVbmm APKfluaeði 0 29 I Reykjanesi kom einn sex kvæða bálkur sem bar yfirskriftina Kosningarnar 1991 en undir hann var skrifað nafnið Denni. Kvennalistakelling Vísur í kjörkössum á kjördag má finna í öllum kjördæmum, ekki síður sunnan heiða en norðan. í Reykjanesi kom einn sex kvæða bálkur sem bar yfírsögnina Kosningamar 1991 en undir hann var skrifað nafnið Denni. Þar mátti m.a. finna þessa vísu: Kvennalistakerling kæmist þingi að ef vel kynni að elda velling, ég verð að segja það. Síðasta línan var nokkurskonar viðlag á öllum vísunum. En það verður að segjast eins og er að kveðskapurinn á Reykjanesi var jafnvel enn meiri leirburður en fyrir norðan þó vlsurnar eða kvæðin hafi verið helmingi fleiri. Ein sú skásta vísan í Reykjanesi hljóðaði svo: Könnunum núna er komið á fót því kosningahörð verður lota. Varla nein ástæða að dýrka það dót sem Davíð er hættur að nota. í Reykjavík er það ekki til siðs að lesnar séu vísur sem koma upp úr kjörkössunum. Jón G. Tómasson formaður yfirkjörstjórnar þar segir að honum finnist ekki við hæfi að vera að auglýsa þetta athæfi þar sem vísukrot á kjörseðla geri þá ógilda. „Ég hef haft þá reglu að birta ekki þessar vísur sem við fáum, enda eigum við ekki að vera að kalla eftir því að fólk geri atkvæði sín ógild,“ segir Jón. í máli Jóns kemur fram að mun minna hafí verið um kveðskap í þessum kosningum nú en fyrri kosningum sem hann hefur starfað að. Jón hefur gegnt þessu starfi sínu undanfarin 12 ár. Hinsvegar gerðist það í 2-3 tilvikum, og ekki hefur gerst áður, að persónuskilríki fundust í kjörkössum. „Við áminntum fólk umfram venju að vera með persónuskilríki með sér og einhveijir hafa misst þau ofan í kjörkassana með atkvæðum sínum,“ segir Jón. Sundlaugarnar: Tefjum ekki afgreiðsluna Ég er einn af þeim sem stunda mikið sund og böð í Sundlaugunum í Laugardal mér til ánægju og heilsubótar, enda má með sanni segja að borgarstjórn Reykjavíkur, með borgarstjórann Davíð Oddsson í fararbroddi, hefur gert stórátak í hollustu og útivistarmálum á und- anförnum árum. Þess skal geta sem vel er gert. Með þessum línum vil ég þakka starfsfólkinu þarna góða og lipra þjónustu gegnum árin. Rétt vil ég minnast á mál sem snýr að okkur gestunum og það er aukin gæsla sem nú er komin á vegna hnupls úr skápum gesta sem er hvimleitt, en sem betur fer er þarna ekkert stórmál á ferðinni. Til að koma í veg fyrir hnuplið hefur það verið tekið upp að afgreiðslan tekur að sér að geyma verðmæti en það kost- ar aukna vinnu hjá þeim stúlkum sem eru við kassa i afgreiðslunni. Þær eru aðeins tvær á vakt og oft biðraðir á sólardögum, og þá er það tvöfallt álag að taka á móti verð- mætum og geyma fyrir fólk. Tillaga mín er sú að við sundlaugagestir notum þessa þjónustu sem allra minnst, geymum verðmæti okkar heima eða í læstum bifreiðum okkar á bílastæðinu. Ef við gerum þetta í auknum mæli þá mun það létta afgreiðslustörfin og flýta afgreiðslu þegar álagið er mikið. Arsæll ------MH------- * Ast - hatur Ég las greinina eftir Gunnar Hersvein í Morgunblaðinu, sem birt var þriðja mars og varð heilluð. Það heilluð að ég er ást„fangin“ upp yfir haus (tek fram ekki af höfundi). Á milli ástar og haturs er einung- is eitt skref, eins og milli hláturs og gráts. Ástin getur orðið það heit að hún brennir og hatrið það kalt að það frýs - og öfugt. En þetta eru eins og systkini sem hald- ast í hendur - ranghverfur. Hvað er yndislegra en sá kærleikur sem umvefur heita ást, og hvað er hrylli- legra en sá kuldi (hrollur) sem umleikúr frosið hatur? Heitt og kalt gerir volgt = vænt- umþykju. Það er spurningin: kalt = -1 og heit = +1 =0 Hvað er þá væntumþykja? Svar: Kærleikur. Venus. Endingargóbar og mebfærilegar Sorptunnur fyrir heimili og fyrirtæki. Þú getur valib úr ýmsum litum sem til dæmis aubveldar flokkun úrgangs. Viburkend þýsk gæbavara! Atlas Borgartúni 24 s: 62 11 55 UPPLYFTIN6 OG HEILSUBÖT í KRAMHÚSINU 6 vikna vornámskeið hefst 2. maí! Um hollustu lyktarlauss hvítlauks Vegna greinar í Velvakanda 7. þ.m. eftir Reyni Þórarinsson langar mig til að upplýsa og leiðrétta nokk- uð algengan misskilning hvað varð- ar allisín. Hrár og óskorinn hvít- laukur inniheldur einungis alliin en ekkert allisín. Þegar hvítlaukur er skorinn, saxaður eða kraminn myndast hið hvarfgjarna allisín sem, sé hann ekki hitaður, breytist (hvarfast) hratt í ýmis brennisteins- efnasambönd. Meðal þeirra gegna merkapatan og skyld sambönd megin hlutverki. Áhugi vísindamanna á 6. og 7. áratugnum beindist aðallega að all- isíni vegna mikillar virkni þess í efnahvörfum. Ýtarlegri rannsóknir vísindamanna á síðustu árum eink- um í Bandaríkjunum, Japan, Kína, Þýskalandi og víðar hafa sýnt að allisín fyrirfinnst naumast ekki í unnum hvítlauk. Þetta verður aug- ljóst þegar þess er gætt að helm- ingatími allisíns er 2,4 klst. Við meðal íbúðarhita líða ekki nema nokkrir sólarhringar þar til allisínið er horfið. Önnur ástæða fyrir þessu er að allar unnar hvítlauksvörur veraldar (að undanteknum japanska hvít- lauknum Kyolic) eru framleiddar við mikinn hita en það eyðir flestum náttúrulegum efnum og hvötum og kemur einnig í veg fyrir að alliin breytist í brennisteinssambönd. Framleiðslutími er frá 4 til 8 klst. Það tekur hins vegar tvö ár að vinna kælitækniunnin Kyolic hvítlauk. Á þeim tíma hvarfast alliin/allisín unnið í kælitæknivinnslu yfir í merkaptan og önnur heilsubætandi brennisteinssambönd og jafnframt hverfur lyktin. Ofnæmis- og ertingaráhrif all- isíns eru vel þekkt fyrirbrigði. Hin öfluga oxunaráhrif allisíns ráðast einnig á slímhúð munns, maga og meltingarfæra og eigin gerla líka- mans. Allisín er þess vegna alls ekki hollustuefni hvítlauksins. Það þykir nú sýnt og sannað að heilsu- bótaefni hvítlauksins eru merkapt- an og skyld efnasambönd. Einnig er rétt að geta þess að Ajoene, (efni í hvítlauk, sem talið er að vinna gegn samruna blóð- flagna, sem aftur er vanalega upp- haf að blóðtappamyndun) mátti skilja þannig (í áðurnefndri grein) að væru virk í hitaunnum hvítlauks- afurðum en staðreyndin er hins vegar sú að Ajoene er einungis að finna í hráum hvítlauk og í fljót- andi Kyolic hvítlauk. Ekki er hægt að halda Ajonene virku nema í fljót- andi formi. Á síðasta ári í lok ágúst, var haldin i Washingtonborg fyrsta al- þjóðaráðstefna vísindamanna um áhrif hvítlauks og hvítlauksafurða á heilsufar. Á ráðstefnu þessari fluttu fyrirlestra heimsþekktir vís- indamenn. Mjög margt athyglisvert kom þar fram, t.d. að hvítlaukur inniheldur efni, sem eru skordýra-, bakteríu- og sveppaeyðandi, efni sem eyða æxlum, varna blóðsykurs- korti, og varna fitusöfnun í slagæð- um o.fl. o.fl. Farandfræðirannsóknir sem sýndu 13 falda dánartíðni af völdum krabbameins, þar sem mismunur á mataræði milli tveggja svæða í sama landi, var einungis daglega hvítlauksneysla og hins vegar eng- inn eða næstum engin hvítlauks- neysla. Það segir sína sögu að fyrir utan hráhvítlauk var einungis ein unnin hvítlauksafurð tekin til rannsókna, nefnilega Kyolic hvítlaukur. Af yfir fimmtíu fyrirlestrum fjölluðu 21 fyrirlestur um rannsóknir þar sem eingöngu Kyolic var notað. I saman- burðarrannsóknum reyndist Kyolic virkari en hrár hvítlaukur, auk þess að vera jafnari að gæðum. Hvítlauksunnandi DANSLEIKFIMI Kennarar: Hafdís, Elísabet og Agnes AFRÓKAR ABÍSK DANSSVEIFLA Kennari: Clé Douglas KLASSÍSKUR BALLETT Kennari: Haný Hadaya JASS - BLUES - MODERN Kennari: Clé Douglas LEIKSMIDJA Kennarar: Arni Pétur og Silvia von Kospoth LEIKRÆNN DANS OG SPUNI FYRIR BÖRN Kennari: Harpa Arnadóttir SUMAR „WORKSHOP## 18.-30. JÚNÍ Gestakennarar: Christian Polos, Clé Douglas o.fl. Innritun hafin. Símar 15103 og 17860

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.