Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991
ENDUR OG HENDUR:
LítU og hugguleg
bamafataverslun
Barnafataverslunin Endur og
hendur hefur verið í Kringlunni
4 frá þvi í desember 1988. Seg-
ir Hulda M. Gunnarsdóttir eig-
andi verslunarinnar það vissu-
Morgunblaðið/KGA
Hulda M. Gunnarsdóttir
lega hafa verið slæmt hversu
langur tími sé iiðinn fra því
verslanamiðstöðin átti að vera
komin i gagnið en hún sé bjart-
sýn núna, þegar opnunin er á
næsta leiti.
„Eg er ekki í nokkrum vafa um
að húsið laði að sér úölda fólks,
þar sem svo vel hefur tekist til
með hönnun þess,“ segir Hulda.
Hún segir verslun í húsinu hafa
verið fremur dauflega fram að síð-
ustu áramótum en þa'var húsinu
lokað vegna breytingana. Þar sem
hún hafi átt fastan hóp viðskipta-
vina, hafi reksturinn bjargast. „Ég
held að þjóðfélagsástandinu hafi
fyrst og fremst verið um að kenna,
það er enginn öfundsverður af því
að standa í verslun í dag.“
Hulda seldur fatnað á börn allt
upp í 12 ára en mun leggja sér-
staka áherslu á ungbarnafatnað.
Vegna breytinganna þarf af raða
upp í verlsuninni á ný en Hulda
segist munu nota innréttingarnar
sem fyrir voru, enda sérhannaðar
fyrir verslunina. Hún verður um
60 fermetrar að stærð „lítil og
hugguleg verlsun," segir Hulda.
BAZAR:
Vísiraðaust-
urlenskum
markaði
„BAZAR þýðir austurlenskt
verslunartorg og það er einmitt
það sem ég verð með hér,“ segir
Abd-Elmeguid Allam, um nýja
verslun sína í Borgarkringlu. í
Bazar býður Allam aðallega upp
á handunna austurlenska vöru,
skartgripi, leðurvöru og silfur.
Vörurnar eru aðallega frá Egypt-
alandi, Tyrklandi og Indlandi en
sjálfur er Abd-Elmeguid Allam
egypskur, Hann hefur búið hérlend-
is í tvö ár. Allam segist ekki munu
starfa í versluninni, heldur verður
ein starfstúlka í henni.
Morgunblaðið/KGA
Abd-Elmeguid Allam í húsnæði
verslunarinnar Bazar.
Nikon
BÚÐIN
BORGARKRIINIGLU,
SÍMI 677266
Morgunblaðiðð/KGA
Systurnar Elín og Margrét Rögnvaldsdætur og Hlín Kristinsdóttir,
eigendur verslun Hjartar Nielsen.
HJÖRTUR NIELSEN:
Opnar með kynningu
á kaffikönnum
EIN elsta gjafavöruverslun í
Reykjavík, Hjörtur Nielsen, opn-
ar verslun í Borgarkringlunni
með kynningu á enskum kaffi-
könnum, Cona. Þær eru sérstak-
ar að því leyti að þær eru úr
gleri og hellt upp á yfir spritt-
loga. Verslunin verður með sömu
vörur og sú sem fyrir er í Mjódd,
m.a. Möttu rósina, sem verslunin
hefur selt frá upphafi. Matta
rósin er munnbiásinn og hand-
skorinn kristall frá Tékkósló-
vaíku.
Verslun Hjartar Nielsen er í eigu
systranna Margrétar og Elínar
Röngvaldsdætra og Hlínar Kristins-
dóttur og verður Elín verslunar-
stjóri í Borgarkringlunni. Að sögn
Margrétar verður boðið upp á sömu
vörutegundir í báðum verslunum
og hönnun verslunarhúsnæðisins
KRINGLUBÓN:
Bíllinn bón-
aður meðan
verslað er
Morgunblaðið/KGA
María og Kolbrún Jónsdætur fyrir framan undirfataverslunina Kar-
Höfum opnab
nýja verslun
í Borgarkringlunni.
Bamafataverslunin Vxlborg
Laugavegi 83, sími 11181
Kringlunni 4, sími 677282
mjög svipuð. „Við erum á svipaðri
línu og hönnuðir þessa húss, leggj-
um áherslu á hlýjan og bjartan svip
yfir versluninni. Okkur líst mjög vel
á Borgarkringluna, þetta er aðal-
verslunarsvæðið, hingað virðist
straumurinn liggja.“
„ÞAÐ ER nú ekki amalegt að
láta bóna bílinn á meðan verslað
er,“ segir Margrét Haraldardótt-
ir, sem ásamt eiginmanni sínum
rekur bónstöðina Kringlubón, í
kjallara Borgarkringlunnar.
Margrét og maður hennar, Jósep
Rúnar Sigtryggsson hafa rekið
Kringlubón frá áramótum en fyrir-
tækið var stofnað nokkru fyrr. Að
sögn Margrétar, eru bílarnir hand-
bónaðir og því tilvalið að skilja þá
eftir þegar farið er að versla, og
sækja þá síðan gljáandi fína að lok-
inni verslunarferð.
Fyrirtækið er á tæplega 60 m2
svæði og er aðkeyrslan að Kringlu-
bóni vestan hússins, við Kringluna.
KAREN:
Nudd á staðnum
ÞAÐ ER næsta óvenjulegt að
boðið sé upp á nudd í verslunum,
en í undirfataversluninni Karen
verður nudd hluti af heilsuhorni
verslunarinnar. Snyrtifræðingur
og nuddari veitir meðferð vegna
appelsínuhúðar, bólgu og þreytu
í fótum og megrunarmeðferð.
Þá verða seldar þar ýmisskonar
heilsuvörur, vitamin, snyrti- og
hárvörur.
Karen er fjölskyldufyrirtæki, í
eigu systranna Kolbrúnar og Maríu
Jónsdætra og Hafrúnar Maríu,
dóttur Kolbrúnar. Hafrún, sem er
nuddari og snyrtifræðingur, hefur
rekið snyrti- og nuddstofu á Hótel
Loftleiðum, en flytur sig nú um set.
Verslunin skiptist í tvennt;
heilsuhorn og þann hluta þar sem
seld eru undirföt og skartgripir.
Að sögn Kolbrúnar Jónsdóttur, sér-
hæfir verslunin sig í undir- og nátt-
fatnaði, frá hinu þekkta fyrirtæki
Knicker-box, en Karen er fyrsta
veslunin utan Bretlands, sem selur
vörur frá Knicker-box. Þá má nefna
frönsku Lejaby-vörurnar.
Karen hefur verið í húsnæðinu
frá upphafi en mun nú taka nokkr-
um breytingum, nuddhornið er
stúkað af með glervegg og verslun-
arpláss minnkað nokkuð. „Við gjör-
nýtum hvern fermetra og stefnum
að því að vera með fallega og hag-
kvæma verslun."
VALBORG:
Ekkiað
flýja
Lauga-
veginn
„Við vildum stækka við okk-
ur og auka vöruúrvalið,“
segir Súsanna Hansen, sem
ásamt eiginmanni sinum
rekur barnafataverslunina
Valborgu. Súsanna segir
ætlunina að auka úrvalið af
ungbarnafatnaði, nátt og
nærfatnaði.
Verslunin Valborg hefur
verið rekin í 35 ár á Laugaveg-
inum og eru Súsanna og mað-
ur hennar Þorgrímur Eiríks-
son eru þriðju eigendurnir,
hafa starfrækt hana sl. tvö
ár. Verslunin verður áfram
starfrækt á Laugavegi. „Við
erum ekki að flýja Laugaveg-
inn, við teljum einfaldlega að
framtíðin sé í Kringlunni. Við
vildum auka vöruúrvalið og
verðum þá að stækka við okk-
ur,“segir Súsanna.