Morgunblaðið - 12.06.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.06.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1991 fclk ( frétfum Rhony Alhel rökræðir lífið og listina við einn gesta sinna. Nanna á tali við opnunargest. LIST # TríumfUi Cterkurog k_/ hagkvæmur auglýsingamiöill! Gróska í myndlistinni VORLINAN MADAM GLÆSIBÆ Það er þó nokkur gróska í mynd- listarlífi landsmanna um þess- ar mundir og um síðustu helgi opn- uðu nokrii myndlistamenn sýning- ar. Meðal þeirra voru Þórdís Alda Sigurðardóttir, Nanna K. Skúla- dóttir og Perúbúinn Rhony Alhal. Verk Þórdísar eru skúlptúrar sem gerðir eru úr járni, oft gömlum hlut- um sem hirtir eru upp úr umhverf- in, og ýmsum öðrum efnum, eins og svampi, flaueli, vatni og fleira. Þetta er þriðja einkasýning Þórdísar og önnur sýningin hennar á þessu ári, en hin var í Ásmundarsali í marsmánuði. Hún hefur auk þess tekið þátt í samsýningum hér heima og í Danmörku. Þrss má geta, að um þessar mundir eru einnig til sýnis fjórir skúlptúrar eftir Þórdísi í húsgagnadeild Pennans í Hallar- múla. Tveir þeirra voru gerðir fyrir verðlaunaraðhús Guðmundar Jóns- sonar arkítekts og sýndir í því í Málmey á síðasta sumri. Nanna K. Skúladótfir sýnir í Ný- listasafninu eins og Þórdís. Nanna sýnir eingöngu höggmyndir unnar í tré, en flestar eru þær unnar á þessu ári. Nanna brautskráðist úr hollenskum listaskóla 1988 og held- ur nú sína fyrstu einkasýningu, en hefur áður tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði heima og í Hol- landi. I Nýhöfn er Perúmaðurinn Rhony Alhel sem er í raun fjölþjóðlegur, því hann á ættir að rekja bæði til Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 Utan á hús Evrópu og Asíu. Síðustu tíu árin hefur hann menntað sig og starfað í Japan, en oft komið til íslands^ Lima og New York á þeim tíma. I Japan hefur hann kynnt sér papp- írsgerð, japanska kaligrafíu og austræna myndlistartækni og bera verk hans keim af því. Hann hefúr haldið einkasýningar víða, t.d. í Lima, Japan, á Puerto Rico og á Kúbu. Um sýningu sína í Nýhöfn segir hann: „Þessi sýning er af- rakstur Islandsheimsóknar. Samr- uni við víðaáttu landsins, áhrif ósn- ertrar náttúru, hins sterka og brot- hætta í tilverunni." Þórdís útskýrir eitt verka sinna fyrir gestum. Morgunblaðið/KEL 33 UT ANRÍKISÞJÓNU ST A Ræðismannsskrif- - stofa opnuð í Jórdaníu ann 16.maí var ræðismanns- skrifstofa íslands í Amman í Jórdaníu opnuð formlega við hátíð- lega athöfn. Ræðismannsskrifstof- an er til húsa í A1 Hamra bygging- unni og myndir frá íslandi prýða skrifstofuna sem er smekklega búin húsmunum. Raad Bin Zeid prins klippti á borða að skrifstof- unni og síðan var íslenski fáninn dreginn að húni á þaki hússins. Raad Bin Zeid prins flutti ávarp og síðan var skálað í kampavíni og gestum boðið upp á íslenskan mat. Meðal gesta voru auk Raad prins, Mirred A1 Raad, prótókol- stjóri utanríkisráðuneytisins, prót- okolstjóri lhiðarinnar, sænski sendiherrann í Jórdaníu, ræðis- menn Norðurlanda, íslendingar búsettir í Jórdaníu og fleiri gestir. Ræðismaður íslands í Jórdaníu Stefanía Reinharðsdóttir Khalifeh er eina konan sem gegnir stöðu sendifulltrúa í Jórdaníu. Hún hafði nokkru áður afhent Taher Masri utanríkisráðherra landsins trúnað- arbréf sitt. Taher Masri, utanríkisráðherra Jórdaníu, tekur við trúnaðar- bréfi ræðismanns íslands, Stef- aníu R. Khalifeh. Frá opnun skrifstofunnar. Raad Bin Zeid prins klippir á borðann en við hlið ííans eru Stefanía R. Khalifch og Najwa, starfsstúlka á skrifstofu ræðismannsins. Laugvetningar 16. ballið verður haldið í Víkingasal Hótels Loftleiða laugardaginn 15. júní. Hljómsveit Ingimars Eydal Húsiðopnað kl. 22.00. Nýstúdentar mæta Nemendasamband ML Aðgöngumiðasala við innganginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.