Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.06.1991, Blaðsíða 13
MQRGUNBLAÐXÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1991 g 43 Reginvaldur er komin um langan veg, alla leið frá Japan. Húsbóndi Reginvalds var drepinn af illmenn- inu Sató og komst hann við illan leik til Bandaríkjanna, nánar tiltek- ið New York. Reginvaldur er góð- um gáfum gæddur og tekur að sér uppeldi hinna ungu og örgeðja skjaldbaka, kennir þeim bardaga- list og innrætir þeim góða siðu. Hann nefnir skjaldbökurnar eftir ítölskum endurreisnarmálurum, Rafael, Donatelló, Michelangeló og Leonardó. En Sató er ekki langt undan, hann hefur tekið sér ból- festu í New York og komið á fót glæpaflokki sem kallast „Fóturinn" og heijar á íbúa borgarinnar. Skjaldbökurnar beijast við Sató og hyski hans og ráða að lokum niður- lögum þeirra. í framhaldsmyndinni „Leyndardómur efnaúrgangsins“ ráða umhverfíssjónarmið ferðinni þar sem skjaldbökurnar snúa sér að þeim sem lét frá sér efnaúrgang- inn sem stökkbreytti þeim í fyrstu myndinni. Leikföng, ritföng og tölvuleikir Það sem ýtir undir æðið er um- fangsmikil markaðssetning, það er hægt að fá bókstaflega allt sem nöfnum tjáir að nefna merkt skjald- bökunum. Undir lok síðasta árs bárust í leikfangaverslanir fyrstu sendingarnar af varningi tengdum skjaldbökunum. Fyrst í stað var heldur dræm sala en hún jókst þó jafnt og þétt er leið á þetta ár. Rannveig Egilsdóttir afgreiðslu- stúlka í leikfangaverslun K. Einars- sonar og Björnssonar segir söluna hafa tekið verulegan kipp í vor, um það leyti sem Stöð 2 hóf sýningar á teiknimyndunum en þær hafa verið sýndar í 10 vikur. Það eru einna helst börn á aldrinum 4-8 ára sem sýna varningnum áhuga og úrvalið er ekki lítið, hjólaskaut- ar, dúkkur, lyklakippur, handjárn, sjónaukar, hús, bílar og þaðan af ókennilegri farartæki, loftbelgir og barmmerki. „Ég man ekki eftir svona miklu æði eins og þessu í kringum skjaldbökurnar og foreldr- arnir ráða minnstu þegar svona æði grípur um sig. En ég sé ekki að þetta sé ljótara eða neikvæðara en önnur leikföng," segir Rannveig. Á ferð um hol- ræsin. Tvær bardagaskjald- bakanna feta sig um drunga- leg og sóðaleg holræsi New York-borgar í kvikmyndinni sem gerð var á síðasta ári. Stökkbreyttar bardaga- skjaldbökur á táningsaldri heilla æskulýðinn upp úr skónum. Sviðsettir bardagar með brauðskorpum, skófl- um, sápukúluboxum og til- heyrandi öskrum og ein- staka ferðum niður í hol- ræsi borgarinnareiga hug barnaallanog eftirsóknin eftir skjaldbökumerktum leik- föngum og ritföngum er mikii í ritfangaverslunum er það sama upp á teningnum. Fá böm vilja fara á mis við strokleður, blýanta, töskur, blokkir og bækur merkt skjaldbökunum. „Þetta hefur auk- ist á nýjan leik, eftir að Stöð 2 hóf að sýna teiknimyndirnar með skjaldbökunum. Hvort æðið endist fram á haust er ómögulegt að segja, mönnum ytra ber engan veg- inn saman um það. Hérlendis er sá hópur sem helst tekur þessar dellur á aldrinum fjögurra til átta ára en erlendis er markhópurinn tíu til fjórtán ára,“ segir Páll Dung- al, verslunarstjóri Pennans í Kringlunni. Sjaldbökuæðið virðist aftur á móti í rénun í heimi tölvu- leikjanna. Bragi Haraldsson hjá tölvudeild Magna segir að í kjölfar- ið á sýningu myndarinnar um bar- dagaskjaldbökurnar hafi fylgt tölvuleikur eins og venja er þegar vinsælar myndir eiga í hlut. Góð aðsókn á mynd þýðir í langflestum tilfellum mikla sölu á tölvuleik um sama efni, óháð gæðum hans. „Skjaldbökuleikurinn var ekkert sérstaklega góður en seldist þó grimmt í kringum jólin. Það voru aðallega fullorðnir sem keyptu leik- inn handa börnum og barnabörn- um, svo það er erfitt að segja til um aldurshópinn," segir Bragi. Skóflur fjarlægðar á leikskólum Á leikskólunum verða fóstrurnar óneitanlega varar við nýjasta æðið. „Margir krakkanna eru uppfullir af þessu," segir Ásdís Gunnarsdótt- ir fóstra á Grænuborg. „Þau þurfa að fá útrás og það er af hinu góða. Þau setja á svið bardaga milH þeirra góðu og vondu og nota það sem tiltækt er, sápukúlubox og litlar skóflur.“ Meðal þeirra úrræða sem blaðamaður heyrði af var að naga brauðsneiðar til eins og vopn skjaldbakanna. „Þetta er allt í góðu og börnin eru vinir á eftir. Hér eru leikfangavopn bönnuð en við vorum með langar skóflur sem þau brugðu fyrir sig í hita leiksins svo við tók- um þær úr umferð. Börnin láta slíkt ekki á sig fá, heldur hugsa upp eitthvað annað. En það er auðvitað hræðilegt þegar þau fínna upp á því að fara ofan í holræsin." blásnum loftbelg, bardagaskjakl- bökurnar fjórar i dúkkulíki beijast við ófreskjur ýmiskonar og ferðast, um á farartækjum, sem í fljótu bragði eiga mest skylt viö bíla og hjól. Að því ioknu hverfa þær til heimkynna sinna, holræsanna, þar sem þær hafa komið sér notalega fyrir. „Þetta eru dýr leíkföng og við höfum gefið drengjunum fæst þeirra en sá yngri átti afmæli fyrir viku og afar, ömmur, frændur og frænk- ur, að ógleymdum öllum félögunum komu færandi hendi með skjald- bökudót," segir Elín. Forveri skjaldbökuæðisins er He- man-æðið í fyrrasumar en Baldvin yppir öxlum þegar á hann er minnst, segir skjalbökurnar allt í senn; sterkari, gáfaðri og liprari. Enda séu flestir krakkarnir i hverfinu með æðið, það er aö segja strákarnir. Stelpurnar láti minna á sér bera en þær geti þó leikiö April, sjónvarps- fréttakonu sem skjaldbökurnar bjarga ýr bráðum háska. Baldvin er vel að sér um bardaga- skjaldbökurnar; „Sko, rottan vissi að skjaldbökurnar yrðu frægar í slagsmálum og þess vegna skírði hún þær eftir frægum málurum," segir hann. „Rafael er snillingur meö hnífa, Leonardó er flinkastur með sverð, Donatelló er heimsmeist- ari í að sveifla priki og Michelang- eló er heimsmeistari ! keðjukasti. Þeir meiða eiginlega aldrei og drepa ekki en eru dálítið hrekkjóttir. Rott- an er mjög gáfuð og segir skjalbök- unum hvernig þær eigi að vera; rólegar og ekki að ráðast á að fyrra bragði, heldur vetja sig og aðra. Og i leiðinni kennir rottan þeim sem eru að horfa að vera rólegir." ! sCífe ARNARSTAPA, SNÆFELLSNESI Skráning hafin í síma 93-56769. Heil vika kr. 19.800,- ein helgi kr. 7.900,- Hringið og fáið nánari upplýsingar. Veríð velkomin Happdrætti BlindratéBagsins 1981 Dregið var 19.júní. Vinningsnúmer eru: 14463 11559 20666 7532 7708 18453 19254 14619 10982 10148 3769 821 8007 20909 20016 4930 15281 13399 20883 6996 12761 19149 23473 9844 Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra, Hamrahlíð 17. Símsvarinn er 38181. Ættarmót niðja SæmundarJónssonarog Guðrúnar Jónsdótturfrá Hringverskoti, Ólafsfirði, verður haldið helgina 29.-30. júní 1991 á Laugabakka í Miðfirði. Frekari upplýsigar eru gefnar í síma 98-21127 Dóra Stína, 91-671889 Helga Magga og 96-62296 Sæmundur. TILBOÐ ÓSKAST íToyota 4 Runner, árgerð '88, (ekinn 34 þús. mílur), Ford Bronco II árgerð '86 og aðrar bifreiðarerverða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 25. júní kl, 12-15. Ennfremur óskast tilboð í A.C. Towing flugvéladráttar- vól árgerð '72. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. . Sala varnarliðseigna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.