Morgunblaðið - 19.05.1991, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.05.1991, Blaðsíða 5
Titanic rakst á jakann kl. 11.40 að kvöldi sunnudagsins 14. apríl 1912 hafði Lord skipstjóri séð rekís á stóru svæði framundan, stöðvað Californian og sent ísfregn. Titanic sökk kl. 2.20 árdegis, en Californian lá til kl. 5.15. Cyril F. Evans, loftskeytamaður- inn á Californian, reyndi að ná sam- bandi við Titanic um ellefuleytið til að segja frá hafísnum, sem umlukti skipið. Evans taldi að Titanic væri 100 mílur í burtu. Loftskeytamað- urinn á Titanic var upptekinn við afgreiðslu skeyta og skipaði Evans að trufla sig ekki. Vakt Evans lauk klukkan hálftólf og hann lokaði fyrir tækið og lagðist til svefns. Yfirmennirnir á Californian höfðu séð óþekkt skip nálgast síðan um ellefuleytið og reynt að ná sam- bandi við það með morslampa, en án árangurs. Klukkan 11.40 virtist það nema staðar, að því er virtist vegna íssins eins og Californian, og slökkva flest ljós. Á miðnætti fór Lord skipstjóri niður í korta- klefa til að leggja sig í fjóra tíma og sagði Herbert Stone öðrum stýri- manni að láta sig vita ef skipið nálgaðist. Klukkan 1.15 tilkynnti Stone skipstjóranum í talpípu að flugeld- um hefði verið skotið frá skipinu síðasta hálftímann. Lord spurði hvort þeir væru kveðjumerki. Stýri- maðurinn kvaðst ekki vita það, en sagði að þeir væru hvítir (sem gat táknað að þeir væru neyðarmerki). Lord sagði honum hálfsofandi að halda áfram að morsa, en skipið svaraði ekki. Um tvöleytið virtust flest ljósin vera horfin. Lærlingur, sem var með Stone í brúnni, vakti skipstjór- ann fimm mínútum síðar, sagði að skipið væri að hverfa lét þess getið að alls hefðu sézt átta hvítir flugeld- ar. Fimmtán mínútum síðar var Titanic sokkið. Seinna kvaðst Lord hafa haft óljóst hugboð um að einhver hefði komið inn í kortaherbergið, en hann minntist þess ekki að hafa talað við nokkurn. Klukkan 2.45 gaf Stone merki í talpípuna og sagði að fleiri ljós sæjust ekki og skipið væri horf- ið. „Hvar voruð þið“ Þegar Evans loftskeytamaður kom aftur á vakt upp úr 4 frétti hann fljótlega að Titanic væri að sökkva. Carpathia, skip Cunard- félagsins, hafði heyrt neyðarkallið og sigldi rakleiðis á vettvang á fullri ferð, fram hjá tugum ísjaka. „Hvar hafið þið verið í alla nótt?“ var Evans spurður. „Voruð þið sof- andi?“ Þessar spumingar áttu eftir að ásækja Lord skipstjóra alla ævi. Lord lét setja vélarnar í gang kl. 5.15 og stefndi á þann stað, sem Titanic hafði verið síðast. Laust eftir átta tilkynnti Carpathia að Titanic væri sokkið. Þá hafði öllum, sem fundizt höfðu á lífi í björgunar- bátum, verið bjargað og Lord skip- stjóri var beðinn að leita að líkum, en engin fundust. Fljótlega eftir að Lord skipstjóri kom til Boston að kvöldi 18. apríl birtust fréttir um að Californian væri hið illræmda skip, sem hefði sézt frá Titanic. Það varð ekki til að bæta stöðu hans að haft var eftir honum í viðtali að Californian hefði verið í 17-19 mílna fjarlægð frá Titanic og að bjarga hefði mátt öllum farþegunum, ef hann hefði vitað um áreksturinn við jakann. Glæpur Lords var hugleysi. Hann og aðrir yfirmenn á Californian voru fordæmdir í Bandaríkjunum og Bretlandi fyrir að virða neyðar- merki að vettugi til þess að þurfa ekki að sigla gegnum hættulega hafísbreiðu til að bjarga skipbrots- mönnum. „Sterkar líkur benda til þess að takast hefði mátt að bjarga öllum þeim sem fórust,“ sagði formaður bandarískrar þingnefndar, William A. Smith, sem rannsakaði slysið. „Californiah hefði ef til vill getað bjargað lífi margra, jafnvel allra,“ sagði í niðurstöðum brezka sjórétt- arins. Lord skipstjóri neitaði öllum ásökunum og barðist gegn úrskurð- inum til dauðadags. Segja má að Lord skipstjóri: víttur fyrir vanrækslu. Robert Ballard: fann flakið. Hefði mátt bjarga öllum? Skipbrots- menn af Titanic nálgast Carpathia. Of fáir björgunarbátar: bátadekkið á Titanic. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAI 1991 n w i7 þ! «t i;ar i wv\ ~ ö (TÁ TfTii 1017 si. Stærsta farþegaskip heimsins: auglýsing frá White Star-félaginu. hann standi óhaggaður, þótt stuðn- ingsmenn Lords hafi alltaf haldið því fram að hann hafi verið gerður að blóraböggli til að dreifa athygl- inni frá skorti á björgunarbátum um borð í Titanic. „Þeir vildu skella skuldinni á einhvern og réðust á föður minn,“ segir sonur hans. Núna fyrst hefur þrotlaus barátta fyrir því að fá málið tekið fyrir að nýju borið árangur. Annað skip? Ein helzta röksemd stuðnings- manna Lords skipstjóra hefur verið á þá leið að skipið, sem sást frá Titanic, geti ekki hafi verið Cali- fornian, því að það hafi verið á ferð, en búið hafí verið að stöðva Cali- fornian. Þeir hafa einnig bent á að skip- stjórinn á Titanic hafi sagt mönnun- um í einum björgunarbátnum að róa í áttina að ljósunum og koma aftur eftir fleirum, en þeir hafi ekki fund- ið skipið þótt það hafi virzt mjög nærri. Tímasetningum ber ekki saman. Californina sá ljósin á öðru skipi u'm 'kl. 11.00, en ekki sást til ann- ars skips frá Titanic fyrr en eftir kl. 12.25 ogþó voru varðbergsmenn á sínum stað. Flugeldar sáust frá Californian á öðrum tímum en sagt var að flug- eldum hefði verið skotið frá Titanic. Fyrsta flugeldinum var skotið frá Titanic fyrir kl. 12.35, en ekki sást til flugelda frá Californian fyrr en eftir kl. 12.45. Stone og lærlingur- inn sáu síðasta flugeldinnn af átta laust fyrir kl. 2.00, en að sögn eins farþega á Titanic var engum flug- eldi skotið þaðan eftir kl. 12.45. Enginn í Californian heyrði flug- eldana springa, þótt sagt væri að skipið hefði verið rétt hjá Titanic. Þar sem stuðningsmenn Lords hafa haldið því fram að það hafi ekki verið Titanic, sem sást frá Califomian, og ekki Californian, sem sást frá Titanic hafa þeir lengi reynt að finna „þriðja skipið", sem hafi verið á þessum slóðum um nóttina og sézt frá þeim báðum, en það hefur gengið erfiðlega. Nú halda þeir því fram að sel- veiðiskip hafí verið að ólöglegum veiðum á svæðinu milli Californian og Titanic og sézt frá þeim báðum. Selveiðiskipið Samson þykir helzt koma til greina. Stuðningsmenn Lords skipstjóra segja að áhöfnin á hinu óþekkta skipi hafi ruglazt á Titanic og skipi bandarísku strand- gæzlunnar og ákveðið að forða sér. Andstæðingar Lords telja fátt styðja þessa kenningu. Sé hún rétt hafi yfirmennirnir á Californian engu að síður gert sig seka um vanrækslu, þar sem þeir hafi ekki kannað flugeldana sem þeir sáu. Flakið finnst Árið 1985 komu fram nýjar upp- lýsingar þegar bandaríski haffræð- ingurinn Robert Ballard fann flak Titanics eftir mikla leit. Upplýsing- ar hans eru eitt af því sem verður athugað í hinni nýju rannsókn, en ekki er Ijóst hvort þær muni auð- velda tilraunirnar til að hreinsa nafn Lords skipstjóra. Flakið fannst um 10 mílur frá staðnum þar sem Titanic sökk sam- kvæmt sjóprófunum. Þá kvaðst Ballard í engum vafa um að Cali- fornian hefði verið svo nálægt Titanic að hægt hefði verið að bjarga öllum þeim sem urðu eftir um borð þegar bátarnir voru farnir. Stuðningsmenn Lords telja fund flaksins styðja þá kenningu að fjar- lægðin milli Titanics og Californian hafí verið svo mikil að skipin hafí ekki séð hvort annað. Andstæðingar Lords draga þetta í efa og segja að þótt flakið sé fund- ið veiti það enga vísbendingu um hvar Californian hafi verið. Engin ástæða sé til að ætla að staðar- ákvörðun Californian hafi verið nákvæmari en staðarákvörðun Titanics. Hinarnýju upplýsingar voru tald- ar svo mikilvægar að ný rannsókn var fyrirskipuð. Aður en hún hófst var sagt að ekki væri víst að núver- andi staðsetning flaksins sýndi ná- kvæmlega hve langt hefði verið milli skipanna, því að Titanic hefði verið á floti í tæpa þijá tíma eftir áreksturinn og kynni að hafa rekið margar mílur. „Óskiljanlegt" I bók sinni Titanic: ÖII harmsag- an sögð (The Titanic: The Full Story) segir Michael Davie að sú staðreynd standi óhögguð að flug- eldar hafi sézt frá Californian án þess að nokkuð hafi verið gert til að rannsaka málið. Skipstjórinn hafi verið í klefa sínum til kl. 4.30, en fleiri yfírmenn skipsins eigi hlut að máli. Davie segir að ekki sé hægt að afsaka sljóleika stýrimannsins sem var á vakt. „Ef hann hefur borið óttablandna virðingu fyrir Lord skipstjóra, eins og gefíð hefur verið í skyn, hefði hann getað vakið fyrsta stýrimann. Hann hefði getað vakið loftskeytamanninn. En það bendir jafnvel ekkert til þess að hann hafi talað um hvað gera ætti; hann virðist eingöngu hafa litið á sig sem áhorfanda." Um Lord segir Davie að fram- koma hans virðist óskiljanleg hafí hann skilið það sem lærlingurinn sagði þegar hann vakti hann. Eins og hann hafí sjálfur sagt síðar hafi hann haft allt að vinna og engu að tapa, ef hann hefði gert eitthvað. Skipstjórinn á Carpathia, Arthur Rostron, varð heimsfrægur fyrir björgun farþeganna. Davie tekur ekki undir það að Lord hafi ekki viljað stofna öryggi skips síns í hættu með því að taka neyðarmerkin hátíðlega og bendir á að hann hafi siglt gegnum ísinn þegar hann hafi loksins fengið frétt- ina um slysið. Hins vegar segir Davie að fram- koma Lords fyrst eftir slysið hafi ekki bent til þess að hann hafi haft algerlega hreina samvizku. Hann hafi sagt Stone stýrimanni og lær- lingnum að semja skýrslur um það sem gerðist og með því hljóti hann að hafa viljað reyna að bjarga mál- stað sínum. Eftir komuna til Boston gaf Lord óljós og loðin svör, sennilega í von um að ekkert mundi heyrast um málið meir. „Þetta var ekki aðeins lítt aðdáunarvert, heldur heimsku- legt, því að hann átti að vita manna bezt að öll áhöfnin vissi nokkurn veginn hvað gerðist,“ segir Davie. Hann telur ekki með öllu ósann- gjarnt að Lord skuli hafa verið gerð- ur að einum af blórabögglum slyss- ins. „Slysið var átakanlegur atburð- ur og almenningur, og ef til vill ekki aðeins almenningur, leitaði að einhverjum til að kenna um það. Þegar alls er gætt eru líkurnar Lord enn ándstæðar, þótt eðlilegt sé að honum sárnaði að aldrei var hlustað nákvæmlega á rökin fyrir málstað hans.“ Seinna sagði Lord skipstjóri Harrison að hann sæi eftir því að hafa ekki farið upp í brú og kynnt sér ástandið af eigin raun. Þess vegna hefði hann aldrei losnað við þann blett, sem fælist í spurning- unni: „Var þetta þetta Lord að kenna eða ekki?“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.