Morgunblaðið - 19.05.1991, Side 29

Morgunblaðið - 19.05.1991, Side 29
í8Gi íam .er huo/i MORGUNBLAÐIÐ av UICfAJfmilOMOM SUNNUDAGUR 19. MAÍ 1991 ) gjj C 29 Elma Ágústsdóttir, 4 ára. Heba Hilmarsdóttir hefur verið unnt að halda uppi bekk- jarkennslu. Við erum einnig heppin með hvað aðstandendur skólans og skólanefnd hafa sýnt skólanum mik- inn velvilja og jákvæðni." „Kem með jákvæðu hugarfari“ Heba Hilmarsdóttir er gift starfs- manni hjá Sláturfélaginu, hún flutti til Hvolsvallar fyrir réttri viku og er fjölskylda hennar ein af þeim fyrstu til að flytjast hingað. Hún er spurð að því hvort það hafi verið erfíð ákvörðun. „Nei í sjálfu sér var það ekki svo erfíð ákvörðun. Við höfðum aðeins búið í 4 ár í Kópavogi en þaðan komum við hingað. Ég er fædd og uppalin á Siglufirði þannig að ég þekki það vel að búa úti á landi og kann að mörgu leyti betur við það. Mér líkaði reyndar prýðisvel að búa í Kópavogi og var komin í mjög góða vinnu hjá Háskólanum. Ég vonast til þess að ég geti einnig feng- ið góða vinnu hér. Hvað varðar fjöl- skylduna þá á ég tvær dætur 18 og 22 ára og þær verða hjá okkur a.m.k. Margrét ísleifsdóttir í sumar. Reyndar var erfiðast að taka ákvörðun um að flytja hingað dætranna vegna en sú yngri er við nám í Menntaskólanum í Kópavogi. Heba er því næst spurð að því hvernig henni litist á sig hér. „Mér fínnst fallegt hérna og ég er hingað komin með jákvæðu hug- arfari. Það er nú komin lítil reynsla á þetta ennþá því ég hef aðeins ver- ið hér í eina viku. En þau samskipti sem ég hef átt við fólk hér hingað til hafa verið mjög jákvæð." Heba er bjartsýn á framtíðina hér á Hvolsvelli og ef henni líkar vel að búa hér hyggst hún festa kaup á húsi, en til að byrja með verður hún og fjölskylda hennar í leiguhúsnæði. Að síðustu varð á vegi okkar lítil dama sem heitir Elma Agústsdóttir. Hún er fjögurra ára og hún var spurð að því hvernig henni litist á að vera búin að fá stæstu pylsuverksmiðju á landinu í bæinn sinn. „Mér finnst það bara gaman og núna eru SS pylsur uppáhaldsmatur- inn minn.“ S.Ó.K. Endurnýtum vínflöskurnar Umhverfisvernd er orð dagsins í dag og tala stjórnmálamenn mikið um slík efni en oft virðist standa á framkvæmdum og orðin eru látin duga. Áberandi var fyrir nokkrum árum að bjórdósir væru út um allt og óprýddu víða umhverfið. Nokkur umræða varð um þetta og fannst sú farsæla lausn að skilagjald var sett á þessar umbúð- ir. Afleiðingin er að nú sjást varla dósir á gangstéttum og það vanda- mál virðist leyst. Oðru máli gegnir um aðrar umbúðir og vil ég sérstaklega nefna vínflöskur. Þær má víða sjá og sumar brotnar. Ekki hefur ver- ið sett skilagjald á þær og er af- leiðingin sú að þær má víða sjá á förnum vegi, og er það heldur hvimleitt að reka augun í slíkt. Væri ekki tímabært að bæta úr þessu — setja skilagjaldið á þann- ig að þessum flöskum mætti skila á sömu stöðum og bjór- og gosfl- öskum er skilað á? Þar með er þetta vandamál einnig úr sögunni. Umhverfisverndarmaður ....♦ » ♦--- Einhleyping'- ar fá ekkert til baka að er átakanlegt, en sannleikur engu að síður að einn þjóðfé- lagshópur er verr settur í þjóðfélag- inu en aðrir. Það er einhleypingur- inn. Við borgum öll í samfélaginu skatta, sem er sjálfsagður hlutur, en hjón með böm fá barnabætur. Einnig á þetta við um einstæðar mæður, þannig að samfélagið greið- ir til baka til hjóna með börn og einstæðra mæðra en einhleypingur fær ekkert til baka. Samt er hann ásamt hinum greiðandi til samfé- lagsins. Ég spyr fjármálaráðherra, hvers vegna er þetta svona? Væri ekki hægt að bæta einhleypingum þetta upp með persónufrádrætti? Er það hugsanlegur möguleiki að einhleypingar eigi miljarða inni hjá ríkinu? Ég vona að fjármálaráð- herra svari þessu þó hann sé einn af styrkþegum. Launþegi SKYLDUR OG RETTINDI Itilefni fréttar í Morgunblaðinu 4. maí sl. er segir frá því að Hall- dóri Þorsteinssyni hafí verið neitað um vegabréfsáritun til Bandaríkj- anna. Það er undarlegt að blaðamað- ur Morgunblaðsins skuli birta þessa frétt án þess að geta frekari stað- reynda í málinu. Það er dæmigert íyrir okkur Ís- lendinga að vilja njóta réttinda án þess að taka á okkur skyldur. Það er umhugsunarefni útaf fyrir sig hvað valdi þessari hugsunarveilu. Það er útilokað að Halldór hafi verið kvaddur í herinn án þess að hafa verið skráður „borgari" eða „íbúi“ í Bandaríkjunum. Þessa stöðu getur hann ekki öðlast nema að hann óski eftir því sjálfur. Hafí hann fengið þessa stöðu hef- ur hann gengist undir ákveðnar skyldur, þar á meðal að veija landið ef þurfa þykir. Hér liggur misskiln- ingur Halldórs og margra annarra á því hvað sé lýðræði. Því þegar þingið ákveður að kalla menn til herþjónustu samkvæmt lögum, eru ALLIR þegnarnir jafnskyldugir að svara kallinu. ENGINN er undan- skilinn ábyrginni. Til að lýðræðisriki virki þarf rétt- lát lög, en þeim þarf að fylgja strangt eftir. Eg efast um að marg- ir okkar íslendinga geri sér grein fyrir hversu ströng okkar eigin lög eru gagnvart útlendingum hér, eða hversu margir útlendingar eru rekn- ir héðan á hveiju ári þar sem þeir hafa ekki farið eftir okkar ströngu lögum um landvist hér. Mörgum er snúið til baka á flugvellinum og fá ekki að koma inn í landið. Yið ætl- umst til að aðrar þjóðir virði okkar lög og venjur, en höldum svo oft að við getum gert það sem okkur hent- ar í öðrum löndum. Bandaríska þjóðin hefur yfirleitt sýnt okkur íslendingum vinsemd og virðingu. Starfsmenn sendiráðsins hér eru einungis að vinna skyldu- störf sín. Þeir bjóða mönnum að gera hreint fyrir sínum dyrum en til þess þarf að sækja um að mál þeirra sé tekið fyrir og koma i við- tal. Það er ekkert óeðlilegt við þetta fyrirkomulag. Ég vil ráðleggja Halldóri að fara í viðtalið, halda uppá sjötugsafmælið i „Ameríku“ og njóta frábærrar gestrisni Amerík- ana sem ferðamaður í þeirra landi. Guðjón Sigurðsson REYKLAUS DAGUR 31. MAÍ Tilefnið seiti þú beiðst eftir? Búðu þig undir aS hætta að reykja Leiðbeiningarrit Krabbameinsfélagsins ÚT ÚR KÓFINU °9 EKKI FÓRN - HELDUR FRELSUN fást ókeypis á heilsugæslustöðvum um land allt, í mörgum apótekum og hjá Krabbameinsfélaginu. Reyklaus dagur - reyklaus framtíð! TÓBAKSVARNANEFND 687111 HöTtx ýmw) HQjjiJjssínm ¥(S)ft!]y®T®lg "(Ö [Jj][LcÐ(S)[jffl©WIlDTrD[M THE ROCKING GHOST ®DTn]®i____ fim. fös. 25. 23. 24. og lau. maí DANSANDI FJOLSKYLDA Margfaldir íslandsmeistarar í Ballroom og suður - amerískum dönsum á Hótel ísiandi fim. 23. og fös. 24.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.