Morgunblaðið - 28.04.1991, Page 31

Morgunblaðið - 28.04.1991, Page 31
'MÓRéUNBLAÐrÐ SAMSAFrillÐ^^nAUR 28. APRÍL Í9'91 3c_Mr Lagl af stað frá Gljúfrasteini. í anddyri Hótel Sögu. Elena Khrústsjov er fyrir miðri mynd en lengst til vinstri er mágur hennar, Viktor Gónt- ar, framkvæmdastjóri Kievballettsins og á bak við hann Matthías Johannessen ritstjóri Morgunblaðsins. SÍMTALID... ER VIÐ ÁSMUND JÓHANNSSON SEM OPNAR NÝJAN VEJTINGASTAÐ í MIÐBÆNUM Maöuráaö gera hlutina með stæl! 13800 Kaffi Amsterdam. - Góðan dag, þetta er á Morgunblaðiftu, Brynja Tomer heiti ég. Er Asmundur við? Það er hann sjálfur! - Komdu sæll. Fannst þér vanta vertshús í miðbæinn? Nei, það vantar kannski ekki vertshús, en það hefur vantað stað eins og þann sem ég ætla að opna. - Hvað er svona merkiiegt við hann? Þetta er góð staðsetning og hugguiegt umhverfí þar sem boðið verður upp á létta máls- verði, auk þess sem þetta verður bar. - Ertu reyndur í veitinga- bransanum? Nei, ég hef verið á sjó alla mína hunds og kattar tíð, átti loðnuskipið Þórshamar, en kom endanlega í land fyrir tveimur árum eftir að hafa eyðilagt í mér bakið a sjó. Ég er einfaldlega að skapa mér atvinnu. Hins vegar finnst mér að þegar maður tekur sér eitthvað fyrir hendur eigi maður að gera það með stæl. - Og það er stæíl á því sem þú ert að gera? Já. - Hvað kostar að setja upp svona stað? Það er atvinnuleyndarmál. - Hvað hefur þú verið að gera síðan þú hættir á sjó? Ég hef verið með innflutn- ings- og útflutningsfyrirtæki í Amsterdam, sem hefur gengið mjög vel. Við erum þrír sem rekum fyrirtækið. - Með hvað verslið þið? Það er hálfgert leyndarmál, nema tékkneski kristallinn sem við flytjum til Kóreu! - Er kannski líka leyndarmál hvenær þú opnar? Nei. Loksins kom að því að ég get svarað. Og þó ... það fer eftir því hvort ég fæ tilskilin leyfí. Ef ég fæ þau, mun ég opna næstkomandi fimmtudag. - Verður hægt að dansa þarna? Já, ef fólk vill, þá getur það dansað þó plássið til þess sé ekki mjög mikið. - Það var einmitt það. Þá þakka ég þér bara kærlega fyrir spjallið. Vertu sæll. Já, vertu blessuð. Ásmundur Jóhannsson j L MARGIR renna nú augum til Keilisness í Vatnsleysustrandar- hreppi. Eru vonir við það bundnar að þar hefjist bráðlega nýr kafli í atvinnulífi íslendinga. Á Keilisnesi mun þá rísa álver. — En Keilisnes hefur nú þegar sinn sess í atvinnusögunni. Coot, fyrsti íslenski togarinn, beið þar skipbrot. * Iblaðinu ísafold mátti lesa 16. desember 1908: „Héðan fór í fyrra dag á leið til Hafnafjarðar íslenzki botnvörpungurinn Coot með annað skip í eftirdragi, físki- skútuna Kópanes, eign P.J. Thor- steinsson & Co. Þegar kom suður á Hafnarfjörð utanverðan, slitnaði Kópanes aftan úr, en taugarslitrið þvældist í skrúfuna í Coot. Fyrir það urðu skipin bæði ósjálfbjarga og rak upp í Keilisnes í fyrri nótt. Mannbjörg varð, en skipin bæði talin alveg frá.“ í fréttinni segir einnig: „Coot átti íslenzkt hlutafé- lag, með 35 þús. kr. höfðustól, og vátrygð var hún í Khöfn fyrir 33 þús. kr. Hún var keypt hingað fyrir 5 árum og hafði farnast vel. Meðal hluthafa voru Einar kaupm. Þorgilsson í Hafnarfirði, Bjarni á Vatnsnesi, Árni Eiríksson verzl- unarstj. í Rvík, síra Jens próf. í Görðum o.fl.“ Frétt ísafoldar var ekki í öllum atriðum rétt, Coot hafði verið keyptur árið 1905 til landsins. Ásgeir Jakobsson rithöfundur rek- ur þá sögu nokkuð í bókum sínum Hufnarfjarðaijarlinn; Einars saga Þorgilssonar og Kastað í Flóann; Upphaf togveiða við ísland. Coot var smíðaður í Glasgow 1892 og samkvæmt íslenskum mælingum var hann 98 fet að lengd og 154,74 lonn brúttó en 64,5 tonn nettó, vélarafl var 225 hestöfl og gang- hraði 10 sjómílur. Nafni togarans var ekki breytt en þess má geta að Coot útleggst á íslensku sem „blesönd" eða „bleshæna“. Togarinn var keyptur af félag- inu The Silver City Trawling Company Ltd, hinn 19. janúar 1905 af nokkrum íslendingum sem staddir voru í Bretlandi til skipa- kaupa. Meðal hluthafa má nefna Björn Kristjánsson, kaupmann og FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍÐ Tjónogskaði við Keilisnes Skipsstrand 1908 síðar bankastjóra, Einar Þorgils- son, Þórð Guðmundsson, Görðum, Arnbjörn Ólafsson í Keflavík, Ind- riða Gottsveinsson sem var skip- stjóri skipsins. Arðvænleg útgerð Ásgeir Jakobsson rekur nokkuð í bók sinni Hafnarfjarðjarlinn sviptingar sem urðu millum hlut- hafa, einkum þeirra Björns Kristj- ánssonar og Einars Þorgilssonar og einnig tíundar hann þær heim- ildir sem til eru um hag og afkomu útgerðarinnar. Fram kemur að útkoman hefur verið allgóð og þessir frumkvöðlar í íslensku at- vinnulífi sýndu fram á að hægt væri að reka togaraútgerð á Is- landi með hagnaði. T.d. var tekju- afgangur árið 1906 9.162 kr. eða tæp 23% en þá var eftir að reikna vexti af höfuðstól og fyrningu. Að sögn Björns Kristjánssonar var greiddur 15% arður það árið. Ekki eru til rekstrarreikningar fyrir árið 1908 en ekki er ástæða til að ætla annað en afkoma útgerðarinnar hafi verið þokkaleg. — Þangað til Coot lagði upp í sína hinstu för Keilisnes í Vatnsleysustrandarhreppi. 14. desember en Indriði Gottsveinsson var ekki með skipið á örlaga- stundu þess. Indriði segir að félagsmenn hafi fengið endurgreitt nær allt hlutafé sem þeir lögðu í fyrirtækið í upphafi. Björn Kristj- ánsson segir aftur á móti að allir hafi fengið sitt og vel það. Þótt endalok þessarar sjóferðar við Keilisnes hafi verið harkaleg og Coot seldur sem strandgóss 8. janúar 1909, hefur útgerð Coots eflt með mönnum áræði og sýnt mönnum fram á að nú væri borð fyrir báru til nýsköpunar í atvinnu- lífi á íslandi. Árið 1909, í janúar- og febrúarhefti Ægis, mánaðarriti um fiskveiðar og farmennsku, stendurm.a:„Þó ekki sé nema um 3 ár síðan, að fyrsta íslenzka botn- vörpuskipið byijaði hér veiðiskap með fslenskum mönnum, þá hefur maður nærfellt óyggjandi trygg- ingu fyrir því að sú veiðiaðferð er mjög gróðavænleg, og geti í raun réttri talist með arðvænlegri fyrir- tækjum, sem hér á landi er hægt að ráðast í.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.