Morgunblaðið - 01.06.1991, Page 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
Hefmikla trú áframtíð
Borgarkringlunnar
- segir Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður
Morgunblaðið/Þorkell
Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Borgarkringlunnar, fylgist með framkvæmdum í verslun-
armiðstöðinni ásamt arkítektum hússins, þeim Halidóri Guðmundssyni og Bjarna Snæbjörnssyni.
VÍGLUNDUR Þorsteinsson,
stjórnarformaður Borgarkringl-
unnar, segist sannfærður um að
þessi verslunarmiðstöð eigi
mikla framtíð fyrir sér. Stað-
setning hennar sé góð, húsnæðið
aðlaðandi og vöruúrval gott. Su
þróun eigi sér hvarvetna stað,
að verslun færist í verslunarmið-
stöðvar af þessu tagi og þangað
komi fólk ekki eingöngu til að
versla, heldur Iíka til að sýna sig
og sjá aðra. Hann segist líka eiga
von á að hægfara bati í efna-
hagslífinu og þróun í frjálsræði-
sátt í Evrópu muni styrkja versl-
un hér innanlands á næstunni.
í Borgarkringlunni eru tvær
verslunarhæðir, samtals um 6.700
fermetrar að stærð. Undir þeim er
bílakjallari, sem að hluta til er á
tveimur hæðum. Hann er liðlega
8.500 fermetrar að flatarmáli og
er þar gert ráð fyrir tæplega 300
bílastæðum. Utanhúss er hins veg-
ar geit ráð fyrir rúmlega 50 stæð-
um. í norðurturni hússins eru 7
skrifstofuhæðir og 3 í suðurturni
og eru þær samtals um 2.700 fer-
metrar, þannig að húsið í heild er
á átjánda þúsund fermetra að
stærð.
Meðal stærri hluthafa í Borgar-
kringlunni eru steypustöðin B.M.
Vallá, ísafoldarprentsmiðja, Leó
Löve, lögfræðingur, Gunnar Guð-
mundsson, lögfræðingur, Verk-
fræðistofa Stefáns Ólafssonar,
Blikk og stál, BYKO, Byrgi hf.
Gunnar Geirsson bóndi á Vallá,
Jónas Sveinsson, viðskiptafræðing-
ur, Demantahúsið í Hafnarfirði,
Teiknistofan í Ármúla, Lífeyris-
sjóður lækna, Magnús og
Steingrímur, byggingaverktakar,
Raf-Ex hf., Álstoð hf. og Arnardal-
ur sf.
Stjórnarformaður Borgarkringl-
unnar er Víglundur Þorsteinsson,
forstjóri hjá B.M. Vallá. í samtali
við hann koma fram þær upplýsing-
ar, að arkítektar hússins séu
Teiknistofan við Ármúla, aðallega
þeir Halldór Guðmundsson og'
Bjarni Snæbjömsson, en norður-
hluti hússins, Kringlan 6, hafí hins
vegar upphaflega verið teiknaður
af Kristni Ragnarssyni. Endur-
skipulagning hafi fyrst og fremst
verið í höndum Halldórs Guð-
mundssonar en aðalráðgjafi hans
hafi verið Bjöm Ólafs, arkítekt í
París. Enn fremur hafi Kristinn
Ragnarsson veitt ráðgjöf varðandi
Kringluna 6. Verkfræðistofa Stef-
áns Olafssonar hafi séð um verk-
fræðilega hönnun, Rafn Jensson
hafi séð um hönnun loftræstikerfa
og Stýritækni séð um hönnun raf-
kerfís hússins.
Heildarfjárfesting 1,5
miiyarður króna
Víglundur Þorsteinsson segir að
heildarfjárfesting í húsinu sé upp
á 1,5 milljarð króna. Þar af sé fjár-
festing Borgarkringlunnar um 1,2
milljarður en gert sé ráð fyrir að
tjárfesting leigutaka verði um 300
milljónir króna.
Hann segir að búið sé að ganga
frá útleigu nánast alls þess rýmis
á verslunarhæðunum, sem leigja
eigi út. Eina undantekningin sé lítil
eining, sem ætlunin sé að fari und-
ir veitingastarfsemi. Jafnframt sé
búið að leigja út nánast allt það
skrifstofuhúsnæði sem sé til út-
leigu, en ætlunin sé að selja nokk-
urn hluta þess. Það verði boðið til
sölu á næstunni.
í máli hans kemur fram, að allir
leigusamningar í húsinu feli í sér
forkaupsrétt leigutaka á því hús-
næði sem þeir hafi til leigu, en
langtímamarkmið fyrirtækisins sé
að selja stóran hluta hússins.
Borgarkringlan stofnuð 1989
Að sögn Víglundar var Borgar-
kringlan hf. stofnuð í árslok árið
1989. Þá hafi ýmsir; efnissalar,
hönnuðir og byggingarmeistarar
gengið til liðs við þá aðila, sem
hefðu hafið framkvæmdir við bygg-
ingu húsanna að Kringlunni 4 og
6 árið 1987. Þá hafi verið farið að
huga að endurhönnun húsnæðisins
og endurfjármögnun framkvæmda.
Vinna við teikningar vegna breyt-
inganna hafi hafist snemma sum-
ars 1990 og framkvæmdir fljótlega
í kjölfar þess.
Um 1% af verslunarrými á
höfuðborgarsvæðinu
Víglundur Þorsteinsson segir
aðspurður, að hann telji alls ekki
hættu á að með opnun Borgar-
kringlunnar sé verið að bera í
bakkafullan lækinn varðandi versl-
unarhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu. Borgarkringlan verði um það
bil 1% verslunarrýmis á svæðinu
og svari stærð hennar til um helm-
ings þess versiunarrýmis, sem úr-
eldist þar á hveiju ári.
Hann segist vera afar bjartsýnn
á framtíð Borgarkringlunnar, enda
eigi sú þróun sér hvarvetna stað,
að verslun færist í verslunarmið-
stöðvar af þessu tagi. „Það er líka
að byija hægfara uppsveifia í þjóð-
félaginu og í kjölfar þess að kaup-
máttur styrkist mun verslunin
vaxa. Ég er líka sannfærður um
að sú þróun, sem nú á sér stað í
Evrópu, muni hafa þau áhrif, að
verslun íslendinga færist í meira
mæli heim. íslenskir ferðamenn
hafa verslað mikið erlendis en nú
verður meðal annars sú breyting
að fríhafnarverslunin hverfur og
það mun hafa í för með sér aukn-
ingu hér á landi. Ég er þess vegna
viss um það eru fyrir hendi miklir
möguleikar á að auka verslun í
landinu," segir Víglundur Þor-
steinsson.
Ný heimilis - & gjafavöruverslun
og gallerí.
Hringur Jóhannesson
sýnir 17 olíumálverk.
- leggja rækt við listina
BORGARKRINGLAN • KRINGLUNNI 4-6
SÍMI: 67 84 30
BORGARKRINGLAN:
Simpson-fjölskyld-
an á opnunarhátíð
MIKIÐ verður um að
vera á opnunarhátíð
Borgarkringlunnar
um helgina. Opið
verður frá kl. 14 til
18 laugardag og kl.
10-18 sunnudag.
Sjálf opnunin verður
kl. 13.30 á laugardag
og meðal þeirra sem
koma fram er Simp-
son-fjölskyldan
víðfræga. Tilboð,
kynningar og uppá-
komur ýmiskonar
verða báða dagana og verslanirn-
ar að sjálfsögðu opnar.
Dagskráin hefst kl. 13.30 við aust-
urinngang Borgarkringlunnar með
ávarpi Víglundar Þorsteinssonar en
frá 13.10 leikur stórsveit FÍH. Kl.
13.50 verður glerlistaverk Steinunn-
ar Þórarinsdóttur afhjúpað og tíu
mínútum síðar, kl. 14 verða verslan-
ir og veitingastaðir opnaðir, svo og
sýning á verkum Hrings Jóhannes-
sonar í Gallerí Koti. Stóruppákoma
Simpson-íjölskyldunnar verður kl.
14.30, Jóhanna Linnet og Jónas Þór-
ir skemmta frá kl. 15.30 og kl. 16.30
verður sýna Model ’79 föt frá öllum
fataverslunum Borgarkringlunnar.
KI. 17.15 bregða Simpson-ijölskyld-
an og tískusýningarfólk á leik en
verslanir loka kl. 18.
Á sunnudag opna verslanir, veit-
ingarstaðir og þjónustuaðilar ki.10.
Fram til kl. 12 verður morgunstemn-
ing, boðið upp á frítt morgunkaffi
og vínarbrauð, ókeypis innlend og
erlend dagblöð, morguntrimm í
Kringlusporti með sérfræðingum frá
Mætti og kynning á nýjum orku-
drykk frá Sól og hreysti. Á hádegi
verður lifandi tónlist á Kringlukránni
og frá kl. 13 leika Szymon Kuran
og Reynir Jónasson tónlist á veit-
ingastöðum, strætum og torgum.
Stóruppákoma Simpsons verður kl.
13.30, klukkutíma síðar leikur Stór-
sveit FÍH og kl. 15.30 er tískusýning
Model ’79 og barnahóps. Simpson-
fjölskyldan endurtekur uppákomu
sínakl. 16.30 ogkl. 18 loka verslanir.
Báða dagana verður gestagetraun
Borgarkringlunnar, en vinningar eru
að verðmæti 300.000 kr. Blöðrur og
Simpson-kort verða fyrir börnin og
tilboð, kynningar og uppákomur á
öllum vígstöðvum. Veitingastaðurinn
Amma Lú verður opinn kl. 13-16
laugardag og kl.13-17 sunnudag.