Morgunblaðið - 12.06.1991, Side 32

Morgunblaðið - 12.06.1991, Side 32
32 —!— MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Hrúturinn fínnur lausn á vandamáli sem hann hefur glímt við um langt skeið. Hann fer út að skemmta sér í kvöld. Naut (20. apríl - 20. maí) Nautið ætti að huga grand- gæfilega að öllum þáttum máls sem varðar peninga. Það hefur heppnina með sér bæði í starfí og á heimavettvangi. Tviburar (21. maí - 20. júní) 4» Tvíburinn lendir í þrætum við félaga sinn út af fjármálum, en einlægar viðræður greiða úr flækjunni. Kvöldið verður mjög ánægjulegt og ber eitt- hvað óvænt með sér. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Krabbinn á við vandamál að etja í starfi sínu, en er fullfær um að komast fram úr þeim. Fjárhagsstaða hans batnar að mun í dag og gerði hann rétt í því að auka sparnað sinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þær efasemdir sem sækja á ljónið um ástarsamband þess eru ástæðulausar og að þeirri niðurstöðu kemst það í dag. Framundan eru ánægjulegir tímar í hópi vina og vanda- manna. Meyja (23. ágúst - 22. september) Meyjan dregur sig út úr skarkalanum í dag og helgar sig áhugamálum sínum. Hún fær dýpri skiining á einum í fjölskyldunni. (23. sept. - 22. október) Qftí Tafir og breytingar setja svip sinn á daginn hjá voginni. Fé- lagsstarf sem hún tekur þátt í gengur framar vonum og hún fær góðar fréttir úr fjarlægð. Sporódreki (23. okt. — 21. nóvember) Sporðdrekinn verður að sætta sig við aukaútgjöld í dag, en á móti fara tekjur hans vax- andi. I starfi miðar öliu upp á við hjá honum. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Fjárhagsáhyggjum er Iétt af bogmanninum í bili. Einbeit- ingarhæfni hans er góð og hann sinnir erfiðu verkefni. 1 kvöld nýtur hann samveru með sínum nánustu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin ætti ekki að láta j eiginhagsmunahyggju sína bægja nánum vini eða ættingja burt. Hún er út undir sig í fjár- málum núna og getur búist við því að verða heppin. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðk Vandamál sem vatnsberinn á við að kljást vegna náins vinar dregur úr einbeitingu hans í starfi núna. Hann sýnir það þó að það er gott að eiga hann að sem vin þegar á móti blæs. J'iskar (19. febrúar - 20. mars) 'S* Það er ekki ráðlegt fyrir fisk- inn að blanda saman starfi og leik í dag. Góðar fréttir á heimavettvangi gera kvöldið skemmtilegt. Stjörnuspána á að lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI FERDINAND SMÁFÓLK A POUBLE PIP CONE, PLEA5E,WITHTHECHOCOLATE ON TOP ANP THE VANILLA ON THE BOTTOM.. I LIKE THE VANILLA ON THEBOTTOM BECAU5E IT LEAVE5 A BETTER. LINGERIN6 AFTERTA5TE.. THANK VOU..I APPRECIATE THE performance OF AFINECHEF Tvöfalt sósuform, takk, með Mér finnst gott að hafa vanillu súkkulaði efst og vanillu á á botninum, af því að eftir- botninum ... bragðið endist lengur... Þakka þér fyrir, ég kann vel að meta góða þjón- ustu. Þú gerir mig brjálaða! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Hliðarköll koma víða við sögu í vörn hjá reyndum spilurum. Ein staða er þegar makker lyft- ir háspili, á slaginn, og blindur kemur upp með einspil í viðkom- andi lit. Hér er augljóst dæmi: Austur gefur; AV á hættu. Norður ♦ D109863 ¥3 ♦ K76 *K76 Austur li ÍdG98?4 ♦ AD3 ♦ 543 Suður ♦ ÁKG2 V K105 ♦ 542 ♦ ÁD2 Vestur Norður Austur Suður — — 2 hjörtu 2 grönd Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: hjartaás. Eftir veika tveggja opnun austurs sýnir suður 17-19 punkta með innákomunni á 2 gröndum og norður yfirfærir síðan í spaða. Nú er augljóst að vestur þarf að skipta yfir í _ tígul til að hnekkja geiminu. Án hjálpar frá makker er valið á milli láglita- gosanna hrein ágiskun. En í þessari stöðu er augljóslega eng- inn tilgangur í því að spila hjarta áfram, svo að íkast austurs ætti að vera hliðarkall. Hann lætur drottninguna, hátt spil fyrir hærri lit, og vestur er ekki í vafa. Einfalt í þetta sinn, en svo er ekki alitaf í slíkum stöðum. Stundum vill maður nefnilega kalla í útspilslitnum, þrátt fyrir einspil i blindum. Meira um það á morgun. Vestur ♦ 74 VÁ62 ♦ G1098 ♦ G1098 SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Í fyrstu umferð Evrópukeppni skákféiaga um daginn kom þetta endatafl upp í viðureign stórmeist- arans Lembit Oll (2.560), Eist- landi, sem teflir fyrir ungverska félagið Hungaroil-Honved, og Jó- hanns Hjartarsonar (2.535), sem teflir fyrir Bayern Miinchen og hafði svart og átti leik. Hvítur var að enda við að þvinga fram drottningakaup á e6 og hefur líklega talið að hótanirn- ar 43. Hb6 og 43. Hd8 færðu sér fullnægjandi mótspil, en svartur á öflugt svar: 42. — c4!, 43. bxc4 — bxc4, 44. Hb6 (Hvítur mátti auðvitað ekki hirða peðið, — 44. Rxc4? - Bd5) 44. - Bd5, 45. Rbl, og með tvö samstæð frípeð og biskupaparið er svarta staðan unnin, en hér varð Jóhanni á í messunni. Rétt var 45. — Hc2! og eftir t.d. 46. Hb6 — Bf7, 47. Hb8 — c3!, vinnur svartur. í stað- inn lék Johann 45. — Ha8? og eftir 46. Rc3 - Bn, 47. Hbl - Be7, 48. Kfl - Bf6, 49. Bd2 náði Oll að skorða svörtu frípeðin og bjarga sér í jafntefli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.