Morgunblaðið - 19.05.1991, Síða 25

Morgunblaðið - 19.05.1991, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ R/IINMINGAfléÚ^NtlDAGUR 19. MAÍ 1991 C 25 Þórólfur J. Egils son - Mirniing Fæddur 24. júní 1921 Dáinn 26. apríl 1991 Mig setti hljóðan þegar mér barst fregnin um að æskuvinur minn Þórólfur Egilsson liefði látist fyrir nokkrum klukkustundum. Við höfð- um hist um morguninn og var hann þá hress og kátur að vanda, en mennirnir þenkja, Guð ræður. Með Þórólfi er genginn góður drengur og minnist ég hans sem góðs vinar og á huga minn leita ljúfar minning- ar um ánægjulegar samverustundir í leik og starfi. Þórólfur fæddist á ísafirði 24. júní 1921 og var hann annað barn foreldra sinna, þeirra Hrafnhildar Eiðsdóttur og Egils Jónssonar, símamanns, en þau eignuðust tíu börn, fimm stúlkur og fimm drengi. Það má geta nærri að erfítt hefur verið að sjá fyrir svo stórri fjölskyldu og hafa foreldrarn- ir oft átt langan vinnudag. En börn- in voru hraust og fóru snemma að hjálpa til, fóru í sveit á sumrin og unnu fyrir sér. Egill og Hrafnhildur áttu sér lítið hús í Skipagötu 12. Oft hefur verið þröngt þar þegar bömin voru komin með vini sína, en aldrei var amast við neinum sem að garði bar. Þórólfur hafði alla tíð mikinn áhuga á íþróttum, hann gekk ungur í knattspyrnufélagið Hörð og stundaði knattspyrnu, fijálsar íþróttir og sund. Eftir ferm- ingu stundaði hann alla algenga vinnu þar til hann ákvað að læra rafvirkjun og ræður sig til náms hjá Þórði Finnbogasyni rafvirkja hér í bæ og útskrifaðist frá honum með ágætiseinkunn. Þegar Þórður flyst héðan kaupir Þórólfur af hon- um verkstæðið og stofnar fyrirtæk- ið Raf hf. sem, hann rekur um langt árabil og mörg eru þau hús bæði nÝ og gömul sem hann hefur lagt rafmagn í hér í bæ og nágrenni, og marga lærlinga hefur hann út- skrifað. Árið 1946 kvænist hann Guðrúnu Gísladóttur hjúkr- unarfræðingi fra' Hofsstöðum í Garðahreppi og eignuðust þau sex böm. Þau eru: Gísli, sem þau misstu ungan, Egill, rafvirki og bóndi í Eyjafírði, giftan Petreu Hallmanns- dóttur, Þórgunnur, gift Magnúsi Árnasyni, búa í Garðabæ, Halldór, giftur Þórnýju Heiðarsdottur, búa í Danmörku, Sigrún, gift Björgvin Árnasyni, búa á Húsavík, og Gísli Öm, unnusta hans er Aðalheiður Jónsdóttir og em þau við nám á Ítalíu. Bamabörnin eru orðin níu. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Guð- rún og Þórólfur í leiguhúsnæði en fljótlega eignast þau íbúð á Hlíðar- vegi 5 og búa þar, þar til þau byggja stórt og myndarlegt hús á Seljalandsvegi 20, og reka þar á neðri hæð verslun með rafmagns- vömr og bflavarahluti. Þórólfur var mikill félagsmaður. Var hann í Oddfellowreglunni, Rotary og Sjálf- stæðisflokknum og virkur félagi í þeim öllum. Þegar Golfklúbbur Isa- fjarðar var stofnaður gekk hann í klúbbinn og var alla tíð mikill Blömastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið ðll kvðld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tllefni. Gjafavörur. áhugamaður um golf upp frá því, og notaði frístundir sínar í að spila golf þegar hægt var, bæði hér og í Bolungarvík. Formaður golf- klúbbsins var hann um tíma. Þórólf- ur hafði gengið tvisvar undir hjarta- aðgerð í Englandi, svo ekki gekk hann alltaf heill til skógar en kvart- aði ekki, en nú verður að fara að slaka á með vinnu og fara sér hæg- ar. Hann hættir að versla og ræður sig sem áhaldavörð í Vélsmiðjunni Þór og vann þar, þar til yfír lauk. Þau voru þá búin að selja íbúðarhú- sið á Seljalandsvegi 20 og kaupa íbúð að Hlíf, en veran þar var styttri en óskað var því kallið kom allt í einu svo engum vömum varð við komið. Við hjónin þökkum honum samfylgdina og biðjum Guð að veita honum góða heimkomu. Eiginkonu hans og börnum og öðrum ættingjum vottum við okkar dýpstu samúð. Far þú i friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt. (V-Br.) Halldór M. Ólafsson t Útför, BJÖRNS SIGFÚSSONAR fyrrum háskólabókavarðar, verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.30. Blóm afbeðin en þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess. Kristin Jónsdóttir, Hólmfríður Björnsdóttir, Hörður Björnsson, Sveinbjörn Björnsson, Guðlaug Einarsdóttir, Sigfús Björnsson, Ólafur Grímur Björnsson, Helgi Björnsson, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og barnabörnin. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURRÓS SVEINSDÓTTIR, fyrrum formaður Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði, sem lést á Sólvangi 13. maí, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar- kirkju miðvikudaginn 22. maí kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlegast látið Sólvang njóta þess. Sveinn Magnússon, Kristín Magnúsdóttir, Erna Fríða Berg, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir vináttu og samúð við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR SIGURÐARDÓTTUR frá Torfgarði. Sérstakar þakkir skulu færðar öllu starfsfólki lyflækningadeildar St. Jósefsspitalans í Hafnarfirði svo og St. Fransiskus-systrum í Hafnarfirði. Fyrir hönd vandamanna, Sigurður Helgi Björnsson, Auður Theodórs, Egill Birkir, Theodór Skúli. t Við þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vin- áttu við andlát og útför, JÓNS SIGURÐAR HALLDÓRSSONAR. Louise Dahl, Anna Einarsdóttir, Halldór Jónsson, Einar Halldórsson, Gunnar Þorsteinn Halldórsson, Frfður M. Halldórsdóttir. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — sími 681960 t Þökkum auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGU SIGURRÓSAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Efstalandi 4. Sverrir Gunnarsson, Svanhiidur L. Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Inga K. Gunnarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, KJARTANS G. GUÐMUNDSSONAR málarameistara, ísafirði. Guðrún Ásgeirsdóttir, Margrét Kjartansdóttir, Rannveig K. Grönás, Per Ragnar Grönás, Guðmundur E. Kjartansson, Bryndís S. Jónasdóttir, Ásgerður Kjartansdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug við andlát og útför, kristInar g. einarsdóttur syre. Sérstakar þakkir til þess góða vinafólks sem heimsótti hana og allra þeirra sem reyndu að gera henni lífið léttara í veikindum hennar. Guð blessi ykkur öll. Sigurður Einarsson og vandamenn. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, fósturföður, tengdaföður og afa, EYJÓLFS VILMUNDSSONAR frá Löndum, Grindavík, Þórustfg 26, Njarðvik. Guðjón Eyjólfsson, Marta A. Hinriksdóttir, Snorri Eyjólfsson, Ingileif Emilsdóttir, Kristín Eyjólfsdóttir, Ingilaug Gunnarsdóttir, Logi Guðmundsson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HARTWIGS TOFT fyrrverandi kaupmanns, Baldursgötu 39. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks og starfsfólks deildar 1-A á Landakotsspítala. IrmgardToft, LeoMunro, Sigrid Toft Magnús Pálsson, Margrét Toft, Björn Þór Ólafsson, AnnaToft, Indriði Indriðason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og afa, RAGNARS SVAFARS JÓNSSONAR fyrrverandi baðvarðar, Hofteigi 4, Reykjavik. Björg Guðfinnsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Guðfinna Ragnarsdóttir, Ingveldur Ólöf Ragnarsdóttir, Hrönn Hilmarsdóttir, Björg Soffi'a Jónsdóttir, Ragnar Karl Jónsson. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, VILBORGAR HELGADÓTTUR Móeiðarhvoli, Ágúst Valmundsson, Sigri'ður Guðjónsdóttir, Sigurgeir Valmundsson, Vilborg Guðjónsdóttir, Guðrún Valmundsdóttir, ísleifur Pálsson, Guðmunda Valmundsdóttir, Einar Valmundsson, Guðrún Jónsdóttir, Helgi Valmundsson, Svanhvít Hannesdóttir, Páll Valmundsson, Klara Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.