Alþýðublaðið - 15.02.1959, Side 3
Grikkir fagna samkomu
Sumir aðilar harma þó, að eyjan
skyfdi ekki sameinuð Grikklandi
London, 14. febr. (Reuter).
MAKARIOS erkibiskup Kýpur
heldu rtil Englands á morgun
frá Aþenu. í för með honum
verða sex bæjarstjórar í smá-
þorpum á Kýpur og nokkrir
blaðamenn og lögfræðingar.
Karamanlis, forsætisráðherra
Grikkja, er veikur, en búizt er
við að hann verði mættur til
fundar um Kýnurmálið í Lon-
don á miðvikudag.
Aðilar, sem standa nærri rík-
isstjórn Englands, hafa látið í
Ijósi nokkurn efa um, að Bret-
ar geti fallizt á samkomulag
Grikkja og Tyrkja í Kýpur-
deilunni. Er talið að brezka
stjórnin líti það illu auga að
krúnunýlenda verði sett undir
sameiginlega stjórn Grikkja og
Tyrkja.
ALMENNINGUR ÁNÆGÐUR.
Almenningur á Kýpur virð-
ist hafa fahizt á Ziirich-sam-
komulagið. sem gerir ráð fyrir
að stofnað verði lýðveldi á
Kýpur og fái báðir þjóðflokk-
arnir á eynni áhrif á stjórn
þess. Makarios • erkibiskup,
sem er vfcraldlegur og geistleg-
ur höfðingi Grikkja á Kýpur,
hefur tjáð sig samþykkan sam-
komulaginu. Einnig er búizt
við að Karamanlis fái trausts-
yfirlýsingu í gríska þinginu
vegna samkomulagsins við
Tvrki. Nokkrar óánægjuraddir
hafa þó heyrzt í Grikklandi um
samkomulagið. Kyprianus
biskup í Kyrenia, sem verið
hefur staðgengill Makariosar á
Kýpur hefur fordæmt sam-
komulagið á þeim forsendum,
að með því sé endanlega kom-
ið í veg fyrir sameiningu Kýp-
ur og Grikklands.
EDA flokkurinn í Grikklandi,
s.em er raunverulega hinn
bannaði kommúnistaflokkur
landsins, hefur mótmælt sam-
komulaginu, þar eð það komi
í veg fyrir að Kýpur samein-
ist Grikklandi, tyrkneskar her-
sveitir verði staðsettar á Kýp-
ur og í þriðja lagi, að Bretar
kunni að nota eyjuna til árása
á Arabiska sambandslýðveldið.
Macmillan mun ekki semja
við Krúsfjov í för sinni
Verkamannaflokkurinn undirbýr til-
Iögur í Þýzkalandsdeilunni ..
London, 14. febrúar (Reuter)
HAROLD Macmillan, forsætis-
ráðherra Breta, mun ræða. við
meðráðlierra sína um helgina
væntanlega för sína til
Fiskveiðar Rússa
Framhald af 1. síðu.
Rússa í fiskveið'um • sé, enda
þótt Kristinn Andrésson segði
í ræðu á þinginu, að atvinna á
íslandl væri komin undir við-
skiptum' við Riússa.
Þá segir Tryggvi í viðtalinu
við Þjóðviljann, að væntanleg-
ar séu í Rússlandi kauphækkan
ir, verðlækkanir og skattfrelsi
algert. í þessu sambandi hefði
verið fróðlegt að vita, hvort ís.
lendingum er ætlað að lækka
verð á fiski sínum, eða hvort
reiiknað er með að innflutning-
ur fiskjar hætti, þegar fram-
leiðslan í Sovétríkjunum sjálf.
um eykst s.vo mjög, sem ætlun-
in er.
Það er dularfullt, að Tryggvi
skuli þegja alveg um þeiman
þátt hinnar miklu sjö ára áætl-
un, sem íslendinga varðar svo
miklu. GÍeymdi hann að kynna
sér þetta? Las hann ekki yfirlit
um þá áætlun, sem hann kallar
„áfanga á leiðinni tú allsnægta
þjóðfélags kommúnismans“?
OKKAR A MILLI SAGT
Höfundur í blaðinu Reykjanes, sem kallar sig „Geir-
íuglinn“, skrifar iun eyðslu barna: „Það mun vægt í far-
ið, að flest hörnin eyði sem svarar 10—15 kr. á dag eða
um 360 kr. á mánuði. Þetta eru aðeins kaupin, meðan ver-
ið er í skólanum. Svo koma bíóin og sælgætiskaup áðra
tíma vikunnar!! . . . Hver ©r reynsla ykkar, lesendur góð-
ir? Hvað á að gera? . . . Geirfuglinn vill láta börnin fá
fasta vasapeninga vikulega og nefnir 10 krónur.
IÐNAÍÐUR: Meðaj! vejigaii^ikilla framkviæmda í iðnaði.
sem feru framundan, má nefna byggmgu á pökkunarstöð fyrir
sement í Reykjavík, en það er 10—12 milljóna fyrirtæki . .
Þá hefur Áburðarverksmiðjan á prjónunum áætlanir um stór-
fellda stækkun til að framleiða margar tegundir blandaðs á-
burðar . . . Þetta er 60 milljóna fyrúrtæki, og mun fullnægja
áburðarþörf bænda, sem þurfa lenn erlendan áburð ,aðrar teg-
undir en Kjarna) fyrir tugi milljóna.
Sælgætisframleiðsla hlýtur að vera arðvænlegur at-
vinnuvegxir hér á landi því nýlega hafa þrjár nýjar verk-
srniðjur tekið til starfa á þv£ sviði . . . Þær eru: Aladdín
h.f. í Kópavog; (Frkvstj. Friðþjófur Þorsteinsson, Foss-
vogsbletti 42), Sælgætisgerðin Nanna (Frkvstj. Sig. Krist
ófer Sigþórsson, Miðtúni 66) og Sælgæt; s. r. (Frkvstj.
Ing. Bjarnason og Gunndór Sigurðsson).
MENN SPYRJÁ: Hvenætr verða kosningarnar? . . . Senni-
legt er að fyrri kosningar (ef þær verða tvennar) vierði á sama
tíma og venjulega í lok júní . . . Þegar tvíkosið var 1942 voru
kosningarnar 5. júlí og 18—19. október.
NÝIR LÆKNAR: Tveir ungir menn hafa fenigið leyfis-
bréf til læknúnga hjá heilbrigðismálaráðu'neytinu: Einar Páls-
son og Heimir Bjarnason.
Austur-þýzka alþýðulýðveldið, sem er miðstöð fyrir
njósnir og áróður kommúnista í Vestur-Evrópu, sýnir ís-
landi vaxandi áhuga . . . Ein miðstöð þessa starfs er Nord-
isches Institut í Greifsvald, sem Magnús Kjartansson og
Magnús Torfi Ólafsson heimsóttu £ fyrra . . . Margir Aust-
Þjóðverjar hafa komið hingað til lands undanfarið og eru
ekki allir það, sem þeir segjast vera.
Örn Johnson, forstjóri Flugfélags íslands, er nú vestan
hafs að reyna að fá hagstæðari igreiðslufresti á lánum vegna
Vicsountkaupanna, sem leru félaginu allþung í skautti.
Nýr fulltrúi við danska sendiráðið: Jens Vilhelm Ege
kemur í stað Gunnars Blær . . . Nýr ritari við bandaríska
sendiráðið: Pierson M. Hall.
Unnið er af kappi við Fæðingarheimili Reykjavíkurbæjar
við Leifsgötu . . . Yfirljósmóðir verður Hulda Jensdóttir og
| matráðskona Sigrún Arnórsdóttir.
LANDGRÆSLUSJÓÐUR hefur sótt um lóð og hyggst
byggja yfir sig hús . . . Værj ekki ágætt rúm fyrir sjóðinn í
hinu stóra bændahúsi við Hagatorg?
um
Moskvu síðar í þessum mánuði.
Macmillan er fyrsti forsætis-
ráðherra Englands, sem fer til
Sovétríkjanna á friðartímum.
Kveður hann för sína gerða í
þeim tilgangi að kynnast Rúss-
um heima fyrir, menningu
þeirra og siðum. Hefur hann
lagt áherzlu á, að engir samn-
ingar verði gerðir í förinni,
þótt albióðamál verði að sjálf-
sögðu rædd.
Talið er að Maemillan heim-
sæki ýmsar borgir auk Moskvu,
ef til v'll Leningrad, Kiev og
Tiflis. í fvledarliði ráðherrans
verða um 30 manns, þeirra á
meðal Selwyn Lloyd utanrík-
isráðherra.
rætt um
GRIHAKÁttMÁLA.
Stiórnmálafréttaritarar eru
þeirrar skoðunar, að Krústjov,
forsætisráðherra Sovétríkjanna
muni leggja til við Macmillan,
Bretland og Sóvétríkin geri
með sér ekki-árásarsamning
eða jafnvei að hann endurtaki
• fyrri tilboð sín um griðasátt-
mála Atlantshafsbandalags-
ríkjanna op? beirra landa, sem
eru í Varsjárbandalaginu.
Helztu viðræðuefni ráðherr-
anna verður án efa Þýzkaland
og Berlínardeilan og er ekki
útilokað, að þeir finni grund-
völl fyrir friðsamlegri lausn
þeirra mála. sem flestir aðilar
geti við unað.
För Macmillans verður til
umræðu í neðri deild brezka
þingsins n. k. miðvikudag og er
búizt við að Verkamannaflokks
þingmenn muni leggja fram til
lögur um lausn Þýzkalands-
málsins. Talið er, að þær verði
sem hér segír:
1. Erlent herlið verði smám
saman flutt á brott frá báðum
h1utum Þýzkalands, Póllandi,
Tékkóslóvakíu og Ungverja-
landi.
2. Þýzkaland verði sameinað.
3. Ströngu eftirliti með víg-
búnaði í þessum löndum kom-
ið á.
4. Landamæri fyrrgreindra
i ríkja fastákveðin og fjórveldin
taki ábyrgð á þeim.
5. Fyrrgreind lönd gangi úr
Atlantshafsbandalaginu og Var
sjárbandalaginu.
usafregnir
s
MÁLFUNDUR f.u.j. íi
Reykjavík er annað kvöld, |
mánudag, kl. 8,30 stund-|
víslega í Aðalstræti 12, |
minni salnum. Fundarefni: |
Eftir liverju skal meta,|
hvað menn eiga að bera|
úr býtum fyrir vinnu sína? |
Framsögumaður; Eyjólfur|
Sigurðsson. — Hafið sam-1
band við skrifstofuna á|
morgun, sími 1-67-24. I
s
FUJ-félagar í Reykjavík|
eru beðnir að koma á skrif §
stofuna í dag, helzt strax |
eftir hádegið, til að vinna |
smátíma. Margar hendur |
* vinna létt verk!
* 5
S 5
iiiMimmiHiiiiiiiiiiiiiMiiiiiinHHiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiii
KVISAZT hefur, að Jóhann
Þ. Jósefsson, þingmaður Vest-
mannaeyja, muni ekki fara í
framboð þar að vori fyrir Sjálf
stæðisflokkinn. — Hinn nýi
kandidat er sagður vera Guð.
laugur Gíslason, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum. Auk Guð-
laugs hefur Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri helzt verið
nefndur sem eftirmaður Jó-
hanns.
Þá er sagt, að Páll Zóphoní.
asson, 1. þingmaður Norðmýl-
inga, muni nú hætta þing-
mennsku fyrir aldurs sakir
eins og Jóhann Þ. Jósefsson
— Talið er víst, að Halldór Ás
grímsson, 2. þingmaður Norð.
mýlinga taki þá framboðssæti
Páls, en í sæti Halldórs fari
Hjalti sonur Páls cða Tómas
Árnason.
Þá er orðsveimur um, að
Bernharð Stefánsson hætti í
vor, en óvíst um efirmianninn.
Eru tveir nefndir helzt til: —
Garðar Halldórsson bóndi á
Rifkelsstöðum, heimamaður í
héraði, og Jóhannese Elíasson,
bankastjóri, Reykjavík. Enn
er Jón Jónsson frá Böggvis-
stöðum tilnefndur, en talið, að
hann muni lítt fús til fram-
boðs.
Úr Austur-Húnavanssýslu
er helzt að heyra, að þar muni
hildi há að ný, sem oft áður,
Jón Pálmason os- Hannes
Pálsson.
f Skagafirði er enn óvíst
liver ofar verður á lista Fram
sóknarflokksins, Ólafur Jó-
hannesson, prófessor, eða
Kristján Karlsson, skólastjóri.
SennUega þó Ólafur.
Haldið er, að Gunnar Gísla
son muni leysa Jón á Reyni-
stað af hóliwi á lista Sjálfstæð
isflokksins.
Ekki er ólíklegt, að Pétur
Ottesen verði enn í framboði
í Borgarfirði, ekki sízt ef fyrri
kosningar verða hinar síðusta
í kjördæminu. Meðal þcirra,
sem hafa haft augastað á
sæti Péturs er nafni hans
Benediktsson bankastjóri. —
Hver veit nema hann fái sæti
á lista með tengdaföður sínum
Ólafi Thors í Reykjavíkurum.
dæmi í seinni kosningunum?
um áfanga náð
I læknavísindum
Frönsbum læknum fókst að lækna
krabhamein af völdum gelslunar
París, 14. febrúar (Reuter).
FJÓRIR júgóslavneskir vís-
indamenn, sem fluttir voru til
Parísar í október síðastliðnum
vegna geislunar eru nú komn-
ir til Júgóslavíu og eru á góð-
um batavegi.
Sex jiúgóslavneskir vís
indamenn urðu fyrir
hættulega mikilli geislun af
völdum gammageisla í kjarn-
orkustöð nálægt Belgrad, og
varð lífi þeirra ekki bjargað
nema með því móti einu að
hægt væri að skipta um merg
í beinum þeirra. Læknar á Cu-
rie-stofnuninni í París ákváðu
að reyna þessa aðgerð og tókst
hún vel. Er það í fyrsta skipti,
sem mergur hefur verið flutt-
ur úr lifandi manni í angtan
mann. Blóðframleiðsla í mprg
vísindamannanna er nú eðljjeg
og eru þeir orðnir allhressir.
Fimmti maðurinn, sem fyrir
geislun varð, þurfti ekki að fá
merg og er hann alheill, en ein-
um varð ekki bjargað.
Frökkunum, sem gáfu vís-
indamönnunum merg hefur ver
ið boðið til Júgóslavíu ásamt
fjölskyldum sínum til skemmti
dvalar.
Þetta afrek hinna frönsku
lækna er tvímælalaust eitt
mei'kasta afrek læknavísind-
anna á síðari árum.
Alþýðublaðið — 15. febr. 1959