Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JUNI 1991 ^ T&L* ö 1886 I BORGAR- KRINGLUNNI WHITTARD hefur sérhæft sig í sölu úrvalste og kaffi í yfir 100 ár eða al It f rá því að Walter Wittard stofnaði fyrirtæki sitt árið 1886. Viðskiptin blómguðust og 1940 flutti það til Chelsea. Við eigum alltaf birgðir af bestu te og kaff iteg u n d u m sem fram- leiddar eru í heiminum. Hreint teið kemur óblandað frá einstökum f r a m I e i ð e n d u m , ávaxtateið ogjurtateið eru fersk telauf oq blóm. Allt kaffið hiá okkur er nýbrennt og maiað á staðn m. Verslun okkar í Borgarkringlunni hefur á boðstólum allar helstu te og kaf f i t e g u n d í r n a r, p o s t u I í n s m u n i og kaffibúnað 1886 í Borgarkringlunni PLEXIGLAS: Fatnaðurfrá Suður- Evrópu og verslun í stíl LISTMÁLARINN Cheo Cruz hefur verið fenginn til að skreyta fata- verslunina Plexiglas og þegar inn kemur, blasa við rómversk and- lit, súlur og vafningsjurtir á gulleitum fleti. Nancy Gunnarsdóttir, annar eigenda verslunarinnar, segir fatnaðinn aðallega vera frá rómönskum löndum og því hafi þótt við hæfi að skreyta búðina til að undirstrika hvaðan fatnaðurinn sé. Nancy á Plexiglas ásamt systur sinni Helen. Þær hafa rekið verslun- ina við Laugaveg í tvö ár, en munu flytja sig upp í Borgarkringlu. Þær selja aðallega tískufatnað frá spænska fyrirtækinu Plexiglas en einnig fatnað frá Frakklandi og ít- alíu og fylgihluti á borð við eyrna- lokka, sólgleraugu o.þ.h. „Við vilj- um vera með föt, sem eru frábrugð- in þeim sem eru yfirgnæfandi á markaðnum. Þetta er öðravísi fatn- aður, litir og snið eru frábrugðin og henta okkur íslendingum ágæt- lega,“ segir Nancy. Morgunblaðið/KGA Listmálarinn Cheo Cruz við veggskreytingar sínar í versluninni Plexi- glas. VERSLUNIN TOFRAR: Mikið úrval afbæði dömu- og herrafatnaði VERSLUNIN Töfrar hefur ver- ið starfandi í Bankastræti í tæpt ár en flytur nú í Borgar- kringluna. Benedikta Jónsdótt- ir, eigandi verslunarinnar seg- ir, að þar verði eins og áður mikið úrval af fatnaði fyrir bæði herra og dömur, bæði inn- fluttu og framleiddum hér á landi. Benedikta segir að meðal þeirra vörutegunda, sem boðið sé upp á í Töfrum, séu vaxbornir frakkar frá írska fyrirtækinu Fermoy. Þeir séu fáanlegir bæði síðir og stuttir og líka sérstaklega sniðnir fyrir hestamenn. Þá séu þarna vörur frá þýska fyrirtækinu Tom Taylor, fyrirtækinu Mex, galla- fatnaður frá Lee Cooper og kven- fatnaður frá tiltölulega nýju sænsku fyrirtæki, sem sé fram- leiddur undir merkinu X-it. Þar sé um að ræða sérlega vandaða vöru, sem jafnframt sé í takt við tískuna. Benedikta segir að samhliða þessu, sé boðið upp á íslensk föt í búðinni. Þau séu saumuð af einkaaðilum sérstaklega fyrir verslunina og séu öll merkt „Made in Iceland". Morgunblaðið/KGA Benedikta Jónsdóttir í nýju húsnæði verslunarinnar Töfra í Borgarkringlunni. Meira en þú geturímyndaó þér!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.