Morgunblaðið - 12.06.1991, Side 30

Morgunblaðið - 12.06.1991, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1991 t Eiginkona mín, JÓHANNA GUNNARSDÓTTIR JOHNSEN, Hraunhólum 7, Garðabæ, lést í Borgarspítalanum 11. júní. Guðmundur Baidur Jóhannsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓNAS SIGURÐSSON bifvélavirki, Soldotna, Alaska, lést 6. júní 1991. Didí Sigurðsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Stjúpfaðir minn, GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON skipstjóri, Reynimel 45, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík þann 10. þ.m. Fyrir hönd ættingja, ívar Andersen. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN STEFÁNSSON, Norðurbyggð 1C, Akureyri, lést mánudaginn 10. júní. Hildur Jónsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. t Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir, HANSfNA JÓNSDÓTTIR, Kambsvegi 33, Reykjavík, verður jarðsett frá Langholtskirkju föstudaginn 14. júní kl. 10.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkaðir, en þeir, sem vilja minnast hennar, láti líknarfélög njóta þess. Hafsteinn Guðmundsson, Jónína Hafsteinsdóttir, Ármann Einarsson, Guðmundur Hafsteinsson, Þórhildur S. Sigurðardóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Kristin Magnúsardóttir, Gerður H. Hafsteinsdóttir, Runólfur E. Runólfsson. og aðrir vandamenn. + Elskulegur, ÞORLÁKUR EYJÓLFSSON múrari, Hryggjarseli 11, áður Bragagötu 23, sem andaðist 6. júní, verður jarðsunginn frá fimmtudaginn 13. júní kl. 10.30. Fossvogskapellu Aðstandendur. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför, HAFSTEINS HALLDÓRSSONAR, Rituhólum 9. Anna L. Rist, Lena M. Rist. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, JENSINA EGILSDÓTTIR, Strandgötu 19, Hafnarfirði, sem lést 5. júní sL, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 14. júní kl. 13.30. Sigurgeir Gíslason, Sigríður B. Sigurðardóttir, Jensína G. Olivo, Pat Olivo, Guðrún Gisladóttir, Marín G. Neumann, Helmut Neumann, Þórunn Agla G. Goff og fjölskyldur þeirra. Andrea G. Jóns- dóttir — Minning Fædd 29. ágúst 1923 Dáin 4. júní 1991 Nú þegar sumarið er gengið í garð og lífið sýnist brosa við öllum kveðja samt sem áður margir þessa tilveru og leita nýrra heima. Andrea Gíslína Jónsdóttir varð í sumarblíðunni að láta undan síga fyrir einum af þeim sjúkdómum sem lítið ræðst við þrátt fyrir alla við- leitni og tækni læknavísindanna. Hún fæddist á Stokkseyri, komin af alþýðufólki, og sex ára hafði hún misst báða foreldra sína og var því komið í fóstur til vandalausra. Þetta mikla áfall markaði djúp spor í við- kvæma bamssál enda þótt hún léti sjaldan á því bera. Eflaust getur enginn gert sér grein fyrir hiut- skipti einstæðra barna og allra síst í byrjun kreppunnar miklu, nema þeir sem það reyndu. Samt sem áður bjó Andrea við bærilegt atlæti á þessum árum og margir reyndust henni vel. Þeirra minntist hún ávallt með þakklæti. Fljótt eftir fermingu fluttist Adda, eins og hún var alltaf kölluð í daglegu tali, til eldri systur sinnar sem þá var gift á Akureyri og fór þá m.a. í Iðnskólann auk þess að vinna ýmis störf sem til féllu. Á þessum árum kynnist hún verðandi eiginmanni sínum, Sverri Árnasyni járnsmið, og hófu þau búskap af litlum efnum eins og þá,var al- gengt. En með ráðdeild og fyrir- hyggju tókst þeim að eignast hús- næði í Ránargötu 16 á Akureyri. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÓNÍNU HERMANNSDÓTTUR, Ketilsbraut 15, Húsavik, sem lést 1. júní sl. Ragnar Jakobsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Ferjubakka 16, Reykjavík, er lést í St. Jósepsspítala, Hafnarfirði, 9. júní sl., verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júní kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Erna Aradóttir, Sævar Kristbjörnsson, Örn Arason, Hulda Böðvarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GÍSLA BENJAMÍNSSONAR múrara, Logafold 26, Reykjavík. ^érstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Krabbameins- relagsins og deildar 11E, Landspítalanum. Ragnhildur Rósa Eðvaldsdóttir, Eðvald Einar Gíslason, Andrea Gisladóttir, Lára Margrét Gfsladóttir, Dagný Ólafía Gísladóttir, Helga Jenný Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sigrún Jóhannesdóttir, Ólafur Jóhannesson, Halldór Jóhann Guðmundsson, Ragnar T ómasson, Sigurgeir Sigurjónsson, + Sambýlismaður minn og bróðir, SIGURHANS JÓHANNSSON, Garðbraut 15, Garði, sem andaðist á Landspítalanum 5. júni sl., verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju föstudaginn 14. júní kl. 14.00. Lilja Vilhjálmsdóttir, Stefán Jóhannsson. + Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, HRÓLFS KR. SjGURJÓNSSONAR frá ísafirði, Krummahólum 10, Reykjavík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deildar 7A, Borgarspítalans. Njála Guðjónsdóttir, Sigurjón Hrólfsson, Kristjana Jónsdóttir, Erla Hrólfsdóttir, Helgi Jóhannesson, Bára Hrólfsdóttir, Torbjörn Haug, Jóhanna Tómasdóttir, Þorsteinn Laufdal, barnabörn og barnabarnabörn. Börnin komu hvert af öðru og urðu átta talsins. Þau eru: Hörður rafvirki og skíðakennari á Eski- firði, Ingólfur framkvæmdastjóri í Reykjavík, Ámi prentari á sama stað, Ágústa bankastarfsmaður og húsmóðir á Akureyri, Ragnar kaup- maður á sama stað, Ólafur tækni- fræðingur í Mývatnssveit, Gunn- laugur húsasmiður og verslunar- maður á Akureyri og Guðný verka- kona og húsmóðir á Akureyri. Enda þótt elsta sonurinn hafi verið alinn upp hjá föðurforeldrum sínum þá segir sig sjálft að margt handtakið hefur þurft að vinna til þess að koma bamahópnum upp. í því vom þau Andrea og Sverrir sérlega samtaka og hefur oft verið minnst skemmtilegra stunda frá þeim árum. Á heimilinu í Ránargötunni var einnig móðursystir Sverris, Ólína Gunnlaugsdóttir og gegndi hún í raun ömmuhlutverkinu auk þess að veita lið við ýmislegt í heimilishald- inu. En þrátt fyrir glaðværð „Rán- argötuliðsins" eins og fjölskyldan kallar sig oft, þá var lífið í þá daga ekki alltaf dans á rósum. Hveija krónu þurfti að nýta vel og ráð- deild og útsjónarsemi höfð í háveg- um. Ekki voru hjálpartækin á hverju strái eins og nú til dags til þess að létta húsverkin. En þau varð samt að vinna og það var margt handtakið sem Andrea hafði unnið við lok hvers dags, enda mörgu að sinna með stóran barna- hóp. En aldrei er þess getið að hún hafí kvartað. Hennar höfuðeinkenni í gegnum lífið var ávallt létt lund og jákvætt hugarfar. Það var ákaf- lega fjarri henni að láta aðra bera sínar byrðar, hún var alin upp við að leysa sín mál sjálf og æðrast ekki þótt á móti blési. Þessi lyndis- einkunn kom vel fram í hennar erf- iðu sjúkdómslegu undanfarna mán- uði. Ekki var auðvelt að geta sér til um líðan hennar frá degi til dags þar sem hún brosti ávallt til við- mælenda sinna og bað um að hafa ekki áhyggjur af sér enda þótt allir sæju að hún væri sárþjáð. Þannig var Andrea, sífellt að fá alla í kringum sig til þess að horfa á björtu hliðarnar í lífínu og tileinka sér jákvætt hugarfar. Það var það nesti sem hún bjó börnin sín með út í lífið og það var sú amma sem barnabörnin þekktu og virtu svo mikið fyrir. Við andlát Andreu eru afkom- endur hennar og Sverris á fjórða tug talsins og af því má sjá að unga einstæða stúlkan sem hélt frá Stokkseyri um árið norður í land fór ekki erindisleysu. Síðstu árin, eftir að börnin voru flogin úr hreiðr- inu, starfaði Adda hjá fatagerðinni Heklu sem síðar varð Álafoss hf. og vann sér þar strax virðingu og vinsældir. Nú er dagsverkinu lokið og dillandi hlátur Andreu þagnað- ur. Auðvitað vonuðu allir sem þekktu hana að hún gæti loks sest niður á efri árum og notið afrekst- urs erfiðis síns, það átti hún svo sannarlega skilið. En enginn má sköpum renna og ég vil með þessum fátæklegu línum þakka tengdamóð- ur minni fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og mitt fólk og ég- veit að á þessum degi þegar útför hennar fer fram minnast margir hennar á sama hátt. Blessuð sé minning Andreu G. Jónsdóttur og megi fordæmi hennar vera öðrum_til eftirbreytni. Áslaug Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.