Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1991 KÚNIGÚND: Dönsk gjafavara í gjafavöruversluninni Kúní- gúnd verður lögð megináhersla á vörur frá danska fyrirtækinu Roy- al Kopenhagen, en það er sam- steypa nokkurra þekktust gjafa- vöruframleiðenda Dana, Að sögn Sigurveigar Lúðvíksdóttur annars eiganda verslunarinnar, er hún einskonar útibú frá Kúnígúnd á Skólavörðustíg. „Við verðum með ýmiskonar gjafa- og nytjavöru, m.a. borðbúnað frá Royal, glervöru frá Holmengaard og stálvöru frá Georg Jensen, með áherslu á að klukkur, úr og skart- gripi, en það höfum við ekki áður verið með.“ segir Sigurveig. Aðspurð hvort ekki fari dauflegur tími í hönd fyrir gjafavöruverslun, segir hún svo ekki vera, þar sem mikið sé um gift- ingar á sumrin og í Kúnígúnd sé að fá gjafavöru við allra hæfi. Og að sjálfsögðu sé hægt að skipta þeirri vöru sem keypt er, á hvorum staðn- um sem er. Morgunblaðið/KGA Sigurveig Lúðvíksdóttir í Kúní- gúnd. Morgunblaðið/KGA Hjördís Agústsdóttir, eigandi Rodier-búðarinnar, segist afar ánægð með opnun Borgarkringlunnar, en verslun hennar flutti þar inn fyrir rúmum tveimur árum. RODIER-BÚÐIN: Búin að bíða eftir opnun Borgarkríngl- unnar í tvö ár RODIER-búðin hefur verið í Borgarkringlunni frá því vorið 1989 og segir Hjördis Agústsdóttir, eigandi hennar, að hún sé búin að bíða Iengi eftir að verslunarmiðstöðin opnaði, enda hafi það staðið til frá upphafi. Hjördís segir að í versiuninni sé fyrst og fremst boðið upp á vörur fyrir konur frá Rodier. Þetta sé þekkt merki um allan heim og verslunin hér eigj sér stóran og góðan kúnnahóp. Hjördís segir að sér lítist afar vel á opnun Borgarkringlunnar. Rodier-búðin hafí verið þarna allt frá því vorið 1989 og hún væri búin að bíða lengi eftir opn- uninni. „Mér líst líka vel á hönn- unina hér í húsinu, aðkoman er hlýleg og mér sýnist verslanirnar hér skemmtilegar," segir hún. GLERAU GNASMIÐ J AN: Verslunin verður björt og nýtískuleg „GLERAUGNASMIÐJAN í Borgarkringlunni verður björt og nýtísku- leg,“ segir Höskuldur Einarsson, verslunarstjóri. „Það leggst vel í okkur að opna verslunina hér, enda erum við bjartsýnir á að Borgar- kringlan eigi eftir að ná miklum Höskuldur segir að í Gleraugna- smiðjunni verði boðið upp á alla hefðbundna gleraugnaþjónustu. Þar verði líka mikið úrval sólgler- augna, auk margra tegunda af stækkunarglerjum, smásjám og sjónaukum. Höskuldur rekur verslunina í samstarfi við Austurríkismennina vinsældum." Helmut Kreidler og Stephan Marc- us. Hann segir að þeir séu bjartsýn- ir á að Borgarkringlan eigi eftir að éiga mikla framtíð fyrir sér. Þar séu margar sterkar verslanir, auk þess sem yfirbyggðar verslunarmið- stöðvar af þessu tagi henti íslensk- um aðstæðum mjög vel. Morgunblaðið/KGA Höskuldur Einarsson hefur undanfarna daga verið önnum kafinn við að ganga frá húsnæði Gleraugnasmiðjunnar. Morgunblaðið/Bjarni Ágúst Líndal og Valtýr Helgi Diego viö dyrnar að Blazer. BLAZER: Vönduð fotfyrir unga menn INN af voldugri gylltri dyraumgjörðinni tekur við þungur grænn litur og hlýleg innrétting. Fyrirmynd herrafataverslunarinnar Blaz- er eru frönsku verslanimar Old River, en fatnaður frá þeim verður aðalstolt Blazer. Eigendur Blazer eru Ágúst Línd- al og Valtýr Helgi Diego. Ágúst hefur fram að þessu verið einn af eigendum Hanz í Kringlunni en segist á leið út úr því samstarfi til að stofna Blazer. „Mér líst mjög vel á Borgarkringluna, hún er opin björt og hlýleg,“ segir Ágúst. „Við beinum sjónum okkar aðal- lega að karlmönnum á aldrinum 25-35 ára, sem vilja vera fínir í tauinu. Við verðum með alhliða fatnað, bæði til vinnu og frístunda og við leggjum áherslu á vandaða vöru og góða þjónustu. Old River- vörurnar eru frá stærsta og vinsæl- asta karlmannafataframleiðanda Frakklands og því er sérstaklega spennandi að geta boðið upp áþær.“ NIKON-BÚÐIN: Allt sem viðkemur Ijósmyndun NIKON-búðin, sem opnar nú í Borgarkringlunni, tengist einni af elstu verslununum með ljós- myndavörur í borginni, Týli. I Nikon-búðinni verður boðið upp á mikið úrval af öllu því sem viðkemur ljósmyndun og er stefnt að því að hægt verði að bjóða gott úrval af vörum frá hinu kunna fyrirtæki Nik- on. Áslaug Cassata, eigandi Nikon- búðarinnar, segir að þar verði boðið upp á allar ljósmyndavörur og markmiðið sé, að reyna að hafa á boðstólum gott úrval af vörum frá Nikon. Auk hinna al- mennu ljósmyndavara verði tölu- vert úrval af öðrum vörum, svo sem sérlega góðum sjónaukum. Áslaug segist ánægð með Borgarkringluna. Hún komi til með að líta vel út og þar verði margar góðar verslanir. Ánægju- legt sé hversu fjölbreytnin sé mik- il þar; þarna séu ekki eingöngu fataverslanir. Morgunblaðið/Bjami Iðnaðarmenn eru hér í óða önn við að ganga frá innréttingum í Nikon-búðinni. Fremst á myndinni eru þeir Sighvatur Cassata, starfsmaður i versluninni og sonur hans Erlendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.