Morgunblaðið - 12.06.1991, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.06.1991, Blaðsíða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ MlÐVlKUDAGÚIl 12. JUNÍ 1991 _í___:___________:__2____- ~ •_1_;__:_:__ Fíkniefnadeild lögreglunnar: Þrír menn viðriðnir eitt af stærri hass- málum hér á landi FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar hefur upplýst eitt af stærri hassmálum sem upp hafa komið hér á landi og er rannsókn málsins að ljúka. Tveir menn, sem viðriðnir voru málið, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald frá 17. maí síðastliðnum til 19. júní næstkomandi, en þeim var sleppt úr haldi síðastliðinn sunnudag og mánudag, þar sem ríkissaksóknari gerði ekki kröfu um lengra gæsluvarðhald. Þeir ætluðu að smygla 10 kg af hassi til landsins frá Hollandi í vélarhlutum en hollenska fíkniefnalögregla fann efnið 3. maí og tók það í sína vörslu. Áætla má að verð á 10 kg af hassi í smásölu hér á landi sé um 15 milljónir kr. Hollenska fíkniefnalögreglan hafði fengið vísbendingu um smyglið og gerði fíkniefnadeild lögreglunnar á íslandi viðvart. Varð það að samkomulagi að efn- ið yrði eftir í Amsterdam í vörslu lögreglunnar en vélarhlutarnir færu til íslands með Laxfossi. Vélarhlutirnir voru merktir íslenskum manni sem átti engan hlut að þessu máli. Vörusendingin fór frá Rotterdam 9. maí og kom til Sundahafnar 13. maí. Fíkni- efnalögreglan í Reykjavík fylgdist með því er maður kom og sótti sendinguna 16. maí og var hann handtekinn þegar hann var að koma vélarhlutunum fyrir í bílskúr við heimili sitt. í framhaldi af því var annar maður handtekinn sem viðriðinn var málið. Mennirnir, sem eru báðir frá Reykjavík, voru strax úrskurðaðir í gæsluvarðhald frá 17. maí til 19. júní. Annar þeirra er fertugur og hinn 45 ára. Við rannsókn kom í ljós að sá yngri hafði farið tvíveg- is áður út til fíkniefnakaupa, fyrst í apríl 1989, þegar hann keypti 3,5 kg af efni í Amsterdam sem hann taldi vera hass. Hann keypti einnig bílhræ sem hann faldi í efn- ið. Bíllinn var fluttur með skipi til landsins og sótti maðurinn efnið í bílinn. Hann sótti bílinn þó aldrei í toll og var hann seldur á upp- boði. Fíknefnalögreglan vissi á þessum tíma að borist hefði ónýtt hass til landsins og hefur nú upp- lýst með framburði vitna að efnið var ónýtt. í október 1990 fór þessi sami maður aftur til Amsterdam í fylgd þrítugs karlmanns. Þar keypti hann 2 kg af hassi og flutti þau flugleiðis til landsins í farangi'i sínum. Sá er var með honum í för dreifði meginhluta þess efnis hér á landi. Einnig kom í ljós að hinn 45 ára gamli maður lánaði hinum fertuga erlendan gjaldeyri sem nægði til að fjármagna kaupin að hluta. í apríl sl. hófu þessir tveir menn, sá fertugi og sá 45 ára, að und- irbúa smygl á hassi í sölu- og hagnaðarskyni frá Amsterdam til íslands. Hlutverk þess eldri var fjármögnun á undirbúningi og kaupum á hassinu en hlutverk þess yngri að dreifa efninu. Þeir höfðu rætt um það við hinn þrítuga, sem átti hlut að hasss- myglinu í október 1990, að hann tæki einnig þátt í dreifmgu efnis- ins, en ekki er ljóst hvort honum hafi verið skýrt frá umfangi smyglsins. Björn Ilalldórsson, yfirmaður fíknefnadeildar lögreglunnar, sagði að 15,5 kg á einn mann, væri með því meira sem komist hefði upp. Hann sagði að þótt efn- ið hefði aldrei komið til landsins breytti það ekki því að brotið væri fullframið erlendis. Enn dræmt í Elliðaánum Það er enn að heita má ördeyða í Elliðaánum, á hádegi í gær höfðu aðeins þrír laxar veiðst í ánum, enginn fyrstu vaktina á mánudaginn, einn á síðdegis- vaktinni og svo tveir til viðbótar í gærmorgun. Allt voru þetta 9 punda hrygnur veiddar á maðk. Gunnar Eydal veiddi fyrsta Iax- inn í Sjávarfossi, en Guðmundur J. Kristjánsson veiddi tvo í gær- morgun í Skáfossum. Aðeins 18 laxar hafa farið um teljarann, en eftir gærmorguninn voru að- eins 16 þeirra eftirlifandi. Eitt- livað er af laxi í ánni neðan telj- ara, en hann vill ekki taka. Vatn er orðið óvenjulítið svona í upp- hafi veiðitíma og hefur sitt að segja þótt sú skýring ein sé langt frá því að vera einhlýt. Þetta er einhver lakasta byrjun í Elliðaán- um í manna minnum. Þess má geta, að laxarnir sem veiddust í Skáfossum í gærmorgun voru báðir merktir og það sem meira var, merkin voru 0001 og 0002! Rólegt á Ásunum Óstaðfestar fregnir herma að milli 20 og 30 laxar hafi veiðst í Laxá á Ásum enn sem komið er og þetta sé „kropp“. Það séu að ganga Örfáir laxar í senn og flestir nýgengnu laxana veiðist jafn óðum. Allt að 16 punda fisk- ar hafa veiðst í ánni.' Rólegheit einnig í Aðaldalnum Það er dræm veiði í Laxá í Aðaldal, í gærmorgun komu að- eins tveir laxar á land, 8 og 11 punda fiskar, báðir fyrir neðan Æðarfossa. Þá voru komnir 15 laxar á land síðan á mánudags- morgun og enn hafi ekki veiðst fiskur ofan Fossa. 19 pundarinn frá mánudagsmorgninum var enn sá stærsti, en þess má geta, að Sigríður Vigfúsdóttir frá Laxamýri hafði veitt sinn Maríu- lax, 13 punda fisk í Háfholu efri. Eitthvað hefur veiðst af silungi, en þykir ekki í frásögur færandi á þessum slóðum. Þannig var einn laxlaus veiðimaðurinn búinn að fá einn 3 punda urriða og 4 punda sjóbirting. ARC 754 MW/FM sterió útvarp með segulbandi, sjálfvirkur stoppari á snældu. Bassa og hátóna stilling. Magnari er 2x10 wött. Stafrænn gluggi sem sýnir bylgjulengd og fleiri upplýsingar. Tengi að framan fyrir CD geislaspilara. ARC 439 MW/FM sterió hágæða útvarp með segulbandi. Spólar sjálft til baka. Sjálfvirkur leitari á bylgju og „skanner“ sem finnur allar rásimar og spilar brot af hverri þeirra. - Stafrænn gluggi er sýnir bæði bylgjulengd og klukku. CMS5 : : S66n ; SCMi ME R€< I % ARC180 Alvöru tæki MW/FM sterió útvarp og segulband. 2x25 wött. Upplýstur stafrænn gluggi. Sjálfvirk spólun á snældu. Tenging fyrir CD geislaspilara. Útgangur fyrir fjóra hátalara með fullkomið steró innbyrgðis. , 9( o9 *ð Musta á góð vers/anir okk9< M Heimilistækí hf SÆTÚNI8 SlMI 691515 ■ KRINGLUNNISÍMI691520 • iSaMUKtfUHV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.