Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 4

Morgunblaðið - 01.06.1991, Side 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 Tvö hús í eitt Hlýlegt andrúmsloft var aðalmarkmið hönnuða Borgarkringlunnar þegar þeir settust niður til að hanna verslunarmiðstöð úr tveiinur húsum, sem voru upphaflega aðskilin og teiknuð af sitt hvorum arkitektinum. Oðru var ætlað hlutverk kvikmynda- og verslunar- húss, hitt átti að hýsa prentsmiðju, verslanir og skrifstofur. En þær áætlanir breyttust og í febrúar 1990 var hafist handa við að breyta húsnæðinu í verslunarmiðstöð. Olíkum listgreinum var tvinnað sam- an; textíl, glerlist, grafískri hönnun og arkitektúr og reynt að ná fram samstæðri en jafnframt sérstæðri heild. Arkitekt Borgarkringlunnar er Halldór Guðmundsson hjá Teikni- stofunni í Ármúla. Samstarfsmaður Halldórs er Bjarni Snæbjörnsson arkitekt. Halldór teiknaði jafnframt Kringluna 4 en Kristinn Ragnarsson hannaði Kringluna 6. Húsin voru samliggjandi og voru breytingar því nær eingöngu innanhúss. Þær fólust aðallega í því að samræma bygging- arnar tvær, opna meira á rnilli hæða þar sem lofthæðin er fremur lítil og fjölga bílastæðum. Prentsmiðju í kjalllara var brejdt í tveggja hæða bílastæðahús. „Við vildum fá reynda menn með okkur í hönnunina og þar sem Frakkar standa mjög framarlega í hönnunm verslunarmiðstöðva, afréðum við að leita þangað. Þar var okkur bent á Björn Ólafsson arki- tekt, sem hefur starfað í París í rúm 20 ár,“ segir Halldór Guðmundsson, arkitekt hússins. Hann hafði sam- band við Björn og fékk hjá honum fjölda ábendinga og tillagna. „Það liggur heilmikil sálfræði bak við hönnun svona verslunarmiðstöðvar og taka þarf tillit til óteljandi þátta. Uppbygging hússins verður að vera einföld og fólk á að hafa góða yfir- sýn yfir það nánast hvar sem það stendur. Þá skiptir máli hvernig verslanir eru í húsinu og hvernig þeim er raðað. Við reyndum að setja þær verslanir saman sem eru með svipaða vöru og þær verslanir sem hafa mest aðdráttarafl á „erfiðustu" staðina. Og síðast en ekki síst, vild- um við reyna að skapa hlýlegt and- rúmsloft innandyra. Húsið er að mörgu leyti andstæða Kringlunnar, enda nauðsynlegt vegna nálægðarinnar. Gólf í sameign er allt úr viði til að draga úr hávaða og skapa hlýlegt andrúmsloft, svo og gulir veggirnir. Þar sem kaffihús eru staðsett í húsinu, reynum við að ná fram kaffihúsastemningu með setbekkjum, söluvögnum og fleiru. Viðarsúlur skapa rómantískt and- rúmsloft og glerlistaverk, sem Stein- unn Þórarinsdóttir vann fyrir húsið, setur mikinn svip á umhverfið. Þá var haft samband við Helgu Björn- son tískuhönnuð hjá Louis Ferraud í París og hún beðin um að hanna skreytingar í húsið, m.a. flögg, sem svo verður hægt að skipta út ef menn vilja t.d ná fram árstíðabund- inni stemningu. Hannaðir voru nýjir inngangar þar sem merki hússins verður komið fyrir og markmiðið er að sjálfsögðu að fólk veiti húsinu athygli. En það sem skiptir höfuð- máli eru verslanirnar og þess hefur verið gætt að yfirkeyra þær ekki.“ Aðspurður segir Halldór að ekki hafi verið hannað samkvæmt ákveðnum byggingarstíl, heldur blandað saman hinu og þessu. „Heildarmynd hússins er mjög sterk og óvenjulega mikil samræming í henni. Elísabet Cochran hannar t.d. skilti fyrir allar verslanirnar, allar merkingar innanhúss, að ógleymdu merki Borgarkringlunnar." Hvers vegna nafnið Borgarkringl- an? „Það kom vissulega til álita að efna til samkeppni um nafnið á nýju verslanamiðstöðinni en til þess kom þó ekki. Ástæðan var sú að mönnum datt þetta heiti snemma í hug og það varð okkur og verslunareigend- um fljótlega tamt.“ Næst að ljúka verkinu fyrir laug- ardag? „Jú, íslenska aðferðin. lýsir Sér í því að ekki er hægt að setja neinn kraft í verkið fyrr en búið er að njörva niður dagsetningu. En þetta næst.“ Morgunblaðið/KGA Halldór Guðmundsson, arkitekt Borgarkringlunnar með hluta úr glerlistaverki Steinunnar Þórarinsdótt- ur í baksýn. BREYTINGAR ^Blóm (3° Jíistmumr I BORGARKRINGLUNNI (v/BORGARLEIKHÚSIÐ) S(MI 687075 OPIÐ KVÖLO OG HELGAR t Morgunblaðið/Bjarni Sólin - tákn um hlýleika og mýkt Elísabet Cochran hjá AUK hefur umsjón með grafískri hönnun Borgarkringlunnar. Merki hússins, sólina sem sést fremst á myndinni, hannaði Elísabet með aðalþema hússins í huga; hlýleika og mýkt. Sólin verður á turnum við austur- og vesturinn- ganga, um 4,60 metrar í þvermál. Elísabet hefur einnig hannað allar merkingar innanhúss, í bíla- geymslur og sameign. Skilti í sameign verða með íslenskum texta og enskum fyrir útlendinga og fyr- ir utan hvetja verslun verður tákn um þá vöru sem seld er innandyra. „Það auðveldar fólki að finna þær verslanir sem það leitar að og að fá yfirsýn yfir þær, auk þess sem skiltin gefa húsinu skemmtilegan heildarsvip" segir Elísabet.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.