Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
B 5
HRINGRÁS
HÚSSINS
Glerlistaverk Steinunnar Þór-
arinsdóttur hannað sérstaklega
fyrir Borgarkringluna
ÞAÐ sem einna mesta at-
hygli vekur þegar komið er
inn í Borgarkringluna, er
stærðarinnar listaverk úr
gleri og járni. Það nefnist
„Upprás“ og er eftir Stein-
unni Þórarinsdóttur mynd-
höggvara. Verkinu hefur
verið valinn staður við stiga
í suðurenda hússins. Formið
er járnhringur sem rís upp
úr gólfinu og á hann eru
festar mannamyndir úr
gleri. „A þeirri hlið sem snýr
að rúllustiganum, vísa fígúr-
urnar upp; fylgja fólki sem
fer upp stigann og á hliðinni
sem snýr að stiganum, vísa
þær niður, eins og leið fólks
liggur. Þær tákna hringrás
hússins“ segir Steinunn um
verk sitt.
Steinunn hefur unnið að
verkinu frá því um áramót, í
samráði við hönnuði hússins.
Hún segir verkefnið hafa verið
ánægjulegt, ekki síst vegna þess
hversu óvanalegt sé að lögð sé
áhersla á list á stöðum á borð
við verslanamiðstöðvar. „Upp-
rás“ sé mikið mannvirki og erf-
itt verkefni, þar sem það megi
ekki skyggja á verslanir í hús-
inu. Því hafi glerið verið valið,
en það sé óvanalegt að verk sem
Steinunn Þórarinsdóttir mynd-
höggvari.
sé úr eins viðkvæmu efni og
gleri, sé haft þar sem umgangur
sé mikill. „Fólk má gjarna
snerta verkið á leið sinni upp
og niður stigana og við erum í
raun að leggja traust okkar á
að verkið verði ekki eyðilagt
þrátt fyrir hversu auðvelt það
er.“
Nýjung á íslandi
fyrir húð og hár
Náttúruleg efni, unnin úr jurtum.
Dagkrem - næturkrem — næringarkrem
fyrir allar húðtegundir.
Sjampó og næring fyrir viðkvæmt hár.
Góð vörn fyrir hárið gegn áhrifum frá sól og salti.
Umboðsaðilar á íslandi.
YLMOLÍUNUDD
Fljótleg og örugg meðferð gegn
appelsínuhúð - þreytu og bólgu í fótum.
Örvar starfsemi líkamans og hjálpar þar
með að losna við aukakílóin.
Snyrtifræðingur og nuddari á staðnum.
Tímapantanir.
Undirfatnaður
í miklu úrvali
Meöal annars frá Knickerbox,
þeirri þekktu, ensku sérverslun.
Borgarkringlunni, sími 686814.
FASTEIGNASALA
- þar sem
kaupin gerast
Höfum opnaö fasteigna- og skipasöluna Kringiuna
að Kringlunni 6, 6. hæð (Borgarkringiunni).
Óskum efti'r öllum tegundum fasteigna og skipa
á söluskrá. Skoðum og verðmetum samdægurs.
Komið og kynnist góðri þjónustu í hjarta
viðskiptalífsins.
Guðmundur Bjöm
Steinþórsson
SOIustjóri tasteigna
LÖGMENN:
HRÓBJARTURJÓNATANSSON
JÓNATAN SVEINSSON
HÆSTARÉITÁRLÖGMENN
Steján Þór
Sveinbjömsson
Sölumaður
Guðbjörgjóna
Jónsdóttir
Ritari
Leifur
Ámason
Löglræðingur - sölumaður